Fréttablaðið - 14.09.2015, Síða 19

Fréttablaðið - 14.09.2015, Síða 19
FÓLK| FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir honum svo. Það er eins með ferða- manninn, hann getur áð og þarf ekki endilega að klára nestið, heldur svo áfram á annan stað þar sem kannski er verið að selja tómata og bætir þeim þá í askinn. Ég skoðaði hvað fólk er að gera hér á Íslandi varðandi svæðisbundna matargerð. Þetta snýst ekki bara um ílátið heldur stærri hugmyndafræði og mat beint frá bónda. Ég sé fyrir mér að þetta gæti þróast út í vef eða app þar sem fólk gæti séð hvar næsti staður er þar sem hægt er að kaupa eitthvað beint í askinn.“ Björg teiknaði formið upp og lét prenta askinn út í þrívíddarprentara úr bioplasti. Það er þó ekki lokaútgáfa og þegar fram líða stundir sér hún fyrir sér að reyna önnur efni. „Ég er í viðræðum við handverks- menn um hvort hægt sé að búa til ask- inn úr tré, með nútímatækni en hann er með skrúfgangi svo hægt sé að hafa fljótandi mat í honum þó hann velkist um í bakpoka. Þrívíddarprentunin er frábær tækni til að búa til einn hlut og prufukeyra hugmyndina og hlutinn. Ég sé það samt ekki fyrir mér sem fram- leiðsluaðferð fyrir vöruna. Ég er mikil útivistarkona sjálf og ólst upp við ferða- lög. Ég prufukeyrði askinn í sumar og það tókst vel. Göngumanneskjan, hönn- uðurinn og hugsun um sjálfbæran lífstíl kemur þarna saman. Ég sé í raun engan endapunkt á verkefninu, sé það frekar fyrir mér sem net sem geti stækkað og að fólk geti lagt sitt til málanna og átt samtal um hvernig er að nota askinn í þessum tilgangi,“ segir Björg. „Næst skref er svo að sýna hann og kynna erlendis og halda þróunarvinn- unni áfram.“ n heida@365.is ASKUR Björg segir gamla askinn hafa verið úthugsaðan og hönnun hans fullkomnað notagildið. MYNDIR/BJÖRG VILHJÁLMSDÓTTIR HENTUG HÖNNUN Fólk sat með askinn í kjöltunni þegar það mataðist. Það sama á við um ferða- manninn sem sest niður til að borða nesti. Smiðurinn Örn Hackert fékk nýlega afar pers-ónulegt verkefni þegar hann var beðinn um að smíða ker utan um ösku Elísabetar Sig- rúnar Einarsdóttur, eða Betu eins og hún var alltaf kölluð. Beta var móðir æskuvinar Arnar auk þess sem hún passaði hann sem dreng og vann síðar í Hagaskóla þegar Örn stundaði nám þar. Örn var nýbúinn að frétta andlát hennar þegar dóttir hennar hringdi og bað hann um að smíða ker utan um ösku móður sinnar. „Ég fraus í 10 sekúndur því ég hef aldrei gert neitt slíkt áður. En svo sagði ég auðvitað já enda ekki annað hægt.“ Fjölskylda Betu hafði fylgst með Erni og verkum hans á Facebook og líkað vel við þau verk sem hann sýndi þar. „Ég fékk að ráða verkinu alveg sjálfur. Eina sem ég þurfti að vita var hversu marga lítra kerið þyrfti að taka. Síðan hafði ég viku til stefnu þannig að ég hófst strax handa.“ Kerið er smíðað úr furuborði og Örn notaði franskar skúfur í boxið sem gerðu rammann fal- legri. „Mig langaði að gera þetta í anda hennar og setti því „old school“ mynd af henni á viðinn þegar hún var ung. Síðan bætti ég svörtum krossi við. Þá voru tvær hliðar auðar og þá datt mér í hug að leyfa börnum hennar að skilja eftir eitt- hvað fallegt til móður sinnar. Því var bætt við „Elsku mamma“ og textabroti úr uppá- haldslagi Betu með Bítlunum, „In my life I’ve loved them all“. Kerið er læst með tveimur lásum og fengu börn- in hennar þrjú lyklana til að vera nær móður sinni. Skoða má verk Arnar á Facebook undir Hackert Design. PERSÓNULEG HÖNNUN Eina mesta og persónulegasta áskorun smiðsins Arnar Hackert var að smíða ker utan um ösku móður vinar síns sem hafði passað hann sem barn. Sjáið myndirnar á facebook.com/Parisartizkan Skipholti 29b • S . 551 0770 Glæsilegar haustyfirhafnir komnar! SMÁRALIND AFMÆLISDAGAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.