Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.09.2015, Qupperneq 49

Fréttablaðið - 14.09.2015, Qupperneq 49
Hvað? Hvenær? Hvar? Föstudagur MAZE RUNNER 6, 9 NO ESCAPE 5:45, 8, 10:15 STRAIGHT OUTTA COMPTON 10:20 THE GIFT 8 ABSOLUTELY ANYTHING 6 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI AKUREYRI KEFLAVÍK EGILSHÖLLÁLFABAKKA KNOCK KNOCK KL. 10:30 LOVE & MERCY KL. 8 THE TRANSPORTER REFUELED KL. 10:20 THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 8 VACATION KL. 5:50 INSIDE OUT ÍSLTAL 2D KL. 5:50 KNOCK KNOCK KL. 5:50 - 8 - 10:30 KNOCK KNOCK VIP KL. 5:50 - 8 - 10:20 LOVE & MERCY KL. 8 - 10:30 SELF/LESS KL. 8 - 10:30 THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 5:30 - 8 - 10:30 VACATION KL. 5:50 - 8 - 10:30 SKÓSVEINARNIR ÍSLTAL 2D KL. 5:50 INSIDE OUT ÍSLTAL 2D KL. 5:50 KNOCK KNOCK KL. 5:50 - 8 - 10:20 SELF/LESS KL. 5:30 - 8 - 10:30 THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 5:30 - 8 - 10:30 VACATION KL. 5:50 - 8 MISSION: IMPOSSIBLE KL. 10:20 LOVE & MERCY KL. 5:30 - 8 - 10:30 THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 5:30 - 8 - 10:30 MISSION: IMPOSSIBLE KL. 8 ANT-MAN 2D KL. 10:45 INSIDE OUT ÍSLTAL 2D KL. 5:50 KNOCK KNOCK KL. 8 - 10:10 LOVE & MERCY KL. 8 MAZE RUNNER: SCORCH TRIALS KL. 10:30 NÝJASTA MYND GUY RICHIE LEIKSTJÓRA SNATCH OG SHERLOCK HOLMES  THE TELEGRAPH  HITFIX  TIME OUT LONDON FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR LOOPER SÁLFRÆÐIÞRILLER AF BESTU GERÐ  CINEMABLEND  HITFIX  EMPIRE  VARIETY  NEW YORK TIMES  CHICAGO TRIBUNE  VARIETY  VILLAGE VOICE  WASHINGTON POST  HITFIX  TRI-CITY HERALD Sýningartímar á eMiði.is og miði.is 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m Á N U D A G U r24 m e N N i N G ∙ F r É t t A b L A ð i ð Hljómsveitin Bang Gang efnir til útgáfutónleika í Gamla bíói þann fyrsta október næstkomandi. Útgáfu fjórðu plötu Bang Gang, The Wolves Are Whispering, verður fagnað en platan kom út fyrr á árinu og hefur fengið lofsamlega umfjöllun í erlendum miðlum á borð við Vogue, SPIN, Q Magazine, Rolling Stone og The Huffington Post. „Platan kom út í júní og hún er aðeins dekkri en fyrri plöturnar, maður lumar samt á hressleika inn á milli þó megnið sé mjög myrkvað. Ég er gríðarlega ánægður með plötuna og held að hún muni hljóma frá- bærlega á tónleikum,“ segir Barði Jóhannsson um The Wolves Are Whispering en Bang Gang hefur verið starfandi í núverandi mynd frá árinu 1998. „Tónlistarumhverfið hefur breyst mikið síðan fyrsta platan kom út og veitur eins og Spotify hafa komið sterkar inn. Við höldum tón- leikana einmitt í samstarfi við Sím- ann + Spotify auk WOW air og Alda Hotel. Það eru bara um 100 ár síðan fyrsta vínylplatan var fjöldafram- leidd, formið og löggjöfin er enn að aðlagast hraðri tækni. Það verður spennandi að sjá hvert verður næsta skref.“ Það er hátt í þrjú ár síðan Barði spilaði hér heima síðast, það er þó ekki vegna þess að hann kunni illa við að koma hér fram. „Það er orðið svo langt síðan ég spilaði heima að ég hreinlega man ekki hvenær það var. Mér finnst æðislegt að spila á Íslandi en ég geri það sjaldan. Þegar ég geri það vil ég gera það almennilega,“ segir hann glaður í bragði og bætir við að honum þyki ólíklegt að hann muni halda marga tónleika hérlendis á næstu árum og því er um að gera að grípa gæsina og næla sér í miða á tónleikana áður en það verður upp- selt. „Við höfum líka ákveðið að leyfa klapp milli laga.“ Og það verður svo sannarlega öllu tjaldað til í Gamla bíói. Meðal annars mun JB Dunckel úr franska dúett- inum Air stíga á svið með Barða auk Daniel Hunt úr hljómsveitinni Lady- tron. „Ég er mjög spenntur, þeir taka tvö lög hvor með okkur. Þetta verður mikið stuð, eða eins og meistari Gísli Pálmi myndi segja, swagalegt.“ Auk þessara erlendu gesta mun söngkonan Jófríður Ákadóttir úr hljómsveitinni Samaris vera á sviðinu en hún syngur og semur eitt lagið á plötunni ásamt Barða. „Jófríður er mjög skemmtileg og hæfileikarík,“ segir Barði og bætir við: „Svo er hún líka í uppáhalds nýju íslensku hljóm- sveitinni, Gangly.“ Það er ný sveit skipuð Jófríði, Sindra Má (Sin Fang, Seabear) og Úlfi (Oyama). Breska stórsveitin Is Tropical verður svo með DJ-sett milli atriða. Takmarkað magn miða er í boði á tónleikana en þá er hægt að nálgast á Midi.is. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og kostar miðinn 3.500 krónur. – gló Öllu tjaldað til á tónleikum Bang Gang Námskeið Hvað?  Hráfæði gert einfalt Hvenær?  18.00 Hvar?  Gló, Fákafeni Kate Magic er meðal reyndustu hrá- fæðisfrömuða Bretlands en hún hefur tveggja áratuga reynslu af því að neyta hráfæðis. Hún er höfundur metsölu- bókarinnar „Eat Smart, Eat Raw“ og ferðast um heiminn og heldur fyrirlestra og vinnustofur um hráfæði. Kate verður með námskeið þar sem hún kennir að búa til létta og gómsæta hráfæðis- rétti úr uppá- haldshráefninu úr eldhúsinu þínu. Tilgangur námskeiðsins er að gefa hugmynd um hversu einfalt hráfæði getur verið. Skráning á glo.is en það kostar 8.900 krónur að taka þátt. Hvað?  Socializing in Iceland Hvenær?  20.00 Hvar?  Hellusund 3 Samkoma fyrir þá sem finnst þeir eiga erfitt með að byrja samtöl á íslensku við Íslendinga og blanda geði. Það getur verið erfitt að koma sér inn í nýja tungu- málamenningu. Þetta kvöld er ætlað öllum þeim sem eru ekki með íslensku sem móðurmál, alveg sama hver kunn- áttan er. Það kostar 500 krónur inn fyrir þá sem eru ekki með- limir JCI. Leikhús Hvað?  Píkusögur Hvenær?  20.00 Hvar?  Gamla bíó Píkusögur, eftir bandaríska leik- skáldið Eve Ensler, hefur verið kallað mikilvægasta og póli- tískasta leikverk síðari ára. Óhætt er að segja að það hafi hreyft við áhorfendum þegar það var frumsýnt árið 1996. Verkið sam- anstendur af einræðum kvenna sem allar hafa sögur að segja um píkur, ýmist sínar eigin eða annarra kvenna píkur. Sumar skoplegar og stundum drepfyndnar. Aðrar nístandi dramatískar og sorglegar. Mynd/XiSinsong Jean-Benoît Dunckel kemur fram með Barða í Gamla bíói. NordicPhotos/Getty Aðgangseyrir er 3.000 krónur en allur ágóði rennur til Stígamóta. Fatasala Hvað?  Tískukvöld Hvenær?  19.00 Hvar?  Kaffi Sólon Helen Halldórsdóttir, Florence Darlan og Rut Ríkey selja af sér spjarirnar á Kaffi Sóloni. Þær hafa allar verið búsettar erlendis og hafa safnað að sér gífurlegu magni af fal- legri merkjavöru. Íþróttir Hvað?  Stjarnan-Fylkir Hvenær?  19.15 Hvar?  Samsung-völlurinn í Garðabæ Stjarnan og Fylkir eigast við á heima- velli Stjörnumanna. Liðin eru á svip- uðum stað í töflunni; aðeins munar einu stigi á þeim. Fylkir er með 22 stig og Stjarnan 21. Bang Gang efnir til tónleika í  Gamla bíói í október. Barði spilar sjaldan hérlendis og hefur með sér frítt föruneyti innlendra og erlendra tónlistarmanna á tónleikunum og leyfir klapp á milli laga.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.