Fréttablaðið - 14.09.2015, Side 55

Fréttablaðið - 14.09.2015, Side 55
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Vertu eins og heima hjá þér GARLAND 2,5 sæta sófi. Corsica grár. Viðarfætur. Stærð: 178 x 68 x 83 cm 99.990 kr. 134.990 kr. ROMANCE 2,5 sæta sófi. Dökkgrár. Viðarfætur. Stærð: 170 x 82 x 87 cm 139.990 kr. 179.990 kr. KAMMA Þriggja sæta sófi með viðarfótum. Dökk-, ljósgrátt eða brúnt slitsterkt áklæði. Stærð: 201 x 84 x :105 cm 89.990 kr. Afmælisverð Reykjavík og Akureyri www.husgagnahollin.is Húsgagnahöllin 50 ára Eftir hálfrar aldar farsæla sögu kynnum við endurnýjaða og glæsilega verslun með stórauknu vöruúrvali. Við þökkum þjóðinni samfylgdina og traustið í fimm áratugi. Fagnaðu þessum tímamótum með okkur og gerðu einstök kaup. Vertu eins og heima hjá þér Nýtt blað er komið í dreifingu http://www.youblisher.com/p/1212708-Baeklingur-september/ www.husgagnahollin.is 558 1100 Þegar mér bauðst verk-efnið var ég ekki lengi að stökkva til, það var ein-faldlega aldrei spurning um annað en að vera með,“ segir Arnar Dan Kristjáns- son, leikari og frönskugerðarmaður og einn eigenda Reykjavík Chips. Fer herferðin í loftið í dag og er sjónum beint að körlum á aldrinum átján til tuttugu og fimm ára, en algengasta dánarorsök meðal þessa hóps er sjálfsvíg. „Þetta er áleitið myndband, það smýgur beint inn í kjarnann og kemur við mann. Hér er ekkert verið að sykurhúða neitt.“ Persónan sem Arnar leikur í myndbandinu er týpa sem allir þekkja, hann er glaður, hress og iðulega hrókur alls fagnaðar í partíum. Honum gengur vel og fólk heldur almennt að hann sé með allt á hreinu. Hann á að því er virðist dásamleg uppvaxtarár og er vel settur félagslega, svo staðalímynd þunglyndissjúklingsins er hvergi nærri. Aðspurður um hvernig hann upplifi verkefnið og hvort hann sjálfur kannist að einhverju leyti við persónuna sem hann leikur, en sjálfur er Arnar tuttugu og sjö ára, stendur ekki á svörunum: „Fyrir mér er þetta samfélagslegt vanda- mál, og hefur verið fullreynt að bera harminn í hljóði og nú þarf eitthvað að breytast. Það kemur fólki oftast mest á óvart að þessir einstaklingar séu að kljást við alvarlega geðsjúk- dóma, og það þarf svolítið að afmá þá hugsun. Samfélag okkar er gegn- sýrt af lituðum grímum, fólk er alltaf að setja upp grímur, og meikaða svoleiðis,“ útskýrir Arnar og bætir við: „ En svo má samt ekki endilega ákveða að allir þeir, sem eru hressir og kátir, séu í leik. Þetta er flókið, og það sem öllu skiptir er að opna á umræðuna.“ Jákvæð undiralda í samfélaginu „Mér finnst samt sjálfum ein- hver bylgja í gangi í samfélaginu, það er verið að stinga á erfiðum kýlum og ég held að Útmeða- herferðin sé að koma á réttum tíma. Það þarf að fá hlutina út,“ bendir Arnar á. Hann segist sjálfur hafa fundið fyrir press- unni sem margir á hans aldri finna fyrir og getur hreinlega verið mörgum um megn. „Bara það að námslánin dúkki upp eða yfirdrátturinn valdi áhyggjum getur verið of mikið. Samfélagið gerir endalausar kröfur til okkar, og á ákveðnum aldri skellur á okkur ábyrgð sem mörgum reynist erfitt að höndla. Við verðum að tala um þetta allt,“ segir hann að lokum, og heldur út í daginn, þar sem hann opnar frönskustaðinn sinn: „Því menn verða víst að skapa sér tekjur.“ gudrun@fretta­ bladid.is Hefur verið fullreynt að bera harminn í hljóði Arnar Dan Kristjánsson leikari Arnar Dan Kristjánsson leikari fer með hlutverk aðalsögupersónu í nýrri herferð Geðhjálpar. „Gríðarlega erfitt verkefni, þó tæknilega séð hafi það verið auðvelt.“ Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is ENDALAUST TAL OG 10 GB Á 3.990 KR.* Færðu farsímann yfir til 365 og fáðu frábært sjónvarpsefni á fáránlega góðu verði. Allt það besta hjá 365 *Gildir fyrir áskrifendur í tilboðspökkum 365 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m Á N U D A G U r30 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.