Fréttablaðið - 23.06.2016, Qupperneq 10
Sparkvellir eru gríðarlega mikið notaðir um land allt og voru byggðir í námunda við skólastofnanir. Fréttablaðið/anton brink
SamfélagSmál Ekki hefur komið
til tals að Knattspyrnusamband
Íslands taki þátt í kostnaði við
að skipta út dekkjakurli á spark-
völlum á landinu þrátt fyrir að það
hafi verið eina verkefni þess við gerð
sparkvallanna að leggja til fyrsta
flokks gervigras á vellina. „Fyrir
mína tíð,“ segir framkvæmdastjóri
KSÍ.
KSÍ, í samstarfi við sveitarfélög
vítt og breitt um landið, byggði upp
111 sparkvelli í sparkvallaátaki KSÍ
sem hófst árið 2004. Hugmynd KSÍ
var að semja við sveitarfélög í land-
inu um að gera sparkvelli. Knatt-
spyrnusambandið átti að leggja til
fyrsta flokks gervigras á vellina sem
gerðir væru eftir fyrirframgefnum
leiðbeiningum. Vellirnir urðu að
endingu mun fleiri en áætlað var í
upphafi og tók ríkissjóður því að sér
að styrkja KSÍ enn frekar í uppbygg-
ingunni. Sveitarfélög gerðu vellina
á sinn kostnað en KSÍ átti einungis
að setja niður fyrsta flokks gervi-
gras eins og segir í samningum við
sveitarfélögin. KSÍ fékk síðan að
setja upp auglýsingar við hvern
einasta sparkvöll.
Gúmmíkurlið er þekktur krabba-
meinsvaldur og hefur Læknafélag
Íslands ályktað í tvígang um að þess-
um efnum þurfi að skipta út sem
allra fyrst til að tryggja heilsu barna
sem leika sér á þessum sparkvöllum.
Hafnfirðingar áætla að kostnaður-
inn við að skipta út þessum efnum
nemi um 15 milljónum króna en
átta svona vellir eru í bæjarfélag-
inu. Því má áætla að kostnaður við
að skipta á öllum völlum landsins
nemi á þriðja hundrað milljónum
króna.
Klara Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri KSÍ, segir sparkvallaátak
sambandsins hafa hafist löngu fyrir
sína tíð. Gerðir hafi verið samningar
við öll þau sveitarfélög sem vildu
gera sparkvelli við sína skóla. „Í
samningunum sem gerðir voru
við sveitarfélögin er ákvæði um að
þegar framkvæmdum ljúki færist
vellirnir í eigu bæjarins og hann
sér um bæði umhirðu og rekstur á
völlunum,“ segir Klara og segir það
ekki hafa komið til tals að taka þátt
í kostnaðinum. sveinn@frettabladid.is
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Mercedes-Benz B-Class
Þægindi og öryggi í fyrirrúmi
Í Mercedes-Benz B-Class situr þú hærra en í flestum fólksbílum sem
auðveldar aðgengi og bætir yfirsýn. Lágur mengunarstuðull tryggir
lægri bifreiðagjöld og um leið frábært verð fyrir bifreið í þessum
gæðaflokki og sparneytnin heldur rekstrarkostnaðinum í lágmarki.
Þessi vinsæli bíll er framhjóladrifinn og er einnig fáanlegur með
4MATIC fjórhjóladrifi. Hann fæst sjálfskiptur eða beinskiptur og er í
boði með bensín-, dísil- og metanvélum.
B 160 með 7 þrepa sjálfskiptingu
Verð frá 4.800.000 kr.
Eyðir frá 4,0 l/100 km í blönduðum akstri
KSÍ átti að leggja fyrsta flokks gervigras
Sveitarfélög reka og eiga sparkvelli og því er það þeirra að skipta kurlinu út. KSÍ hafði það eina verkefni að leggja til fyrsta flokks gervi-
gras. Mun kosta hundruð milljóna að skipta um á öllu landinu. Framkvæmdastjóri KSÍ segir ekkert rætt um að KSÍ taki þátt í að greiða.
Í samningunum sem
gerðir voru við
sveitarfélögin er ákvæði um
að þegar framkvæmdum
ljúki færist vellirnir í eigu
bæjarins og hann sér um
bæði umhirðu og rekstur á
völlunum.
Klara Bjartmarz,
framkvæmdastjóri
KSÍ
2 3 . j ú n í 2 0 1 6 f I m m T U D a g U R10 f R é T T I R ∙ f R é T T a B l a ð I ð