Fréttablaðið - 23.06.2016, Síða 12
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóð-andi og eiginmaður h e n n a r , B j ö r n Skúlason, hafa búið í fjórum löndum
á þeim sautján árum sem þau hafa
verið par. Björn segir þau hjón finna
jafnvægið í að staðna aldrei og leitast
stöðugt við að læra meira og víkka út
sjóndeildarhringinn.
„Hjá okkur hefur þetta alltaf verið
spurning um jafnvægi. Þegar við
erum farin að togast í einhverja eina
átt þá erum við komin á skjön og þá
líður okkur ekki vel. Þá gerum við
eitthvað til að kippa okkur til baka,
hvort sem það er að bæta við okkur
þekkingu með námi eða að skipta
um starf. Við erum óhrædd við að
leita að jafnvæginu,“ segir hann.
Björn er menntaður viðskipta-
fræðingur, með mastersgráðu í
stjórnunarsálfræði og síðast en ekki
síst menntaður heilsukokkur. „Það
þarf sama jafnvægi í mataræðið.
Ég vil hætta öllum öfgum. Kannski
þurfum við bara að stíga eitt skref til
baka og fara að borða ferskari mat.“
Heppnin með þeim og Íslandi
Björn og Halla kynntust árið 1993
þegar hún var framkvæmdastjóri
fótboltaliðs í háskóla í Alabama.
„Hún fékk mig til að koma í skóla
í Bandaríkjunum og spila fótbolta.
Ég hafði spilað í úrvalsdeildinni
með Grindavík og eitt ár með KR
en komst á skólastyrk út af fót-
boltanum í Bandaríkjunum. Ég fór
í skólann en hún var þá akkúrat að
klára þannig að við kynntumst bara
lauslega, þó ég hafi kynnst öllum
vinum hennar.“
Leiðir þeirra áttu ekki eftir að
liggja aftur saman fyrr en árið
1999. „Ég hitti hana í Eurovision-
partíi árið 1999 þegar Selma söng
All Out of Luck. Ég kem í partíið
og labba beint til hennar og heilsa
en hún mundi ekkert eftir mér. Ég
þurfti sem sagt að rifja það upp fyrir
henni en síðan þá höfum við verið
saman. Við eigum Selmu og Euro-
vison mikið að þakka,“ segir Björn
kíminn. Það kvöld var heppnin líka
með Íslandi því það ár lönduðum
við öðru sæti í Eurovision-keppn-
inni í fyrsta sinn.
„Fljótlega eftir að við kynnumst
fer Halla að byggja upp Háskólann í
Reykjavík ásamt Guðfinnu Bjarna-
dóttur og fer af stað með verkefni
sem heitir Auður í krafti kvenna.
Þannig að hún hefur verið að berj-
ast fyrir jafnréttismálum í gegnum
árin. Fyrst fyrir konur en nú er það
orðið að baráttumálinu jafnrétti
fyrir alla.“
Innbrot setti strik í reikninginn
Árið 2005 fóru þau hjón utan til
Bretlands í nám. Halla í doktors-
nám og Björn í meistaranám í
stjórnunarsálfræði við háskólann í
Essex. Þau höfðu eignast tvö börn í
millitíðinni, Tómas Bjart árið 2001
og Auði Ínu árið 2003.
„Við ætluðum að vera áfram í
Bretlandi en í desember 2005 er
brotist inn til okkar á meðan við
vorum sofandi og öllu stolið. Þar
á meðal allri rannsóknarvinnunni
hennar Höllu, öllum back-up disk-
um og tölvum. Sem betur fer höfðu
börnin komið upp í til okkar um
nóttina þannig að það kom ekkert
fyrir þau en þetta var hræðilegt. Inn-
brotið setti stóran og ljótan blett á
dvölina úti.“
Nokkrum dögum áður hafði kona
komið í heimsókn til fjölskyldunnar
til að selja þeim málverk. Björn og
Halla versluðu við hana en fengu
málverkin ekki afhent strax því
konan sagði að kærasti hennar væri
væntanlegur á næstu dögum til að
ramma málverkin inn. Skömmu
síðar voru öll þeirra verðmæti horf-
in og aldrei heyrðist í konunni með
málverkin.
„Stór hluti af myndum af börnun-
Björn Skúlason hefur ástríðu fyrir heilsusamlegri matargerð og langar að virkja íslensku þjóðina til að iðka heilbrigðara líferni
en án allra öfga. FréttaBlaðIð/Hanna
um var tekinn sem var svona sárast.
Við ákváðum bara að slaufa þessu
þarna úti því Halla var búin að tapa
allri sinni vinnu. Ég klára mitt nám
en hún tekur við sem framkvæmda-
stjóri í Viðskiptaráði í mars 2006.“
aðrar hugmyndir um viðskipti
Halla hefur verið gagnrýnd fyrir
störf sín sem framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs á árunum 2006-2007,
meðal annars fyrir skýrslur um
efnahagslegan stöðugleika Íslands
sem komu út á árunum skömmu
fyrir hrun. „Halla kom með mikið
af varnaðarorðum en það var ekki
mikið hlustað á þau. Hún sá að það
var ekki vettvangur fyrir sig svo hún
stofnaði Auði Capital og sagði upp í
Viðskiptaráði.“
Björn og Halla unnu saman í Auði
Capital fram til ársins 2012. „Við
höfum alla tíð unnið svo vel saman
og erum miklir vinir. Ég held reynd-
ar að við höfum séð hvort annað
minna í vinnunni þá en við höfðum
gert áður. Það var bara svo mikið að
gera og mikill uppvöxtur í fyrirtæk-
inu – en frábært að vinna saman. Ég
þekki konuna mína að heiman en
þarna sá ég hana í aksjón.“
Björn segir Höllu hafa haft skýra
sýn á þau vinnubrögð sem ættu að
vera við lýði hjá Auði Capital. „Þegar
ákvörðun er tekin um að búa til
einhverja fyrirtækjamenningu þá
byrja allir að dansa í takt. Um leið
og allir byrja að dansa í takt þá eru
engin frávik. Við höfum stundum
líkt þessu við það þegar Sigurður
Ragnar Eyjólfsson tók við íslenska
kvennalandsliðinu í fótbolta. Hann
setti upp ramma fyrir landsliðið.
Það sama gerir Lars Lagerbäck fyrir
íslenska karlalandsliðið. Þá vita
allir að hverju er að keppa. Það eru
ákveðnar reglur og ef þú hagar þér
þannig þá líður öllum miklu betur,“
segir Björn.
„Það er svo frábært þegar þú ert
með sterka hugmyndafræði og sterk
gildi að sjá hvað þú getur náð mikl-
um árangri. En eins vel og gekk þá
langaði mig ekki að vakna eftir þrjá-
tíu ár og vinna í fjármálageiranum.“
Breyttu alveg um stefnu
Úr varð að fjölskyldan flutti árið
2012 til New York borgar í Banda-
ríkjunum svo Björn gæti lært að
verða heilsukokkur. „Ég lærði vegan
eldamennsku hjá Natural Gourmet
Institute. Ég hafði mikinn áhuga
á því að læra það því ég sá að það
var orðin mikil tilhneiging í þá átt
á Íslandi, bæði hvað varðar allt sem
tengist glútenfríu, vegan og græn-
metisfæði. Ég hef alltaf kunnað
að elda lambakjöt og fisk en þetta
kunni ég ekki, að elda baunir, græn-
meti og grjón.“
Fjölskyldan dvaldi í tæpt ár í New
York, sem Björn segir að sé uppá-
haldsborgin sín af þeim sem þau
hafa búið í erlendis. „Þetta var bara
stórkostlegt. Það er svo mikil orka
þarna.“
Árið 2013 flutti fjölskyldan svo til
Kaupmannahafnar þar sem Björn
stofnaði veisluþjónustu en þau
komu heim einu og hálfu ári síðar
þegar soninn var farið að langa
heim til Íslands. „Við höfum alltaf
haft fast heimili hér. Börnin okkar
hafa þroskast gríðarlega mikið á
þessu flakki en þau vita að þau eiga
heimili, samastað og fjölskyldu á
Íslandi. Við höfum samt verið að
reyna að stækka heiminn fyrir þau
með því að sýna þeim hvað er í boði.
Þau eru bæði sterkari manneskjur
fyrir vikið.
En maður gerir allt sem börnin
vilja, og við erum auðvitað alveg
sammála því að það sé best að búa
á Íslandi. Við höfum verið að fara út
til að þroskast sjálf og eigum mjög
erfitt með að stoppa og staðna. Við
viljum alltaf finna okkur verkefni
þar sem við erum að þroskast og
vaxa. Fyrir mig var augljóst að hún
færi í þetta,“ segir Björn um forseta-
framboð konu sinnar.
Framtíðarsýn forseta
Halla tilkynnti um framboð í mars
síðastliðnum og var, þrátt fyrir
tilkomumikla ferilskrá, nokkuð
óþekkt. Í lok maí mældist hún með
1 prósent í skoðanakönnunum en
nýjustu kannanir sýna hana með
um og yfir tólf prósenta fylgi. Björn
segist sjálfur hafa ýtt á hana að gefa
kost á sér.
„Það var aldrei til umræðu að
ég færi í framboð. Halla hefur svo
einstakan hæfileika til að sjá hvar
styrkleikar fólks liggja og getur
tengt fólk saman og sameinað það.
Þegar ég fer í mitt kokkanám er hún
sú fyrsta sem hvetur mig áfram. Þó
að ég hafi verið í frábæru starfi með
fín laun þá er aldrei hræðsla við að
synda á móti straumnum eða taka
áhættu ef það verður til þess að þú
finnir þinn rétta stað í lífinu. Ef ég
hefði ekki fengið þennan stuðning
frá henni þá væri ég væntanlega á
stað sem mér liði ekki eins vel á,“
segir Björn.
„Halla gerir þetta sama við alla
sem hún þekkir. Hún er alltaf til í
að hjálpa og hvetja fólk til að taka
smá áhættu ef það mun gera fólk
hamingjusamt. Sem þjóð erum við
hálf brotin ef við erum alltaf að gera
hluti sem gera okkur ekki glöð. Þess
vegna vill hún hjálpa okkur að setja
okkur framtíðarsýn þannig að það
sé rammi og við getum sagt: „Ókei,
við sem þjóð erum að fara þangað.““
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
Með skýrri
framtíðarsýn þjóðar
má ná árangri
Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda og fram-
kvæmdastjóri, segir Höllu hafa ýtt sér út í að taka áhættur sem skila sér í meiri
hamingju. Innbrot á heimili þeirra í Bretlandi setti strik í doktorsnám Höllu.
Sem þjóð erum við
hálf brotin ef við
erum alltaf að gera hluti sem
gera okkur ekki glöð. Þess
vegna vill hún hjálpa okkur
að setja okkur framtíðarsýn
þannig að það sé rammi og
við getum sagt: „Ókei, við
sem þjóð erum að fara
þangað.“
2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R12 F R é T T I R ∙ F R é T T A B L A ð I ð