Fréttablaðið - 23.06.2016, Side 60
INDEPENDENCE DAY 2 5:30, 8, 10:30(P)
LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 3:30, 5:45
CENTRAL INTELLIGENCE 8, 10:25
WARCRAFT 8, 10:30
FLORENCE FOSTER JENKINS 5
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 3:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 22:30
KEFLAVÍK
INDEPENDENCE DAY: RESURGENCE (3D) 8 -10:40
ME BEFORE YOU KL. 8
CENTRAL INTELLIGENCE KL. 10:40
ME BEFORE YOU KL. 6 - 8 - 9 - 10:20
FINDING DORY (ENSKA) KL. 8
LEITIN AÐ DÓRU (ÍSL 2D) KL. 5:40
LEITIN AÐ DÓRU (ÍSL 3D) KL. 5:40
THE CONJURING 2 KL. 10:20
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
ÁLFABAKKA
ME BEFORE YOU KL. 5:40 - 8 - 10:20
ME BEFORE YOU VIP KL. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20
FINDING DORY (ENSKA 2D) KL. 3:20 - 5:40 - 8 - 9 - 10:30
LEITIN AÐ DÓRU (ÍSL 2D) KL. 3:20 - 5:40
LEITIN AÐ DÓRU (ÍSL 3D) KL. 4:20 - 6:40
THE CONJURING 2 KL. 8 - 10:30
TMNT 2 2D KL. 3 - 5:30
ALICE THROUGH... 2D KL. 10:40
MOTHER’S DAY KL. 8
THE JUNGLE BOOK 2D KL. 3:10
AKUREYRI
ME BEFORE YOU KL. 8 - 10:20
LEITIN AÐ DÓRU (ÍSL 3D) KL. 5:40
FINDING DORY (ENSKA 2D) KL. 8
THE CONJURING 2 KL. 10:20
TMNT 2 2D KL. 5:30
JOHNNY
DEPP
ANNE
HATHAWAY
SACHA
BARON COHEN
CINEMABLEND
Þorir þú?
Ein skemmtilegasta mynd sumarsins
sýnd með íslensku og ensku tali
VARIETY
E.W.
“THE FAMILY FILM OF THE YEAR.”
“A MASTERPIECE!”
“AMAZING!”
EGILSHÖLL
INDEPENDENCE DAY: RESURGENCE (3D) 5:30-8 -10:30
LEITIN AÐ DÓRU (ÍSL 2D) KL. 5:30
CENTRAL INTELLIGENCE KL. 5:40 - 8 - 10:20
THE CONJURING 2 KL. 7:40 - 10:20
TMNT 2 2D KL. 10:30
ALICE THROUGH... 2D KL. 5:30 - 8
A LITTLEHARTAND A BIGJOHNSON
SAVING THE WORLD TAKES
FEEL GOOD MYND
FRÁBÆR
EMILIA CLARKE
SAM CLAFLIN
BASED ON THE NEW YORK TIMES BESTSELLER
„
„
WERTHER
Ópera í beinni
Sýningartímar á eMiði.is, miði.is og smarabio.is
FORSALA
HAFIN
FORELDRABÍÓ
Á FÖSTUDAGINN
KL. 12 Í SMÁRABÍÓI27. júní í Háskólabíói
- TIMEOUT
- EMPIRE
- BÍÓVEFURINN
- EMPIRE
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
23. júní 2016
Listamannaspjall
Hvað? Listamannaspjall
Hvenær? 20.00
Hvar? Hafnarhúsið
Listamennirnir Bjarki Bragason og
Sirra Sigrún Sigurðardóttir ræða við
gesti um varðveislu og skrásetningu
á hverfandi gróðri í tengslum við
sýninguna RÍKI – flóra, fána, fabúla
í Hafnarhúsi. Plöntur sem teljast
í útrýmingarhættu koma fyrir í
verkum þeirra á sýningunni með
mismunandi hætti. Á sýningunni
eru valin verk listamanna sem nota
ríki náttúrunnar sem grundvöll
sköpunar og listrænnar könnunar.
Verkin birta marghljóma viðhorf
og hugmyndir um flóru og fánu þar
sem vísindaleg eða tilbúin flokkun
birtir gestum ríki náttúrunnar í
gegnum skapandi heim myndlistar.
Aðgöngumiði á safnið gildir.
Jónsmessa
Hvað? Jónsmessuhátíð
Hvenær? 17.15
Hvar? Seltjarnarnes
Andi fortíðar og sköpunarkraftur
nútíðar mætast á Jónsmessuhátíð
Seltirninga sem haldin verður í
dag. Fjölskyldufólk er sérstaklega
boðið velkomið á þessa frumlegu
og fjölbreyttu hátíð. Meðal þess
sem í boði verður er Hákarlahjall-
inn við Norðurströnd, Galdrastál
við Bygggarða, Vinnustofuheim-
sókn, Brjóstdropar á Nesstofu og
Snældusnúður og Sunnyside Road í
Lækningaminjasafni. Léttur vatns-
úði sér til þess að börn og fullorðnir
geti baðað sig á döggvotum gras-
balanum vestan við safnið áður en
haldið er heim á leið.
Hvað? Jónsmessunæturganga
Árbæjarsafns
Hvenær? 22.30
Hvar? Árbæjarsafn
Í tilefni Jónsmessunætur mun
Borgarsögusafn Reykjavíkur bjóða
upp á skemmtilega menningar-
og náttúrugöngu. Gengið verður
frá Árbæjarsafni í kvöld. Gengið
verður um Elliðaárdal, staldrað við
á völdum stöðum og fjallað um
íslenska þjóðtrú og sögu svæðisins.
Sigurlaugur Ingólfsson sagnfræð-
ingur leiðir gönguna og litið verður
í heimsókn til Jóns Sveinbjörns-
sonar prófessors sem leiða mun
göngufólk um falda perlu í borgar-
landinu. Þátttaka er ókeypis og allir
eru velkomnir.
Hvað? Sólar-
hringsopnun í
Listasafninu á
Akureyri
Hvenær?
10.00
Hvar?
Lista-
safnið á
Akureyri
Í tilefni
af Jóns-
messu
verður
opið
allan sólar-
hringinn í
Listasafninu á
Akureyri. Að venju
verður opnað kl. 10 að
morgni fimmtudagsins 23. júní
en safninu ekki lokað fyrr en kl.
17 föstudaginn 24. júní. Eftir mið-
nætti kl. 01 verður boðið upp á
vasaljósaleiðsögn um sýninguna
Nautn / Conspiracy of Pleasure.
Hlynur Hallsson safnstjóri gengur
með gestum um sýninguna í
rökkri vopnaður vasaljósi og
segir frá einstaka verkum og lista-
mönnunum. Vasaljós verða í boði
fyrir gesti. Gestum er velkomið að
gista í Listasafninu og áhugasamir
hvattir til þess að taka með sér
létta dýnu, svefnpoka eða sæng
og njóta þessa að sofa vært í
sýningunni. Morguninn
eftir kl. 09-10
verður dögurður
í Listagilinu á
grasflötinni
milli Lista-
safnsbygg-
ingarinnar
og Ketil-
hússins.
Gott er að
taka með
sér kaffi
á brúsa,
teppi og nesti og sitja í sólinni
með góðum vinum og fugla-
söng. Allir velkomnir og þátttaka
ókeypis.
Hvað? Jónsmessugleði
Hvenær? 19.30
Hvar? Strandstígurinn, Garðabæ
í kvöld fer fram Jónsmessugleði
Grósku, fjölmenn útilistasýning
og útilistahátíð, haldin í áttunda
sinn við Strandstíginn í Sjálands-
hverfi í Garðabæjar. Gestir sem
ganga Strandstíginn þetta kvöld
hafa myndlist og listhandverk á
aðra hönd og hafið á hina en lista-
verkin verða til sýnis milli staura
meðfram Strandstígnum og geta
gestir því notið sumarsólstaða til
jafns við fjölbreytta list. Einnig
eru fjölmörg önnur listatriði frá
ólíku listafólki á dagskrá en að
venju verður mikið um að vera á
Jónsmessugleði Grósku. Allir vel-
komnir.
Tónlist
Hvað? Grímsey
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2
Hljómsveitin Grímsey var stofnuð
í fyrravetur í Helsinki þegar
finnsk-íslenski gítarleikarinn
Matti Saarinen var í ársleyfi úti
í Finnlandi. Hljómsveitin spilar
tónlist eftir Matta og var að gefa út
tónlistina á vegum Warén Music
nú í júní. Hljómsveitina skipa
Matti Saarinen á gítar, Jarno Lapp-
alainen á bassa og Joonas Lepp-
änen á trommur. Aðgangseyrir
2.000 krónur.
Hvað? Orgelsumar
Hvenær? 12.00
Hvar? Hallgrímskirkju
Á orgelsumrinu eru ávallt orgel-
tónleikar í hádeginu á fimmtudög-
um og er það Guðmundur Sigurðs-
son, organisti Hafnarfjarðarkirkju,
sem leikur í dag. Guðmundur leik-
ur spennandi blöndu af íslenskri,
þýskri, breskri og auður-amerískri
orgeltónlist. Allir velkomnir.
Hvað? Sumartónleikaferð Svavars
Knúts og Kristjönu Stefáns
Hvenær? 20.00
Hvar? Söguloftið á Landnámssetrinu
í Borgarnesi
Vinirnir og söngvaskáldin Svavar
Knútur og Kristjana Stefáns koma
aftur saman á sinni árlegu sumar-
tónleikaferð. Munu þau fara um
allt land og spila. Miðaverð er
3.500 krónur.
Hvað? Trúbador Hreimur
Hvenær? 21.00
Hvar? American Bar
Hreimur situr trúbadoravaktina á
American Bar. Aðgangur ókeypis.
Hvað? Dj Silja Glömmi
Hvenær? 21.00
Hvar? Bar Ananas
Dj Silja Glömmi ætlar að hrista
upp í gestum Bar Ananas í kvöld
þar sem allir geta dansað. Aðgang-
ur ókeypis.
Hvað? Mick Hargan
Hvenær? 21.00
Hvar? Dillon
Mick Hargan er ástríðufullur tón-
listarmaður og hann ætlar að láta til
sín taka á Dillon í kvöld.
Leikhús
Hvað? Dracula’s Pack
Hvenær? 20.30
Hvar? Tjarnarbíó
Sýning með listamönnum frá fimm
löndum. Samin og heimsfrumsýnd
á Íslandi í leikhúsinu Tjarnarbíói í
kvöld. Kjartan Darri Kristjánsson og
Arnþór Þorsteinsson leika. Aðeins
er um fjórar sýningar að ræða. Miða-
verð 3.900 krónur.
Önnur afþreying
Hvað? Lummudagar
Hvenær? 17.00
Hvar? Lóð Árskóla, Skagafirði
Setningarhátíð Lummudaga er í
dag klukkan 17.00 og markar þar
með upphaf skemmtilegrar helgi í
Skagafirði. Verður mikið um dýrðir
og þéttskipuð dagskrá. Allir vel-
komnir.
Hvað? Dark Deeds/ Ensk bókmennta-
ganga
Hvenær? 15.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Grófinni
Í dag líkt og alla fimmtudaga í júní,
júlí og ágúst er boðið upp á bók-
menntagöngur á ensku. Gangan
hverfist að mestu um glæpi og
drungalega atburði í bókmenntum
sem tengjast Reykjavík. Gengið er
frá Grófinni og tekur gangan níutíu
mínútur. Allir velkomnir.
Hvað? Myrkraverk um hábjarta nótt,
bókmenntaganga
Hvenær? 20.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Grófinni
Gengið er milli sögusviða og áhrifa-
staða, þar sem hin ýmsu myrkra-
verk hafa átt að eiga sér stað í
íslenskum bókmenntum. Lesið er
upp úr glæpasögum, sögulegum
skáldsögum og draugasögum meðal
annars. Gönguna leiða Björn Unnar
Valsson og Sunna Dís Másdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir með.
Hvað? Prjónakaffi fyrir bandóða
Hvenær? 13.00
Hvar? Bókasafnið, Árbæ
Vikulegt prjónakaffi fer fram í dag.
Gott úrval handavinnubóka og
blaða. Þá er heitt á könnunni. Allir
velkomnir.
Svavar Knútur
kemur fram í
kvöld í Borgar-
nesi ásamt Kristjönu
Stefánsdóttur.
fréttaBlaðið/gva
Orgelsumarið verður í hádeginu á fimmtudögum í sumar í Hallgrímskirkju.
fréttaBlaðið/gva
2 3 . J ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R48 M e n n I n G ∙ F R É T T A B L A ð I ð