Fréttablaðið - 28.11.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 28.11.2017, Blaðsíða 2
Það er loftræstikerfi í húsinu en það er spurning hvort þetta sé rétt tengt. Charin Thaiprasert, eigandi Noodle Station Veður Áfram norðlæg átt í dag og kalt í veðri með dálitlum éljum norðan- lands, en bjart syðra. Þykknar upp vestan til og hlýnar heldur þar. sjá síðu 18 Það var kalt en fallegt í Vatnsmýrinni í gær. Það má reikna með að áfram verði kalt. Búist er við hægri, austlægri átt í dag og frosti á bilinu 3 til 8 gráður í dag. Veðurstofan gerir ráð fyrir því að á morgun verði hitinn víða kominn upp fyrir frostmark og svo verði fram að helgi. Fréttablaðið/Eyþór Rafvirkjar Kerfisloftalampar www.olafsson.is Endursöluaðilar um land allt Snjöll lýsing! OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið að þínum þörfum með Appi Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 olafsson.is samfélag „Vandamálið er lyktin. Þó mér finnist núðlur mjög góðar er ég ekki viss um að kúnnar sem borga fullt af peningum fyrir að koma til Íslands séu hrifnir af að hafa þessa lykt yfir sér,“ segir Jón Fannar Karls- son Taylor, eigandi Caze Reykja- vík Central Luxury Apartments, á Laugavegi 103. Hann segir afgerandi lykt sem leggur frá taílenska veitinga- staðnum Noodle Station á jarðhæð hússins koma niður á gistiþjónust- unni sem rekin er í íbúðunum fyrir ofan. Viðskiptavinir hans kvarti yfir þessu og það komi niður á einkunna- gjöf á netinu. Eigandi Noodle Station telur að loftræstikerfi hússins virki ekki sem skyldi. Jón Fannar er með íbúðir til útleigu á annarri hæð hússins, þar af eina beint fyrir ofan Noodle Station, og segir að lyktin valdi gestum óþæg- indum. „Í logni og kulda eins og nú er, þá er eins og maður sé staddur inni á veitingastaðnum og þetta hefur veruleg áhrif á gesti mína. Ég hef fengið töluvert af kvörtunum yfir því hversu sterk lyktin er, bæði á stiga- ganginum og í íbúðunum.“ Jón Fannar segir að hvorki opnun staðarins né uppsetning á skilti veit- ingastaðarins utan á húsið hafi verið borin undir húsfélagið og kvartanir eigenda hafi engu skilað. Að sögn Jóns Fannars eru fimm- tán íbúðir í húsinu fyrir ofan veit- ingastaðinn og nær allar í útleigu til ferðamanna. „Þetta hefur áhrif á alla. Við erum til dæmis skráð á booking.com og þetta hefur áhrif á einkunnirnar sem við fáum og þá viðskipti okkar í framtíðinni.“ Charin Thaiprasert, eigandi Noodle Station, segir að grunur leiki á að loftræstingin í byggingunni virki ekki sem skyldi. „Ég er búinn að tala við Reykja- víkurborg um að fá teikningar af hús- inu til að sjá hvar þessar lagnir eru og hvort loftræstikerfið sé að virka eins og það á að gera. Það er loftræstikerfi í húsinu en það er spurning hvort þetta sé rétt tengt.“ Charin segir að á Noodle Station finnist einnig matarlykt frá öðrum eldhúsum í byggingunni. „Við finn- um lyktina í hádeginu frá hótelinu yfir til okkar, við viljum það ekki heldur. Þetta er bara eitthvað sem þarf að skoða.“ mikael@frettabladid.is Nágrannar ósáttir við afgerandi núðlulykt Nágrannar Noodle Station við Laugaveg 103 eru ósáttir við lyktarmengun frá veitingastaðnum. Íbúðir fyrir ofan staðinn eru leigðar út til ferðamanna sem kvarta. Eiganda Noodle Station grunar að loftræstikerfið virki ekki sem skyldi. Noodle Station var opnað á laugavegi 103 fyrir um ári. Eigendur íbúðanna fyrir ofan eru ósáttir við sterka lykt frá staðnum. Fréttablaðið/StEFáN Tækni Facebook tilkynnti í gær um nýja gervigreindartækni sem ætlað er að skanna innlegg á miðlinum og greina hvort sá sem heldur um penna sé í sjálfsvígshugleiðingum. Tæknin byggir á því að skynja mynstur eða myndbönd þar sem slíkt kemur fram. Í tilkynningunni segir að ummæli á borð við „Er allt í lagi?“ eða „Get ég hjálpað?“ sem sett eru við innlegg gætu bent til þess að innleggsritari sé í sjálfsvígshugleiðingum. Tæknin hefur nú þegar verið prufu- keyrð í Bandaríkjunum. Til stendur að opna á þessa tækni fyrir notendur Facebook í öðrum ríkjum. Ef gervi- greindin verður vör við sjálfsvígs- hugleiðingar er sérþjálfuðum starfs- mönnum Facebook gert viðvart. Þeir hringja svo mögulega í yfirvöld þar sem notandi býr til þess að gera þeim viðvart. – þea Facebook vill fyrirbyggja sjálfsmorð Kuldaboli í Reykjavík umhverfismál Stefnt er að því að fækka árlegum ótímabærum dauðsföllum af völdum loftmeng- unar á Íslandi í fyrstu almennu áætluninni um loftgæði, sem gefin hefur verið út. Áætlunin ber heitið Hreint loft til framtíðar. Að auki er stefnt á að fækka árlega þeim dögum þar sem svifryk fer yfir skilgreind heilsufarsmörk af völdum umferðar úr 7 til 20 niður í engan fyrir árslok 2029 og að ársmeðaltal brennisteinsvetnis verði áfram undir skilgreindum mörkum. Síðast í gær gaf Heilbrigðiseftir- lit Reykjavíkur út viðvörun um að loftgæði í Reykjavík væru slæm í nágrenni við umferðargötur. – jhh Fyrsta áætlunin um loftgæði Stefnt er á að fækka þeim dögum þar sem svifryk fer yfir skilgreind heilsufars- mörk úr 7 til 20 niður í 0. slys Maðurinn sem lést í umferðar- slysi á Miklubraut í Reykjavík á laugardagsmorgun hét Sebastian Dariusz Bieniek. Hann var 24 ára og pólskur ríkisborgari. Slysið varð þegar bíllinn lenti utan í vegriði. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að slysinu að hafa samband í síma 444 1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið gudmundur.pall@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook- síðu Lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. Fréttastofa RÚV greindi frá því í gær að Vegagerðin ætlar að fjarlægja teinagirðingar sem eru meðfram götum á höfuðborgarsvæðinu eftir slysið. – jhh Lést í slysi á Miklubraut 2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r i ð j u D a g u r2 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.