Fréttablaðið - 28.11.2017, Blaðsíða 26
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða?
Iðnaðarmann
Bílstjóra
Bifvélavirkja
Þjónustufólk
Öryggisvörð
Lagerstarfsmann
Matreiðslumann
Aðstaðan var almennt séð alveg þokkaleg. Það var helst að tón-leikastaðir í Austur-Evrópu væru helst til nýtnir á seturnar.
Ég veit ekki hvort ég treysti mér að
tilnefnda besta staðinn en það var
góð aðstaða víða í Frakklandi þar
sem var ró og næði og snyrtilegheit,“
segir Gunnar Ben, tónlistarmaður í
Skálmöld.
Skálmöld er nýkomin heim eftir
mánaðar túr um Evrópu þar sem
spilað var um allar trissur nánast á
hverju kvöldi. Gunnar tók út klós-
ettaðstöðuna þar sem þeir spiluðu
og segir að aðstaða rokkaranna hafi
víða verið í lagi en þar sem hún var í
ólagi – þar var vont að vera.
„Þegar maður kemst á klósett
eftir langt ferðalag og oft
hrikalegt mataræði þá
liggur stundum allt
til sýnis á floti í klós-
ettinu og stundum
óþægilega ofarlega
ef vatnsstaðan er
þannig. Það hefur
komið fyrir að
menn hafa lent
í klípu og jafnvel
blotnað við þannig
aðstöðu.
Það er tvennt sem er
verst. Það er þegar vantar set-
una og pappírinn. Þegar það vantar
þessa sjálfsögðu hluti.
Á Legend Club í Mílanó þurfti
nánast að bakka inn, plássleysið var
slíkt. Maður gerði sitt og þurfti að
taka servéttu með, fyrir utan að það
var ekki einu sinni vaskur.“
Hann segir að Ísland sé svolítið
sér á báti þegar kemur að aðstöðu.
Ísland er pínu skrýtið því það er
ekki mikið baksviðsrými almennt.
Ísland er ekki í þessum pakka að
hljómsveitir koma á hádegi og fá
jafnvel mat og maður er á klúbbn-
um allan daginn. Jafnvel er kvöld-
verður líka með. Á Íslandi er yfir-
leitt ekki klósett og sturta baksviðs
– hvað þá veitingar.“
Gunnar gengur þó glaður frá
túrnum enda hafi gengið vel og
jafnvel framar björtustu
vonum. „Það voru
margir mættir til
að hlusta á okkur,
menn og konur
mættu merkt í
gömlu Skálm-
a l d a r b o l u n u m
sínum og við upp-
lifðum góðan byr
og gott bakland,“
segir hann og hlær.
Eftir mánaðar túr
um Evrópu er komið að
Skálmöld að spila á Íslandi en
langt er síðan hljómsveitin spilaði
síðast hérlendis. Á laugardag verða
Aðventutónleikar andskotans þar
sem Dimma slær einnig í rokkklár-
inn. „Við erum alveg svakalega vel
æfðir þessa dagana eftir túrinn og
það er gott að spila þá á Íslandi. Við
höfum verið að tala um að taka gigg
saman og erum spenntir. Við erum
að spila oft á sömu stöðum en aldrei
saman þannig það var kominn tími
á þetta samstarf.“
benediktboas@365.is
Skjalfestir
klósettaðstöðu
rokkara
um Evrópu
Gunnar Ben, hljóm-
borðsleikari í þunga-
rokkshljómsveitinni
Skálmöld, er nýkom-
inn heim eftir mán-
aðar túr með band-
inu. Hann tók myndir
af klósett aðstöðunni
sem þeim var boðið
upp á.
Kulturzentrum Faust – Þýskalandi. Gaskessel – Sviss.Café Concert – Frakklandi.
Jungle Club – Þýskalandi.
Garaje Beat Club – Spáni.
Legend Club – Ítalíu.Hard Club – Portúgal.
Bi Nuu – Þýskalandi.
Petit Bain – Frakklandi. Le Port – Frakklandi. Backstage – Þýskalandi.
2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r26 l í f I Ð ∙ f r É T T A b l A Ð I Ð