Fréttablaðið - 28.11.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.11.2017, Blaðsíða 8
SAMFÉLAG „Hingað eru að koma 3-400 konur frá 100 löndum til að ræða jafnréttismál í breiðu samhengi og aðkomu kvenna að málaflokkum sem þær hafa kannski ekki verið virkar í áður,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi alþingis- maður og innanríkisráðherra, sem e r st j ó r n a r f o r m a ð u r fram kvæmdastjórnar Women Political Lead- ers (WPL). Á fundi WPL sem fer fram núna í vikunni verður sérstök áhersla lögð á Ísland sem alþjóðleg- an leiðtoga í málefnum kynjajafnréttis. „Það sem er ofsalega ánægjulegt fyrir okkur Íslendinga er að það er ótrú- lega mikill áhugi. Konur og þjóð- þing og fulltrúar ótrúlega margra ríkja vilja koma og heyra hvað við höfum að segja. Yfir- skrift fund- arins í ár er „We can do it“ sem er tilvísun í að það er hægt að gera þetta,“ segir Hanna Birna. Samhliða fundinum verður haldinn ársfundur Council of Women World Leaders, sem eru samtök kvenna sem eru eða hafa verið þjóðarleiðtog- ar. „Það eru fimmtán konur sem eru fyrrverandi eða núverandi forsetar að koma saman og það hefur aldrei áður gerst að svona margar konur sem hafa gegnt þeim embættum komi saman á einum á sama tímanum,“ segir H a n n a B i r n a . V i g d í s i F i n n - bogadóttur, fyrr- verandi forseta Íslands, verða f æ r ð s é r s t ö k heiðursverðlaun á ráðstefnu WPL í ár fyrir þátttöku hennar í stjórn- málum og störf í þágu kvenna í gegnum tíðina. Formleg setning fundarins verður í Veröld – húsi Vigdísar, þar sem Vig- dís mun setja fundinn og flytja erindi um það hvernig kvenleiðtogar geti breytt heiminum. Fundurinn er haldinn í Hörpu í samstarfi við Alþingi og ríkisstjórn Íslands. Aðrir stuðningsaðilar eru til dæmis Reykjavíkurborg, Efnahags- og framfarastofnunin (OECD), Har- vard-háskóli og Sameinuðu þjóðirn- ar. Fundurinn var fyrst haldinn árið 2013 og hefur verið haldinn í Jórd- aníu, Mexíkó og Rúanda. Fundurinn er einstök samkoma kvenna í áhrifa- stöðum víðs vegar um heiminn. Samtökin eru óháð og starfa ekki í gróðaskyni. Um er að ræða alþjóð- leg samtök þjóðkjörinna kvenna og pólitískra leiðtoga þar sem lögð er áhersla á að auka fjölda og áhrif stjórnmálakvenna um allan heim. Samtökin leggja sig fram í öllum sínum störfum um að sýna fram á mikilvægi þátttöku kvenna í forystu stjórnmála. Til þess að ná árangri sé mikilvægt fyrir konur að hafa aðgengi að þremur hlutum, það er tengslaneti, samfélagi og opnum samskiptum. lovisaa@365.is Einstök samkoma þjóðkjörinna kvenna Ársfundir samtakanna The Women Political Leaders Global Forum og Council of Women World Leaders verða haldnir í fyrsta skipti hér á landi frá 28. til 30. nóvember í Hörpu. Mikill áhugi er á Íslandi og því sem verið er að vinna að hér. Hingað eru að koma 3-400 konur frá 100 löndum til að ræða jafnréttis- mál í breiðu samhengi. Hanna Birna Kristjánsdóttir, stjórnarformaður framkvæmda- stjórnar WPL. IndóneSíA Agung-fjall á indónesísku eynni Balí er á barmi stórgoss eftir tvö minni öskugos undanfarna daga. Um hundrað þúsund manns hefur verið gert að rýma svæðið umhverfis fjallið og yfirvöld hafa hækkað við- búnaðarstig upp í hæsta stig. Flugvöllum á eynni var lokað í gær. Eru því þúsundir ferðamanna strandaglópar á Balí. Eldfjallið hefur verið að minna á sig frá því í septem- ber en aur og grjót streymir nú niður fjallshlíðarnar. Agung gaus síðast 1963 og kostaði það gos rúmlega þúsund eyjarskeggja lífið. Í viðtali við The Guardian sagði breski jarðfræðingurinn David Roth- ery að ef af gosi yrði nú myndu fleiri deyja þar sem mun fleiri búa nú í nágrenni við fjallið. „Rýmingarsvæðið myndi gjör- eyðileggjast. Þetta er ungt og virkt eldfjall sem á langa sögu um endur- tekin sprengigos,“ sagði David Pyle, jarðfræðingur við Oxford-háskóla, við sama miðil. Mesta hættan yrði af svokölluðum gusthlaupum. Þá svífur heit gjóskan niður fjallshlíðarnar en rýkur ekki upp í loftið. – þea Hundruð þúsunda flýja Stórgos er yfirvofandi í Agung-fjalli á eynni Balí í Indónesíu. NordIcPHotoS/AFP Vegna bilunar hjá fyrri hýsingaraðila um­ sóknarvefs er auglýst aftur eftir umsóknum um styrki til þýðinga á íslensku og þurfa allir að sækja um að nýju. Frestur til 5. desember 2017. Allar nánari upplýsingar eru á islit.is. Umsækjendur um þýðingastyrki með fresti 15. nóvember, athugið! 30 Kletthálsi 13 · hnb.is · 590 5040 Mitsubishi Pajero Instyle 3.2 DID 6.490.0002016 65 VW Golf Variant Highline 1.4 TSI 3.220.000 2015 40 VW Golf e-Golf Premium rafbíll 3.980.000 2016 VW Polo Comfortline 1.4 1.790.000 2014 59 1.540.000 TILBOÐ Skoda Yeti Outdoor 2.0 TDI 4X4 3.850.000 2016 41 Nissan Leaf Acenta Rafmagn 24kW 1.990.000 2013 54 1.680.000 TILBOÐ VW Passat Highline 1.6 TDI 3.490.000 2015 88 Skoda Octavia Combi Ambition 1.6 2.850.000 2014 55 2.550.000 TILBOÐ Audi A4 Allroad Quattro 2.0 TDI 4.450.0002013 88 Fleiri tilboðsbílar og myndir á netinu: hnb.is Góðir notaðir með reynslu. 7 manna, leðuráklæði, hiti í framsætum, rafdrifin sæti, loftkæling, aksturstölva, bakkmyndavél, Bluetooth, fjarlægðar- skynjarar, glertopplúga, hraðastillir,ISOFIX festingar, leiðsögukerfi, litað gler, nálægðar- skynjarar, rafdrifnar rúður, þakbogar. Dráttarbeisli, hiti í sætum, rafdrifin opunun/lokun á afturhlera, viðarinnrétting í mælaborði, nálgunarvarar í fram og afturstuðara, bakkmyndavél, hraðastillir, Bang & Olufsen hljómtæki, milano leðurinnrétting, 18“ álfelgur, sportsæti, xenon/ led aðalljós, leiðsögukerfi o.fl. 3 2 8 . n ó v e M b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d A G U r8 F r É t t I r ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.