Fréttablaðið - 28.11.2017, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 28.11.2017, Blaðsíða 14
2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r14 S p o r t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð sport KörFUboLtI Ísland tapaði fyrir Búlg- aríu, 77-74, í undankeppni HM 2019 í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Liðið var lengi vel með fín tök á leiknum en henti honum frá sér í fjórða leikhlutanum. Martin Hermannsson var atkvæðamestur í liði Íslands með 21 stig en Jakob Örn Sigurðarson skoraði 18 stig í leiknum. Það var hrein unun að fylgjast með íslenska landsliðinu í byrjun leiks og þá sérstaklega þeim Martin Hermannssyni og Tryggva Snæ Hlinasyni. Martin stjórnaði leik íslenska liðsins eins og herforingi og Tryggvi Snær varði þrjú skot í fyrsta leikhlutanum og var frábær í vörninni. Búlgararnir þurftu að hafa mikið fyrir hverju einasta stigi og gekk sóknarleikur íslenska liðsins tölu- vert betur til að byrja með. Staðan var því 21-17 eftir fyrsta leikhlut- ann og hefði íslenska liðið getað verið með stærra forskot, með smá heppni. Í öðrum leikhluta hélt baráttan og harkan í íslenska liðinu áfram og var það einfaldlega líkamlega sterkara en búlgörsku landsliðsmennirnir. Þegar leikhlutinn var hálfnaður var staðan 35-23 fyrir Ísland og útlitið nokkuð bjart. Búlgarar komu til baka undir lok fyrri hálfleiksins og létu íslensku strákana hafa vel fyrir sér með því að keyra alltaf inn í teiginn. Það hafði það í för með sér að menn fóru að sanka að sér villum. Tryggvi var kominn með þrjár villur í hálfleik og þurfti að hafa sig hægan í upphafi síðari hálfleiksins Klaufalegt tap fyrir Búlgörum í Höllinni Íslenska karlalandsliðið í körfubolta kastaði frá sér unnum leik gegn Búlgaríu í undankeppni HM í gær. Strákarnir spiluðu vel lengst af en sóknin hrökk í bak- lás undir lokin. Ísland hefur tapað báðum leikjum sínum í undankeppninni. Kristófer Acox sækir að körfu Búlgara. Íslenska liðið spilaði vel á löngum köflum en gaf eftir undir lokin. FréttABlAðið/Anton olís-deild karla Valur - Haukar 26-30 Markahæstir: Anton Rúnarsson 5/2, Árni Þór Sigtryggsson 4, Alexander Örn Júlíus- son 3, Vignir Stefánsson 3, Ryuto Inage 3, Ólafur Ægir Ólafsson 3 - Hákon Daði Styrmisson 8/6, Atli Már Báruson 6, Adam Haukur Baumruk 5, Leonharð Harðarson 4. Ír - Afturelding 29-33 Markahæstir: Bergvin Þór Gíslason 11, Daníel Ingi Guðmundsson 9/4, Kristján Orri Jóhannsson 4 - Árni Bragi Eyjólfsson 13, Ernir Hrafn Arnarson 7, Elvar Ásgeirsson 7, Mikk Pinnonen 2, Gunnar Malmquist Þórsson 2. Nýjast Efri FH 18 Haukar 17 Valur 17 ÍBV 16 Selfoss 14 Stjarnan 11 neðri Afturelding 9 ÍR 8 Fram 8 Fjölnir 5 Grótta 4 Víkingur 3 Í dag 19.50 Watford - Man. Utd Sport 2 Vináttulandsleikur kvenna Slóvakía - Ísland 26-28 Mörk Íslands: Þórey Rósa Stefánsdóttir 7, Birna Berg Haraldsdóttir 7, Helena Rut Örvarsdóttir 6, Thea Imani Sturludóttir 3, Eva Björk Davíðsdóttir 2, Perla Ruth Albertsdóttir 2, Arna Sif Pálsdóttir 1. Undankeppni HM 2019 Ísland - Búlgaría 74-77 Stig Íslands: Martin Hermannsson 21, Jakob Örn Sigurðarson 18, Hlynur Bæringsson 9, Haukur Helgi Pálsson 9, Kristófer Acox 6, Tryggvi Snær Hlinason 6, Kári Jónsson 5. og það sama má segja um Martin Hermannsson. Staðan í hálfleik var 45-35. Búlgarar mættu grimmir út í síðari hálfleikinn og fóru strax að minnka muninn og það mjög mark- visst. Þegar lítið var eftir af þriðja leikhlutanum var staðan 52-51 fyrir Ísland og Búlgararnir að hóta þeim hvítklæddu að komast yfir í leiknum. Sem betur fer héldu íslensku landsliðsmennirnir út og hleyptu þeim ekki fram úr sér. Staðan fyrir lokafjórðunginn var 61-53. Íslenska liðið var með frum- kvæðið í byrjun fjórða leikhluta en gestirnir ætluðu sér að ná í sigur í Laugardalshöllinni í gær. Þegar tvær og hálf mínúta var eftir af leiknum komust Búlgarar yfir, 67-66, og var mikil spenna í leiknum út leiktímann. Svo fór að lokum að Búlgaría vann leikinn, 77-74. Það skrifast á algjört kæruleysi hjá íslenska liðinu þar sem liðið hafði stóran hluta af leiknum fín tök á honum. Það þurfti bara að sigla sigrinum í hús en það gekk því miður ekki. Búlgarska liðið sýndi aftur á móti gríðarlegan karakter, gafst aldrei upp og það sem var mikilvægast, að þeir hleyptu íslenska liðinu aldrei of langt frá sér. stefanarni@365.isH E I L S U R Ú M A R G H !!! 0 11 11 7 30 gerðir af ólíkum skermum í boði. Verð 1.745 kr. The Petit Lampinn Verð frá 7.650 kr. Snilldar lampi, fáguð hönnun með þremur birtustillingum og endist í allt að 24 tíma án hleðslu. Næstu leikir Íslands í undankeppninni eru í febrúar á næsta ári. Ísland mætir Finnlandi og tékk- landi á heimavelli. „Við leiddum nánast allan leikinn og stjórnuðum honum vel,“ segir Jakob Örn Sigurðarson, leikmaður Íslands, svekktur eftir tapið fyrir Búlgörum í undan- keppni HM í gær. „Við missum þá framúr okkur undir lokin og það verður að segj- ast alveg eins og er að sóknar- leikur okkar var alls ekki nægilega góður síðustu mínúturnar. Við vorum staðir og töpuðum bolt- anum á meðan þeir voru að spila sína sókn og setja niður mikilvæg skot.“ Jakob segir að það sem varð til þess að íslenska liðið tapaði leiknum hafi verið að það hefði átt að klára hann miklum mun fyrr. „Við bara gáfum þeim séns á að komast inn í leikinn í lokin.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.