Morgunblaðið - 09.09.2019, Page 6

Morgunblaðið - 09.09.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Uppskera á korni verður mjög góð á Suðurlandi, ekki síst undir Eyjafjöllum og í Landeyjum, ef fram fer sem horf- ir. Einnig á Vesturlandi og í Skaga- firði. Hins vegar er óvíst um uppskeru á öðrum svæðum Norðurlands og Austurlands því næturfrost hafa eyði- lagt einhverja akra. Gæfan hefur snú- ist við frá síðasta ári, Norðlendingum í óhag. „Það verður alger metuppskera. Við erum ekki alveg búnir að þreskja en það sem komið er lítur vel út. Þroskað korn og mikill hálmur, sem gefur til kynna að uppskeran verði mikil,“ segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvalds- eyri undir Eyjafjöllum. Sáð var á Þorvaldseyri síðustu vik- una í apríl, eins og vant er. Jörðin var klakalaus og tilbúin að taka við sáð- korninu. Það tók strax við sér í rakri mold, að sögn Ólafs, og síðan tók við hlýtt og sólríkt sumar sem kornið nýtti sér vel. Ólafur hóf snemma kornskurð og hefur getað skotist á milli lægða og skorið korn til að þurrka á meðan rign- ingarnar ganga yfir. Meðaluppskera í uppsveitum Björgvin Þór Harðarson, svínabóndi í Laxárdal, ræktar korn á sendnum túnum í Gunnarsholti. Hann segir að þurrkarnir í sumar hafi bitnað á sprettunni og það hafi orðið misþroska. Nú líti akrarnir betur út og aðeins vanti þurrka til að hefja kornskurð. Björgvin vonast til að ná meðalupp- skeru, 3-4 tonnum á hektara, en segir ekki útséð með það. Uppskeran verði alltaf betri en á síðasta ári, þegar akr- arnir í Gunnarsholti gáfu aðeins rúm- lega tonn á hektara. Byggið er notað í fóður á svínabúi fjölskyldunnar í Laxárholti og aðra matvælaframleiðslu hennar. Fækkar í hópi ræktenda „Það er orðin mjög góð fylling og ef við fáum ekki slæm veður á akr- ana lítur bara vel út með uppskeru,“ segir Þórarinn Leifsson, bóndi í Keldudal í Skagafirði. „Ég myndi skjóta á 4-5 tonn á hektara. Það yrði mjög gott því það þarf að fá yfir þrjú tonn til þess að eiga fyrir kostnaði. Allt umfram það er kostur.“ Hann tekur fram að frostnætur í ágúst hafi væntanlega skemmt eitt- hvað en þó ekki mikið í það heila tekið. Korn hefur verið ræktað í Keldu- dal í rúm tuttugu ár og aldrei brugð- ist alveg, þótt uppskeran hafi verið misjöfn. Fækkað hefur mjög í hópi ræktenda, sérstaklega eftir léleg ár, og aðeins er verið að þreskja af rúm- lega 200 hekturum lands í stað 500 þegar mest var. Þórarinn nefnir einnig að kúabændur hafi verið að stækka búin og þurfi þá að stækka túnin um leið. Næturfrost á Norðausturlandi Verra hljóð er í Marteini Sigurðs- syni, bónda á Kvíabóli í Köldukinn í Suður-Þingeyjarsýslu. „Þetta verður lélegt ár. Það gerði næturfrost aðfara- nótt 8. ágúst, fór niður í 4 gráður, þeg- ar kornið var á mjög viðkvæmu stigi. Aftur gerði frost 20. ágúst. „Hætt er við að eitthvað af ökrum í Þingeyjar- sýslu séu ónýtir og ég reikna ekki með að korn verði skorið af öllum ökrum sem sáð var fyrir í vor,“ segir Mar- teinn. Hann segir þróunina í sumar grát- lega. Sáð hafi verið í lok apríl enda klaki farinn úr jörðu. Kornið hafi farið vel af stað en síðan hafi tekið við fimm kaldar vikur. Svo hafi vantað sólskin í ágúst og september. Marteinn segir að ekki sé byrjað að þreskja enda hafi menn ekki einu sinni getað lokið heyskap. Hann á þó von á því að byrjað verði upp úr miðjum mánuði og hafin þurrkun. Gott uppskeruár  Stefnir í mjög góða kornuppskeru á Suður- og Vestur- landi en næturfrost hafa skemmt akra á Norðurlandi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þresking Páll Eggert Ólafsson, bóndi á Þorvaldseyri, losar bygg úr þreskivélinni. Mörg vagnhlöss fara í þurrkun. Góðar horfur Ólafur Eggertsson bóndi er ánægður með vöxtinn í sumar. Eftirspurn hefur minnk- að um 52%  Sterk staða LÍN veldur því að útgjöld til háskólastigsins verða minni árið 2020 Teitur Gissurarson Þór Steinarsson „Lánaumsóknum hefur fækkað um 52% á milli áranna 2009-10 og 2017-18. Fóru úr 14.614 niður í 7.007.“ Þetta segir Lilja Dögg Al- freðsdóttir, ráðherra mennta- og menningarmála, í samtali við Morgunblaðið. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2020, sem kynnt var fyrir helgi, er gert ráð fyrir lækkun á heildarútgjöld- um til háskóla- stigsins. Í frum- varpinu skiptist málefnasviðið háskólastig í tvo málaflokka: Há- skólar og rann- sóknarstarfsemi og Stuðningur við námsmenn. Það eru semsagt gjöld vegna stuðnings við námsmenn sem lækka umtalsvert en þau voru fyrir árið 2019 um 8,248 milljarðar en verða árið 2020 um 4,158 milljarð- ar. Er ástæðan lækkun á framlagi til Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN), en LÍN hefur á undan- förnum árum fengið framlög um- fram raunþörf sjóðsins, segir í fylgiskjali frumvarpsins. „Sjóðurinn er rosalega vel fjár- magnaður,“ segir Lilja en sam- kvæmt ársreikningi var handbært fé LÍN 13,4 milljarðar í árslok 2018 og eigið fé um 104 milljarðar. Út- skýrir Lilja að nú sé því gert ráð fyrir að gengið verði á uppsafnaða sjóði og eigið fé sjóðsins. Ríkissjóð- ur hafi sett talsvert mikið í LÍN á síðustu árum meðan eftirspurn eft- ir lánunum hefur hríðfallið, eins og að ofan greinir. „Svo vel fjármagnaður“ Segir hún enn fremur að á næsta ári muni útgjöld ríkissjóðs minnka mest en muni svo aukast aftur, með- an sé verið rétta stöðuna. „Sjóður- inn er bara svo vel fjármagnaður að það er eðlilegt að ríkið fari í svona ráðstafanir.“ Meðan gert er ráð fyrir lækkun á gjöldum vegna stuðnings við náms- menn er í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir aukningu gjalda vegna hins málaflokksins, Háskóla og rann- sóknarstarfsemi. Eru þau áætluð um 41,014 milljarðar árið 2020 og hækka um 1,774 milljarða króna á föstu verðlagi fjárlaga 2019. Sagði Lilja í samtali við mbl.is um helgina að hún væri stolt af því að sjá „að það er aukning og metnaður á hverju ári síðan ég varð ráðherra“. Sagði hún einnig að í raun væri háskólastigið þrír þættir: „Fyrst eru það háskólarnir og þeir eru að fá aukið fjármagn. Síðan eru það rann- sóknir og háskólar þar sem er líka aukning. Menntun í forgangi Við viljum samkeppnishæfa há- skóla og liður í því er að bæta fjár- mögnun þeirra, sem við höfum verið að gera alveg síðan þessi ríkisstjórn tók við. Við erum klárlega að for- gangsraða í þágu menntunar,“ bætti Lilja við. Samkvæmt fylgiskjali fjárlaga- frumvarpsins er á meðal helstu verkefna tengdra háskólastiginu að birta Menntastefnu 2030 – heildarrit með markmiðum og aðgerðum, auka nýliðun kennara og þróa starf þeirra og birta og hefja innleiðingu á stefnu um opinn aðgang að rann- sóknarniðurstöðum og rannsóknar- gögnum. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Enginn Íslendingur hafði haft sam- band við borgaraþjónustu utan- ríkisráðuneytisins í gær vegna felli- bylsins Faxai sem gekk þá yfir Tókýó. Þarlend yfirvöld sendu frá sér viðvörun vegna hættu á miklum öldugangi, aurskriðum og flóðum. Unnið var að rýmingu svæða. Mikið hvassviðri og úrkoma fylgja felli- bylnum. Talsmaður veðurstofunnar sagði að hann gæti slegið eldri vinda- og úrkomumet. „Enginn hef- ur beðið um aðstoð borgaraþjónust- unnar vegna þessa máls. Við biðjum fólk að fara að fyrirmælum stjórn- valda á staðnum,“ sagði María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri upplýs- ingadeildar utanríkisráðuneytisins. 46 Íslendingar eru skráðir til heim- ilis í Tókýó. Enginn haft samband vegna fellibyls Fatasöfnun skákfélagsins Hróksins í þágu grænlenskra barna og ung- menna átti nýverið fimm ára afmæli og var fagnað með því að nýrri send- ingu var komið til þropsins Ittoq- qortoormiit í Scoresby-sundi. Segir í tilkynningu frá félaginu að um sé að ræða afskekktustu byggð Græn- lands, en það var skútan Hildur frá Norðursiglingu á Húsavík sem sá um flutninginn til Ittoqqortoormiit. Hrókurinn hefur síðan árið 2003 unnið að útbreiðslu skákíþróttarinn- ar meðal Grænlendinga en ofan- nefnd fatasöfnun hófst svo að frum- kvæði heimamanna í Ittoqqort- oormiit. „Við gjörþekkjum til í þessu fallega og fjarlæga þorpi, enda höfum við skipulagt þar árlega páskahátíð um árabil og eigum þar mörgum vinum að fagna. Vinkona okkar þar í bæ, Ellen Napatoq, hafði samband við okkur um þetta leyti fyrir fimm árum og spurði hvort við gætum ef til vill útvegað dálítið af fötum fyrir börnin, þegar vetur fór í hönd,“ segir Hrafn Jökulsson, for- seti Hróksins. Ekki ölmusa „Fæstir átta sig á því að lífskjör hjá okkar góðu grönnum eru langt- um lakari en flestir Íslendingar þekkja og vöruverð er þar hærra. Við leggjum áherslu á að koma fram af kærleika og virðingu. Við erum ekki að gefa ölmusu, heldur deila með okkar góðu grönnum því sem við erum aflögufær um,“ segir Hrafn. Ný fatasending til afskekkt- ustu byggðar Grænlands  Fimm ár eru liðin síðan fatasöfnunin fór fyrst af stað Skipstjórinn Hörður Sigurbjarnar- son ber einn fatapoka í land.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.