Morgunblaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019 Árið 1896 flutti Björn Þorláksson bóndi áVarmá inn vélar til að vinna ull og notaði til þess vatnsorku úrÁlafossi. Verksmiðjan átti stóran þátt í stofnun og vexti byggðar íMosfellsbæ Álafoss , Álafossvegi 23 Mosfellsbæ, Laugavegi 4-6, alafoss.is 9. september 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.0 126.6 126.3 Sterlingspund 154.92 155.68 155.3 Kanadadalur 95.2 95.76 95.48 Dönsk króna 18.616 18.724 18.67 Norsk króna 13.969 14.051 14.01 Sænsk króna 13.029 13.105 13.067 Svissn. franki 127.13 127.85 127.49 Japanskt jen 1.1768 1.1836 1.1802 SDR 172.39 173.41 172.9 Evra 138.91 139.69 139.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.6459 Hrávöruverð Gull 1504.95 ($/únsa) Ál 1753.5 ($/tonn) LME Hráolía 60.81 ($/fatið) Brent ● Salman, kon- ungur Sádi-Arabíu, hefur skipað son sinn, prinsinn Ab- dulaziz bin Salm- an, ráðherra olíu- mála. FT greinir frá þessu og bendir á að með ákvörðun sinni hafi konung- urinn brotið óskrif- aða reglu um að ráðuneytinu væri ekki stýrt af meðlimi konungsfjölskyldunnar. Forveri prinsins, Khalid al-Falih, hafði gegnt embættinu frá árinu 2016 en olíumálaráðherra Sádi-Arabíu er um leið óformlegur leiðtogi OPEC. Undir hans stjórn tókst aðildarríkjum Sam- taka olíuframleiðsluríkja, og samstarfs- þjóðum þeirra, að snúa bökum saman og draga verulega úr olíuframleiðslu til að reyna að hækka heimsmarkaðsverð. Margt er á huldu um hvers vegna al- Falih var vikið úr starfi en í síðustu viku var hann settur af sem stjórnar- formaður Saudi Aramco, á sama tíma og verið er að setja aukinn kraft í skrán- ingu olíurisans á hlutabréfamarkað. Virðist líklegt að breytingarnar stafi af óánægju æðstu ráðamanna og atvinnu- lífs með hve illa virðist ganga að ná heimskarkaðsverði olíu upp að 70-80 dala markinu. ai@mbl.is Nýr olíuráðherra skip- aður í Sádi-Arabíu Abdulaziz bin Salman STUTT VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Markaðsráðstefnan Krossmiðlun verður haldin í sjötta sinn föstudaginn 13. september. Von er á fjölda góðra gesta á Grand Hótel Reykjavík en aðalfyrirlesari er viðburðarins lét fyrst að sér kveða í Suður-Afríku og er í dag einn af stjórnendum alþjóðlegu auglýsingastofunnar TBWA. Á löngum ferli hefur John Hunt komið að fjölda merkilegra herferða og var m.a. einn af mönnunum á bak við kosningabaráttu stjórnmálaflokks Nelsons Mandela í sögulegum kosn- ingum í apríl 1994. Það má heyra á Hunt að hann er hokinn af reynslu, og ætlar hann að nota heimsóknina til Íslands til að miðla nokkrum fræðandi sögum sem ættu vonandi að hughreysta ráð- stefnugesti: „Þetta eru átta sögur samtals, sem eiga það sameiginlegt að það skiptir ekki máli hvar við byrjum, heldur hvar við endum. Þessar sögur fjalla um verkefni sem spanna allt frá því einfalda yfir í það flókna og risa- vaxna, spanna ólíka miðla, og sýna að á bak við tjöldin gengur oft mikið á. Þessar sögur sýna að það getur verið snúið fyrir skapandi fólk að hafa tröllatrú á eigin hugmyndum; og að það sem virðist eftir á svo augljóst að myndi virka var oftast í byrjun eitt- hvað sem kallaði á djörfung og þor.“ Unga fólkið sér í gegnum auglýsendur Að mati Hunts lifum við nú á ein- staklega skemmtilegum tímum fyrir frjótt og skapandi fólk og hafa þeim sem starfa við auglýsinga- og markaðsmál aldrei staðið til boða fleiri og fjölbreyttari leiðir til að koma skila- boðum sínum á framfæri. En á móti kemur að verkkaupar slá ekkert af kröfunum, á sama tíma og þeir sem auglýsingum er beint að verða æ næmari á það þegar markaðsefni er óeinlægt og óáhugavert. „Það á alveg sérstaklega við um yngstu markhóp- ana að það má helst ekki sjást hvað auglýsandanum gengur til, því ef þau greina að verið er að reyna að ná gagngert til þeirra, þá missa þau áhugann.“ Auðvelt er að nefna nokkur nýleg dæmi um dýrar alþjóðlegar herferðir sem fóru einmitt flatt á þessu. Þannig muna eflaust muna margir lesendur eftir auglýsingu sem drykkjarisinn Pepsi gerði með Kendall Jenner í aðalhlutverki í undarlegri blöndu af friðarboðskap, mótmælum og gos- drykkju. Hunt segir þá auglýsingu sýna vel bæði hvað áhorfendur eru næmir fyrir óeinlægni í auglýsingum, en líka hversu snúið það getur verið að finna rétta tóninn. Á blaði hafi auglýs- ingin eflaust virkað mjög vel, en komið mjög illa út í reynd. „Annað glænýtt dæmi af svipðum toga var herferð súkkulaðiframleiðanda í Singapúr. Þar var farin sú leið að fagna sjálf- stæðisafmæli borgríkisins með því að framleiða súkkulaðistykki úr þremur misdökkum tegundum súkkulaðis til að sýna fjölbreytni íbúanna. Fyrir- tækinu gekk gott eitt til en skilaboðin misstu heldur betur marks og slógu ekki réttan tón hjá almenningi.“ Listin að taka afstöðu Svipað var uppi á teningnum í sum- ar þegar greina mátti gremju á sam- félagsmiðlum með það að mörg fyrir- tæki skyldu ákveða að fagna fjölbreytileikanum með því að setja regnbogafánann í vörumerki sín á meðan hinsegin-hátíðir náðu hámarki víða um heim. „Viðbrögðin voru þau að þessi sömu fyrirtæki hefðu setið á hliðarlínunni allt þar til réttindabar- áttan var að mestu unnin og stuðn- ingur við málaflokkinn orðinn sjálf- sagður hlutur, og þau væru að eigna sér baráttu sem þau höfðu ekki tekið þátt í,“ segir Hunt en bendir um leið á að tímasetningin geti verið vandmeð- farin eins og sást í kjölfar herferðar Gillette þar sem eitruð karlmennska var gerð að umræðuefni í annars kraftmikilli auglýsingu. Þótti mörgum körlum að sér vegið og hafa sagt skilið við rakvélar framleiðandans: „Ef fyrirtæki fylkja sér of seint á bak við tiltekinn málstað eru þau gagnrýnd fyrir að reyna að skreyta sig með stolnum fjöðrum en ef þau styðja við málstaðinn of snemma hætta þau á að fá almenningsálitið upp á móti sér – ekki það að ég reikni með öðru en að neikvæð áhrif Gillette-herferðarinnar muni hafa fjarað út eftir 3-6 mánuði.“ Frumlegar lausnir virka best Hvaða vinnubrögðum er svo hægt að beita til þess einmitt að gefa rétta tóninn, á einlægan hátt, á réttum tíma? Hunt vill endilega að auglýsend- ur þori að vera djarfir, og að þeir þori að taka áhættu og afstöðu, en hjá TBWA hafi það hjálpað að hugmyndir eru sameign hópsins og fólk með ólík- an bakgrunn og skoðanir komi að hverju verkefni: „Það þýðir að við get- um nokkuð hratt og vel fengið tilfinn- ingu fyrir því hvað virkar og hvað virkar ekki. Ef stórt og fjölbreytt teymi hefur fengið að skoða hug- myndina og líst vel á hana eykur það strax líkurnar á að lokaútkoman verði í lagi. Vitaskuld þarf að kynna verk- kaupanum hugmyndina á heiðarlegan en um leið sannfærandi hátt, og svo þarf hann líka að vera reiðubúinn að leggja traust sitt á stofuna og leyfa henni að fara ótroðnar slóðir. Það er jú einu sinni þannig að það eru frumlegu lausnirnar sem virka best, og eðli málsins samkvæmt er það sem er frumlegt ekki eitthvað sem hefur ver- ið margreynt áður.“ Frumleiki kallar á hugrekki Ljósmynd/TBWA Taka stökkið John Hunt segir frumlegu lausnirnar oft þær bestu, en eðli málsins samkvæmt hafi þær líka aldrei verið reyndar áður.  Stjórnandi hjá TBWA segir fólk sjá í gegnum það ef auglýsendur eru óeinlægir  Það er hægara sagt en gert fyrir fyrirtæki að taka djarfa afstöðu í hitamálum Það hefur lengi valdið dýravinum gremju að kínversk stjórnvöld gera þá kröfu til erlendra framleiðenda snyrtivara að þeir láti prófa vörur sínar á dýrum áður en þeir fá að flytja þær inn til Kína. Fyrirtæki á borð við L’Oréal og Estee Lauder hafa látið undan þessum kröfum til að fá aðgang að kínverska markaðin- um en aðrir hafa fórnað dýrmætum viðskiptatækifærum í Kína í nafni dýravelferðar. En nú hefur opnast glufa, þökk sé vaxandi vægi netverslunar, því frá árinu 2016 hafa þeir sem selja snyrti- vörur í gegnum netgáttir eins og Ali- baba og JD.com mátt selja erlendar snyrtivörur beint frá vöruhúsum á fríverslunarsvæðum til kínverskra kaupenda, án þess að þurfa að full- nægja kröfum um prófanir á dýrum. Hafa dýravænir snyrtivörufram- leiðendur á borð við Jane Iredale og Fenty Beauty – fyrirtæki söngkon- unnar Rihönnu – gripið tækifærið og komið sér upp netverslunum hjá Ali- baba sem selja beint frá fríversl- unarsvæðum innan Kína. „Okkur langaði að bjóða kínverskum konum upp á snyrtivörurnar okkar, en þar sem við látum okkur velferð dýra miklu varða, þá var okkur ekki sið- ferðislega stætt á því,“ hefur Fin- ancial Times eftir yfirmanni mark- aðsþróunar hjá Jane Iredale. „Með beinni sölu frá fríverslunarsvæðum er það loksins orðið mögulegt fyrir okkur [að selja í Kína]“. ai@mbl.is AFP Blundur Myndin sýnir rólegan kött með „gæludýrafarða“ á dýrasýn- ingu í Bangkok í Taílandi í lok ágúst. Prófanir snyrtivöruframleið- enda á dýrum eru töluvert ljótari. Geta komist hjá prófunum á dýrum  Snyrtivörufram- leiðendur nýta undanþágu í kín- verskum lögum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.