Morgunblaðið - 09.09.2019, Síða 13

Morgunblaðið - 09.09.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019 www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi Margverðlaunuð baðvifta Einstaklega hljóðlát 17-25dB (A) Innbyggður raka-, hita- og hreyfiskynjari. Vinnur sjálfvirkt 3W Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Dominic Raab, utanríkisráðherra Breta, sagði í gær að ríkisstjórnin myndi láta reyna á lögmæti Brexit- frumvarpsins, sem líklega verður að lögum í dag, fyrir dómstólum. Þá yrði einnig athugað mjög gaumgæfi- lega hvaða skilyrði löggjöfin setti ríkisstjórninni, en frumvarpinu er ætlað að binda hendur Boris John- sons, forsætisráðherra Breta, og neyða hann til þess að sækja um framlengingu á þeim tímafresti sem Bretar hafa til að ganga frá útgöng- unni við Evrópusambandið á leið- togafundi sambandsins hinn 19. október næstkomandi. Þá lofuðu Raab, sem og Sajid Ja- vid fjármálaráðherra því að Johnson myndi ekki segja af sér þó að neðri deild þingsins hafnaði aftur að boða til kosninga um miðjan október, líkt og forsætisráðherrann hefur kallað eftir, heldur myndi hann halda ótrauður áfram til að tryggja að út- gangan ætti sér stað 31. október næstkomandi. Javid sagði jafnframt við þáttastjórnandann Andrew Marr á breska ríkisútvarpinu BBC að Johnson myndi ekki biðja um aukinn frest, en andstæðingar hans hótuðu því að forsætisráðherrann gæti átt fangelsisdóm yfir höfði sér fylgdi hann ekki réttum landslögum. Viðræður sagðar í skötulíki Staða Johnsons þótti ekki styrkj- ast um helgina þegar Amber Rudd atvinnu- og lífeyrismálaráðherra sagði af sér á laugardaginn. Sagðist Rudd telja að ríkisstjórnin stefndi að útgöngu úr Evrópusambandinu án þess að samningur um útgöng- una lægi fyrir. Sagði hún að samningaviðræður við sambandið væru í skötulíki mið- að við þann gríðarmikla undirbún- ing fyrir samningslausa útgöngu sem ríkisstjórnin stæði fyrir. Raab gagnrýndi hins vegar Rudd og sagði hana hafa vitað hver markmið John- sons væru þegar hann myndaði ríkisstjórn sína. Þrátt fyrir áföll síðustu viku bentu kannanir til þess að almenn- ingur væri ánægður með Johnson, en þrjár kannanir birtust í gær, sem sýndu annaðhvort óbreytt eða aukið fylgi breska Íhaldsflokksins. Frakkar mótfallnir frestun Þó að andstæðingar útgöngunnar hafi nú náð yfirhöndinni í neðri deild breska þingsins er ekki víst að frek- ari frestur verði auðfenginn í Bruss- el, en leiðtogar allra ríkjanna 28 verða að samþykkja að verða við slíkri bón. Þannig sagði Jean-Yves Le Drian, utanríkisráðherra Frakk- lands, í gærmorgun að miðað við nú- verandi aðstæður væri svar Frakka nei. „Við viljum ekki ganga í gegn- um þetta á þriggja mánaða fresti,“ sagði hann og bætti við að ekkert benti til þess að Bretar hefðu nokkra sýn á það hvernig þeir ættu að nýta tímann, jafnvel þó að út- göngunni yrði frestað fram yfir ára- mót. Boris mun berjast til þrautar  Líklega reynt á löggjöfina fyrir dómstólum  Amber Rudd segir af sér  Frakkar ekki hlynntir annarri framlengingu  Fylgi Íhaldsflokksins eykst AFP Mótmæli Stuðningsmenn og andstæðingar útgöngunnar úr ESB mótmæltu í gær við þinghúsið og lenti sumum mótmælenda saman við lögregluna. Þessir íbúar Bahamaeyja stigu á skipsfjöl á föstudaginn og biðu þess að vera fluttir frá þeim svæðum sem verst urðu úti þegar fellibylurinn Dorian skall á eyjunum í síðustu viku. 43 hið minnsta létust á eyjunum. Fellibylurinn skall í gær á Halifax í Kanada eftir að hafa fært sig upp með austurströnd Norður-Ameríku. Þó að vindhraðinn hefði dvínað mikið olli hann engu að síður miklum usla og skildi eftir sig slóð eyðileggingar. AFP Að minnsta kosti 43 látnir eftir Dorian Ali Akbar Salehi, yfirmaður írönsku kjarn- orkumálastofn- unarinnar, sagði í gær að stórveldi Evrópu hefðu brotið loforð sín og neytt Írana til þess að hefja á ný stóraukna auðg- un úrans. Íranir tilkynntu um helgina að þeir myndu gangsetja á ný skil- vindur sem notaðar eru við auðgun úrans, sem slökkt var á í kjölfar kjarnorkusamkomulagsins árið 2015. Jean-Yves Le Drian, utan- ríkisráðherra Frakklands, hvatti í gær Írana til þess að framfylgja samkomulaginu á ný, en fulltrúi al- þjóðakjarnorkumálastofnunar- innar fundaði í Teheran í gær með Javad Zarif, utanríkisráðherra Ír- ans, vegna samningsbrotanna. Segja Evrópuríkin hafa brotið loforð Ali Akbar Salehi ÍRAN Kyriakos Mitso- takis, forsætis- ráðherra Grikk- lands, fordæmdi í gær „hótanir“ Tyrkja um að þeir myndu hleypa fjölda sýr- lenskra flótta- manna til Evrópu nema landið fengi alþjóðlega aðstoð. Sagði Mitsotakis að Recep Tay- yip Erdogan, forseti Tyrklands, gæti ekki hótað Evrópu og Grikk- landi með flóttamönnum til þess að reyna að fá meira fé frá Evrópu- sambandinu og benti á að nú þegar hefði Tyrkland fengið um sex millj- arða evra frá sambandinu. Hvatti hann í staðinn til viðræðna milli ríkjanna og að þar yrði notað orð- færi „góðra granna“ í stað hótana. Hvetur til viðræðna um flóttamenn Kyriakos Mitsotakis GRIKKLAND Bandarísk stjórnvöld og fulltrúar talíbana í Afganistan sögðu að enn væri möguleiki á að friðarviðræður gætu hafist á ný þrátt fyrir að Don- ald Trump Bandaríkjaforseti hefði óvænt hætt við fund með leiðtogum talíbana og Ashraf Ghani, forseta Afganistans, sem átti að fara fram í Camp David í gær. Trump hætti við fundinn eftir að talíbanar frömdu hryðjuverkaárás í Kabúl á fimmtu- daginn þar sem bandarískur her- maður lét lífið. Sögðu talsmenn talí- bana að uppkast að friðarsamkomu- lagi lægi fyrir. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að Bandaríkin þyrftu að fá tryggingar frá talíbönum ef viðræður ættu að halda áfram. Hann væri hins vegar ekki svartsýnn á framhaldið, en sagði að talíbanar þyrftu að sam- þykkja beinar viðræður við ríkis- stjórn Ghanis. Samkvæmt uppkasti að samkomu- lagi milli Bandaríkjamanna og talíb- ana myndi Bandaríkjaher fækka í herliði sínu í Afganistan um 5.000 manns þegar á næsta ári, en óvíst er hvort af því verður nú. Gagnrýni á heimboðið Tíðindin af því að Trump hefði boðið fulltrúum talíbana til Camp David vöktu nokkra óánægju hjá þingmönnum beggja flokka, en á miðvikudaginn verða 18 ár liðin frá hryðjuverkaárásunum í New York og Washington. Sagði Liz Cheney, þingkona repúblíkana og dóttir þá- verandi varaforseta, að aldrei ætti að leyfa talíbönum að stíga fæti á bandaríska grund. Dyrunum haldið opnum  Trump hættir við fund með fulltrúum talíbana í Camp David  Gagnrýndur fyrir að bjóða þeim til Bandaríkjanna AFP Viðræður Reykur stígur upp yfir Kabúl eftir nýlega árás talíbana. Um 4.000 manns tóku þátt í mót- mælum í Santiago, höfuðborg Síle, til þess að heiðra fórnarlömb her- foringjastjórnarinnar sem Augusto Pinochet leiddi á sínum tíma. 46 ár verða liðin á miðvikudaginn frá byltingunni sem færði Pinochet til valda, en minning hans er enn um- deild í landinu. Mótmælin fóru frið- samlega fram í fyrstu, en 23 voru handteknir eftir að átök milli lög- reglu og mótmælenda brutust út. Minningu Pinochets mótmælt í Santiago SÍLE

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.