Morgunblaðið - 09.09.2019, Side 18

Morgunblaðið - 09.09.2019, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019 ✝ Jo Ann Hearnfæddist 25. september 1953 í Houston í Texas. Hún lést á líknar- deild Landspítalans 27. ágúst 2019. Foreldrar hennar voru Jóhanna Bóel Sigurðardóttir, f. 15.8. 1921, og Samuel Emmett Hearn Jr., f. 27.9. 1921. Þau eru bæði látin. Jo Ann giftist Magnúsi Kjart- anssyni þann 2.6. 1973. Þau skildu. Börn þeirra eru Jóhanna Bóel Bergmann, f. 31.1. 1973. Maður Jóhönnu er Guðjón Bergmann. Dóttir Jóhönnu er Bára Steinunn Jónasdóttir, f. 25.8. 1989. Sonur Báru er Elís Heikir, f. 12.1. 2019. Börn Jóhönnu og Guðjóns eru Daníel Logi Bergmann, f. 3.2. 2002, og Hanna Laufey Berg- mann, f. 27.6. 2008. Kjartan Hearn, f. 10.6. 1977. Eiginkona hans er Rannveig Jónsdóttir, f. 24.2. 1973. Dóttir Rannveigar er Kolfinna Katla Jóhannesdóttir, f. 24.3. 1997. Börn Kjartans og Rannveigar eru Ið- unn Ösp Kjartans- dóttir Hearn. f. 14.9. 2006, og Þór- gunnur Agla Kjart- ansdóttir Hearn, f. 26.1. 2009. Þuríður Hearn, f. 14.11. 1983. Seinni eigin- maður Jo Ann er Jón Kristján Brynj- arsson, f. 21.8. 1952. Þau giftu sig þann 15.5. 1999. Börn Jóns eru Margrét, Hulda Guðný, maki hennar Hörður, Brynja Herborg, eiginmaður hennar Jason, og Andri Freyr, eiginkona hans Lena. Barnabörn eru Aron Þór og Arnþór Óskar, Stefanía Daney, Mikael Guðjón og Axel James, Magnús Ingi og Ingvar Rafn. Langafabarn er Amanda Ósk Aronsdóttir. Jo Ann útskrifaðist frá Þroskaþjálfaskóla Íslands árið 1976 og starfaði nær alla sína tíð sem þroskaþjálfi. Útför fer fram frá Kópavogs- kirkju í dag, 9. september 2019, klukkan 13. Við sitjum hér og minnumst þín, elsku frænka. Margs er að minnast þegar litið er yfir farinn veg. Glaðar stundir æskuáranna, gleði og sorgir fullorðinsáranna. Sumarbústaðaferðirnar okkar, sem ekki voru nægilega margar, en ljúft að minnast þeirra. Börnin þín þrjú, barnabörnin og lang- ömmudrengurinn, sem þér auðn- aðist að sjá og kynnast, voru gleði þín og stolt. Lítillæti, hógværð og virðing fyrir öllum mönnum einkenndu þig. Enda valdir þú þér að lífs- starfi þroskaþjálfann og varst alla tíð með þarfir skjólstæðinga þinna í fyrirrúmi. Síðasta árið var þér mjög erfitt en þú tókst á við veikindi þín af miklum styrk og æðruleysi. Nú er jarðvist þinni lokið, elsku frænka, takk fyrir samfylgdina. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibj. Sig.) Jóhanna (Hanna) og Linda. Frænka okkar, Jo Ann, lést þriðjudaginn 27. ágúst eftir stutt en erfið veikindi. Jo Ann var ein- stök kona, hún var hjartahlý, alltaf með opinn faðm og húmorinn var aldrei langt undan. Söknuðurinn er mikill. Elsku Þurý, Kjartan, Jóhanna og Jón, ykkur sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Vér kveðjum þig með þungri sorg, og þessi liðnu ár með ótal stundum ljóss og lífs oss lýsa gegnum tár. Guð blessi þig! Þú blóm fékkst grætt, og bjart um nafn þitt er. Og vertu um eilífð ætíð sæll! Vér aldrei gleymum þér. (Jón Trausti) Svava Huld og Bára Hlín. Á áliðnum ágústmánuði kvaddi Jo Ann Hearn þessa jarðvist eftir tæplega árslanga baráttu við krabbamein. Hún bar bandarískt nafn enda rann örlítið amerískt blóð í æðum hennar. Hún bjó í Bandaríkjunum fyrstu ár barn- æsku sinnar, átti bandarískan föð- ur en missti tengslin við hann í bernsku þegar Jóhanna móðir hennar og hún fluttu til Íslands. Jo Ann var einbirni og bjuggu þær mæðgur í starfsmannahúsi á veg- um Kópavogshælis mestan hluta æsku hennar. Fyrir tíma fé- lagslegra kerfa hefur lífsbaráttan væntanlega stundum verið erfið. Jo Ann og undirritaður voru systrabörn. Átti ég margar ferðir á heimili hennar til mislangrar veru og þangað sæki ég margar af mínum fyrstu minningum. Þegar Jo Ann óx úr grasi fetaði hún í fót- spor móður sinnar og lærði til þroskaþjálfa sem varð hennar ævistarf. Hygg ég að það hafi ver- ið mikið happ fyrir skjólstæðinga hennar að njóta umönnunar henn- ar. Lífið tók kannski ekki alltaf á Jo Ann með silkihönskum. En með jákvæðni og seiglu komst hún í gegnum dagsins önn og skilað þremur vel gerðum einstaklingum út í lífið sem hafa nú haslað sér völl, tvö erlendis og eitt hér heima. Undirrituð kynntist Jo Ann þegar báðar voru komnar til fullorðins- ára og voru þau kynni góð. Á tíma- bili bjó Jo Ann í Hveragerði og þá var um stuttan veg að fara til að líta til hennar. Það lá ekki fyrir Jo Ann að njóta afraksturs af langri starfsævi og geta sest í helgan stein, hún fór allt of snemma. Það verður án efa vel tekið á móti henni á lendum eilífðarinnar. Aðstandendum vottum við samúð. Almar og Svanhvít (Svana). „Elsku stelpur, þið vitið ekki hvað vinátta ykkar og hópurinn okkar skiptir mig miklu máli.“ Þessi orð lét Jo Ann falla um hóp- inn sem útskrifaðist úr Þroska- þjálfaskóla Íslands fyrir rúmum 43 árum. Með þessum orðum hitti hún naglann á höfuðið eins og svo oft áður. Vinátta okkar og sam- staða í gegnum lífsins ólgusjó hef- ur skipt okkur allar miklu máli og þar lagði Jo Ann mikið af mörkum með sinni einlægu og hlýju nær- veru og vináttu. Á námsárum okk- ar í þroskaþjálfaskólanum voru miklar breytingar í lofti í málefn- um fatlaðs fólks á Íslandi. Ný hug- myndafræði var að nema land og krafan um jafnrétti, sjálfræði og samfélagsþátttöku fatlaðs fólks var í fyrsta sinn í brennidepli. Við vorum einlægar baráttukonur fyr- ir betri hag fólksins á Kópavogs- hæli en á þessum tíma var skólinn staðsettur þar. Hippamenningin og barátta kvenna fyrir jafnrétti voru miklir áhrifavaldar á þessum tíma og við minnumst allar kvennafrídagsins 1975 og vorum stoltar af þátttöku okkar. Við vor- um róttækar og vildum breyta heiminum. Jo Ann lagði sitt af mörkum þó að aldrei hefði hún hátt um skoðanir sínar eða verk. Henni var í blóð borin rík réttlæt- iskennd og hún ólst upp við gildi góðmennsku og réttlætis. Jo Ann var einkabarn Jóhönnu Bóelar Sigurðardóttur og þær mægður afar nánar. Jóhanna var ein af fyrstu þroskaþjálfum á Ís- landi og við minnumst hennar með hlýhug og virðingu. Á meðan hún lifði var hún ávallt tilbúin að spjalla og leiðbeina okkur þegar kom að þroskaþjálfastarfinu. Í gegnum árin höfum við átt ótal margar ánægjustundir með Jo Ann en við höfum hist nánast í hverjum mánuði frá því að við út- skrifuðumst vorið 1976. Þá höfum við ferðast til útlanda saman, farið í sumarbústað og svo má lengi telja. Jo Ann var einstök perla og öllum sem kynntust henni þótti vænt um hana og leið vel í návist hennar. Það var þessi hlýja sem einkenndi hana og kom fram í öllu hennar fari. Jo Ann var líka orðvör og talaði af nærgætni um menn og málefni. Hún hafði einstakan húm- or, sagði skemmtilega frá og við minnumst þess hve innilega hún gat hlegið. Þá var hún líka alltaf fyrst til að hvetja okkur og hrósa. Í lífi Jo Ann, eins og okkar flestra, skiptust á skin og skúrir en hún tókst á við mótlæti með einstöku æðruleysi og bera síð- ustu mánuðir því vitni. „Þetta fer allt vel,“ sagði hún og þessi setn- ing er á einhvern hátt svo einkenn- andi fyrir Jo Ann okkar. Með fráfalli Jo Ann er stórt skarð hoggið í hópinn okkar og hennar verður sárt saknað. Sökn- uðurinn og sorgin er þó mest hjá börnum Jo Ann, barnabörnum og nánustu fjölskyldu. Við vitum að hún var einstök móðir og amma, hún var afar stolt af hópnum sín- um og við fylgdumst með hvað það gladdi hana að fá að upplifa fæð- ingu fyrsta langömmubarnsins. Innilegar samúðarkveðjur til ykk- ar allra. Agnes Elídóttir, Anna F. Sigurðardóttir, Dadda G. Ingvadóttir, Guðríður Gía Ólafsdóttir, Guðrún V. Stefánsdóttir, Ingi- björg Gísladóttir, María Ingólfsdóttir og Oddný S. Jóhannesdóttir. Kveðja frá Skátagildinu í Hveragerði Hún Jo Ann er farin heim. Jo Ann gekk í skátagildið í Hveragerði árið 2010. Hún vígðist skáti sem ung stúlka í Kópavogi. Eftir að hún hafði búið um hríð í Hveragerði lá beinast við að ganga til liðs við skátagildið í bænum. Hún tók strax að sér sæti í stjórn félagsins og var ritari stjórnar í fjögur ár. Léttleiki var aðalsmerki hennar. Stutt í hláturinn og ævin- lega jákvæð. Ekkert var það til sem ekki var hægt að leysa. Þegar Jo Ann flutti síðan úr bænum okk- ar til Bandaríkjanna skildi leiðir fyrir um fjórum árum. Við gildisfélagar þökkum Jo Ann hér samfylgdina og færum fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipast kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvíldu rótt. Guð er nær. Félagar í Skátagildinu í Hvera- gerði, Helga Jóhanna Jósefsdóttir. Jo Ann Hearn Á lífsleiðinni kemur það fyrir að einstakar mann- eskjur verða á vegi manns. Manneskjur sem kenna manni, áreynslulaust og af yf- irvegun, að líta lífið öðrum aug- um. Óli Freyr var einn af þess- um manneskjum. Hann hóf störf með okkur fyrir rúmum þremur árum og það var strax augljóst að þarna fór maður sem var ekki bara traustur, skarpgreindur og skemmtilegur heldur einstaklega réttsýnn, hjartahlýr og harðduglegur. Hann hafði auk þess yndislega nærveru og var ávallt boðinn og búinn til að aðstoða við að leysa viðfangsefni okkar og annarra samstarfsfélaga. Hann nálgað- ist verkefnin sín af mikilli elju, áhuga og ákefð en á sama tíma af einstakri yfirvegun og skiln- ingi. Við áttuðum okkur líka fljótt á því að Óli Freyr var ekki bara frábær samstarfsmaður og vinur heldur sérlega vandaður faðir og eiginmaður. Þau voru ófá samtölin sem við áttum við hann um börnin, uppeldi og fjöl- skyldulíf og þar skein í gegn hversu stoltur hann var af fjöl- skyldu sinni og börnum. Óli Freyr brann fyrir mál- efnum sjálfbærni og ábyrgra fjárfestinga og lagði veigamikil lóð á vogarskálar þeirra breyt- inga sem hafa verið í þróun hér á landi í þeim efnum. Eftir hann liggur fjöldi greina og kynninga um málefnið ásamt fræðiriti um Óli Freyr Kristjánsson ✝ Óli FreyrKristjánsson fæddist 6. júlí 1978. Hann lést 25. ágúst 2019. Útför Óla Freys fór fram 5. septem- ber 2019. umboðsskyldu og ábyrgar fjárfest- ingar fagfjárfesta. Ritið er mikilvægt framlag hér á landi um málefni sam- félagsábyrgðar og hefur vakið verð- skuldaða athygli. Á þeim vettvangi kynntumst við hon- um einna best er hann tók að sér að stýra stefnumótun og innleið- ingu á ábyrgum fjárfestingum fyrir þá lífeyrissjóði sem við er- um í forsvari fyrir. Skemmst er frá því að segja að sú verk- efnastýring var einkar farsæl af hans hálfu og kunnum við hon- um miklar þakkir fyrir. Óli Freyr sat jafnframt í stjórn Ice- landSIF en tilgangur þess fé- lags er að efla þekkingu fagfjár- festa á aðferðafræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga og efla um leið umræðuna um slíkar fjárfestingar. Hann vann ötul- lega á þeim vettvangi svo eftir var tekið og sat sem varafor- maður í stjórn samtakanna. Þegar maður er svo heppinn að fá að kynnast manni eins og Óla Frey þá hafa þau kynni áhrif. Við vildum óska þess að þau kynni hefðu fengið að vara lengur en áhrifin eru komin til að vera. Óli Freyr vann allt fram á síðasta dag og aldrei var bilbug á honum að finna. Hann var okkur stöðug hvatning til að gera betur í dag en í gær og gefast ekki upp þótt á móti blási. Kæra Ágústa og börn. Við sendum ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur, missir ykkar er ólýsanlegur. Minning- in um einstakan mann lifir. Snædís Ögn Flosadóttir og Arnaldur Loftsson. Elsku mamma. Það er erfitt að hugsa sér lífið án þín. Þú varst ekki bara mamma mín heldur varstu líka mín besta vinkona. Ég og börnin mín eigum þér mikið að þakka, þú stóðst alltaf við bakið á okkur, þú varst stoð okkar og stytta og alltaf tókst þú hagsmuni annarra fram yfir þína. Þú kennd- ir okkur að gefast aldrei upp, oft varst þú mikið veik og kvalin en samt varst þú alltaf svo bjartsýn og uppgjöf var aldrei í boði. Ég man svo vel þegar þú sagðir við mig að það að ganga í gegnum erf- ið veikindi væri ekkert miðað við það að þurfa að horfa upp á ömmubörnin þín ganga í gegnum erfiðleikana sem á þau voru lagðir. Það tímabil tók mikið á okkur öll en alltaf stóðst þú upprétt og bug- aðist aldrei. Þú varst sterk fyrir okkur og komst okkur í gegnum þetta. Við eyddum miklum tíma saman og höfum alla tíð verið mjög nánar, oft gátum við klárað setningar hvor annarrar, til dæm- is þegar ég spurði þig með orð- unum „mamma ættum við að“, þá svaraðir þú um hæl, áður en ég náði að klára spurninguna „já, gerum það!“. Þú vissir yfirleitt alltaf nákvæmlega hvað ég var að fara segja. Aðalheiður Hauksdóttir ✝ AðalheiðurHauksdóttir fæddist 21. október 1952. Hún lést 19. ágúst 2019. Útför Aðalheiðar fór fram 28. ágúst 2019 í kyrrþey. Þú passaðir upp á Sólon okkar fyrir mig þegar ég þurfti að eyða löngum tíma í Danmörku og eins þegar íslensk yfir- völd ákváðu að fram- selja mig til Dan- merkur. Þá passaðir þú, ásamt systkinum mínum, vel upp á börnin mín fjögur. Þú gerðir allt til þess að okkur öllum myndi líða sem best og alltaf tókstu málstað þeirra sem minna mega sín í lífinu. Þú varst líka fljót að rétta fram hjálparhönd ef einhver þurfti á að halda. Þú varst mjög glaðlynd og stundum gátum við hlegið enda- laust saman, eins og þegar Sólon var lítill, sat fyrir aftan mig og klippti stóran lokk úr hárinu á mér! Þú hlóst svo mikið, til að byrja með var mér ekki skemmt en eftir smátíma grenjuðum við báðar úr hlátri. Elsku mamma, þín er sárt saknað en minningin um yndislega mömmu og ömmu lifir í hjörtum okkar. Þú varst okk- ur svo mikilvæg. Þú varst heil- steypt og góðhjörtuð og fyrir- mynd okkar allra. Ég ætla að enda þetta á orðum sem við not- uðum mikið í gegnum alla okkar erfiðleika og ég minni börnin mín og sjálfa mig oft á: „Við getum allt.“ Og við getum þetta líka, fyrir þig mamma. Þú kenndir okkur að gefast aldrei upp og við ætlum að vera sterk saman. Elska þig, mamma. Þín dóttir Hjördís Svan. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KORT SÆVAR ÁSGEIRSSON er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 12E Hringbraut fyrir frábæra þjónustu og umhyggju. Áslaug Pétursdóttir Arnar Geir Kortsson Rut Ólafsdóttir Sigurgeir Örn Kortsson Susana Reguera Gilarranz Katrín Íris Kortsdóttir Óskar Örn Ágústsson Ásta Jenny Sigurðardóttir og barnabörn Elsku maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJARNI EYJÓLFUR GUÐLEIFSSON náttúrufræðingur, Hamratúni 1, Akureyri, áður Möðruvöllum í Hörgárdal, lést laugardaginn 7. september. Útförin verður auglýst síðar. Pálína Sigríður Jóhannesdóttir Brynhildur Bjarnadóttir Sigurður Ingi Friðleifsson Brynjólfur Bjarnason Sigurborg Bjarnadóttir Jónatan Þór Magnússon Sigríður Bjarnadóttir Brynjar Þór Hreinsson og afabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.