Morgunblaðið - 09.09.2019, Side 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019
60 ára Sigurveig er
fædd og uppalin á
Akranesi en býr í
Mosfellsbæ. Hún er
menntaður sjúkraliði
en er heimavinnandi.
Maki: Kristján Guð-
mundsson, f. 1962,
rafmagnsiðnfræðingur og vinnur hjá
Rafmiðlun.
Börn: Runólfur Óttar, f. 1982, Guð-
mundur Ólafs, f. 1987, og Jón Björg-
vin, f. 1992. Barnabörnin eru orðin 6.
Foreldrar: Runólfur Óttar Hall-
freðsson, f. 1931, d. 2003, skipstjóri
og útgerðarmaður, og Ragnheiður
Gísladóttir, f. 1935, d. 2016, húsmóðir
og útgerðarmaður. Þau voru búsett á
Akranesi.
Sigurveig
Runólfsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gættu þess að særa ekki aðra því
það getur reynst örlagaríkt. Hertu upp hug-
ann, þótt þú titrir á beinunum. Að hika er
sama og tapa.
20. apríl - 20. maí
Naut Taktu hina miklu þörf þína fyrir at-
hygli til íhugunar. Þarftu alltaf að slá í gegn
og vera númer eitt?
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er fín lína milli þess að vilja
allt fyrir alla gera og klára jafnvel orkuna í
það og aðstoða af skynsemi. Þú reynir
ávallt að sjá það jákvæða í öllum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú verður að létta einhverjum verk-
efnum af þér, ef ekki á illa að fara. Gerðu
þitt besta – það er nóg. Aðrir þurfa að sjá
um sig og sína.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Reyndu ekki að sýnast annar/önnur
en þú ert til þess eins að ganga í augun á
einhverjum, sem þú veist ekki hvaða hug
bera til þín.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Notaðu daginn til þess að blanda
geði við náungann eða jafnvel nágrannann.
Þú vekur athygli fyrir frumlegan klæðaburð.
23. sept. - 22. okt.
Vog Að vinna bara og sofa gengur ekki til
lengdar. Lengi getur vont versnað tautar
þú, en er staðan eins slæm og þér finnst?
Reyndu að hvíla þig meira.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að fást við þýðing-
armikið mál í dag. Kannski líta vinir og fjöl-
skylda ekki á það með algerri velþóknun, en
það verður bara svo að vera.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gleymdu þeim hlutum sem ekki
gengu upp hjá þér á síðasta ári. Láttu aðra
um að ráða sínum málum. Þér fer fram í
ræktinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt þú standir klár á þínu er
ekki víst að það sama gildi um aðra. Ef þú
heyrir af einhverjum í vandræðum ertu
rokin/n í að hjálpa viðkomandi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert full/ur af krafti og iðar í
skinninu eftir að koma öllu því í verk sem
hefur verið á biðlistanum. Hafðu hugfast að
ein lítil mistök geta dregið dilk á eftir sér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gleymdu ekki að vera til staðar og
aðstoða vini þína sem í því sem þeir þurfa.
Þér verður boðið til lands sem þú hélt að þú
myndir aldrei heimsækja.
í sumar, á Graspop í Belgíu. Í bú-
fjárræktinni stunda ég sauðfjár-
rækt af miklum áhuga. Einnig
stunda ég óvenjulegri búfjárrækt
en við fjölskyldan ræktum border
collie-fjárhunda og seljum. Vefsíða
lendis og þá nær eingöngu þunga-
rokkstónleika. „Hápunktur ferils-
ins í þeim efnum var að sjá Black
Sabbath kveðja aðdáendur sína í
Genting Arena í Birmingham í
febrúar 2017 og King Diamond nú
A
ðalsteinn Jóhannes
Halldórsson er fædd-
ur 9. september 1979
á Húsavík en ólst upp
á Syðri-Sandhólum á
Tjörnesi. Grunnskólagöngu hóf
Aðalsteinn í Hafralækjarskóla í
Aðaldal 1985 og útskrifaðist 1995.
„Á þessum tíma var keyrt með
börn af Tjörnesi í gegnum Húsa-
vík og fram í Aðaldal til þess að
sækja skóla, sem er undarleg ráð-
stöfun. Aukinheldur þurfti ég að
fara á heimavist strax sex ára líkt
og aðrir sveitungar mínir.“ Að lok-
inni grunnskólagöngu lá leiðin í
Framhaldsskólann á Húsavík þar
sem Aðalsteinn lauk stúdentsprófi
1999. „Eftir nokkrar tilraunir
tókst mér svo að finna há-
skólanám sem ég kláraði en ég út-
skrifaðist með BA-gráðu í stjórn-
málafræði frá Háskóla Íslands
árið 2006. Fjórum árum seinna út-
skrifaðist ég svo með MPA-gráðu
í opinberri stjórnsýslu frá sama
skóla.“
Aðalsteinn starfaði fyrir Þekk-
ingarnet Þingeyinga á Húsavík
sem sérfræðingur í tæp fimm ár
þangað til vorið 2013. Hann hóf
störf á Skrifstofu stéttarfélaganna
á Húsavík í mars 2016 og starfar
þar enn þann dag í dag sem skrif-
stofumaður. Vorið 2018 tók Aðal-
steinn sæti í hreppsnefnd Tjörnes-
hrepps þar sem hann gegnir
jafnframt stöðu oddvita, en hann
býr á Ketilsstöðum á Tjörnesi.
Þetta var í annað skiptið sem
hann kemur nálægt sveitar-
stjórnarmálum en hann sat í
sveitarstjórn Norðurþings á ár-
unum 2006-2010, þeirri fyrstu í
Norðurþingi.
Aðalsteinn er í stjórn Fram-
sóknarfélags Þingeyinga og hefur
verið það í fjögur ár, um tíma sem
formaður. Auk þess hefur hann
setið í knattspyrnuráði Völsungs,
er formaður Hollvina Framhalds-
skólans á Húsavík og er stofn-
meðlimur í fótboltaáhugahópnum
„Nigel Worthington?“.
Áhugamál Aðalsteins auk fót-
boltans eru þungarokk og ræktun
búfjár. Hann sækir tónleika er-
okkar er smalahundar.is.“ Undan-
farin ár hefur Aðalsteinn haft sér-
stakan áhuga á einu samfélags-
verkefni, sem er ábúð í dreifðum
byggðum landsins. Þar telur hann
Íslendinga vera á villigötum.
„Helst er það eignarhald á jarð-
næði sem er að leggja byggðirnar
í rúst smátt og smátt. Þá er ég
ekki að tala eingöngu um auð-
menn sem sækjast eftir jarðnæði
eins og hefur verið mikið í um-
ræðunni síðustu mánuði heldur
enn frekar afkomendur fyrri ábú-
enda sem erfa jarðir og gera svo
ekkert með þær nema leggja í
eyði. Slíkt eignarhald er engum
til gagns. Það er mín skoðun að
fyrirkomulag eignarhalds á jarð-
næði eigi að styðja við byggðirnar
en sem stendur er það til þess
fallið að vinna gegn því að byggð-
ir blómstri.“
Fjölskylda
Sambýliskona Aðalsteins er
Elísabet Gunnarsdóttir, f. 16.5.
Aðalsteinn J. Halldórsson, skrifstofumaður og oddviti í Tjörneshreppi – 40 ára
Sauðburður Aðalsteinn ásamt dóttur sinni, Sigrúnu Lillý, og móður sinni, Marý Önnu, á Syðri-Sandhólum.
Eignarhald jarða á villigötum
Gangnamenn í Núpasveit Aðalsteinn, Birkir Gunnarsson, Björn Hall-
dórsson og Eiríkur Björnsson staddir við Svartás á Hólaheiði.
Kristjana Lárusdóttir, Þorgerður
Tinna Kristinsdóttir og Hulda
Elísabet Daníelsdóttir seldu dótið sitt
fyrir utan verslunina Kost í Reykja-
nesbæ. Þær gáfu Rauða krossinum af-
raksturinn sem var heilar 18.870
krónur.
Hlutavelta
50 ára Helgi er
Reykvíkingur en
fæddist í Karlsruhe í
Þýskalandi. Hann er
tannsmiður að
mennt frá Tann-
smíðaskóla Íslands
og rekur eigin tann-
smíðastofu.
Maki: Ingibjörg Jóna Hallgrímsdóttir,
f. 1972, tanntæknir.
Synir: Garðar Snær, f. 1998, og Heim-
ir Blær, f. 2002.
Foreldrar: Ingvar Árnason, f. 1943,
prófessor emeritus í efnafræði við HÍ,
og Christa Gudrun Árnason, f. 1947,
frá Karlsruhe, fyrrverandi glugga-
skreytingadama. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Helgi
Ingvarsson
Til hamingju með daginn
ALLTAF KLÁRT
Í ÞRIFINAJAX
NÚ FÆRÐU
AJAX með
matarsóda og sítrónu
og AJAX
með ediki og eplum
Hjálpar þérað gera heimiliðskínandi
hreint