Morgunblaðið - 09.09.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019
Norðlingabraut 8
110 Reykjavík
S: 530-2005
Bíldshöfði 16
110 Reykjavík
S: 530-2002
Tryggvabraut 24
600 Akureyri
S: 461-4800
&530 2000
www.wurth.is
Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur
Bætiefni
• Bensín og dísel bætiefni í tankinn
• Hreinsar bensíndælu, leiðslur og fl.
• Minnkar eldsneytisnotkun
• Lengir líftíma hvarfakúts og súrefnis-
skynjara, kemur í veg fyrir stíflaða ventla
• Minnkar losun út í umhverfið
Vnr: 0893 73
Verð: 1.990 kr.
Álfelguhreinsir
• Hentar aðeins álfelgum
• Fjarlægir erfiðustu bremsuryks-
bletti sem og tjörubletti
• Inniheldur sýru
Vnr: 0890 102
Verð: 3.152 kr.
Undankeppni EM karla 2020
H-RIÐILL:
Ísland – Moldóva...................................... 3:0
Kolbeinn Sigþórsson 31., Birkir Bjarnason
55., Jón Daði Böðvarsson 77.
Frakkland – Albanía ............................... 4:1
Kingsley Coman 8., 68., Olivier Giroud 27.,
Antoine Griezmann 37. (víti). – Sokol Cikal-
leshi 90. (víti).
Tyrkland – Andorra................................ 1:0
Ozan Tufa 89.
Staðan:
Frakkland 5 4 0 1 16:4 12
Tyrkland 5 4 0 1 10:2 12
Ísland 5 4 0 1 8:5 12
Albanía 5 2 0 3 6:7 6
Moldóva 5 1 0 4 2:13 3
Andorra 5 0 0 5 0:11 0
Næstu leikir á morgun:
Albanía – ÍslandFrakkland – Andorra
Moldóva – Tyrkland
A-RIÐILL:
Kósóvó – Tékkland................................... 2:1
England – Búlgaría .................................. 4:0
Staðan:
England 3 3 0 0 14:1 9
Kósóvó 4 2 2 0 7:5 8
Tékkland 4 2 0 2 6:8 6
Búlgaría 5 0 2 3 5:11 2
Svartfjallaland 4 0 2 2 3:10 2
B-RIÐILL:
Litháen – Úkraína.................................... 0:3
Serbía – Portúgal ..................................... 2:4
Staðan:
Úkraína 5 4 1 0 11:1 13
Portúgal 3 1 2 0 5:3 5
Lúxemborg 4 1 1 2 4:5 4
Serbía 4 1 1 2 7:11 4
Litháen 4 0 1 3 3:10 1
D-RIÐILL:
Georgía – Danmörk.................................. 0:0
Sviss – Gíbraltar ....................................... 4:0
Staðan:
Írland 5 3 2 0 6:2 11
Danmörk 5 2 3 0 15:5 9
Sviss 4 2 2 0 10:4 8
Georgía 5 1 1 3 4:8 4
Gíbraltar 5 0 0 5 0:16 0
F-RIÐILL:
Rúmenía – Malta ...................................... 1:0
Spánn – Færeyjar .................................... 4:0
Svíþjóð – Noregur .................................... 1:1
Staðan:
Spánn 6 6 0 0 17:3 18
Svíþjóð 6 3 2 1 13:8 11
Rúmenía 6 3 1 2 13:7 10
Noregur 6 2 3 1 11:8 9
Malta 6 1 0 5 2:13 3
Færeyjar 6 0 0 6 3:20 0
J-RIÐILL:
Armenía – Bosnía ..................................... 4:2
Finnland – Ítalía....................................... 1:2
Grikkland – Liechtenstein....................... 1:1
Helgi Kolviðsson þjálfar Liechtenstein.
Staðan:
Ítalía 6 6 0 0 18:3 18
Finnland 6 4 0 2 8:4 12
Armenía 6 3 0 3 12:11 9
Bosnía 6 2 1 3 12:11 7
Grikkland 6 1 2 3 7:10 5
Liechtenstein 6 0 1 5 1:19 1
KNATTSPYRNA
Í TIRANA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Karlalandsliðið í fótbolta lenti í Tir-
ana, höfuðborg Albaníu, um átta-
leytið að íslenskum tíma í gærkvöld
og býr sig í dag undir slaginn við
Albana sem fram fer í Elbasan ann-
að kvöld.
Þangað er liðið mætt með tólf stig
af fimmtán mögulegum í farteskinu
úr fyrri umferð riðlakeppninnar í
undankeppni EM og þrjú síðustu
stigin innbyrtu strákarnir með sann-
færandi sigri á Moldóvu í rigning-
unni á Laugardalsvellinum á laugar-
daginn, 3:0.
Sá leikur spilaðist eins og eftir
pöntun. Aldrei hætta eftir fyrsta
markið, þrjú mörk voru skoruð og
gátu verið fleiri, mótherjarnir fengu
aldrei umtalsvert marktækifæri,
enginn íslenskur leikmaður fékk
spjald og enginn meiddist. Erik
Hamrén gat gefið Kolbeini, Birki og
Jóni Daða mikilvægar mínútur í
hvíld með því að skipta þeim af velli.
Kolbeinn bað um skiptingu eftir
rúman klukkutíma þegar hann fann
að hann var farinn að þreytast á
þungum og blautum Laugardals-
vellinum.
Ísland er með eitt allra reyndasta
landslið Evrópu í dag; tíu í byrjunar-
liðinu léku á EM 2016 og sá ellefti
var í hópnum. Þetta var akkúrat
frammistaða í takt við allt það sem
þetta lið á að baki. Helst má gagn-
rýna slæma byrjun; liðið þurfti
fimmtán mínútur til að hrista af sér
hrollinn og sterkari mótherji en
Moldóva hefði kannski getað nýtt
sér það.
Ánægjulegt að sjá Kolbein
Kolbeinn Sigþórsson skoraði
fyrsta mótsmark sitt síðan á EM
2016 og besti maður vallarins, Ari
Freyr Skúlason, lagði upp hin tvö
fyrir Birki Bjarnason og Jón Daða
Böðvarsson. Það er sérstaklega
ánægjulegt að sjá Kolbein vera að
nálgast sitt gamla form því þegar
hann er í sínu besta standi er ís-
lenska landsliðið einfaldlega einu
þrepi ofar á styrkleikalistanum.
Hinir leikirnir í riðlinum fóru eins
og búast mátti við. Tyrkir náðu
reyndar ekki að skora fyrr en á 89.
mínútu gegn Andorra og vinna 1:0
heimasigur en Frakkar voru ekki í
neinum vandræðum með að vinna
Albani 4:1. Frakkland, Tyrkland og
Ísland eru með 12 stig hvert og í
þeim harða slag um EM-sætin tvö er
einfaldlega bannað að misstíga sig.
Verkefnið sem bíður annað kvöld er
erfitt, við sáum það vel í hinum
nauma 1:0 sigri á Albönum á
Laugardalsvellinum í júní og það
þarf virkilega góðan leik til að sækja
þrjú stig til Elbasan.
Spilað samkvæmt pöntun
Allt gert rétt í 3:0 sigrinum á Moldóvu Íslenska liðið er komið til Albaníu
og spilar algjöran lykilleik í baráttunni um sæti á EM 2020 annað kvöld
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fögnuður Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fagnar sigrinum gegn Moldóvum ásamt félögum sínum.
1:0 Kolbeinn Sigþórsson 31. eftir
sendingu Jóns Daða.
2:0 Birkir Bjarnason 55. eftir horn-
spyrnu Ara og skalla Ragnars.
3:0 Jón Daði Böðvarsson 77. fékk
boltann í sig og inn eftir fyrirgjöf Ara
í varnarmann.
I Gul spjöldCatalin Carp og Artiom Razg-
oniuc (Moldóvu).
Ísland: (4-4-2) Mark: Hannes Þór
Halldórsson. Vörn: Hjörtur Her-
mannsson, Kári Árnason, Ragnar
Sigurðsson, Ari Freyr Skúlason.
Miðja: Arnór Ingvi Traustason, Aron
Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðs-
ÍSLAND – MOLDÓVA 3:0
son, Birkir Bjarnason (Rúnar Már
Sigurjónsson 78). Sókn: Jón Daði
Böðvarsson (Viðar Örn Kjartansson
84), Kolbeinn Sigþórsson (Emil Hall-
freðsson 63).
Dómari: Joao Pinheiro, Portúgal.
Áhorfendur: 8.338.
MM
Ari Freyr Skúlason
M
Kolbeinn Sigþórsson
Jón Daði Böðvarsson
Gylfi Þór Sigurðsson
Aron Einar Gunnarsson
Ragnar Sigurðsson
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu kom til Tirana í
gærkvöld í beinu leiguflugi frá Íslandi. Allir 22 leik-
mennirnir sem skipuðu hópinn gegn Moldóvu á laugar-
daginn eru heilir og klárir í slaginn en liðið mætir
Albaníu í Elbasan annað kvöld í sjöttu umferð H-riðils
undankeppni EM. Liðið dvelur í Tirana en æfir á vell-
inum í Elbasan í kvöld. Ari Freyr Skúlason, besti leik-
maður íslenska liðsins gegn Moldóvu, sagði við Morgun-
blaðið að hann ætti von á hörkuleik. „Albanar eru flott
fótboltalið með flotta einstaklinga og hörkukarakter, og
alltaf tilbúnir að berjast, þannig að þetta verður hörku-
leikur. Það er ekkert sjálfgefið að fara til Albaníu og
vinna en við erum vel gíraðir. Ef við einbeitum okkur að okkur sjálfum 110
prósent og því sem við ætlum að gera er ég viss um að við förum heim með
þrjú stig,“ sagði Ari Freyr. vs@mbl.is
Albanar eru flott fótboltalið
Ari Freyr
Skúlason
Fátt getur komið í veg fyrir að Fjölnir leiki í efstu deild
karla í knattspyrnu á næsta tímabili en Fjölnismenn
gerðu góða fer til Akureyrar í gær þar sem þeir burst-
uðu Þór 7:1. Orri Þórhallsson og Kristófer Óskar Ósk-
arsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Fjölni, sem er með
fjögurra stiga forskot á Gróttu og fimm á Leikni. Fjölnir
tekur á móti Leikni á laugardaginn og stig í þeim leik
tryggir Grafarvogsliðinu sæti í Pepsi Max-deildinni.
Grótta, sem hafði ekki tapað í 15 leikjum í röð í
deildinni, steinlá á heimavelli fyrir Aftureldingu sem
nældi sér í mikilvæg stig í botnbaráttunni. Mosfellingar
unnu 5:0 þar sem Andri Freyr Jónasson skoraði þrennu.
Magni Grenivík vann góðan útisigur á Víkingi Ólafsvík 2:1 þar sem
Gunnar Örvar Stefánsson skoraði sigurmarkið. Með sigrinum komst Magni
upp að hlið Hauka. Bæði eru þau með 19 stig en markatala Hauka er betri
og Magni því enn í fallsæti. Þróttur er svo í 9. sætinu með 21 stig.
Fjölnir í sterkri stöðu
Gunnar Örvar
Stefánsson