Morgunblaðið - 09.09.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 09.09.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2019 V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til HANDBOLTI Olísdeild karla ÍBV – Stjarnan ..................................... 30:24 Afturelding – KA.................................. 28:27 EHF-bikar karla 1. umferð, seinni leikur: FH – Vise .............................................. 29:21  FH áfram, 56:48 samanlagt. Talent Plzen – Haukar......................... 26:25  Talent Plzen áfram, 51:45samanlagt. West Wien – Bocholt ........................... 25:22  Guðmundur Hólmar Helgason skoraði 7 mörk fyrir West Wien.  Bocholt áfram, 48:47samanlagt. EHF-bikar kvenna Valur – Skuru ...................................... 24:31  Eva Björk Davíðsdóttir skoraði ekki fyr- ir Skuru.  Skuru áfram, 53:47 samanlagt. Leverkusen – Latsia.............................. 40:5 Latsia – Leverkusen.............................. 5:36  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Leverkusen í fyrri leik og 6 mörk í seinni leik.  Leverkusen áfram, 76:10 samanlagt. Þýskaland Lemgo – Hannover-Burgdorf............ 26:36  Bjarki Már Elísson skoraði 7 mörk fyrir Lemgo. Bergischer – Wetzlar.......................... 33:30  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson ekkert. Balingen – Melsungen ........................ 36:23  Oddur Gretarsson skoraði 5 mörk fyrir Balingen. Stuttgart – Minden.............................. 24:24  Elvar Ásgeirsson skoraði 5 mörk fyrir Stuttgart. Danmörk GOG – Aalborg ......................................30:34  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 2 mörk fyrir GOG og Arnar Freyr Arnarsson 1. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 3 skot í marki liðsins.  Janus Daði Smárason skoraði 4 mörk fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon lék ekki vegna meiðsla.fyrir Aalborg, Frakkland Bourg-de-Péage – Meerignac............ 28:21  Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor- aði 9 mörk fyrir Bourg-de-Péage. Noregur Elverum – Runar ................................. 33:25  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 7 mörk fyrir Elverum. Oppsal – Molde .................................... 25:26  Thea Imani Sturludóttir skoraði 3 mörk fyrir Oppsal. Svíþjóð Alingsås – Sävehof ...............................28:23  Aron Dagur Pálsson lék ekki með Al- ingsås.  Ágúst Elí Björgvinsson varði 12 skot í marki Sävehof. Í EYJUM Guðmundur Tómas Sigfússon sport@mbl.is ÍBV og Stjarnan áttust við í opnunar- leik Olísdeildar karla þetta árið en ÍBV vann auðveldan sigur, 30:24, á heimavelli. Staðan í hálfleik var 17:10 og má því segja að grunnurinn að sigrinum hafi verið lagður á fyrstu 30 mínútum leiksins. Liðunum var spáð ólíku gengi á leiktíðinni. Eyjamenn voru á flestum stöðum settir í 3. sætið en sérfræð- ingarnir í Seinni bylgjunni spáðu lið- inu deildarmeistaratitlinum. Stjörn- unni var spáð um miðja deild og að liðið myndi berjast um 6.-9. sætið við Aftureldingu, ÍR og KA. Bæði lið voru án lykilleikmanna í leiknum og verða eitthvað áfram en Sigurbergur Sveinsson og Grétar Þór Eyþórsson munu líklega ekkert spila með ÍBV á árinu vegna meiðsla. Hjá Stjörnunni vantaði Ólaf Bjarka Ragnarsson og Bjarka Má Gunn- arsson. Lið ÍBV breyttist lítið frá síðustu leiktíð en markverði var bætt inn í leikmannahópinn, Petar Jokanovic, og stóð hann sig mjög vel í þessari frumraun sinni. Þá er varnartröllið Magnús Stefánsson hættur og virtust Eyjamenn hafa fyllt vel upp í hans skarð, allavega í þessum fyrsta leik. Lið Stjörnunnar er mikið breytt, liðið missti báða markverði sína auk tveggja sterkustu leikmanna sinna frá síðustu leiktíð. Rúnar Sigtryggs- son, þjálfari þeirra, hefur þó gert vel í því að sækja leikmenn og hafa ófáir leikmennirnir skrifað undir á síðustu misserum. Má þar helst nefna tvo markverði, Stephen Nielsen og Brynjar Darra Baldursson, auk fjög- urra annarra öflugra leikmanna, Hannesar Grimms, Ólafs Bjarka Ragnarssonar, Tandra Más Konráðs- sonar og Andra Þórs Helgasonar. Það sást á liðunum að þau verða líklega ekki að etja kappi á svipuðum stað í deildinni þar sem Eyjamenn virðast sterkari í flestum stöðum. Þá virðist liðið líka mun betur samstillt, enda nánast sami leikmannahópur og í fyrra. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Stjörnuliðið mun spila þegar allir leikmenn eru heilir, með mörg stór nöfn og skemmtilega samsett lið, það verður þó að öllum líkindum spurning hvort vörn og markvarsla muni tengja vel saman, því eins og allir vita fara lið oft langt á góðri vörn og markvörslu. Kristján Örn Kristjánsson lék á als oddi í leiknum og skoraði 12 mörk. Hákon Daði Styrmisson átti líka flottan leik þar sem hann skoraði fjögur mörk, öll í fyrri hálfleik. Andri Már Rúnarsson og Tandri Már Kon- ráðsson skoruðu fimm mörk hvor, Andri átti fyrri hálfleikinn en Tandri þann seinni.  Afturelding hafði betur gegn KA 28:27 í æsispennandi leik á Varmá. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði sigurmark Mosfellinga undir lok leiksins. KA-menn fengu kjörið tækifæri til að jafna metin þegar þeir fengu vítakast en Arnór Freyr Stef- ánsson varði vítakast Færeyingsins Ága Egilsnes. Stórskyttan Birkir Benediktsson fór mikinn í liði Aftureldingar og skoraði 10 mörk en hjá KA var Dagur Gautason markahæstur með sjö. Eyjamenn ekki í neinum vandræðum  Lögðu Stjörnuna í fyrsta leik Olís- deildarinnar  Afturelding marði KA Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson Barátta Hákon Daði Styrmisson í baráttu við Ara Magnús Þorgeirsson. Íþróttahúsið í Eyjum, Olís-deild karla, sunnudaginn 8. september 2019. Gangur leiksins: 4:2, 6:2, 9:5, 13:7, 15:8, 17:10, 17:11, 19:15, 21:16, 25:18, 27:19, 30:24. Mörk ÍBV: Kristján Örn Kristjánsson 12, Hákon Daði Styrmisson 4, Dagur Arnarsson 3, Ívar Logi Styrmisson 2, Gabriel Martínez 2, Friðrik Hólm Jónsson 2, Kári Kristján Kristjánsson 2/1, Fannar Friðgeirsson 1, Elliði Snær Viðarsson 1, Theódór Sigur- björnsson 1. Varin skot: Petar Jokanovic 11, Björn ÍBV – Stjarnan 30:24 Viðar Björnsson 3. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Stjörnunnar: Andri Már Rún- arsson 5, Tandri Már Konráðsson 5, Gunnar Johnsen 3, Andri Þór Helga- son 3, Óliver Magnússon 2, Hannes Grimm 2, Leó Snær Pétursson 1/1, Ari Magnús Þorgeirsson 1, Birgir Steinn Jónsson 1, Hrannar Bragi Eyj- ólfsson 1. Varin skot: Brynjar Darri Baldursson 9/1, Stephen Nielsen 4. Utan vallar: 12 mínútur. Áhorfendur: 400. Kylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði sín- um besta árangri á Áskorendamótaröðinni í golfi en hann og Birgir Leifur Hafþórsson léku í gær lokahring- inn á Opna Bretagne-mótinu sem er hluti af Áskorenda- mótaröðinni en leikið var í Frakklandi. Þeir voru jafnir fyrir lokahringinn og voru saman í holli á hringnum í gær. Guðmundur lék á tveimur högg- um undir pari og samtals á fjórum höggum undir parinu. Hann fékk fimm fugla og tvo skolla og endaði í 13.-20. sæti. Besti árangur Guðmundar á mótaröðinni fyrir mótið var 51. sæti sem hann náði á móti í Slóvakíu í júlí. Birgir Leifur lék lokahringinn á tveimur höggum yfir pari og endaði mótið á pari vallarins. Hann fékk einn fugl og þrjá skolla og lenti í 31.-34. sæti á mótinu. gummih@mbl.is Besti árangur Guðmundar Guðmundur Ágúst Kristjánsson Hin 19 ára gamla Bianca Andre- escu hrósaði sigri gegn Serenu Willams frá Bandaríkjunum í úr- slitaleik kvenna á opna banda- ríska meistaramótinu um helgina. Andreescu vann leikinn í tveimur settum, 6:3 og 7:5, og varð um leið fyrsti kanadíski tennisleikarinn til að vinna stór- mót í tennis í einliðaleik. Serena Willams, sem verður 38 ára göm- ul síðar í þessum mánuði, stefndi á að vinna 23. risamót sitt á ferl- inum en varð að játa sig sigraða að þessu sinni. Táningurinn vann Serenu AFP Sigurkoss Bianca Andreescu smell- ir kossi á bikarinn eftir sigurinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.