Morgunblaðið - 13.09.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019
annars aðilans eru 20 milljónir.
Fyrri upphæðin, 17 milljónir, er val-
in til að endurspegla um tvöfaldar
meðaltekjur. Hún samsvarar um
1.417 þúsund krónum á mánuði.
Hærri upphæðin, 20 milljónir, jafn-
gildir 1.667 þúsund kr. á mánuði.
Í öðru dæminu er sýnt hvaða áhrif
breytingar á skattkerfinu munu hafa
á tekjuskatt einstaklings sem hefur
17 milljónir í árstekjur. Útkoman er
að skattarnir lækka um rúmar 146
þúsund krónur og fæst sama niður-
staða ef árstekjurnar eru 20 millj-
ónir.
Áhrifin minni en útlit var fyrir
Guðrún Björg rifjar upp hug-
myndir um að fella alfarið niður
ákvæðið um samnýtingu skattþrepa.
Þar sem niðurstaðan sé að breyta
ákvæðinu verði heildaráhrifin ekki
eins mikil.
„Samsköttun hjóna helst að mestu
óbreytt. Þó lækkar sú fjárhæð sem
tekjuhærri aðilinn getur nýtt sér til
lækkunar á skatthlutfalli. Fyrir
breytingu gat tekjuhærri aðilinn
nýtt 5.562.523 kr. af lægra skatt-
þrepi tekjulægri aðilans en getur nú
að hámarki nýtt 3.581.173 kr. af mið-
skattþrepi tekjulægri aðilans.
Fyrir breytingu greiddi aðili með
20 milljónir króna í árstekjur 36,94%
tekjuskatt og útsvar af launum að
16.687.568 kr. og 46,24% af launum
umfram 16.687.568 kr. ef samskatt-
aður maki viðkomandi var með 0 kr. í
árstekjur. Eftir breytingar mun
sami aðili greiða 31,44% tekjuskatt
og útsvar af launum að 3.962.699 kr.,
37,94% af launum á milli 3.962.699 –
14.706.218 kr. og 46,24% af launum
umfram 14.706.218 kr. Breyting hjá
samsköttuðum aðilum þar sem ann-
ar aðilinn er með 20 milljónir kr. í
tekjur og hinn með 0 kr. í tekjur
nemur tæpum 74.000 kr. og er þá
ekki skoðað hvaða áhrif breyting á
persónuafslætti hefur,“ segir Guð-
rún Björg.
Nú eru tvö tekjuskattsþrep,
36,94% og 46,24%, að meðtöldu út-
svari, en eftir breytingarnar verða
þrjú, 31,44%, 37,94% og 46,24%.
Fram kemur í breytingatillögum
með fjárlagafrumvarpinu að „skatt-
leysismörkum verður haldið óbreytt-
um að raunvirði með því að lækka
persónuafslátt samhliða innleiðingu
nýs þreps, en þau munu eftir innleið-
ingu breytinganna taka mið af verð-
bólgu og framleiðniaukningu vinnu-
afls“.
Gæti leitt til skattahækkana fyrir hjón
Sérfræðingur hjá KPMG metur
breytingar á samnýtingu skattþrepa
Breyting á skattlagningu
með nýju skattþrepi 17.000.000 kr. tekjuskattsstofn 20.000.000 kr. tekjuskattsstofn
Hjón Einstaklingur Hjón Einstaklingur
Tekjuskattsstofn tekjuhærri aðila/einstaklings 17.000.000 17.000.000 20.000.000 20.000.000
Tekjuskattsstofn tekjulægri aðila 0 - 0 -
Skattlagning fyrir breytingar
Af tekjum undir 16.687.568 kr. (hjón)
36,94%
6.164.388 6.164.388
Af tekjum undir 11.125.045 kr. (einstaklingur) 4.109.592 4.109.592
Af tekjum yfir 16.687.568 kr. (hjón)
46,24%
144.469 1.531.669
Af tekjum yfir 11.125.045 kr. (einstaklingur) 2.716.579 4.103.779
Persónuafsláttur -677.358 -677.358 -677.358 -677.358
Persónuafsláttur maka -677.358 - -677.358 -
Álagður tekjuskattur 4.954.140 6.148.813 6.341.340 7.536.013
Skattlagning eftir breytingar
Af tekjum undir 3.962.699 kr. 31,44% 1.245.873 1.245.873 1.245.873 1.245.873
Af tekjum á milli 3.962.699 og 14.706.218 kr. (hjón)
37,94%
4.076.091 4.076.091
Af tekjum á milli 3.962.699 og 11.125.045 kr. (einstakl.) 2.717.394 2.717.394
Af tekjum yfir 14.706.218 kr. (hjón)
46,24%
1.060.645 2.447.845
Af tekjum yfir 11.125.045 kr. (einstaklingur) 2.716.579 4.103.779
Persónuafsláttur -677.358 -677.358 -677.358 -677.358
Persónuafsláttur maka -677.358 - -677.358 -
Álagður tekjuskattur 5.027.892 6.002.488 6.415.092 7.389.688
Mismunur +73.752 - 146.325 +73.752 - 146.325
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verði fyrirhugaðar breytingar á lög-
um um tekjuskatt að veruleika getur
það hækkað skattgreiðslur hjóna.
Þetta er niður-
staða Guðrúnar
Bjargar Braga-
dóttur, sérfræð-
ings hjá þekk-
ingarfyrirtækinu
KPMG.
Nánar tiltekið
varðar málið rétt
hjóna til að sam-
nýta skattþrep.
Samnýting per-
sónuafsláttar
verður óbreytt en hún er þessu
ótengd.
Með samnýtingu skattþrepa geta
hjón lækkað skattgreiðslur ef annar
aðilinn greiðir hátekjuskatt.
Til einföldunar stillti Guðrún
Björg upp dæmum um áhrifin að
beiðni Morgunblaðsins.
Í fyrsta dæminu greiða hjón þar
sem annar aðilinn hefur 17 milljónir í
árstekjur en hinn engar tekjur um
74 þúsund kr. meira í skatt. Upp-
hæðin hækkar jafn mikið ef tekjur
Guðrún Björg
Bragadóttir
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Gerið verðsamanburð
Tilboð
Kr. 2.000
Sumar-
kjólar
Stútfull búð af
Nýjum
vörum
Landssamtökin Þroskahjálp skora
á Seltjarnarnesbæ að draga til
baka það sem sagt er óhóflegar
hækkanir á leigu fyrir félagslegar
íbúðir og leita annarra leiða til að
mæta hallarekstri bæjarins. Ítrek-
aðar ábendingar endurskoðenda
bæjarins eru ástæða þess að ráðist
var í endurskoðun á leigu íbúðar-
húsnæðis í eigu Seltjarnarnes-
bæjar
Breytingar á leigu félagslegra
leiguíbúða voru ákveðnar í fjöl-
skyldunefnd Seltjarnarnesbæjar í
júní og bæjarstjórn staðfesti þær á
fundi sínum í fyrradag. Í bókun
bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar
kemur fram að heildarhækkun
leigunnar er 45%.
Leiga 24 íbúða bæjarins var á
bilinu 54 til 137 þúsund kr. á mán-
uði. Eftir samræmingu leigu eftir
verðmæti þeirra er leigan á bilinu
76 til 174 þúsund. Hækkanir eru
mismunandi, frá 20 til 60 þúsund á
íbúð og hlutfallslegar hækkanir eru
á bilinu 35 til 67%. Leigan hækkar
í áföngum, fyrst 1. október, síðan
1. janúar og loks 1. apríl.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjar-
stjóri segir að endurskoðendur
bæjarins hafi lengi bent á að jafn-
vægi þurfi að vera á milli tekna og
gjalda íbúðarhúsnæðis bæjarins.
Þá hafi verið ósamræmi í leigu eft-
ir stærð íbúða. Ákveðið hafi verið
að endurskoða leiguna til að gæta
jafnræðis. Um þetta hafi verið
samstaða í fjölskyldunefnd og
bæjarráði og því hafi umræða sem
fulltrúar minnihlutans efndu til í
bæjarstjórn komið á óvart.
Ótengt hallarekstri bæjarsjóðs
Bryndís Snæbjörnsdóttir, for-
maður Þroskahjálpar, segir það
umhugsunarefni þegar bæjarstjórn
leyfi sér með einu pennastriki að
hækka leigu félagslegs húsnæðis
þegar taka þurfi til í rekstri bæjar-
sjóðs. Bendir hún á há meðallaun á
Seltjarnarnesi og að ekki sé inn-
heimt hámarksútsvar. Ef einhver
ætti að geta stutt við bakið á þeim
sem eru í viðkvæmri félagslegri
stöðu sé það Seltjarnarnesbær.
Á sama fundi og hækkun leigu
var ákveðin var kynnt að 160 millj-
óna króna halli hefði orðið á rekstri
bæjarsjóðs fyrstu sex mánuði árs-
ins. Ásgerður segir þessi tvö mál
algerlega ótengd. Bjarni Torfi Álf-
þórsson, formaður fjölskylduráðs,
bendir á að til athugunar sé að
hækka húsaleigubætur til að milda
hækkun húsaleigu. helgi@mbl.is
Mótmæla hækkun
félagslegs húsnæðis
Seltjarnarnesbær endurskoðar leigu
Fyrri hluta fyrstu umræðu um
fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar fyrir árið 2020 lauk síðdegis í
gær og var frumvarpinu vísað til
fjárlaganefndar. Umræðan heldur
þó áfram í dag þegar einstakir ráð-
herrar gera grein fyrir málum sín-
um í frumvarpinu.
Umræðan hófst í gærmorgun
eftir að Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra mælti fyrir fjárlaga-
frumvarpinu. Stóð umræðan með
hléum fram til klukkan 18.20.
Stjórnarandstæðingar gagn-
rýndu þá stefnu sem fram kemur í
fjárlagafrumvarpinu. Oddný G.
Harðardóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar og fyrrverandi fjár-
málaráðherra, sagði frumvarpið
óraunhæft enda virtist það byggt á
óskhyggju um að efnahagurinn
yrði betri á næsta ári en allar líkur
stæðu til. Hún gagnrýndi það að
engar breytingar væru boðaðar á
tekjuskattskerfinu til að taka á
ofurlaunum, engin hugmynd um
stóreignaskatt og engin breyting
sem yki arð af auðlindum þjóðar-
innar. Hins vegar ætti að breyta
fjármagnstekjuskatti, ekki til
hækkunar heldur lækkunar.
Bjarni sagði ríkissjóð í góðri
stöðu til að mæta samdráttarskeiði
ef það yrði lengra en nú er spáð.
Sagði hann Samfylkinguna sakna
skattahækkana „eins og venju-
lega“. Bjarni fullyrti að með fjár-
lögum ársins 2020 sýndi ríkis-
stjórnin í verki áform sín um að
stuðla að stöðugleika, bættum lífs-
kjörum, áframhaldandi uppbygg-
ingu, þjónustu og fjárfestingu í
innviðum landsins, þjóðinni allri til
heilla.
Fyrstu umræðu um fjárlög er að ljúka
Fagráðherrar gera grein fyrir málum sínum í þinginu í dag Umræðan færist inn í fjárlaganefnd
Bjarni
Benediktsson
Oddný G.
Harðardóttir