Morgunblaðið - 13.09.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum
www.hekla.is/volkswagensalur
Volkswagen T-Roc
Ef þú vilt áberandi hönnun, möguleika á sérsniðnu útliti og gæði niður í minnstu smáatriði þá er T-Roc málið.
Með T-Roc gefst þér tækifæri til að prófa nýstárlegan sportjeppa sem vekur eftirtekt með öflugu útliti.
Fæddur til að
skara framúr
Verð frá
4.290.000,-
Félagið Höfðaíbúðir ehf. hefur gengið
frá sölu á tveimur útsýnisíbúðum á
11. hæð í Bríetartúni 9.
Salan sætir tíðindum á fasteigna-
markaði enda fátítt að svo dýrar íbúð-
ir séu seldar í Reykjavík.
Ásett verð á aðra íbúðina var 195
milljónir króna en að auki var seldur
með bílskúr á 16 milljónir. Íbúðin er
240 fermetrar og bílskúrinn 37 fer-
metrar, samanlagt 277 fermetrar.
Ásett verð á hina íbúðina var 187
milljónir og var einnig seldur með bíl-
skúr á 16 milljónir. Íbúðin er 230 fer-
metrar og bílskúrinn 40 fermetrar,
alls 270 fermetrar. Samanlagt verð
íbúðanna var því 382 milljónir og 414
milljónir með bílskúrunum.
Það hæsta frá Skuggahverfinu
Bríetartún 9 er 12 hæða fjölbýlis-
hús á Höfðatorgi í Reykjavík.
Það er hæsta fjölbýlishúsið sem er
byggt í miðborg Reykjavíkur síðan
lokið var við Skuggahverfið.
Algengt er að íbúðir á efri hæðum í
Skuggahverfinu séu seldar á annað
hundrað milljónir króna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á Höfðatorgi Tvær útsýnisíbúðir á 11. hæð hafa verið seldar.
Kaupa tvær íbúðir
á um 400 milljónir
Búið að selja 11. hæð í Bríetartúni 9
Þriðja fjölbýlishúsið með nýjum
íbúðum á Kársnesi fer í sölu um
helgina. Um er að ræða 54 íbúðir á
Hafnarbraut 13-15.
Fyrsta húsið sem fór í sölu var
Hafnarbraut 9. Þar er búið að selja
21 af 24 íbúðum, þar með talið 172
fermetra þakíbúð á fjórðu hæð.
Hafnarbraut 11 fór næst í sölu
en þar er búið að selja 15 íbúðir af
21. Tíu íbúðir til viðbótar í húsinu
fara í sölu síðar á árinu en unnið er
að lokafrágangi þeirra.
Samanlagt hafa því selst 36
íbúðir af 45 á Hafnarbraut 9 og 11.
Með þeim tíu íbúðum sem bæt-
ast við á Hafnarbraut 11 og íbúð-
unum 54 á Hafnarbraut 13-15
verða alls 109 íbúðir í fjölbýlishús-
unum við Hafnarbraut 9-15. Fanney
Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá
Kársnesbyggð ehf., sem byggir hús-
in, segir ljóst að áhuginn á nýja
hverfinu sé mikill. baldura@mbl.is
3. áfanginn í sölu á Kársnesi
54 ÍBÚÐIR Á HAFNARBRAUT 13-15
Nýtt Hluti af Hafnarbraut 13-15.
Mikilvægi samvinnu ríkjanna á
norðurslóðum vegna aukinna umsvifa
ríkja í austri var meðal þess sem ráð-
herrar Norðurlandanna og Eystra-
saltsríkjanna sammæltust um á fund-
um sínum á Hótel Hamri í Borgarnesi
í gær.
Að fundum loknum héldu Guðlaug-
ur Þór Þórðarson, Jeppe Kofod og
Ann Linde, utanríkisráðherrar Ís-
lands, Danmerkur og Svíþjóðar,
blaðamannafund. „Umræður okkar
hafa leitt í ljós að við erum öll sam-
mála um þörfina til þess að styðja og
verja alþjóðalög og -reglu og fjöl-
þjóðasamvinnu,“ sagði Linde í fyrsta
alþjóðlega ávarpi sínu, en hún tók við
embætti sínu á þriðjudaginn.
Í samtali við Morgunblaðið að
blaðamannafundi loknum lagði Kofod
áherslu á mikilvægi samvinnu
ríkjanna við Atlantshafið og þá sér-
staklega samstarfið við Bandaríkin.
„Í heimi þar sem baráttan um völd fer
harðnandi og réttarríkið á undir högg
að sækja er mikilvægt að við pössum
upp á þann strúktúr sem við höfum
byggt upp í norðurskautsráðinu og að
alþjóðalög séu í hávegum höfð. Við
vorum öll sammála á fundinum um að
þessi friðsamlega alþjóðlega sam-
vinna sé sú leið sem við viljum fara.“
En stingur aukin viðvera Banda-
ríkjahers ekki í stúf við þessi áform
um spennulausar og friðsamlegar
norðurslóðir?
„Nei, ég held að öryggi þurfi að
tryggja samhliða aukinni starfsemi
annarra ríkja, svo sem Rússlands og
Kína, á norðurslóðum. Við þurfum að
tryggja að okkar öryggi sé óskert og
að Atlantshafssamstarfið sé sterkt.
Það þarf þó að gera þannig að það
auki ekki á spennu, heldur dragi frek-
ar úr henni, og tryggi okkar eigið full-
veldi og það réttarríki sem við tileink-
um okkur,“ sagði Kofod.
thorgerdur@mbl.is
Standa vörð um alþjóðalög
Áhersla á aukna samvinnu ríkja á norðurslóðum Spennu
sé þó haldið í lágmarki Fyrsta alþjóðlega verkefni Linde
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Samstarf Utanríkisráðherrar þriggja Norðurlandaþjóða á blaðamannafundi.
Starfshópur Norðurskautsráðsins vinnur að aðgerða-
áætlun fyrir plast og annað rusl á hafsvæðum norður-
slóða. Útbúin hafa verið flothylki með GPS-sendi til að
fylgjast með því hvernig ruslið fer til og frá norður-
slóðum. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis-
ráðherra sjósetti fyrsta hylkið frá varðskipinu Þór.
Morgunblaðið/Eggert
Fylgst með hvernig ruslið berst um höfin