Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 www.apotekarinn.is - lægra verð Nýtt Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. ERT ÞÚ MEÐ HÁLSBÓLGU? Bólgueyðandi og verkjastillandi munnúði við særindum í hálsi breiða skírskotun og þar er hægt að finna nánast hvað sem er,“ segir Ævar og bætir við að á RIF sé ein- ungis gæðahráefni. Í viðtali við ViðskiptaMoggann á dögunum sagði Skúli Gunnar Sigfús- son, stofnandi og eigandi Subway á Íslandi, að veitingastaðir hér á landi myndu í auknum mæli leita í úthverfi höfuðborgarsvæðisins. Þar hefðu há- ar álögur og gjöld mikið að segja. Spurður hvort það hafi komið til greina að opna í miðborg Reykja- víkur fremur en í Hafnarfirði kveður Ævar nei við. „Af hverju ættum við ekki að opna í Hafnarfirði? Ég sé ekki hvers vegna Hafnfirðingar þurfa að fara til Reykjavíkur til að snæða mat. Hér erum við á annarri hæð með al- veg frábært útsýni auk þess að bjóða upp á góðan mat á lágu verði,“ segir Ævar og bætir við að gestir staðarins hafi margir hverjir sótt staðinn marg- sinnis. „Fólk er að koma aftur og aft- ur sem er góðs viti. Það segir manni að fólk er ánægt með upplifunina,“ segir Ævar. Ef lesendur ákveða að koma við á RIF má fastlega gera ráð fyrir að Ævar sé þar á harðahlaupum. Að hans sögn nýtur hann sín einna best í samræðum við gesti. „Ég er alltaf hérna á svæðinu. Oftast er ég í eld- húsinu en þess á milli er ég frammi að spjalla við gesti. Mér finnst mikilvægt að hitta fólkið sem kemur og borðar hjá okkur til að heyra hvað því finnst,“ segir Ævar, sem kveðst vera orðinn vanur áreitinu. „Ég er kannski inni í eldhúsi að henda einhverju á pönnuna, en skýst svo og spjalla við gesti. Svo bruna ég aftur inn í eldhús til að snúa við á pönnunni. Mér finnst mikilvægt að þeir sem hingað koma séu gestir en ekki kúnnar eða við- skiptavinir,“ segir Ævar. Ný tegund af frönskum Eins og áður segir er Ævar með gríðarlega reynslu úr veitingahúsa- geiranum. Vel hefur gengið á stöðum þar sem Ævars hefur notið við, en hann var einmitt fyrstur til að koma með „krullufranskar“ hingað til lands. „Ég var fyrstur til að koma með þær hingað til lands og síðan þá hafa allir verið með þær á boðstólum. Núna erum við með franskar sem enginn annar er með. Ætli það verði ekki allir komnir með þessar franskar eftir nokkur ár,“ segir Ævar. 12.000 gestir á 2 mánuðum Hafnarfjörður RIF er á annarri hæð í verslunarmiðstöðinni Firði.  Ævar Olsen á RIF Restaurant í Hafnarfirði segir viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum  Fyrstur veitingamanna til að bjóða „krullufranskar“ hér á landi Veitingar » Ævar var áður hjá TGI Fri- day’s. » Er frumkvöðull í frönskum kartöflum. » Vill vera í Hafnarfirði. » Staðurinn tekur 81 í sæti. BAKSVIÐ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það hefur verið stanslaus straumur fólks frá því að við opnuðum fyrir um tveimur mánuðum,“ segir Ævar Ol- sen, matreiðslumeistari og eigandi RIF Restaurant í Hafnarfirði. Staðurinn er á annarri hæð í Firði verslunarmiðstöð í miðbæ Hafnar- fjarðar. Að sögn Ævars hafa viðtök- urnar farið fram úr björtustu vonum. „Þetta hefur gengið alveg gríðarlega vel og það er í raun alltaf fullur staður hjá okkur. Frá því að við opnum á daginn og allt þar til við lokum er full- ur salur af fólki,“ segir Ævar, sem hefur mikla reynslu af rekstri veit- ingahúsa hér á landi, en hann starfaði áður sem rekstrarstjóri TGI Friday’s í Smáralindinni í mörg ár ásamt því að setja veitingastaðinn Olsen Olsen á laggirnar. Aðspurður segist hann ekki vilja ræða fyrri störf heldur fremur einbeita sér að því sem fram undan er. Staðurinn tekur 81 í sæti, en það sem af er hafa ríflega 12.000 manns snætt á RIF, sem verður að teljast býsna gott. Breið skírskotun Að sögn Ævars eiga allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi á mat- seðli staðarins. „Verðið hjá okkur er mjög lágt enda leggjum við mikið upp úr því. Þess utan er maðseðillinn með um félagið þar sem það hefur verið gagnrýnt að félag af þessum toga sé í ríkiseigu. Þá sé salan ekki endilega stór partur af fjárhagslegri endurskipu- lagningu þar sem rekstur Samskipta sé lítill miðað við Íslandspóst í heild, að sögn Birgis. Velta Samskipta í fyrra nam 206,9 milljónum króna, en velta Íslandspósts var yfir átta millj- arðar. Trúnaður um kaupverð Hagnaður Samskipta ehf. á árinu 2018 nam tíu milljónum króna og 10,5 milljónum árið 2017. Íslandspóstur keypti prent- þjónustufyrirtækið Samskipti ehf. árið 2006 og var kaupverðið trún- aðarmál. Þá voru kaupin sögð liður í að efla þjónustu póstsins og bjóða upp á fjölbreyttari lausnir. Jafnframt væri með kaupunum verið að svara kröfum markaðarins um aukna þjón- ustu á sviði samskiptalausna. Samskipti ehf. var stofnað árið 1978 sem ljósritunarstofa sem lagði sérstaka áherslu á teikningaprentun. Þá var fyrirtækið með þrjá starfs- menn en þegar Íslandspóstur keypti fyrirtækið var þar 31 starfsmaður. Nú eru þeir 16. „Mér skilst að það séu mjög margir aðilar sem búnir eru að hafa sam- band í [gær]morgun og óska eftir gögnum,“ segir Birgir Jónsson, for- stjóri Íslandspósts, um tilkynningu félagsins um að hefja söluferli á öllu hlutafé póstsins í Samskiptum ehf. Hann segist ekki geta upplýst um það verðmat sem hefur verið látið gera og mun salan fara fram að loknu tilboðsferli. „Við erum bara að einbeita okkur að kjarnastarfseminni og losa okkur út úr öllum rekstri sem tengist henni ekki beint,“ segir Birgir. Hann segir söluna einnig lið í að skapa meiri frið Margir sýna Samskiptum áhuga  Velta dótturfélags Íslandspósts 200 milljónir króna Morgunblaðið/Hari Sala Breytingar hjá Íslandspósti. ● Það voru rauðar tölur og grænar í bland í Kauphöll Íslands í gær. Mesta hækkun á hlutabréfaverði varð í viðskiptum með Festi, eða 1,2%, í 81 milljónar króna viðskiptum. Næst- mest hækkaði Skeljungur, eða um 0,77% í 24 milljóna króna viðskiptum. Þá hækkaði gengi bréfa í Eimskip um 0,57% í 24 milljóna króna viðskiptum. Mest lækkun í gær var á verði bréfa Kviku banka, eða um 1,26% í 69 millj- óna króna viðskiptum, og stendur gengi bréfa bankans nú í 10,22 krón- um á hvern hlut. Næstmest lækkaði gengi bréfa í Högum, eða um 1,14% í 59 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkaði sjávarútvegsfyrirtækið Brim um 0,78% í 19 milljóna króna viðskipt- um. Festi hækkaði mest í Kauphöll Íslands í gær 13. september 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.6 126.2 125.9 Sterlingspund 155.25 156.01 155.63 Kanadadalur 95.48 96.04 95.76 Dönsk króna 18.537 18.645 18.591 Norsk króna 13.991 14.073 14.032 Sænsk króna 12.976 13.052 13.014 Svissn. franki 126.4 127.1 126.75 Japanskt jen 1.1654 1.1722 1.1688 SDR 171.75 172.77 172.26 Evra 138.31 139.09 138.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.5649 Hrávöruverð Gull 1493.65 ($/únsa) Ál 1792.0 ($/tonn) LME Hráolía 62.88 ($/fatið) Brent ● Mókollur ehf., félag í eigu Péturs Guðmundssonar, sem er móðurfélag 26 félaga tengdra byggingariðnaði og fasteignarekstri, þeirra á meðal byggingarfélagsins Eyktar, hagnaðist um 1,4 milljarða króna á síðasta ári að því er fram kemur í nýbirtum árs- reikningi. Dróst hagnaðurinn saman um 36,5% á milli ára en hagnaðurinn nam rúmum 2,2 milljörðum króna árið 2017. Rekstrartekjur Mókolls námu 17,4 millj- örðum króna árið 2018 samanborið við 5,7 milljarða króna árið 2017 og jukust um 11,6 milljarða króna. Eignir félagsins námu 43,7 milljörðum króna í árslok 2018. Skuldir námu 30,7 milljörðum króna. Eigið fé nam 13 milljörðum króna og eiginfjárhlutfallið því 29,8%. Enginn arður var greiddur til hluthafa. 1,4 milljarða hagnaður Mókolls ehf. í fyrra Byggingar Tekjur námu 17,4 ma. kr. STUTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.