Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Varmadælur
Hagkvæmur kostur til
upphitunar
Verð frá aðeins
kr. 145.000 m.vsk
Midea KMB-E09
Max 3,4 kW
2,65 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,85)
f. íbúð ca 40m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Hægt að fá WiFi sendi
svo hægt sé að stjórna
dælunni úr GSM síma
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
Mission Extreme
Umhverfisvænn kælimiðill
Stjórnvöld í Íran og Venesúela hafa
fagnað brotthvarfi Johns Boltons
sem Donald Trump Bandaríkja-
forseti hefur vikið úr embætti þjóðar-
öryggisráðgjafa. Ráðamennirnir í
löndunum tveimur hafa átt í deilum
við Bandaríkjastjórn og telja að
brotthvarf Boltons geti verið fyrir-
boði þess að stjórn Trumps breyti
stefnu sinni í málefnum þeirra.
Trump kvaðst hafa vikið Bolton úr
embætti á þriðjudaginn eftir að þeir
höfðu deilt um friðarviðræður við tal-
ibana í Afganistan. Bolton var þriðji
þjóðaröryggisráðgjafi forsetans á
tæpum þremur árum, á eftir HR
McMaster, sem sagði af sér í mars
2018, og Michael Flynn, sem lét af
embætti í febrúar 2017 eftir að hafa
gegnt því í aðeins 24 daga.
Bolton hefur verið álitinn harðlínu-
maður í öryggismálum og viðhorf
hans eru að mörgu leyti í samræmi
við þá stefnu sem framámenn í Repú-
blikanaflokknum hafa aðhyllst frá
forsetatíð Ronalds Reagans og þar til
Trump komst til valda. Bolton hefur
stundum beitt sér fyrir hernaðar-
aðgerðum í deilum við óvinaríki.
Hann var t.a.m. á meðal helstu stuðn-
ingsmanna hernaðarins í Írak árið
2003 vegna meintra gereyðingar-
vopna einræðisstjórnar Saddams
Husseins en Trump hefur hins vegar
sagt að innrásin í Írak hafi verið
hörmuleg mistök. Bolton hefur verið
á öndverðum meiði við Trump og em-
bættismenn forsetans í málefnum
Norður-Kóreu, Írans, Venesúela og
Rússlands síðustu mánuði. Bolton
hefur verið mjög tortrygginn gagn-
vart Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seta, mjög efins um að einræðis-
stjórnin í Norður-Kóreu vilji eyða
kjarnavopnum sínum og verið
hlynntur fyrirbyggjandi hernaði til
að koma í veg fyrir að klerkastjórnin
í Íran eignist kjarnavopn. Trump
hefur hins vegar verið tregari til að
beita hernaðaríhlutun og viljugri til
að leysa deilumálin með samninga-
viðræðum, t.a.m. við Kim Jong-un,
einræðisherra Norður-Kóreu.
Brotthvarf Boltons er talið auka
líkurnar á því að Trump hefji samn-
ingaviðræður við klerkastjórnina í
Íran, að sögn The Wall Street
Journal. Líklegt er að bandamönnum
Bandaríkjastjórnar í Mið-Austur-
löndum, m.a. Ísrael og arabalöndum
við Persaflóa, stæði stuggur af slík-
um viðræðum. bogi@mbl.is
Íran fagnar
brotthvarfi
Boltons
Tíðmannaskipti
Scott Pruitt
Yfirmaður Umhverfis-
verndarstofnunar
Michael Flynn
Þjóðaröryggis-
ráðgjafi
Sagði af sér 13. febrúar,
var 24 daga í embættinu
Steve Bannon
Aðalstjórnmála-
ráðgjafi
Sagði af sér
18. ágúst
Rex Tillerson
Utanríkis-
ráðherra
Gary Cohn
Efnahags-
ráðgjafi
Sagði af sér
6. mars
Vikið frá
13. mars
AFP Photos
HRMcMaster
Þjóðaröryggis-
ráðgjafi
Sagði af sér
22. mars
Sagði af sér
6. júlí
Jeff Sessions
Dómsmála-
ráðherra
John Kelly
Skrifstofustjóri
Hvíta hússins
Lét af störfum í
lok desember
JimMattis
Varnarmála-
ráðherra
Sagði af sér
20. desember
Vikið frá
7. nóvember
Nikki Haley
Sendiherra hjá
Sameinuðu þjóðunum
2017
20182019
Sagði af sér
9. október
Kirstjen Nielsen
Heimavarna-
ráðherra
Sagði af sér
7. apríl
Dan Coats
Yfirmaður leyni-
þjónustustofnana
John Bolton
Þjóðaröryggis-
ráðgjafi
Lét af störfum
15. ágúst
Trump vék honum frá
10. september
Þrettán af fjölmörgum embættismönnum sem hafa látið af störfum frá því að
Donald Trump varð forseti fyrir tæpum þremur árum
Matvæla- og lyfjastofnun Banda-
ríkjanna (FDA) hyggst banna
bragðbættar rafrettur vegna
dauðsfalla, sem rakin eru til raf-
rettna, og mikillar notkunar barna
og unglinga á þeim.
Bannið á að ná til rafrettna með
ávaxta-, mentól- og mintubragði.
Verði það til þess að börn og ung-
lingar byrji að nota rafrettur með
tóbaksbragði ætlar stofnunin að
banna þær einnig, að sögn frétta-
veitunnar AFP.
Um átta milljónir fullorðinna
Bandaríkjamanna hafa notað raf-
rettur og um fimm milljónir barna
og unglinga, þeirra á meðal fjórð-
ungur framhaldsskólanema. Gert
hefur verið ráð fyrir því að salan á
rafrettum nemi alls níu milljörðum
dala í ár, eða sem svarar rúmum
1.100 milljörðum króna.
Grunur leikur á að rúmlega 450
manns hafi fengið lungnasjúkdóm
sem talið er að tengist rafrettum.
Sex þeirra hafa dáið.
Bragðbættar raf-
rettur bannaðar
AFP
Veipað Rafrettur eru vinsælar meðal fólks sem hafði aldrei reykt, m.a. ungmenna.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær að ekkert
væri hæft í ásökunum um að hann
hefði logið að Elísabetu 2. Breta-
drottningu þegar
hann óskaði eftir
því að þingið yrði
sent heim í fimm
vikur.
Skoskur áfrýj-
unarréttur hafði
komist að þeirri
niðurstöðu að for-
sætisráðherrann
hefði brotið lög
með því að ráð-
leggja drottningunni að senda þingið
heim til 14. október. Markmið hans
hefði verið að standa í vegi fyrir vilja
þingsins, sem er andvígt brexit án
samnings, og hann hefði því villt um
fyrir drottningunni.
„Alls ekki,“ svaraði Johnson þegar
hann var spurður hvort hann hefði
logið að drottningunni. Hann bætti
við að enskur dómstóll hefði áður úr-
skurðað stjórninni í vil og niðurstöðu
skoska réttarins hefði verið áfrýjað
til hæstaréttar Bretlands, sem tekur
málið fyrir á þriðjudaginn kemur.
Norðurírskur dómstóll ákvað í
gær að vísa frá nokkrum lögsóknum
vegna ásakana um að þingslitin
hefðu verið ólögleg og að brexit án
samnings væri brot á friðarsamn-
ingnum á Norður-Írlandi frá 1998.
Varað við verðhækkunum
Breska stjórnin birti í gær skjal
sem breska fjármálaráðuneytið hef-
ur nefnt „Gultittlingur“ (e. Yellow-
hammer). Þar er fjallað um undir-
búning hugsanlegrar útgöngu
Bretlands úr Evrópusambandinu án
samnings og mat lagt á afleiðingar
hennar fari allt á versta veg. Áður en
breska þingið var sent heim hafði
neðri deildin samþykkt ályktun þar
sem hún krafðist þess að skjalið yrði
gert opinbert. Í skjalinu er m.a. var-
að við hugsanlegum skorti á
ákveðnum tegundum af ferskum
matvælum og „minna framboði“ á
mikilvægum hráefnum. Brexit án
samnings er þar einnig talið geta
leitt til verðhækkana á matvælum og
eldsneyti og þær myndu einkum
koma niður á fjölskyldum með lágar
tekjur. Útganga án samnings gæti
enn fremur valdið „truflunum“ á inn-
flutningi í allt að sex mánuði,
hugsanlega á innflutningi á lyfjum
og aðföngum til sjúkrahúsa. Þá er
varað við því að flutningabílar gætu
þurft að bíða í allt að tvo daga til að
komast yfir Ermarsundið og að sum
fyrirtæki gætu þurft að leggja niður
starfsemi.
Skjalið er dagsett 2. ágúst og
Johnson sagði að stjórnin hefði stór-
aukið undirbúninginn fyrir hugsan-
lega útgöngu án samnings síðan þá.
„Allar atvinnugreinarnar sem skipta
máli verða tilbúnar í brexit án samn-
ings,“ sagði hann.
Johnson kveðst ekki hafa
logið að drottningunni
Varað við mögulegum vöruskorti vegna brexit án samnings
Boris Johnson