Morgunblaðið - 13.09.2019, Side 15

Morgunblaðið - 13.09.2019, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 Íslendingar eru gestrisnir með af- brigðum. Sumir geta aldrei látið vera að sýna af sér gestalæti. Það er vegna tján- ingarþarfar. Í liðinni viku kom varaforseti Bandaríkjanna í heim- sókn til landsins. Það er ekki auðvelt við að eiga þegar hingað kemur varaforseti, því hér er enginn varaforseti. Ef til vill ættu hand- hafar forsetavalds að taka á móti varaforsetanum. Niðurstaðan var sú að utanríkisráðherra varð gestgjaf- inn, en varaforsetinn hitti forseta og forætisráðherra. Auðvitað sætir það tíðindum þeg- ar næstvaldamesti maður stórveldis kemur í heimsókn. Vissulega er skemmtilegra en ekki að vita erindi valmannsins til landsins. Þeim er þetta ritar er enn alls ekki ljóst hvert var erindi varaforsetans. Var erindið málefni viðskipta milli Ís- lands og Bandaríkjanna? Vissulega er ekki í gildi fríverslunarsamningur milli landana en viðskipti ganga ágreiningslaust. Var erindið að ræða stækkun á hurðaropi flugskýlis og lagfæringu á flugvélastæði? Varla! Kann að vera að formennska Íslands í norðurskautsráði hafi ráðið ein- hverju um heimsókn varaforsetans? Eða áhrif Kínverja? AIIB og Belti og braut Eina sem haft var eftir varafor- setanum var að Íslendingar hefðu fallist á að taka ekki þátt í verkefni sem kín- versk stjórnvöld hafa áform um. Enginn kannaðist við þau um- mæli hér. Hluti af Belti og braut er Asian Infra- structure Investment Bank (AIIB) með að- setur í Peking. Ísland á aðild að þeirri stofnun og fjármálaráðherra er einn af varaformönnum stjórnar bankans. AIIB er með hæsta lánshæfismat hjá öllum matsfyrirtækjum og er fyllilega samkeppnishæfur við Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn og Alþjóða- bankann. Enda þótt Alþjóðabankinn sé ein af stofnunum Sameinuðu þjóð- anna hefur bankann nánast alltaf verið undir forystu Bandaríkja- manna. Kínverskir varasjóðir Heimsviðskiptin eru ekki alltaf í jafnvægi. Þaðan af síður eru fjárlög landa alltaf í jafnvægi. Halli á fjár- lögum í Bandaríkjunum kemur fram í halla á viðskiptajöfnuði landsins. Í Kína er sparnaðarhneigð um 45%, en það er 20-30 prósentustigum meira en í öðrum löndum. Viðskipta- afgangur í Alþýðulýðveldinu Kína hefur byggt upp varasjóði í landinu sem eru meiri en mannshugurinn skilur. Kínverski þjóðbrókarsjóður- inn heitir China Investment Corpor- ation (CIC), en sá sjóður fer með eignir sem hafa byggst upp í landinu vegna viðskiptahalla Bandaríkjanna. Eignir sjóðsins eru meiri en svo að mannlegar verur skilji stærðina. Á öðrum endanum er mikill viðskipta- halli en á hinum er þjóð sem sparar. Þjóðbrókarsjóðurinn (CIC) á fast- eignir í Rockefeller Center í New York. Þá er höggvið nærri hjarta bandarískrar auðhyggju. Að auki eru ótal kínverskir bank- ar, sem hafa haslað sér völl á alþjóð- legum fjármálamörkuðum. Til viðbótar við kínverska þjóð- brókarsjóðinn eru kínverskir bankar stærstu bankar í heimi. Sennilega er Industrial and Commercial Bank of China Limited (ICBC) stærsti banki í heimi, en Bank of China fjár- magnar einhverjar af Boeing MAX- flugvélum Icelandair. Flugvéla- framleiðendur á Vesturlöndum eiga mikið undir því að kínversk fjár- málafyrirtæki fjármagni flugvélar fyrir flugfélög á Vesturlöndum. Nú þegar eru flugvélaskrokkar fyrir Airbus smíðaðir í Kína og Boeing er með stóra viðhaldsstöð fyrir Boeing-flugvélar í Kína fyrir, utan fjármögnunar á nýjum flug- vélum fyrir flugfélög á Vestur- löndum. Fjórir stærstu bankar heims eru kínverskir. Þannig er Alþýðu- lýðveldið Kína þátttakandi í heims- auðhyggjunni eftir að hafa verið í dvala á fyrstu árum alþýðulýð- veldisins, þá án aðildar að Samein- uðu þjóðunum, en nú með neitunar- vald í öryggisráðinu. Risinn er vaknaður Stjórnvöld í Kína gera sér grein fyrir að þau hafa örlög Bandaríkj- anna í höndum sér. Verulegur hluti bandarískra ríkisskulda er í vörslu kínverska þjóðbrókarsjóðsins (CIC), auk þess sem þær eru uppistaða gjaldeyrisvarasjóða annarra landa. Viðskiptastríð Banaríkjanna og Kína getur aðeins farið á einn veg. Bandaríkin tapa. Bandaríkin eru ekki sá áhrifavaldur sem þau voru á tíma Marshall-aðstoðarinnar við Evrópu og aðstoðar við lönd í Asíu eftir seinna stríð, sem var sérstakt verkefni. Kínversk stjórnvöld gera sér grein fyrir að Bandaríkin munu aldrei greiða þessar ríkisskuldir, sem að miklu leyti hafa orðið til vegna styrjalda en ekki vegna upp- byggingar innviða. Því er best að nota þessar eignir til áhrifa um allan heim. Um það snýst verkefnið um Belti og braut. Það eina sem varaforseti Banda- ríkjanna hafði að segja opinberlega í heimsókn sinni til Íslands fjallaði um Belti og braut. Það er líklegt að Bandaríkin óttist frumkvæði Kín- verja á alþjóðavettvangi. Það eru mörg ríki sem búa við slaka innviði og það er lítill vandi að gera illa stæð lönd með vont stjórnarfar sér háð með innviðafjárfestingum. Verkefni í Finnafirði við Bakka- flóa er óskiljanlegt, nema ef vera skyldi vegna áhrifa. Það er mun lík- legra að kínverski þjóðbrókar- sjóðurinn ásælist Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar en að höfn verði byggð í Finnafirði. Flugstöð Leifs Eiríks- sonar er mannvirki sem ríkissjóður Íslands hefur aldrei lagt fram krónu til í öðru formi en lánum, sem FLE og síðar Ísavia hafa endurgreitt. Áhugi Alþýðulýðveldisins Kína á norðurskautsmálefnum, en Kína á ekki land að norðurskautinu, snýst um áhrif. Kína á ísbrjóta til ferða um norðurskautið, þrátt fyrir legu sína. Fyrir utan áhuga sinn á fjár- mögnun flugvéla eru kínversk fjár- málafyrirtæki stórtæk í fjármögnun skemmtiferðaskipa. Þannig hóf CSSC Carnival Cruise Shipping starfemi á þessu ári. Félagið er að meiri hluta í eigu kínverska þjóð- brókarsjóðsins (CIC). Íslenskur kommúnisti Svo bar við þegar bandaríski sjó- herinn lauk vist sinn á Íslandi árið 2006 að íslenskur kommúnisti var spurður hvort hann væri sáttur og ánægður. Kommúnistinn svaraði: nei. Spyrjanda þótti svarið einkenni- legt og hváði. Þá kom svarið: það eru Kínverjarnir. Íslenski kommúnist- inn óttaðist áhrif Kínverja hér á landi. Íslenskir kommúnistar misstu glæp sinn þegar herinn fór. Þá varð að finna annan glæp til að geta stað- ið að mótmælum í gestalátum. Sam- kynhneigð og mannleg fjölbreytni varð tilefni til að láta varaforseta Bandaríkjanna sjá að enn væri líf með Íslendingum og íslenskum kommúnistum. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Verulegur hluti bandarískra ríkis- skulda er í vörslu kín- verska þjóðbrókarsjóðs- ins, auk þess sem þær eru uppistaða gjald- eyrisvarasjóða annarra landa. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Belti og braut Í upphafi þessa mánaðar bárust Þjóðleikhúsinu þau ánægjulegu tíðindi að skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar hefði fallist á tillögu undirritaðs um að gatan sem liggur vestan megin á lóð Þjóð- leikhússins, milli Hverfis- götu og Lindargötu, yrði nefnd Egnerssund í höfuðið á norska leikritaskáldinu Thorbjörn Egner. Egner má með sanni kallast einn helsti velgjörðarmaður Þjóð- leikhússins og barnaleikhúss á Íslandi, en leikrit hans hafa verið leikin reglulega í Þjóðleikhúsinu við miklar vinsældir allt frá frumflutningi á Kardemommubænum hér árið 1960. Egner var sjálfur mjög ánægður með uppsetningar Þjóðleik- hússins á verkum sínum. Svo vænt þótti honum um viðtökur verka sinna á Íslandi að hann gaf Þjóðleikhúsinu höfundarrétt- artekjur af þeim í hundrað ár, með þess- um orðum í gjafabréfi til Þjóðleikhússins árið 1965: „Og derfor vil jeg gjerne – i håb om at Kardemomme og Hakke- bakkeskogen kommer til å bli spilt enda mange ganger i årene framover når nye barn vokser til – at Þjodleikhusid for de kommende hundre år skal ha opførelses- rettighetene for Island til begge mine komedier og at alle forfatterhonorarer for Kardemommubærinn og Halsaskogi i fremtiden går til stipendier elle andre formål som kan være til glede for teat- ret.“ Tíðindum af nafngiftinni Egnerssund hefur verið tekið með almennri ánægju af aðdáendum Egners hér á landi. Eftirlif- andi elsti sonur Egners, Björn Egner, gladdist mjög við að heyra af þessu, og mun verða viðstaddur frumsýningu Þjóð- leikhússins á Kardemommubænum á 70 ára afmæli leikhússins í apríl. Ekki virðast þó allir hafa glaðst jafn mikið við þessi tíðindi, en fréttaflutningur af nafngiftinni varð Páli Baldvinssyni til- efni til að skrifa grein í Morgunblaðið 12. september sl. Páll sat áður í þjóðleikhúsráði og segir: „Þjóðleikhúsráði var fyrir nokkrum misserum kynnt að til stæði að nefna götuna en þá fór Ari Matthíasson dult með tillögu sína.“ Hið rétta er að hugmyndin að því að nefna götuna Egners- sund var rædd í ráðinu þann 18.12. 2015. Þá var einnig rætt um þann möguleika að efna til samkeppni um nafn- ið, en allir viðstaddir voru sammála um að málið væri á forræði þjóðleikhússtjóra. Páll skrifar í grein sinni margt um hina veglegu gjöf Egners til Þjóðleikhússins, og í því sambandi er rétt að eftirfarandi komi fram: Eins og segir í gjafabréfi Eg- ners, sem vitnað er í hér að framan, sá Egner fyrir sér að höfundarlaunin yrðu nýtt í styrki eða í þágu annarra málefna sem gætu orðið til ánægju í leikhúsinu. Sveinn Einarsson, þáverandi þjóðleik- hússtjóri, lagði til í bréfi sínu til Egners árið 1972 að höfundarlaunin skyldu nýtt til þess að styðja eða verðlauna þá sem sérstaklega hefðu eða vildu fást við leik- hús fyrir börn. Í óstaðfestri „Skipulags- skrá fyrir Egner-sjóðinn“ segir: „Til- gangur sjóðsins er að efla samstarf og kynningu milli norsks og íslensks leik- húsfólks með gagnkvæmum styrkveit- ingum o.fl.“ Frá árinu 1975, þegar fyrst var úthlutað úr sjóðnum, hefur úthlutun verið ákveðin af þremur aðilum, einum tilnefndum af þjóðleikhúsráði, öðrum af starfsmönnum og svo þjóðleikhússtjóra. Úthlutað hefur verið styrkjum til að styrkja og efla leiklistarstarfsemi fyrir börn og ungt fólk, og til leikhúsfólks sem hefur unnið að því að auðga barnaleikhús, bæði Íslendinga og Norðmanna, leikara, leikstjóra, leikmyndateiknara, lýsingar- hönnuða, tónlistarfólks og rithöfunda. Þetta hefði Páli mátt vera kunnugt, enda sat hann fund þjóðleikhúsráðs þegar mál- efni Egner-sjóðs voru rædd á fundi ráðs- ins 28.10. 2016, og farið var ítarlega yfir hvaða tilhögun væri á Egner-sjóði og hefði verið frá árinu 1965. Páll veltir fyrir sér hlutfallstölu höf- undarlauna og er þar á nokkrum villigöt- um. Hið rétta er að höfundarlaun af verk- um Thorbjörns Egners í Þjóðleikhúsinu hafa verið 6% af seldum miðum frá árinu 1965 og runnið inn á sérreikning sem tengdur er eigin kennitölu frá árinu 1981. Páll segir enn fremur í grein sinni að ég hafi lagt af Menningarsjóð Þjóðleik- hússins sem stofnaður var árið 1950. Það er ónákvæm lýsing hjá Páli því Menning- arsjóðurinn, sem formlega var aflagður árið 2016, var löngu tómur, allt stofnfé var uppurið, sjóðnum var ekki markaður tekjustofn og hann hafði því misst tilgang sinn. Í þessu sambandi má nefna að ár- lega eru sjóðir sem ekki hafa verið starf- andi um lengri eða skemmri tíma lagðir niður. Í kjölfar laga nr. 19/1988 átti Rík- isendurskoðun frumkvæði að því að leggja niður fjölmarga sjóði sem ekki höfðu möguleika á að starfa samkvæmt skipulagsskrá sakir fjárskorts. Það var því í anda laganna frá 1988 og samkvæmt vilja og leiðbeiningum Ríkisendurskoð- unar sem hinn fjárvana Menningarsjóður var aflagður. Síðast var úthlutað úr Egner-sjóði árið 2013. Fyrirséð er að sjóðurinn muni efl- ast að nýju í kjölfar sýninga Þjóðleikhúss- ins á Kardemommubænum frá og með apríl á næsta ári, og þá mun nýrri sjóð- stjórn gefast færi á að styrkja leiklistar- starfsemi fyrir börn. Þannig verður hin veglega gjöf Egners áfram nýtt til að efla sköpun leiklistar í þágu yngstu áhorfend- anna. Fólk og ræningjar í Kardemommubæ Eftir Ara Matthíasson Ari Matthíasson »Höfundarlaun af verk- um Thorbjörns Egners í Þjóðleikhúsinu hafa verið 6% af seldum miðum frá árinu 1965 og runnið inn á sérreikning sem tengdur er eigin kennitölu frá árinu 1981. Höfundur er þjóðleikhússtjóri. Uppbygging Steypuvinna er í fullum gangi á Hlíðarenda- svæðinu þessa dagana. Hallgrímskirkja blasir við í bakgrunni. Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.