Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 17

Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 þeir komu sína fyrstu ferð einir til Reykjavíkur á jeppanum hans pabba síns. Þá rötuðu þeir í Foss- voginn, en þurftu svo fylgd til að rata í stórborginni. Þeir bræður voru miklir skautamenn og kunnu ýmislegt fleira fyrir sér. En sennilega er Ingólfur kunnastur fyrir sitt mikla skátastarf sem hann sinnti ásamt fjölskyldunni. Nú kveðjum við góðan vin og vottum allri fjölskyldunni okkar innilegustu samúð. Dóra G. Jónsdóttir. Við minnumst Inga frænda sem hlýrrar persónu sem var allt- af til staðar fyrir okkur. Hann var traustur, yfirvegaður, skipulagð- ur og framtakssamur, en alltaf var stutt í glettinn húmorinn. Hann leyfði okkur oft að vera með í því sem hann tók sér fyrir hendur, kynnti okkur m.a. fyrir norrænu samstarfi og leyfði okk- ur að taka þátt í vinnu í tengslum við vinabæjarsamstarfið. Að fylgjast með honum í slíkum verkefnum og í stjórnarstörfum var einstaklega áhugavert og fræðandi. Oft og iðulega var það hann sem leiddi málin til lykta á sinn rólega og yfirvegaða hátt. Hann vann skipulega og gerði mestar kröfur til sjálfs sín. Hann var ekki maður margra orða, en þögnin sagði margt. Fjölskyldur okkar hafa alla tíð verið mjög nánar og margt skemmtilegt höf- um við gert saman í gegnum tíð- ina, hvort sem er í tengslum við skautaíþróttina, kartöfluupp- töku, ferðalög, matarboð með leikjum eða utanlandsferðir með þeim „Jarðarberjabræðrum“. Ingi var alltaf sá sem hægt var að treysta á, hvort sem það var til þess að aðstoða óreyndar ung- lingsstúlkur í félagsstörfum eða þegar erfiðleikar og áföll komu upp í fjölskyldunni. Hann var okkur systrum mikil stoð í veik- indum og við andlát foreldra okk- ar. Sérstaklega er minnisstætt, þegar mamma þurfti að dvelja lengi á sjúkrahúsi í Danmörku. Þá var Ingi fljótlega mættur á staðinn til þess að passa lítinn dreng og aðstoða á allan hátt. Börnin hennar Drífu fengu því miður ekki að kynnast afa sínum nema í takmarkaðan tíma. Þá var gott að hafa „Inga afa“ til staðar í árlegum Íslandsferðum. Ingi og Hrefna voru og eru „þessi mið- punktur okkar á Íslandi“, eins og Sara, dóttir hennar, orðar það. Til þeirra var alltaf gott að koma og tekið var á móti börnunum af einstöku ástríki, hlýju og einlæg- um áhuga á þeirra viðfangsefn- um. Elsku Hrefna, Auður, Ásgeir, Ármann, Erla, Vala og Ari. Við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur, ásamt kærri kveðju frá Zoran, Aleksandar, Söru, Davíð og Viktori. Blessuð sé minning Inga frænda. Sigríður (Sigga) og Drífa. Fallinn er frá vinur okkar úr innbænum á Akureyri. Gegnheill skáti, útivistarmaður og mann- vinur. Ingólfur, eða Ingi eins og við kölluðum hann alla tíð, bjó í for- eldrahúsum í Aðalstræti 62 en við bræðurnir í Háteigi, skammt sunnan Gróðrarstöðvarinnar. Innbærinn var leiksviðið, við þurftum ekki að leita lengra. Frjálsræðið var ómælt og flest það sem okkur datt í hug var framkvæmt. Stundum áttum við það til að fara aðeins út fyrir hinn viðurkennda ramma. Þannig var það einu sinni þegar við stjökuð- um okkur út í hólmana, þar sem Akureyrarflugvöllur er núna, að vorlagi og stálum eggjum. Ing- ólfur var með okkur bræðrum í einum slíkum leiðangri og þegar við komum að landi tók Jón Benediktsson lögreglumaður á móti okkur í fullum skrúða. Hann kannaðist við okkur bræður en spurði Ingólf til nafns. Þegar Jón kveikti á perunni að hann væri sonur Ármanns Dalmannssonar undraðist hann mjög að Ingi væri í slíkum félagsskap! Ingi var vandaður drengur og vinur vina sinna. Minningarnar um samfylgd með honum í Inn- bænum eru okkur dýrmætar núna þegar leiðir skilja. Upp í hugann koma samverustundir í Skógræktinni, stofnun skáta- deildar í gömlu Gróðrarstöðinni og allt það sem við brölluðum í skátunum, m.a. bygging fjalla- kofa í landi Hamra, sem aldrei reis af grunni, og útilegur í Fálkafelli og fram á Garðsárdal. Seint gleymist reiðhjólaferð sum- arið 1952 austur í Mývatnssveit og Ásbyrgi. Áratug síðar vorum við saman í hópi vaskra göngu- manna yfir Dyngjujökul og í Kverkfjöll. Að ógleymdum óbyggðaferðunum á A-621, Wil- lysjeppa Ármanns Dalmannsson- ar, föður Inga. Og ekki má gleyma öllum okkar góðu stund- um saman á skautum. Innbærinn var Mekka skautaíþróttarinnar á Akureyri og við Innbæingarnir stunduðum skautahlaup og spil- uðum íshokkí við frumstæðar að- stæður þar sem gúmmískórnir okkar voru markstengurnar. Allra þessara góðu minninga er ljúft að minnast við leiðarlok. Heilsu Inga hafði hrakað hin síð- ari ár en blik komu í augu hans þegar gamlar minningar úr Inn- bænum voru rifjaðar upp. Gömlum og kærum vini þökk- um við samfylgdina. Eiginkonu hans, Hrefnu Hjálmarsdóttur, og börnum þeirra, Ásgeiri, Auði og Ármanni, og öðrum ástvinum, sendum við einlægar samúðar- kveðjur. Vilhelm, Birgir og Skúli Ágústssynir. Ingólfur var skáti, íþróttamað- ur, skólamaður og hafði mikinn áhuga á menningarmálum. Hann var gegnheill og góður vinur vina sinna. Hann var Innbæingur og alinn upp við mikla íþróttaiðkun. Pollurinn var framan við bernskuheimilið og háar brekkur að húsabaki, hvort tveggja kjörið til vetraríþrótta. Einu sinni þeg- ar við ræddum þessa gömlu daga sagði hann kímileitur að hann hafi farið út um bakdyrnar ef hann ætlaði á skíði og aðaldyrnar ef átti að fara á skauta. Ég átti því láni að fagna að eiga Ingólf að samstarfsmanni í nokkur ár og kynntist kostum hans vel. Hann var hæglátur í fasi og því kom mér á óvart í upp- hafi hversu ótrúlega hraður hug- ur hans var. Hann var úrræða- góður, hugsaði lausnamiðað og skýrt og var fljótur að finna leiðir gegnum alls konar flækjur. Hann var einnig besti og traustasti vinnufélagi sem hægt er að hugsa sér. Það hefur verið dýrmætt fyrir okkur Teit að eiga vináttu þeirra hjóna, Ingólfs og Hrefnu. Við eig- um ljúfar minningar frá því þeg- ar við ferðuðumst saman um Toskana að sumarlagi, fórum úr einum bæ í annan og enduðum í Flórens. Við gengum um götur og torg, þræddum söfn og kirkjur og borðuðum og drukkum að hætti heimamanna. Ingólfur var sérstaklega áhugasamur um Galileo Galilei og heimsóttum við safn um snillinginn, sáum tæki hans og tól og fórum að gröf hans á eftir. Ingólfur hvarf smám saman frá fólkinu sínu og vinum og þurfti æ meir að reiða sig á Hrefnu undanfarin ár. Þótt hann væri skugginn af sjálfum sér síð- ast þegar við hittumst var hlýjan í svip hans enn á sínum stað. Ég votta Hrefnu og fjölskyld- unni mínar innilegu samúðar- kveðjur. Hafðu þökk fyrir sam- fylgdina, kæri félagi. Valgerður Magnúsdóttir. Nú er hann farinn heim, sadd- ur lífdaga, öðlingurinn hann Ing- ólfur Ármannsson. Við kynnt- umst honum ungar þegar skátaforinginn okkar, Hrefna Hjálmarsdóttir, fór að fara með honum á stefnumót. Okkur fannst þetta mjög spennandi enda fengum við að taka þátt í ævintýrinu, eða þannig. Þegar þau giftu sig fengum við að vera í veislunni (í uppvaskinu í eldhús- inu) og fylgjast með öllu veislu- haldinu. Þau voru gæfusöm hjón og samstíga, höfðu sömu lífsskoð- anir, hugsjónir og viðhorf. Bæði voru þau mjög virkir skátafor- ingjar og jusu til okkar af sínum viskubrunni. Það eru margir skátar sem verða Ingólfi ævin- lega þakklátir fyrir hans innlegg í skátahreyfinguna á Íslandi. Hann stofnaði skátafélög, kom með nýjar hugmyndir og fræddi og glæddi á sinn einstaka yfir- vegaða og rólega hátt. Við vottum fjölskyldunni inni- lega samúð. Blessuð sé minning Ingólfs Ármannssonar. Fjóla Hermannsdóttir og Valgerður Jónsdóttir. Þó að Akureyrarbær hafi feng- ið kaupstaðaréttindi 1862 var innsti hluti bæjarins, Innbærinn og fjaran, sveit í bæ langt fram yfir miðja síðustu öld. Þar voru húsin kennd við fólkið sem í þeim bjó og börnin kennd við foreldr- ana, mæðurnar gjarnan nefndar fyrst. Í húsi Sigrúnar og Ár- manns, Aðalstræti 62, voru um miðja síðustu öld að vaxa úr grasi fjögur systkini, þrír bræður og ein systir. Þar átti Ingólfur sín æskuár. Unga fólkið sem var að alast upp í Innbænum naut frelsis til athafna. Skautaferðir voru stundaðar þar sem náttúruleg skilyrði leyfðu, íþróttavöllur var útbúinn á Krókeyri, skátastarf hafið í kjallara Gömlu gróðrar- stöðvarinnar og grunnur lagður að skátaskála í Hamradal norðan Kjarna. Þannig sköpuðust að- stæður fyrir þrautseigju og skipulagsgáfu Ingólfs. Hann missti aldrei sjónar á endanleg- um markmiðum. Skátastarfið var honum í senn köllun og tækifæri til þess að koma heilbrigðum uppeldismarkmiðum og lífsleikni á framfæri hjá ungu fólki. Kennsla varð þannig eðlilega ævistarf hans. Ferðamennska og útivist, sumar og vetur, var einnig áhugamál Ingólfs. Þannig hófu þeir mágarnir Baldur Sigurðsson og Ingólfur, almennar jöklaferðir á Vatnajökul löngu áður en það var tæknilega mögulegt vegna ófærðar og aðstöðuleysis á fjöll- um. Endalausar minningar um samstarf og trausta vináttu koma í hugann þegar litið er til baka. Mesta gæfa Ingólfs í lífinu var þó skátastúlkan Hrefna Hjálmars- dóttir sem hann kynntist í Reykjavík. Þau fluttu til Akur- eyrar, skiluðu sínu ævistarfi og ólu þar upp börnin þrjú. Ingólfur gekk ekki heill til skógar síðustu árin. Heima í Furulundi bjó Hrefna honum það öryggi sem best var. Fyrir stuttu bauðst honum vistun á Dvalar- heimilinu Hlíð og þar andaðist hann fyrsta dag þessa mánaðar. Á merkjamáli skáta er Ingólfur farinn heim. Með þessum orðum viljum við Kristín minnast Ingólfs, vinar sem varð örlagavaldur í lífi okk- ar. Hrefnu og börnunum vottum við samhug við fráfall sóma- manns. Ljóð í lokin er ætlað að minna okkur á að lífið sjálft er sterkara en dauðinn. Í lífinu sjálfu er feigðin falin hvert frækorn sem spírar, það fellur í valinn. Svo endurtekur sig aftur og aftur þessi eilífa hringrás, þessi upprisukraftur. Hallgrímur og Kristín. Ingólfur Ármannsson, bara það að heyra eða sjá nafnið vekur hjá mér einstakar tilfinningar sem og ljúfar og góðar minning- ar. IÁ var framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta þegar ég sem unglingur var að stíga mín fyrstu skref sem foringi inn- an skátahreyfingarinnar. Hann var allt í öllu, rak skrifstofu BÍS á Laugavegi 39 á daginn og sinnti uppbyggilegu leiðbeinandastarfi á kvöldin og um helgar. Ég var svo heppinn að vera í hópi þeirra ungu skátaforingja í Reykjavík sem nutu þess að sækja námskeið í skátafræðum sem hann stjórn- aði á sinn örugga, yfirvegaða og ljúfa hátt. Hann innleiddi margar nýjungar og kom okkur oft á óvart með snilldarlegum uppá- tækjum sínum. Gilti það jafnt um þátttakendur sem og leiðbein- endur á foringjanámskeiðum. Hann hafði einstakan skilning á því að skátastarfið er og á að vera ævintýri fyrir þá sem taka þátt. Við sem nutum starfskrafta hans á þessum árum minnumst þess- ara daga með einskærri gleði, ánægju og þökk. Leiðir okkar lágu saman síðar. IÁ var mótsstjóri Landsmóts skáta árið 1966 og fékk ég það verkefni að vera framkvæmda- stjóri þess móts. IÁ leitaði þá, í fullu samráði við gjaldkera móts- ins, Guðlaug Hjörleifsson, til Eg- ils Skúla Ingibergssonar eftir að- stoð við að setja skipulag mótsins upp í CPM-kerfi (Critical Path Method). Ég minnist þess að einn skrifstofuveggur minn var þak- inn CPM-korti, korti sem sýndi öll verk, brotin niður í verkþætti sem og í hvaða tímaröð þeir ættu að leysast, hve langur tími var ætlaður í hvern verkþátt til þess að ljúka mætti undirbúningi mótsins í tæka tíð. IÁ sýndi þarna einstaka eiginleika við að nýta sér það nýjasta og besta sem fáanlegt var til að leysa flók- ið, tímafrekt og tímabundið verk- efni. Síðar, þegar IÁ var fulltrúi Ís- lands í mótsstjórn alheimsmóts skáta, Nordjamb 1975 sem Norð- urlöndin fimm stóðu að sameig- inlega, fékk hann mig til að stjórna „íslensku undirbúðunum“ á þessu móti. Íslenskir skátar önnuðust ein- ar undirbúðir af tíu, sænskir skáta þrjár en hinar þjóðirnar tvær hver. Ég hafði unun af því að sjá og fylgjast með hvernig IÁ nýtti sér reynslu sína og þekk- ingu á skátamálefnum, mannleg- um samskiptum og tungumálum til að leysa hin flóknustu mál sem upp komu á þessu alheimsmóti. Alltaf rólegur, yfirvegaður og lausnamiðaður – þannig áorkaði hann ótrúlega miklu á sinn ljúfa hátt. Síðasta stóra verkefnið sem við unnum að saman var Vulcan Project 1978, norrænt skátamót fyrir eldri skáta sem fram fór á Mývatnsöræfum, þ.e. norðan Kverkjökuls og sunnan Mývatns. IÁ var „heilinn“ bak við mótið. Hann fékk m.a. Guðmund Sig- valdason, forstöðumann Nor- rænu eldfjallamiðstöðvarinnar, til að halda ógleymanlegt erindi við Grjótagjá um eldfjöll heims- ins og benti Guðmundur okkur á dæmi um þau öll. Með Ingólfi Ármannssyni er genginn hinn einstaklingurinn sem hafði einna mest áhrif á mig sem manneskju í lífinu. Ég kveð hann með einlægri þökk og virð- ingu og sendi Hrefnu, Auði, Ás- geiri, Ármanni og fjölskyldu mín- ar saknaðarkveðjur. Arnlaugur Guðmundsson. Í september 1959 hittist hópur glaðra skáta austur við Úlfljóts- vatn. Halda skyldi fyrsta fullgilda Gilwell-námskeið hér á landi. 40 ár voru liðin frá fyrsta námskeiði Baden Powell í Gilwell Park og nú var í aðsigi fyrsta Gilwell- námskeið skátaforingja sem kvenskátar tækju þátt í. Til for- ystu kom Odd Hopp, hinn alþjóð- lega virti framkvæmdastjóri Norsk Speidergutt Forbund. Frumkvæði að námskeiðinu átti Franch Michelsen með stuðningi nýkjörins skátahöfðingja, Jónas- ar B. Jónssonar. Austur voru mættir hópar frá stórum félögum en líka einstak- lingar frá þeim smærri. Við tók- um eftir einum Akureyringanna sem var reyndar kennari á Skagaströnd og hafði þá nýverið stofnað skátafélagið Sigurfara. Hann var aðlaðandi og dugnað- arlegur, hét Ingólfur Ármanns- son. Nú er hann „farinn heim“ eins og skátar segja. Við kveðjum hann hinstu kveðju og minnumst með einlægu þakklæti. Er leið á námskeiðið kom skátahöfðingi í heimsókn og ræddi þar við Odd Hopp og Franch Michelsen. Hann var að leita að framkvæmdastjóra fyrir Bandalag íslenskra skáta og spurði hvort einhver þátttakend- anna kæmi til greina. Báðir voru skjótir til svars og sammála. Ing- ólfur Ármannsson væri einstak- lega hæfur og hefði alla kosti til að bera í þetta starf. Ingólfur varð framkvæmda- stjóri vorið 1960 og mótaði starfið í samstarfi við skátahöfðingja og skátafélögin. Hann laðaði félaga sína frá Gilwell að margvíslegum verkum og að stofnun Gilwell- hringsins haustið 1962. Hann bjó til undirbúningsnámskeið fyrir Gilwell-námskeið sem hvöttu marga skátaforingja til að mennta sig frekar. Og árin, sem í hönd fóru, lék hann burðarhlut- verk mjög víða í skátastarfi. En Ingólfur kom víðar við því að samstarf norrænna skáta var að eflast. Árið 1975 var á Jör- stadmoen í Noregi haldið alþjóð- legt jamboree drengjaskáta, Nordjamb75. Odd Hopp gegndi þar forystu. Ingólfur var fulltrúi Íslands í mótsstjórn og nánasti samstarfsmaður hans. Þetta mót muna margir og trúlega ekki síst „íslenski hundrað skáta hópur- inn“ í starfsmannabúðunum okk- ar, bæði stúlkur og drengir. Um áratuga skeið átti ég sam- starf við Ingólf í skátastarfi og tók við framkvæmdastjórastarfi af honum 1964. Er leið á áttunda áratuginn kom hann svo til sam- starfs við mig og fleiri í skrifum námsefnis í stærðfræði og að námskeiðum fyrir kennara. Við unnum alla tíð afar vel saman, enda lagði Ingólfur Ár- mannsson alls staðar gott til mála og var óvenju hæfur og vel gerð- ur maður. Minning hans varð- veitist lengi. Hrefnu og fjölskyld- unni allri sendi ég hlýjar samúðarkveðjur. Anna Kristjánsdóttir. Ingólfur Ármannsson lést 1. september sl. eftir erfið veikindi. Hann var afar sérstakur maður, fjölhæfur, hugmyndaríkur og fylginn sér, hafði skipulagsgáfu, þolinmæði og einbeitni til að bera sem oftar en ekki skilaði honum og þeim verkefnum sem hann beitti sér fyrir heilum í höfn. Hann hafði gott lag á að byggja upp félagsheild og virkja einstak- linga og hópa til góðra verka. Ingólfur stundaði kennslu um árabil, skólastjórn, fræðslustjórn í stóru héraði og síðustu formlegu starfsárin var hann skóla- og menningarfulltrúi Akureyrar- bæjar. Hann var Akureyringur í húð og hár og starfaði þar lengst af, en verkin hans sunnan heiða, m.a. sem framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta, um árabil eftir 1960, mörkuðu djúp spor í sögu skátastarfs í landinu. Hann var alinn upp í Innbænum á Akureyri og í heimahúsum og skátastarfi, m.a. undir hand- leiðslu Tryggva Þorsteinssonar, tileinkaði hann sér einlægan og djúpan áhuga og skilning á rækt- unarstarfi bæði í náttúrunni og í mannlegu samfélagi. Ég kynntist mörgum hliðum á Ingólfi af löngum kynnum bæði í leik og starfi. Lífsstarf okkar beggja tengdist skóla- og uppeld- ismálum. Mér er þó á þessum tímamótum efst í huga samstarf okkar og fleiri góðra félaga á vettvangi skátastarfs – ekki síst á tímabilinu 1960 til 1975 eða þar um bil. Leiðir okkar lágu saman í skátastarfi innan stærstu uppeld- ishreyfingar í heiminum sem hef- ur að kjörorði heitstrengingu um að „bæta heiminn“ með því að hjálpa ungu fólki til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir ein- staklingar í mannlegu samfélagi nær og fjær – þvert á trúarbrögð, kynþætti, kyn eða kynhneigð, stjórnmálskoðanir o.s.frv. Bein kynni okkar Ingólfs hóf- ust á fyrsta Gilwell-leiðtoganám- skeiðinu sem haldið var hér á landi haustið 1959 – fyrir sléttum sextíu árum. Það var öflugur hóp- ur sem lauk þessari alþjóðlegu leiðtogaþjálfun fyrir fullorðna skáta á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Mikið uppbygging- arstarf og gróska einkenndi skátastarfið á þessum árum. Ég tel að á engan sé hallað þó að full- yrt sé að Ingólfur hafi verið í far- arbroddi umræddrar þróunar, fyrst sem einstaklega virkur framkvæmdastjóri Bandalags ís- lenskra skáta og síðan sem óum- deildur leiðtogi okkar sem mynd- uðum öflugan og samstilltan hóp sem vann að umbótum í skáta- starfi um land allt á þessum ár- um. Margt var endurskoðað og endurbætt, en þó með fullri virð- ingu fyrir sögunni og starfi eldri kynslóða og í takti við alþjóðlega þróun innan hreyfingarinnar. Ingólfur kvæntist Hrefnu Hjálmarsdóttur, ungri skátast- úlku úr Reykjavík, árið 1963 – sama árið og við Pétrún giftum okkur. Þar urðum við samferða. Með Hrefnu eignaðist Ingólfur einstakan lífsförunaut og varð lífsferð þeirra afar farsæl. Bæði deildu einlægum áhuga og virkni í skátastarfi alla tíð. Þau eignuð- ust þrjú börn, Ármann, Ásgeir og Auði. Ármann býr ásamt fjöl- skyldu sinni í Kanada, Ásgeir í Prag og Auður á Akureyri. Við Pétrún sendum þeim öllum inni- legar samúðarkveðjur. Ólafur Proppé. Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR ANDRÉS JÓHANNSSON, bóndi og fv. forstjóri, Árbæ, Holtum, lést á heimili sínu þriðjudaginn 10. september. Útförin fer fram laugardaginn 21. september frá Árbæjarkirkju, Holtum. Vigdís Þórarinsdóttir Grétar Þórarinn Gunnarsson Guðríður Sigurðardóttir Maríanna Gunnarsdóttir Ólafur Örn Ólafsson Gunnar Jóhann Gunnarsson Hafdís Svava Níelsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.