Morgunblaðið - 13.09.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.09.2019, Blaðsíða 19
✝ Marteinn Elías-son fæddist 22. apríl 1933. Hann lést á Landspítal- anum 8. september 2019. Foreldrar hans voru Elías Eyjólfs- son frá Efri- Fljótum í Meðal- landssveit og móðir hans var Halldóra Vigfúsdóttir frá Þingmúlasókn, Suður- Múlasýslu. Systkini: Valdór, Stefán, Margrét, Matthías, Kristrún og Elín. Hálfsystkini: Guðrún Björg og Þorbjörn Eyjólfur. Marteinn var næstyngstur systkina sinna. Maki Marteins er Helga Soffía Aðalsteinsdóttir en þau gengu í hjónaband 13. septem- ber 1959. Börn þeirra eru fjög- ur: Aðalsteinn, maki Suras Mar- teinsson. Aðalsteinn á þrjú börn frá fyrra hjónabandi, tvö fóst- urbörn og tvö barnabörn. Valur, maki hans er Laufey Karlsdóttir. Þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. Helga, maki henn- ar er Davíð Haf- steinsson. Þau eiga fjögur börn. Grétar, maki hans er Jóhanna Valdimarsdóttir. Þau eiga tvö börn og tvö barnabörn. Marteinn fædd- ist á Reyðarfirði og ólst þar upp. Marteinn og Helga hófu bú- skap á Reyðarfirði í Sandgerði – þau bjuggu þar í nokkur ár uns hann var búinn að reisa hús á Mánagötu 10 þar sem þau bjuggu til ársins 1995 en þá fluttu þau til Stykkishólms þar sem þau bjuggu síðan. Hann flutti bátinn Glitský SU 125 með sér og stundaði sjóinn á honum í nokkur ár, seldi hann og keypti sér Sómabát sem einnig fékk nafnið Glitský sem hann átti þar til hann ákvað sjálfur að hætta vegna veikinda. Útför hans fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag, 13. september 2019, klukkan 14. Faðir minn var lærður klæð- skeri – byggði hús – kenndi smíðar og grunnteikningu og smíðaði lítinn spíttbát með fær- arúllum og mótor – en einnig smíðaði hann bát sem var bæði notaður sem fiskibátur og einn- ig skemmtibátur – það var ekk- ert mál að sigla honum frá Reyðarfirði og yfir í Neskaup- stað – þessi bátur var smíðaður í bílskúrnum á Mánagötu 10, Reyðarfirði – það var alltaf gaman að fá að koma með á sjó. Hann var góður kennari og kenndi manni margt sem mun nýtast í lífinu. Á sumrin var farið oft í úti- legur, það var farið inn í sveit eða upp á Hérað og einnig var oft farið norður í Mývatnssveit, þegar hausta tók var farið í berjamó – það eru til ótal marg- ar góðar minningar um hann sem gleymast aldrei. Þegar Einar Marteinn fædd- ist og kom í ljós að hann væri með ADHD sá afi hans um að kenna honum ýmislegt sem öðr- um hafði ekki tekist – það voru sterk tengsl á milli þeirra – og ég veit að það gleymist aldrei. Hvíl í friði, faðir minn. Helga. Hann var alltaf fyrstur að bjóða fram aðstoð og þurfti allt- af að hafa eitthvað fyrir stafni. Man eftir nokkrum ferðum þegar við fórum þónokkuð mörg sumur í sumarfrí til Mývatns. T.d. einu sinni er við áttum SAAB ’96 og áður en við fórum var vélin tekin úr bílnum og öll yfirfarin enda held ég að það hafi aldrei bilað neitt í bílnum en man eftir að það sprakk nokkum sinnum. Svo þegar Aðalsteinn Jóns- son (pabbi mömmu) og pabbi og að ég held Kristján bróðir mömmu fundu leið niður í gjá sem var við hliðina á Grjótagjá og nefndu gjána Helgugjá. Þurfti að tína svolítið mikið grjót til þess að hægt væri að komast niður í gjána. Reyndar var hægt að kafa á milli og höfð- um við gert það áður frá Grjóta- gjá. Hann smíðaði tvo báta sjálfur og fyrri báturinn var 15 feta hraðbátur smíðaður úr kross- viðarplötum. Seinni báturinn var 25 feta snekkja og seinna lengdi hann hana í 29 fet. Allt þetta var gert í skúrnum heima með dyggri aðstoð mömmu. Eitt dæmi er t.d. er ég fór með honum að veiða lengst út í Reyðarfjörð og var þokuslæð- ingur yfir og vatnsdælan í mót- ornum bilaði og þurftum við að róa í land og tók það góðan tíma en það var mjög erfitt að róa bátnum. Það var víst búið að kalla björgunarsveitir út. Mikla aðstoð fékk ég frá hon- um er ég var að byggja. Var ég oft með honum á handfærum og á ég margar minningar frá því. T.d. fórum við í land og náðum okkur í egg og suðum okkur í matinn. Hvíl í friði faðir minn. Valur. Hann faðir minn var einstak- ur og ástríkur maður og ég á endalausar minningar um hann. Hann var mesti hagleiksmað- ur sem ég þekki og það var ekk- ert sem hann virtist ekki kunna eða geta og á ég honum flesta mína verkkunnáttu að þakka, hann kenndi manni að þolin- mæði og rétt handtök skipta öllu máli í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur í lífinu. Man eftir öllum ferðunum í skólann eftir kennslu til að gera klárt fyrir næsta skóladag eða í viðhald. Hann var klæðskeri að mennt en kennari, húsvörður, húsamiður, vélvirki, rafvirki, málari, arkitekt og svo mætti lengi telja, þó svo hann væri sjálfmenntaður í flestu. Hann var ávallt tilbúinn að aðstoða alla þá sem leituðu til hans og meðal annars smíðaði að minnsta kosti þrjú hús sem ég man eftir, kirkjubekki fyrir kirkjuna á Reyðarfirði, innrétt- ingar fyrir einhverja og hitt og þetta. En mesta meistaraverkið sem hann gerði var sennilega snekkjan sem hann smíðaði inni í bílskúr: Glitský SU 125, sem mig minnir að hafi átt að vera sumarbústaður á floti en endaði sem einn flottasti tréfiskibátur sem hefur verið smíðaður á Ís- landi og var tekið eftir hvar sem hann sást. Flestum sumrum í minni æsku eyddi ég með hon- um á sjó, við veiðar á bátnum og annað sem tilheyrði útgerðinni og bý ég enn að þeirri reynslu. Mörgum stundum eyddi mað- ur með honum úti í skúr að skrúfa, pússa spýtur, laga bíla, smíða og eitthvað sem þurfti að gera og af nógu var að taka því hann gat endalaust fundið upp á einhverju sem þurfti að dytta að og gerði alveg fram að lokum. Hann gat aldrei setið aðgerða- laus og þegar hann kom í heim- sókn var nóg fyrir hann að sjá pensil og málningu, þá var hann þotinn út að bera á og fékkst varla inn í mat, sem var lýsandi fyrir hvernig persóna hann var. Hann kenndi manni að keyra löngu áður en lög leyfðu og rétta meðhöndlun vopna við veiðar og voru ófáir veiðitúrarn- ir sem við fórum saman til fuglaveiða. Svo á efri árum eftir að hann hætti á sjó fóru foreldrar mínir að ferðast meira og keyptu sér húsbíl og hafði hann mikla ánægu af þeim ferðum og voru ófáar ferðirnar sem við fórum saman í útilegu vítt og breitt. Við talmissinn eftir heilablóð- fallið virtist hann draga sig inn í skel en með endalausum dugn- aði móður minnar við að reyna að kenna honum og draga hann með í húsbílaútilegur og aðra mannfagnaði virtist hann smám saman sætta sig við orðinn hlut og taka gleði sína á ný og varð allt annar og félagslyndari. Með tár í augum kveð ég föð- ur minn þar sem ég hugsa til allra þeirra tíma sem við eydd- um saman í gegnum lífið og minninganna sem koma upp þegar ég skrifa þetta. Hvíl í friði, pabbi minn. Grétar. Mig langar að þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman – Ég hlakkaði alltaf til þegar ég fékk að vera bílstjóri fyrir ykkur ömmu – þegar farið var í húsbílaferðalögin – Þú varst alltaf góður maður og mér þykir vænt um þig – en núna verð ég að passa ömmu fyrir þig – takk fyrir allt – hvíl í friði, elsku afi minn. Einar Marteinn. Við Hanna færum Marteini okkar Elíassyni hugumheila hinztu þökk við leiðarlok. Ein- lægari og hugprúðari drengur var vandfundinn og yljuð vin- áttu góðri er þökkin fyrir ára- tuga samfylgd sem verður ætíð ómetanleg í mínum huga. Hug- ljúfar myndir birtast ein af ann- arri þegar litið er langt til baka, allt til bjartra bernskustunda, svo langt er um liðið frá fyrstu samverustundum okkar Mar- teins, míns kæra vinar og félaga og það birtir í hugans heimum, alltaf eins ljúft og gefandi að leita þangað. Hann Marteinn var bróðir hennar Gunnu minn- ar hjartkæru og það rifjast upp minningarmyndir ein af ann- arri, vinhlýjar og vermandi um leið. Þessi vaski jafnaldri minn vakti þegar athygli allra, hversu mikill völundur hann var sam- hliða ágætri greind. Það var al- veg ljóst að hann gat úr mörgu valið, hann tók ungur að nema klæðskeraiðn og þótti einstak- lega smekkvís og um leið var hann hinn ágæti smiður sem allt lék í höndunum á, harðduglegur og einstaklega velvirkur. En fram skyldi haldið og þar var Marteinn svo sannarlega fram- sýnn og valdi hvert tækifæri sem gafst til að þroska huga og hönd. Hans gjöfula gæfuspor í lífinu var þegar þau sæmdar- hjón Helga og hann hófu að stíga lífsdansinn saman, þar var ekkert feilspor stigið, ætíð sam- huga svo sem bezt varð á kosið. Hvarvetna þótti Marteinn hinn gjöfulasti til samfylgdar í hverju því sem hann kom að, vinsæll og vel metinn af öllum er fengu honum kynnst. Smíð- arnar lágu einstaklega vel fyrir honum sem bezt kom í ljós þeg- ar hann var ráðinn hand- menntakennari og hann varð hinn farsælasti leiðbeinandi og um leið félagi nemenda, náði til þeirra með ljúfri lund, góðum og réttlátum aga og vissri sköp- unargleði. Hann var drátthagur hið bezta, þar réði hin leikandi list. Þóroddur sonur okkar, sem var bæði nemandi hans og skólastjóri, telur hann hafa haft þessa eiginleika sem prýða máttu leiðsögn alla, laðaði þann- ig fram hið bezta. Marteinn var líka afar félagslega hugsandi enda var hann einn þeirra fyrstu er ég fékk til liðs við mig í framboð í fyrstu kosningum heima og hann þar liðsmaður góður og þau hjón svo bæði. Það var undurgott að vinna með þeim, því hin félagslegu sjón- armið voru þar alltaf efst á baugi og unnið eftir þeim. Mar- teinn var býsna glettinn og orð- heppni hans oft einstök, þar var aldrei að tómum kofum komið. Þau Helga eignuðust fjögur ljómandi börn sem sóttu ein- kenni góð til foreldranna, hið farsælasta fólk í alla staði. Birturík verður minningin kær- ust um hann Martein í þakk- látum huga, allt frá leikjum á hlaðinu í Seljateigi til samfylgd- ar alla tíð. Þar bar aldrei skugga á og þrátt fyrir erfitt áfall á lífsgöngunni þá var hann Marteinn alltaf sami hugljúfi drengurinn, þar sem hún Helga hans á yndislega gefandi sögu. Henni, börnunum og aðstand- endum öðrum sendum við Hanna einlægar samúðarkveðj- ur. Við Hanna geymum hinar mörgu ljúfu stundir með þeim hjónum í hjarta okkar. Blessuð sé heiðbjört minning Marteins Elíassonar. Helgi Seljan. Marteinn Elíasson MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 ✝ Ásgeir Karlssonfæddist í Reykjavík 2. mars 1934. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 6. sept- ember 2019. Foreldrar hans voru Guðrún Sigríð- ur Þorsteinsdóttir, f. á Ormsstöðum í Grímsneshreppi 12.9. 1898, d. 10.7. 1970, og Karl Haraldur Óskar Þórhallason, f. í Reykjavík 25.2. 1896, d. 11.3. 1974. Ásgeir var einn af níu systk- inum. Systkini Ásgeirs eru Har- aldur, Þórhalla, Guðrún, Sigríð- ur, Kristín, Hjördís, Fjóla og Þórdís. Ásgeir kvæntist eiginkonu sinni ungur að árum og saman áttu þau átta börn. Leiðir þeirra skildi árið 1972. uðust saman soninn Ásgeir Magn- ús, f. 1974, maki Jóhanna Harðar- dóttir, þau eiga fjögur börn. Ásgeir var húsasmíðameistari og vann við húsbyggingar til margra ára. Hann var mikill framkvæmdamaður. Hann vann mikið alla sína tíð eða þar til ellin sótti að. Hann hafði gaman af vís- um og að kveðast á. Ásgeir hafði yndi af söng og hafði kraftmikla tenórrödd. Hann stundaði dag- lega sund í Sundhöll Reykjavíkur. Þegar þreytan fór að segja til sín þá skipti Ásgeir um starf og fór að keyra leigubíl hjá Hreyfli og vann við það í u.þ.b. 20 ár. Ás- geir hélt þó áfram í fasteigna- viðskiptum fram til ársins 2003. Árið 2004 flutti Ásgeir að Dvalar- heimilinu Felli og bjó þar lengst af eða fram til ársins 2017, þá flutti hann á Hjúkrunarheimilið Hrafnistu í Reykjavík. Útför Ásgeirs fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 13. september 2019, klukkan 11. Ásgeir verður jarðsettur í gamla Fossvogs- kirkjugarði. Börn þeirra eru: Randý, f. 1953, maki Jón Sigurðs- son. þau eiga tvö börn. Guðbrandur Ívar, f. 1956, frá- skilinn, á þrjú börn börn. Rut Bech, f. 1957, maki Arnar Geirdal, þau eiga þrjú börn. Hjördís Bech, f. 1960, maki Guðni Birgir Sigurðsson, þau eiga fimm börn. Þórdís, f. 1961, maki Steinar Helgason, þau eiga fimm börn. Karl Þórhalli, f. 1962, fráskilinn, hann á fjögur börn. Sigríður Bech, f. 1963, fráskilin, á þrjú börn. Jóhanna Bech, f. 1964, hún á tvö börn. Ásgeir kynntist Maggý Stellu Sigurðardóttur árið 1973 og hófu þau sambúð sama ár, sambandi þeirra lauk árið 1977. Þau eign- Þegar ég heyri sagarhljóð og finn ilminn af timbri vaknar barn- ið í mér og ég hugsa um pabba minn, Ásgeir Karlsson, en hann var með smíðaverkstæði bak við húsið sem við bjuggum í á Njáls- götunni. Hann var hörkuduglegur mað- ur, vandvirkur og stórhuga og þegar ég var lítil reisti hann fyrstu blokkina í Kópavogi. Ég sé hann stundum fyrir mér með hamar í annarri hendinni og nagla í hinni en það að eiga húsa- smið sem föður vakti snemma vit- und mína um það hvað þyrfti til að koma þaki yfir höfuðið og sex ára gömul ákvað ég að fara að heim- an, tók Ívar bróður minn með og Guðrúnu frænku mína með það í huga að byggja hús fyrir okkur. Til verksins þurfti verkfærin hans pabba og tróðum við nöglum í vasana, tókum sög, hamar, lóð- bretti og annað smálegt til hand- argagns og héldum af stað sem leið lá frá Njálsgötunni og í Árbæinn til ömmu og afa en þau áttu stórt hesthús sem stafaði töfrum af og í kringum húsið þeirra voru víðáttumiklar ekrur, svona í barnshuganum, tilvaldar til húsbygginga. Ferðalagið gekk vel í fyrstu en því lengra sem leið á það, þeim mun þyngri urðu verkfærin og til- vonandi húsasmíð minna og minna lokkandi. Í því ljósi verður skiljanlegra að þegar við komum að Land- símahúsinu við Suðurlandsbraut hentum við verkfærunum út í skurð sem lá meðfram veginum og héldum áfram ferðinni, öllu léttstígari. Á þessum árum fór lítið fyrir malbiki eða gangbrautum en fyrir litla ofurhuga eru holóttir vegir og troðningar með viðeigandi drullupollum gleðigjafar. Þannig ösluðum við forina á leiðarenda, þar sem amma og afi tóku á móti okkur með svipbrigð- um sem í minningunni segja að við höfum varanlega eyðilagt ímynd barnabarna í huga þeirra. Trúlega var hafin leit að okkur þar sem pabbi virtist kominn andartaki eftir að við komum í hús. Þá hófst bílferð til að leita að góssinu sem við höfðum kastað í skurðinn en við bárum auðvitað ekki skynbragð á verðmæti þess. Gott er að geta haft fá orð um verkfærin sem fundust ekki. Pabbi hallaðist snemma að hin- um gullnu veigum en hvernig svo sem það var eða varð hafði það lít- il áhrif á athafnasemi hans eða störf. Hann reisti hús eða gerði þau upp af miklum krafti en að verk- lokum mátti búast við að hann héldi upp á þau með viðeigandi brjóstbirtu. Eins og hjá svo mörgum sem lúta söngvatninu brustu fjölskylduböndin og varð hann til- tölulega ungur einbúi. Reyndar var hann einfari í hversdeginum en átti þó í áratugi góðan vin í Þorvaldi Sigurbjarnar heitnum, en fráfall hans snart pabba djúpt. Snemma kom Þórdís Karls, systir hans, sterk inn líf hans en ég tel að engin manneskja hafi verið stærri þar en hún. Til hennar fór hann þegar hann varð einn og bjó hjá henni og Begga hennar um tíma. Hjá henni átti hann alla hátíðisdaga og sunnudaga meðan þrek og heilsa entust. Ef hún gat lagt honum lið eða hlýjað á einhvern hátt gerði hún það. Sú blíða gleymist aldrei. Og síðan erum það við, ég og pabbi minn en það sem hann gaf mér var ómetanlegt. Ég var stelp- an hans og hann elskaði mig. Edith Randý Ásgeirsdóttir. Þá er komið að kveðjustund, eina ferðina enn. Það týnist úr hópnum. Við vorum níu systkinin en erum nú aðeins þrjár systurnar, eftir að bróðir okkar kær féll frá. Þegar maður lítur til baka er ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt. Það var oft mikið fjör á heimili okkar og margs að minn- ast. Ásgeir var rúmum fjórum ár- um eldri en ég og við vorum mjög náin. Honum fannst hann eiga mig, litlu systur sína. Einhverju sinni var Geiri ásamt leikfélögum í fimmaurah- arki og vantaði fimmeyring, þá voru góð ráð dýr og leitaði hann til elstu systur okkar og bað hana um pening. Það vildi hún en setti þó skil- yrði – „þú verður að eftirláta mér hana Þórdísi“, sem hann sam- þykkti. Þar með var ég seld. Það er gaman að rifja upp svona minningar. Það kom fljótt fram hvað Geiri var flinkur með hamar og sög og var hann aðeins þrettán ára gam- all þegar hann smíðaði dúkkuhús handa mér sem var mikið í lagt, með gluggum, hurð og lyftanlegu þaki sem hann síðan fyllti af hús- gögnum og gaf mér í jólagjöf. Átján ára kynntist hann Klöru sem varð síðar kona hans en 19 ára eignuðust þau sitt fyrsta barn, síðan kom annað og fljót- lega það þriðja. Þá liðu um þrjú ár og var allt sett á fullt og fimm börn fæddust á fimm árum. Af- rekuðu þau þetta allt fyrir þrí- tugt. Í mörg ár komu þau hjónin með allan hópinn til okkar á gaml- árskvöld. Þá var nú mikið fjör. Því er nú verr og miður en á þessum árum kynntist hann Bakkusi sem breytti lífi hans og fjölskyldunnar. Hjónabandið fór að gliðna og endaði með skilnaði. Það var nú ansi ruglingslegt í kringum hann þá. Hann kynntist Stellu og bjó með henni um tíma. Þar bættist við eitt barn. Þar voru börnin orðin níu. Geiri var hjá okkur hjónunum meðan hann var að ná áttum á þessum tíma. Hann hefur alla tíð verið duglegur að vinna, þar var hann hamhleypa. Við höfum alla tíð verið í góðu sambandi og var hann hátíðar- og tyllidaga á heimili okkar hjóna. Eftir að hann fór á hjúkrunar- heimili sótti Beggi hann sam- viskusamlega á sunnudögum og áttum við góðar stundir gegnum árin. Alltaf fannst honum jafn gaman að koma með okkur í Grímsnesið til Gunnu systur okkar. Ekki bjóst ég við því að ég væri að sjá hann í síðasta skipti þegar við nöfnur komum til hans á fimmtudeginum, að hann myndi kveðja daginn eftir. Ég kveð þig kæri bróðir. Megi allar góðar vættir vaka yfir þér. Þín systir Þórdís. Elsku Ásgeir. Nú kveðjum við þig, kæri frændi. Takk fyrir að vera hluti af okkar stóru fjölskyldu. Þú varst alltaf glaður og kátur þegar þú kíktir við hjá elsku mömmu þegar þið systkinin bjugguð bæði á Hrafnistu. Það er sárt að þurfa að kveðja, en við gleðjumst á sama tíma yfir góðum stundum sem við áttum öll saman. Nú er Ásgeir ekki lengur með- al okkar hér á jörð en minningin lifir um góðan dreng og glaðar stundir, minningin sem við mun- um ætíð geyma. Hvíl þú í friði, kæri frændi. Elfa Dís Austmann og Berglind Ólafsdóttir. Ásgeir Karlsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.