Morgunblaðið - 13.09.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.09.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. „ERTU ORÐINN GLEYMINN – EÐA VAR ÉG KANNSKI BÚINN AÐ SPYRJA ÞIG AÐ ÞESSU?” „ERTU TIL Í AÐ VERA EKKI AÐ GALA „HNETUR TIL SÖLU” Á MEÐAN VERIÐ ER AÐ RÉTTA?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að elda uppáhalds- matinn hennar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVAÐAN KOMA KJÚKLINGAVÆNGIR? ÚR OFNINUM EKKI AF KJÚKLINGUM? EIGA KJÚLLAR OFNA? VIÐ SKULUM EKKI RÆÐA EIGINMENNINA Í DAG! ALLT Í LAGI! ÞAÐ VORU MOLDARFÖR EFTIR HRÓLF ÚTI UM ALLT HÚS! LARS HELLTI VÍNI Á SÓFANN! ÞETTA HÆTTIR EKKI! ÉG VEIT EKKI HVAÐ ÉG Á AÐ GERA VIÐ HANN! HANN GERIR MIG BRJÁLAÐA! ÞAÐ ER EITTHVAÐ AÐ HONUM … þeirra eru: Sólveig Kristjana, f. 26. apríl 2012 og Inga Lára, f. 23. júní 2015. Þau búa á Seltjarnarnesi, 3) Páll Ásgeir Torfason, f. 27. júlí 1990, deildarstjóri við Háskóla Ís- lands, maki hans er Aðalheiður Einarsdóttir, f. 15. nóvember 1990, nemi í talmeinafræði. Þau búa í Reykjavík. Systkini Sólveigar: 1) Dóra Páls- dóttir, f. 29. júní 1947, d. 17. sept- ember 2016, kennari í Reykjavík; Tryggvi Pálsson, f. 28. febrúar 1949, hagfræðingur og fv. banka- stjóri í Reykjavík; Herdís Páls- dóttir, f. 9. ágúst 1950, sérkennslu- fræðingur í Noregi; Ásgeir Pálsson, f. 23. október 1951, fram- kvæmdastjóri hjá Isavia, búsettur í Mosfellsbæ. Foreldrar Sólveigar voru hjónin Páll Ásgeir Tryggvason, f. 19. febrúar 1922, d. 1. september 2011, sendiherra, og Björg Ásgeirs- dóttir, f. 22. febrúar 1925, d. 7. ágúst 1996, húsmóðir og sendi- herrafrú. Þau voru síðast búsett í Reykjavík. Sólveig Pálsdóttir Björg Ásgeirsdóttir sendiherrafrú Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands Jensína Björg Matthíasdóttir húsfreyja í Reykjavík Ásgeir Eyþórsson kaupmaður í Reykjavík Herdís Tryggvadóttir húsfreyja í Reykjavík Herdís Þorgeirsdóttir doktor í lögum Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor í heimspeki Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú í Reykjavík Þórhallur Bjarnarson biskup í Reykjavík Dóra Þórhallsdóttir forsetafrú Tryggvi Þórhallsson forsætisráðherra Þórhallur Tryggvason bankastjóri Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor Ragnar Ásgeirsson garðyrkju- ráðunautur í Reykjavík Eva Ragnarsdóttir kennari í Reykjavík Páll Torfi Önundarson læknir og prófessor í Reykjavík Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri í Reykjavík Ragna Þórhallsdóttir deildarstjóri hjá skrifstofu forseta Íslands Vala Ásgeirsdóttir Thoroddsen húsfreyja í Reykjavík Dóra Thoroddsen bókasafnsfræðingur María Kristín Thoroddsen kennari Rannveig Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík Ásgeir Þorsteinsson skipstjóri í Reykjavík Herdís Ásgeirsdóttir húsfreyja og félagsmálafrömuður Tryggvi Ófeigsson útgerðarmaður í Reykjavík Jóhanna G. Frímannsdóttir húsfreyja í Ráðagerði Ófeigur Ófeigsson bóndi og sjómaður í Ráðagerði í Leiru Úr frændgarði Sólveigar Pálsdóttur Páll Ásgeir Tryggvason sendiherra Arnljótur Björnsson hæstaréttardómari Edda Arnljótsdóttir leikkona Þórdís Arnljótsdóttir fréttamaður og leikkona Þórdís Ófeigsdóttir húsfreyja í Reykjavík Ég átti leið upp á Skólavörðu-holtið og hitti karlinn á Laugaveginum. Hann var daufur í dálkinn og sagðist hafa gripið í tómt en fengið skilaboð frá kerling- unni. – „Illa er nú komið fyrir mér,“ sagði hún: Nú finnst mér sem fætur logi og friðleysið í mig togi, það lúði hver sér að leiðist nú mér lokuð hér inni á Vogi. Hvar er mitt romm og retta, regnkápan stutta og létta og kæri minn hér karlinn sem er klár bæði í hitt og þetta? Að svo mæltu hnykkti hann höfð- inu afturábak til vinstri og kvað með jöfnum áherslum: Á Vogi þeir vist daufa hafa og vitaskuld nauðugir lafa. Mín kerling er þar eins og hvert annað skar og sýpur á ávaxtasafa. Og staulaðist inn í Hallgríms- kirkju til að biðjast fyrir sem ann- ars er ólíkt honum. Helgi R. Einarsson skrifaði mér gott bréf, þaðan sem hann var að koma úr gönguferð um Suður-Tíról frá 1. til 8. september og sendi mér limrur. Og hér er sú fyrsta, – „Í flugvélinni, örsaga“: Núna eins og er er ég staddur hér, næst rölti um í Ölpunum og aftur heim svo fer. En ekki fór betur en svo að far- angurinn skilaði sér ekki fyrr en eftir klukkustundar bið: Í Bændaferðum er brýnt að brosa og einnig er fínt að þakka það á þessum stað að týnt er ei lengur týnt. Ólafur Ragnar Grímsson hefur mjög látið málefni norðurslóða til sín taka og er í senn hressandi og upplýsandi að hlusta á hann fjalla um þau mál og ber að þakka þá for- ystu sem hann hefur tekið í þeim. Ekki hefur þetta farið framhjá hag- yrðingum á Boðnarmiði. Gunnar J. Straumland yrkir: Úr Ólafi getur ennþá ræst, við eigum hann nú til góða, kannski við ættum að kjós‘ann næst keisara norðurslóða. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af kerlingunni, karlinum og keisara norðurslóða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.