Morgunblaðið - 13.09.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.09.2019, Qupperneq 24
SELFOSS Kristján Jónsson kris@mbl.is Selfyssingar eru í nýrri stöðu í hand- boltanum að því leyti að þeir mæta nú til leiks á Íslandsmótinu sem Ís- landsmeistarar. Hornamaðurinn Hergeir Grímsson var í stóru hlut- verki hjá Selfyssingum í fyrra og segist ekki finna fyrir meiri vænt- ingum en áður nema síður sé. „Mér finnst eins og væntingarnar til okkar séu svipaðar og síðustu ár- in. Mér heyrist að staða okkar í spám sé alveg eins og í fyrra og árið áður. Ekki eru gerðar miklar vænt- ingar til okkar enda er Elli (Elvar Örn Jónsson) farinn. Það er auðvitað mikil breyting og allir aðrir þurfa að taka eitt skref fram á við. Ekki er því mikil pressa sett á okkur sem er bara fínt.“ Faðir Hergeirs, Grímur Hergeirs- son, er nú tekinn við stjórnartaum- unum. „Hann var áður aðstoðar- þjálfari Patta (Patreks Jóhannes- sonar) þessi tvö ár sem Patti var hérna. Segja má að sama formúla sé varðandi leikstílinn. Við vorum með mörg varnarafbrigði og breyttum oft í leikjum. Við erum með mörg leikkerfi og eigum margar útfærslur sem hægt er að grípa í. Við erum að gera svipaða hluti og í fyrra en auð- vitað er það erfiðara í ljósi þess að Elli var einn besti leikmaður deild- arinnar bæði í sókn og vörn,“ út- skýrði Hergeir. Öflugir menn meiddir Tveir mikilvægir leikmenn í liðinu eru á sjúkralistanum um þessar mundir. Skyttan Einar Sverrisson verður tæplega með fyrir áramót og varnarjaxlinn Sverrir Pálsson gæti misst af öllu tímabilinu vegna kross- bandsslits. „Við fengum skell fyrir ekki svo löngu varðandi Sverri. Þetta er náttúrlega hundleiðinlegt fyrir hann. Þetta býður upp á meiri leik- tíma í vörninni fyrir Tryggva Þóris sem er 17 ára gamall og tveir metr- ar. Varðandi Einar þá kemur hann bara vonandi inn í þetta sem fyrst.“ Hergeir á ekki von á því að and- stæðingarnir mæti Selfyssingum með öðru hugarfari en áður nú þeg- ar Selfoss er meistaralið. „Ég held ekki. Við náðum 2. sæti á fyrra tímabilinu hjá Patta og þá fóru menn að mæta okkur af meiri al- vöru. Í fyrra voru flestir leikir hörkuleikir. Væntanlega vilja allir vinna Íslandsmeistarana en ég á von á hörkuleikjum eins og í fyrra,“ sagði Hergeir og hann er spenntur fyrir vetrinum. Þvílíkt skemmtilegur leikur „Við spiluðum á móti FH í gær (á miðvikudag) og það var þvílíkt skemmtilegur leikur og góð stemn- ing. Ég er bara mjög spenntur fyrir tímabilinu. Mér finnst lið okkar vera mjög skemmtilegt. Mörg lið eru svipuð að getu sýnist mér en það á eftir að koma betur í ljós því það fóru nokkuð margir leikmenn til útlanda. Sumir hverjir lykilmenn í sínum liðum. Þrátt fyrir það þá finnst mér útlitið vera gott fyrir deildina,“ sagði Hergeir Grímsson í samtali við Morgunblaðið í gær en hann skoraði 4 mörk í fyrsta leikn- um gegn FH í Kaplakrikanum. Skörð sem þarf að fylla á Selfossi Morgunblaðið/Árni Sæberg Fyrirliðinn Hergeir Grímsson í fyrstu umferðinni á móti FH í Kaplakrika þar sem Selfyssingar hófu Íslandsmótið með góðum útisigri.  Elvar Örn fór til Danmerkur  Einar og Sverrir á sjúkralistanum 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 Einar Sverrisson (meiddur) Haukur Þrastarson Ísak Gústafsson Magnús Öder Einarsson Nökkvi Dan Elliðason Reynir Freyr Sveinsson Sverrir Pálsson (meiddur) Vilhelm Steindórsson Þjálfari: Grímur Hergeirsson. Aðstoðarþjálfari: Örn Þrast- arson. Árangur 2018-19: 2. sæti og Ís- landsmeistaratitill. Íslandsmeistari: 2019. Bikarmeistari: Aldrei.  Selfoss sigraði FH á útivelli, 32:30, í fyrstu umferð Olís- deildarinnar í fyrrakvöld. MARKVERÐIR: Alexander Hrafnkelsson Einar Baldvin Baldvinsson Sölvi Ólafsson HORNAMENN: Alexander Már Egan Guðjón Baldur Ómarsson Hannes Höskuldsson Hergeir Grímsson Richard Sæþór Sigurðsson LÍNUMENN: Atli Ævar Ingólfsson Guðni Ingvarsson Tryggvi Þórisson ÚTISPILARAR: Ari Sverrir Magnússon Árni Steinn Steinþórsson Lið Selfoss 2019-20 KOMNIR Einar Baldvin Baldvinsson frá Val (lán) Magnús Öder Einarsson frá Gróttu FARNIR Elvar Örn Jónsson í Skjern (Danmörku) Pawel Kiepulski í Wybrzeze Gdansk (Póllandi) Breytingar á liði Selfoss  Selfyssingar verða í baráttunni um þriðja til sjötta sæti í deildinni.  Minni breidd en í fyrra vegna meiðsla en ungir leikmenn á Selfossi eru vanir að fylla skörð.  Ef stemningin er góð þá koma þeir á óvart í úrslitakeppninni.  Áhugavert: Hvert fer Haukur Þrastarson eftir tímabilið? Sebastian Alexandersson um Selfyssinga HANDBOLTI Þýskaland RN Löwen – Balingen......................... 37:26  Alexander Petersson skoraði ekki fyrir Löwen. Kristján Andrésson þjálfar liðið.  Oddur Gretarsson skoraði 4 mörk fyrir Balingen. Kiel – Flensburg .................................. 28:24  Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði ekki fyrir Kiel. Danmörk Aarhus – Aalborg ................................ 28:31  Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon lék ekki með vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins.  Rúnar Arnórsson úr Keili er efstur af Íslendingunum sex sem taka þátt á 1. stigs úrtökumóti fyrir Evrópumóta- röð karla í golfi sem haldið er í Fleesensee í Þýskalandi. Þriðji hringurinn af fjórum var spilaður í gær og eftir hann er Rúnar í 9. sæti, sjö höggum undir pari. Axel Bóasson og Bjarki Pétursson eru jafnir í 19. sæti á fimm höggum undir pari og Andri Þór Björnsson er í 21. sæti á fjórum högg- um undir pari. Ragnar Már Garðars- son er í 36. sæti á einu höggi undir pari en Aron Snær Júlíusson er úr leik.  Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék fyrsta hringinn á WPGA-meistaramótinu á LET Access- mótaröðinni í golfi á einu höggi yfir pari í gær. Guðrún Brá fékk þrjá fugla, tvo skolla og einn skramba og er í 24.- 38. sæti en leiknir verða þrír hringir á Stoke by Nayland-vellinum á Englandi. Mótið er 14. mótið á LLET Access- mótaröðinni hjá Guðrúnu Brá, sem er í 45. sæti á stigalista mótaraðarinnar. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.