Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 25

Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 að leikmannahópurinn okkar lítur mjög vel út.“ Garðar man vel eftir árinu 2012 þegar HK varð Íslandsmeistari en hann segir tíma til kominn að félagið fari að horfa fram á veginn á nýjan leik. „Minningin um Íslandsmeistara- titilinn 2012 er hrikalega góð og þá var maður kannski meira í kringum liðið frekar en að vera að spila. Þetta er tilfinning sem maður mun aldrei gleyma enda ekki á hverjum degi sem liðið manns verður Íslands- meistari. Undanfarin ár hefur þetta verið upp og niður hjá félaginu. Við vorum auðvitað með fáránlega sterkt lið þegar við urðum meistarar en eftir það tímabil fóru margir sterkir póstar. Við misstum svo fleiri sterka pósta í framhaldinu af því og það voru í raun engir ungir leikmenn til þess að fylla í þessi skörð á þeim tíma. Þetta var ákveðið kynslóðabil þarna en við erum komnir aftur á rétta braut núna og getum farið að horfa upp á við á nýjan leik. Ég tel að það séu bjartir tímar fram undan í Kópavogi.“ Fyrirliðinn ítrekar að markmiðið í vetur sé fyrst og fremst að tryggja úrvalsdeildarsætið. „Við erum vissulega með unga leikmenn og það má alveg segja sem svo að sviðið sé þeirra núna. Það eru miklir hæfileikar í hópnum og þeir eru fullfærir um að sýna það í vetur að þeir eru hörkugóðir handbolta- menn. Við erum búnir að fara vel yf- ir veturinn og hvað við viljum afreka en markmið númer eitt, tvö og þrjú hjá okkur er auðvitað að sanna okk- ur í þessari deild. Markmiðið fyrir komandi tímabil er þess vegna fyrst og fremst að halda okkur í deildinni og þegar það er tryggt getum við mögulega farið að horfa eitthvað upp fyrir okkur,“ sagði Garðar í samtali við Morgunblaðið. Bjartir tímar fram undan í Kópavogi Morgunblaðið/Hari Efnilegur Blær Hinriksson er aðeins 17 ára gamall en var í stóru hlutverki hjá HK síðasta vetur og hann gerði átta mörk gegn Haukum í fyrrakvöld.  Garðar segir að markmið nýliðanna sé fyrst og fremst að tryggja sætið HK Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Garðar Svansson, leikmaður HK í handknattleik, er spenntur fyrir komandi tímabili með nýliðunum í efstu deild en HK lék síðast í úrvals- deildinni tímabilið 2014-15. Garðar var 21 árs gamall þegar HK varð Ís- landsmeistari í fyrsta og eina sinn en liðið hefur verið í hálfgerðri lægð síðan. HK er spáð 11. sæti og falli úr deildinni af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar. „Það eru komin fjögur ár síðan HK lék síðast í efstu deild og stemn- ingin fyrir tímabilinu í Kópavoginum er því mjög góð. Við erum virkilega spenntir að fá tækifæri gegn bestu liðum landsins á nýjan leik og það er mikil eftirvænting í leikmannahópn- um. Spá er bara spá þótt það sé allt- af gaman að þeim en við höfum trú á okkur og það er okkar að sanna það núna að við erum komnir til þess að vera í efstu deild, ekki til þess að falla úr henni næsta vor.“ Góð blanda í hópnum Þó nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi liðsins í sumar þótt kjarni liðsins sé sá sami og á síðustu leiktíð. „Ég tel að þær breytingar sem hafa orðið á leikmannahópnum í sumar séu af hinu góða. Við erum vissulega búnir að bæta við okkur ungum leikmönnum en að sama skapi eru þeir allir mjög sterkir og hæfileikaríkir. Þá koma þeir Pétur Árni og Davíð báðir inn með mikla reynslu sem mun hjálpa okkur í bar- áttunni sem fram undan er. Kjarn- inn í leikmannahópnum var góður fyrir og strákar eins og Blær og Ei- ríkur eru sem dæmi báðir mjög góð- ir leikmenn, þótt ungir séu, þannig MARKVERÐIR: Davíð Svansson Stefán Huldar Stefánsson HORNAMENN: Kristófer Dagur Sigurðsson Símon Michael Guðjónsson Þorgeir Bjarki Davíðsson Sigurvin Jarl Ármannsson LÍNUMENN: Eiríkur Guðni Þórarinsson Kristján Ottó Hjálmsson Grétar Áki Andersen ÚTISPILARAR: Ágúst Ingi Óskarsson Ásmundur Atlason Bjarki Finnbogason Blær Hinriksson Garðar Svansson Kristófer Andri Daðason Pálmi Fannar Sigurðsson Pétur Árni Hauksson Þjálfari: Elías Már Halldórsson. Aðstoðarþjálfari: Vilhelm Gauti Bergsveinsson. Árangur 2018-19: 6. sæti í 1. deild og sigur í umspili. Íslandsmeistari: 2012. Bikarmeistari: 2003.  HK tapaði 28:24 fyrir Haukum í fyrstu umferð deildarinnar á Ás- völlum í fyrrakvöld. Lið HK 2019-20 KOMNIR Ásmundur Atlason frá Gróttu Davíð Svansson frá Molde (Noregi) Eiríkur Guðni Þórarinsson frá Val Kristján Ottó Hjálmsson frá Haukum (úr láni) Kristófer Andri Daðason frá Víkingi Pétur Árni Hauksson frá ÍR Þorgeir Bjarki Davíðsson frá Fram FARNIR Elías Björgvin Sigurðsson í Mulheim (Þýskalandi) Guðmundur Árni Ólafsson í Aftureldingu Ingvar Ingvarsson í Þrótt Þórður Rafn Guðmundsson hættur Breytingar á liði HK  HK er með mjög efnilegt lið og með flotta umgjörð.  Það verður stór áskorun að halda liðinu í deildinni í vetur.  Stemning og barátta verður að vera vopnið hjá HK-ingum.  Áhugavert: Hvað gerist hjá þeim EF þeir falla næsta vor? Sebastian Alexandersson um HK Ég skellti mér í Kaplakrika í fyrrakvöld og fylgdist þar með viðureign bikarmeistara FH og Íslandsmeistara Selfoss í 1. um- ferð Olísdeildar karla í hand- bolta. Þar sá ég hinn 18 ára gamla Hauk Þrastarson fara algjörlega á kostum og það var hrein unun að sjá tilþrif piltsins úr meistara- liði Selfyssinga. Haukur er eitt mesta efni í handboltaheiminum í dag og fé- lög úti um allan heim keppast nú við að klófesta strákinn. Það er ekki spurning hvort heldur hvenær Haukur heldur út í atvinnumennskuna. Hann hafði möguleika á að fara út í sumar en tók þá skynsamlegu ákvörðun að mínu mati að taka eitt tímabil í Olísdeildinni til viðbótar og undirbúa sig enn betur undir það að halda út í hinn harða heim at- vinnumennskunnar. Það verður gaman að fylgj- ast með Hauki í framtíðinni. Hann hefur alla burði til að kom- ast í fremstu röð og mun á næstu árum spila stórt hlutverk með íslenska landsliðinu. Ég spjallaði við Hauk eftir flugeldasýningu hans í Krik- anum. Strákurinn er jarðbundinn og tók hrósi undirritaðs með stó- ískri ró. Hann er einbeittur í því að halda Selfossliðinu á þeim stalli sem það er komið á og leggja sitt af mörkum svo liðið geti barist um titlana í vetur. Næsta sumar ætlar hann svo að taka stóra stökkið og taka fyrstu skref sín í atvinnumennsk- unni. Hvort það verður hjá pólska liðinu Kielce, sem hann skoðaði aðstæður hjá á dögunum, eða hjá einhverju liði í þýsku Bundes- ligunni verður að koma í ljós. BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is Upptöku tækiÞér er í lófa lagið að taka upp !

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.