Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 27

Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2019 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar SANGSIN gæðavara frá Kóreu BREMSU VÖRUR í flestar gerðir bíla FRJÁLSAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ásdís Hjálmsdóttir er orðin hand- hafi tveggja Íslandsmeta í frjáls- íþróttum. Hún hefur verið þekkt- ust sem besti spjótkastari Íslands í kvennaflokki um langt árabil, og fastagestur á stórmótum. Fjórtán ár eru liðin síðan hún hún náði Ís- landsmetinu í þeirri grein af Vig- dísi Guðjónsdóttur og það hefur hún bætt nokkrum sinnum síðan. Þar er Íslandsmet hennar 63,43 metrar en það setti hún á móti í Finnlandi sumarið 2017. Í gær sló Ásdís hinsvegar 27 ára gamal Íslandsmet í kúluvarpi kvenna þegar hún kastaði 16,53 metra á móti í Svíþjóð. Það gerði hún í fyrstu grein sinni á kast- þrautarmóti. Guðbjörg Hanna Gylfadóttir úr USAH kastaði 16,33 metra á móti í Starkeville í Bandaríkjunum vorið 1992 og hefur haldið Íslandsmetinu allar götur síðan. Ásdís hefur lengi verið með kúluvarpið sem aukagrein og fyrir mótið í gær var hún þriðji besti Ís- lendingurinn í þeirri grein frá upp- hafi eftir að hafa kastað 16,08 metra fyrir þremur árum. Þá var hún næstbest á eftir Guðbjörgu en í vor fór Erna Sóley Gunnars- dóttir, 19 ára ÍR-ingur, framúr Ás- dísi og í annað sætið á afreka- skránni þegar hún kastaði 16,13 metra á móti í Houston í Texas og setti þar Íslandsmet í stúlkna- flokki. Guðbjörg náði metinu af Guðrúnu Þegar Guðbjörg setti metið árið 1992 sló hún tíu ára gamalt met Guðrúnar Ingólfsdóttur úr KR sem kastaði 15,40 metra árið 1982. Ásdís gaf út fyrir skömmu að hún myndi ekki reyna frekar við að ná lágmarki fyrir heimsmeistara- mótið sem hefst í Katar í lok þessa mánaðar. Hún hefur sett stefnuna á að komast á Ólympíuleikana í Tókýó næsta sumar en það yrði þá væntanlega hennar síðasta stórmót því Ásdís skýrði frá því fyrir skömmu að 2020 verði hennar síð- asta keppnistímabil. Handhafi tveggja Íslandsmeta  Ásdís sló 27 ára met Guðbjargar Morgunblaðið/Golli Fjölhæf Ásdís Hjálmsdóttir keppir af og til í kúluvarpi þótt spjótkastið sé að- algrein hennar. Hér er hún með kúlu í hendi á Reykjavíkurleikunum 2012. Mikael Anderson, leikmaður 21-árs landsliðs Íslands í knattspyrnu, hef- ur skrifað undir nýjan fimm ára samning við danska toppliðið Midt- jylland. Mikael, sem er 21 árs kant- maður, hefur verið í röðum Midt- jylland frá 2016 en verið lánaður síðustu tvö ár og lék síðasta vetur með Excelsior í hollensku úrvals- deildinni. Hann hefur hins vegar leikið með Midtjylland frá byrjun þessa tímabils, er búinn að spila sjö af átta fyrstu leikjunum og skora eitt mark. Mikael á að baki einn A- landsleik fyrir Ísland. vs@mbl.is Framlengdi til fimm ára Morgunblaðið/Eggert U21 Mikael Anderson í leik gegn Armeníu fyrr í þessari viku. Alls hafa 120.242 áhorfendur mætt á leikina 114 sem spilaðir hafa ver- ið í úrvalsdeild karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, í sumar, en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Að meðaltali hafa því 1.055 mætt á hvern leik fyrir sig. KR-ingar eru með bestu aðsóknina í sumar, en 1.623 áhorfendur hafa mætt að meðaltali á leiki toppliðsins á Meistaravöllum og 1.394 á leiki hjá Breiðabliki. Sjö af liðunum tólf í deildinni eru með yfir eitt þúsund áhorfendur að meðaltali á heima- leiki sína. sport@mbl.is Flestir mætt í Vesturbæinn Morgunblaðið/Valli Efstir Rúnar Kristinsson og læri- sveinar hans í KR eru á toppnum. Markvörðurinn Íris Björk Símonar- dóttir er komin í íslenska landsliðið í handknattleik á ný eftir þriggja ára fjarveru. Hún er í fyrsta hópi Arnars Péturssonar, nýs landsliðs- þjálfara, sem í gær tilkynnti hvaða 17 leikmenn yrðu með í undirbún- ingi fyrir leikina gegn Króatíu og Frakklandi í undankeppni heims- meistaramótsins en þeir fara fram 25. og 29. september. Leikið er við Króata í Osijek en við Frakka á Ás- völlum í Hafnarfirði. Tyrkland er fjórða liðið í þessum riðli. Íris Björk fór í fæðingarorlof sumarið 2016 en tók fram skóna á ný sumarið 2018 með góðum árangri. Hún varð Íslandsmeistari með Val í vor og var kjörin besti leikmaður mótsins. Hópurinn er þannig skipaður: Markverðir: Elín Jóna Þorsteinsd., Vendsyssel Íris Björk Símonardóttir, Val Vinstra horn: Perla Ruth Albertsdóttir, Fram Sigríður Hauksdóttir, HK Vinstri skyttur: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Bourg-De-Péage Andrea Jacobsen, Kristianstad Helena Rut Örvarsd., SönderjyskE Leikstjórnendur: Ester Óskarsdóttir, ÍBV Eva Björk Davíðsdóttir, Skuru Karen Knútsdóttir, Fram Hægri skyttur: Birna B. Haraldsd., Neckarsulmer Rut Jónsdóttir, Esbjerg Thea Imani Sturludóttir, Oppsal Hægra horn: Díana Dögg Magnúsdóttir, Val Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram Línumenn: Hildigunnur Einarsd., Leverkusen Steinunn Björnsdóttir, Fram Aftur í markið eftir þriggja ára fjarveru Morgunblaðið/Árni Sæberg Reynd Íris Björk Símonardóttir hefur leikið samtals 69 landsleiki.  Janus Daði Smárason kom að sjö mörkum Aalborgar þegar liðið vann 31:28-sigur gegn Århus á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Janus Daði skoraði þrjú mörk og gaf fjórar stoðsendingar, en Aalborg tyllti sér í efsta sæti deildarinnar með sigrinum. Ómar Ingi Smárason lék ekki með Aalborg vegna meiðsla, en liðið er með fullt hús stiga, eða sex stig, eftir fyrstu þrjá leiki sína.  Íslandsmeistari karla í golfi, Guð- mundur Ágúst Kristjánsson, náði sér ekki á strik á opna portúgalska meistaramótinu sem fram fer í Por- timao í Portúgal sem hófst í gær og er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu. Guðmundur Ágúst lék fyrsta hringinn á 76 höggum, eða á fjórum höggum yfir pari, og var hann í 113.-124. sæti eftir fyrsta keppnisdag.  Gísli Þorgeir Kristjánsson lék síð- ustu fimm mínúturnar með þýska handknattleiksliðinu Kiel þegar það gerði sér lítið fyrir og vann 28:24-sigur gegn Þýskalandsmeisturum Flensburg í þýsku 1. deildinni í Sparkassen- Arena í Kiel í gær. Kiel leiddi með fimm mörkum í hálfleik, 18:13, en Gísli Þor- geir er að koma til baka eftir meiðsli. Kiel hefur farið vel af stað og er í fimmta sæti deildarinnar með 6 stig eftir fjóra leiki. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.