Morgunblaðið - 13.09.2019, Síða 32
Baritónsöngvarinn Jóhann Krist-
insson hlaut tvenn verðlaun í söng-
keppninni Stella Maris sem fram fór
um borð í skemmtiferðaskipi í 12
daga siglingu. Jóhann hlaut bæði
verðlaun dómnefndar og áheyr-
enda og af þeim sem sátu í dóm-
nefnd má nefna Dominique Meyer,
stjórnanda Vínaróperunnar.
Jóhann hlaut Stella
Maris verðlaunin
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 256. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Morgunblaðið lýkur í dag kynningu
á liðunum tólf sem skipa Olísdeild
karla í handknattleik á komandi
vetri með umfjöllun um tvö síðustu
liðin. Rætt er við Hergeir Grímsson,
fyrirliða Íslandsmeistaranna frá
Selfossi, og Garðar Svansson, fyrir-
liða nýliðanna í HK, en þessum lið-
um er spáð baráttu hvoru á sínum
enda deildarinnar. »24-25
Hvað gera meist-
ararnir og nýliðarnir?
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Rauður spaði nefnist sýning á verk-
um Kristins Más Pálmasonar sem
opnuð verður í dag kl. 17 í listhús-
inu Tveimur hröfnum á Baldursgötu
12. Kristinn nam við Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og lauk
meistaragráðu í myndlist frá The
Slade School of Fine Art í London
árið 1998. Á ferli sínum hefur Krist-
inn haldið yfir tuttugu einkasýn-
ingar hér á landi sem er-
lendis og tekið þátt í
öðrum myndlistar-
tengdum verkefnum.
Þá er hann einn stofn-
enda sýningarrýmanna
Anima (2006-2008)
og Kling & Bang
ásamt því að eiga í
samstarfi við Tvo
hrafna listhús.
Rauður spaði í listhús-
inu Tveimur hröfnum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Andlegur styrkur var lykilatriði í
undirbúningi Marglyttanna sem fóru
boðsund yfir Ermarsund, 34 kílómetra
sjóleið frá Dover á Englandi í Cap Gris
Nez í Frakklandi, síðastliðinn þriðju-
dag. Þetta segir Þórey Vilhjálmsdóttir,
ein hinna fræknu sundkvenna, en hin-
ar voru Sigurlaug María Jónsdóttir,
Sigrún Þ. Geirsdóttir, Halldóra Gyða
Matthíasdóttir, Birna Bragadóttir og
Brynhildur Ólafsdóttir. Sundið var far-
ið meðal annars til að vekja athygli á
plastmengun í hafinu og vekja athygli
á og safna fé til hreinsunarstarfs Bláa
hersins.
Vanar krefjandi aðstæðum
„Við Marglytturnar erum allar sex
vanar því að þurfa í lífi okkar og starfi
að mæta krefjandi aðstæðum. Vissum
því að hugurinn þyrfti að vera rétt
stilltur svo við gætum lokið þessu
verkefni. Að ná alla leið var miklu
meiri áraun fyrir hugann en líkam-
ann,“ segir Þórey. „Fyrir sundið höfð-
um við reynt okkur við ýmsar ólíkar
aðstæður í sjósundi hér heima, svo
sem að synda yfir Skerjafjörðinn suð-
ur á Bessastaði, synda yfir Grundar-
fjörð með aragrúa af öðrum marglytt-
um og æfðum kuldaþolið í tvo klukku-
tíma í 14,5 gráðum í Nauthólsvík. Þá
áttum við einnig góða fundi með Haf-
rúnu Kristjánsdóttur sálfræðingi, sem
fræddi okkur um hvernig best væri að
mæta óvæntum aðstæðum sem upp
gætu komið. Leiðsögn hennar var
mjög þýðingarmikil.“
Báturinn valt á öldunum
Sjósundskonurnar lögðu af stað frá
Dover kl. 6.53 á þriðjudagsmorgun og
komu í land Frakklandsmegin réttum
og sléttum fimmtán klukkustundum
seinna. „Við þurftum að doka við í
nokkra daga eftir því að fært yrði og
sæmilegt í sjóinn og vissulega tók biðin
á,“ segir Þórey.
„Þegar svo var loksins hægt að
leggja af stað varð nokkuð hvasst þeg-
ar líða fór á daginn og öldur á Ermar-
sundi. Fyrirkomulag boðsundsins var
þannig að ein synti í einu í sjógangi á
meðan við hinar biðum í bátnum, sem
valt á öldunum, og þurftum að halda
okkur fast. Sjóveikin kom upp og allar
vorum við orðnar slappar þegar komið
var nærri Frakklandsströndum, á svo-
nefndan Grafreit draumanna. Það er
svæðið á sundinu þar sem margir
sundkappar hafa gefist upp. En þegar
þangað var komið stakk Halldóra
Gyða sér til sunds og tók góðan enda-
sprett. Þann flottasta sem ég hef
nokkru sinni séð, sem hún gat af því að
hugarfarið var rétt og við allar
ákveðnar í að ljúka verkefninu saman.
Við misstum til dæmis aldrei húmorinn
þrátt fyrir sjóveikina og það kom aldrei
til greina að gefast upp.“
Þórey segir þær Marglytturnar
þakklátar fyrir samvinnuna með Bláa
hernum og að hafa átt þess kost að
vekja athygli á góðu starfi hans að
hreinsa strandlengjuna af plasti og
öðru rusli úr hafinu. „Lífríkið í Ermar-
sundinu hefur hlotið skaða af mengun
frá þeirri miklu skipaumferð sem þar
er og við urðum sannarlega varar við.
Sagt er að árið 2050 verði meira af
plasti en fiskum í sjónum ef ekki verð-
ur gripið til aðgerða. Við vonumst til
þess að hafa náð að vekja athygli á
þessari hræðilegu þróun.“
Hvatning til nýrra verkefna
Marglytturnar fóru í flug heim til Ís-
lands strax eftir sundið. Komu heim til
Íslands í gærmorgun og hafa nú snúið
til starfa sinna. Ermarsundsævintýrið
er orðið að sögu og minningu en líka
hvatningu til nýrra verkefna.
„Við erum ekkert hættar en höfum
ekki rætt neitt formlega um framhald.
Það kæmi þó ekki á óvart að við fynd-
um okkur nýjar áskoranir,“ segir Þór-
ey, sem sjálf stundar ásamt sjósundi
fjallgöngur, fjallahjól, gönguskíði og
utanvegahlaup og stefnir á fjallaskíði.
Sundkonur Frá vinstri talið: Sigurlaug María Jónsdóttir, Birna Bragadóttir, Þórey Vilhjálmsdóttir, Halldóra Gyða
Matthíasdóttir Proppé, Sigrún Þ. Geirsdóttir og Brynhildur Ólafsdóttir hér við höfnina í Dover fyrir sundið mikla.
Húmor vann á sjóveiki
Afrek í Ermarsundsævintýri Marglyttur komnar heim
ÁENDANUM
VELURÞÚ
COROLLU
VERÐUR
ÞÚHEPPINN
ÁSKRIFANDI
sem verður dreginn út 16. október?
Allir áskrifendurMorgunblaðsins eru
með í leiknum. Hérmá sjá valkostina
sem einn af áskrifendum okkar fær
að velja um þegar hann fær að gjöf
nýja og glæsilega Toyota Corolla.*
Fylgstumeð.
*Heppinn áskrifandi fær að velja á milli Corolla Hatchback,
Corolla Touring Sports og Corolla Sedan; þriggja glæsilegra
Hybrid-bíla með 1,8 lítra vél í Active-útfærslu.