Morgunblaðið - 16.09.2019, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019
Vetur nálgast Enn er grænn litur á gróðri við Fjárborgir ofan Reykjavíkur þótt fyrsti snjórinn hafi fallið á Skálafell. Snjór er einnig kominn í Esju og fleiri fjöll við höfuðborgarsvæðið.
Árni Sæberg
Dagur íslenskrar
náttúru er haldinn
hátíðlegur í dag, 16.
september, tileink-
aður náttúru Íslands
og mikilvægi þess að
vernda hana og um-
gangast á skyn-
samlegan hátt.
Fátt hefur mótað
íslenska þjóð og
menningu í jafn
miklum mæli og
náttúran. Lífsviðurværi þjóð-
arinnar er að verulegu leyti und-
ir ríkulegum gjöfum náttúrunn-
ar komið. Fáar þjóðir reiða sig í
sama mæli á beina nýtingu auð-
æfa náttúrunnar – einkum veið-
ar á villtum fiskistofnum, virkj-
un vatnsafls og jarðvarma,
sauðfjárbeit á afréttum og nátt-
úrutengda ferðaþjónustu. Skyn-
samleg nýting náttúruauðlinda
hlýtur að grundvallast á lang-
tímasýn, þekkingu og skilningi á
náttúrunni, ella er hætt við að
illa fari. Menntun og fræðsla eru
hér lykilatriði og einn þátturinn
snýr að náttúrusögu landsins.
Í kjallara Dýrafræðisafns
Danmerkur (Zoologisk Museum)
í Kaupmannahöfn leynast tvær
beinagrindur Íslandssléttbaka
(Eubalaena glacialis) sem veidd-
ir voru við Ísland 1891 og 1904.
Íslandssléttbakurinnvar algeng-
ur í norðanverðu Atlantshafi á
öldum áður en vegna veiða gekk
hratt á stofninn og strax á 18.
öld var tegundin orðin fágæt. Ís-
landssléttbakarnir tveir í Kaup-
mannahöfn eru líklega meðal
síðustu dýra af þessari tegund
sem voru veidd. Þrátt fyrir frið-
un tegundarinnar um og upp úr
1930 eru sléttbakar í útrýming-
arhættu í dag og telur stofninn
aðeins um 500 dýr hið mesta.
Þeir hafast ekki lengur við hér
við land en eitt og eitt dýr flæk-
ist hingað örsjaldan, líklega frá
austurströnd Ameríku þar sem
þeir eru flestir. Framtíðarhorfur
sléttbakanna eru því miður
fremur dökkar, aðallega vegna
affalla í kjölfar ásiglinga, ánetj-
unar og breytinga í sjávarlífrík-
inu vegna hlýnunar.
Íslandssléttbakarnir í Kaup-
mannahöfn eru mikið fágæti. Af-
ar fá söfn eiga heil eintök af
beinagrind tegund-
arinnar og hér á
landi er ekki til neitt
eintak. Það er miður
því Íslandsslétt-
bakar eru sannar-
lega hluti af íslensk-
um náttúru- og
menningararfi. Ís-
landssléttbakar, sem
um tíma gegndu
fræðiheitinu Balaena
islandica, höfðust við
hér við land og voru
veiddir einkum af
Böskum framan af öldum og síð-
ar Norðmönnum. Jón lærði Guð-
mundsson (1574-1658) var einna
fyrstur manna í Evrópu til að
gera náttúru sléttbakanna skil í
máli og myndum og nýlegar
rannsóknir á fornleifum benda
til að sléttbakar hafi verið
veiddir og unnir í meira mæli
við Ísland en áður hefur verið
talið.
Mikill akkur væri í því að fá
hingað heim aðra beinagrind Ís-
landssléttbaksins sem hvílt hef-
ur í kjallarageymslu í Kaup-
mannahöfn í rúm 100 ár.
Náttúruminjasafn Íslands hefur
bent á að tilkall Íslendinga til
þessara merku náttúruminja er
sterkt. Langtímalán á gripnum
og varðveisla hans á Íslandi
gegnir margvíslegum tilgangi,
vísindalegum, kennslufræðileg-
um og menningarsögulegum.
Nútímatækni býður auðveldlega
upp á að varðveita gripinn og
vernda hann samtímis því að
hafa hann til sýnis og aðgengi-
legan fyrir almenning. Kjör-
aðstæður eru fyrir hendi til
þessa verkefnis hér á landi.
Beinin heim!
Eftir Hilmar J.
Malmquist
»Mikill akkur væri
í því að fá hingað
heim aðra tveggja
beinagrinda af Íslands-
sléttbak sem hvílt
hefur í kjallara-
geymslu í Kaupmanna-
höfn í rúm 100 ár.
Hilmar J.
Malmquist
Höfundur er forstöðumaður
Náttúruminjasafns Íslands.
hjm@nmsi.is
Beinin heim
Fjölskyldan er grunn-
eining samfélagsins. Til
að skapa farsælt sam-
félag þarf að leggja höf-
uðáherslu á að hlúa að
henni. Verkefni fjöl-
skyldna hafa mikið
breyst samfara breytt-
um lífsháttum, ekki síst
á síðustu árum. Sam-
félagið er orðið flóknara
og heimilislífið hefur
leitast við að aðlaga sig
því. Þrátt fyrir breytingar á lífs-
háttum er umönnun og uppeldi barna
enn í dag mikilvægasta verkefni
hverrar fjölskyldu. Þó að staða ís-
lenskra fjölskyldna sé á margan hátt
góð er ljóst að breyttir þjóðfélags-
hættir og aukinn hraði í samfélaginu
gerir mörgum erfitt fyrir.
Margvíslegar kerfisbreytingar
nauðsynlegar
Verkefni stjórnvalda á hverjum
tíma eiga og þurfa að lúta í meira mæli
að því að bæta aðbúnað og hag fjöl-
skyldna í landinu. Kulnun, langur
vinnudagur, mönnunarvandi, aukinn
kvíði barna og ungmenna, fjölgun
ungra einstaklinga á örorku, bágur
efnahagur og skortur á viðeigandi
húsnæði eru því miður dæmi um
áskoranir sem íslenskt samfélag og
stjórnvöld þurfa að horfast í augu við.
Það að hlúa að fjölskyldunni er fjár-
festing til framtíðar og sterkar og
heilbrigðar fjölskyldueiningar eru
grunnur að öflugu samfélagi. Við þurf-
um margvíslegar kerfisbreytingar
þegar kemur að fjölskyldum. Slíkar
breytingar hafa verið í undirbúningi
og í vetur munum við sjá ýmsum mál-
um ýtt úr vör sem til framtíðar munu
breyta stöðu fjölskyldna á Íslandi.
Lenging fæðingarorlofs
í tólf mánuði
Framsóknarflokkurinn hefur ávallt
lagt ríka áherslu á öflugt fæðingar-
orlofskerfi en núverandi kerfi var
komið á fót fyrir 20 árum. Fjármagn
til fæðingarorlofskerfisins var því
miður skorið mikið niður við efna-
hagshrunið og er það eitt af áherslu-
málum okkar að endurreisa það með
því meðal annars að lengja rétt for-
eldra til fæðingarorlofs í tólf mánuði
og hækka hámarksgreiðslur í fæðing-
arorlofi. Þessar aðgerð-
ir munu þýða tíu millj-
arða aukningu til
fjölskyldna landsins á
ársgrunni í lok þessa
kjörtímabils. Þess utan
er fæðingarorlofs-
löggjöfin til heildarend-
urskoðunar í þeim til-
gangi að bæta
fæðingarorlofskerfið
enn frekar.
Heildarendurskoðun
í málefnum barna –
ný barnaverndarlög
Áskoranir fjölskyldunnar kalla á að
aukin áhersla verði á snemmtæka
íhlutun og forvarnir innan velferð-
arkerfisins. Mikil vinna er í gangi í
málefnum barna sem miðar að því að
grípa unga einstaklinga sem lenda í
vanda fyrr á lífsleiðinni en nú er gert
og forma aðferðir sem tryggja að börn
falli ekki á milli kerfa líkt og stundum
er raunin. Þetta er framkvæmt í góðri
samvinnu þvert á stjórnmálaflokka og
á milli nokkurra ráðuneyta. Fyrstu út-
línur að nýrri hugsun í þessum efnum
verða kynntar á opinni ráðstefnu í
Hörpu 2. október næstkomandi og er
öllum sem hafa áhuga boðið að taka
þátt og leggja sitt af mörkum (nánari
upplýsingar er hægt að finna á
www.frn.is). Samhliða þeirri vinnu er
unnið að nýrri barnaverndarlöggjöf
sem lögð verður fram á komandi
þingi.
Fjölgun almennra leigu-
íbúða – 600 íbúðir á næsta ári
Húsnæðisöryggi er ein grunn-
forsenda góðra lífsskilyrða. Það á að
vera sjálfsögð krafa, eins og krafan
sem við gerum um aðgengi í mennta-
og heilbrigðiskerfinu, að hver og einn
geti komið sér upp þaki yfir höfuðið.
Þarna er ríkisstjórnin að vinna að
margvíslegum aðgerðum og mun
meðal annars 3,7 milljörðum verða
ráðstafað til þess að fjölga almennum
íbúðum á leigumarkaði á næsta ári.
Þessar íbúðir eru byggðar innan laga-
ramma um almennar íbúðir frá árinu
2016. Frá þeim tíma hefur 8,5 millj-
örðum króna verið úthlutað í stofn-
framlög til tæplega 1.600 íbúða. Heild-
arfjárfesting í öruggu leiguhúsnæði
fyrir almenning, með stofnframlögum
ríkis og sveitarfélaga, er talin koma til
með að nema á bilinu 60-75 milljörðum
króna á árunum 2016 til 2023.
Stór skref til afnáms
verðtryggingar og
stuðningur við ungt fólk
Það hefur löngum verið stefna
Framsóknar að afnema verðtrygg-
ingu neytendalána í íslensku sam-
félagi. Ekki hefur náðst pólitísk sam-
staða um slíkar breytingar á síðustu
árum en ánægjulegt er að rík-
isstjórnin hefur nú skuldbundið sig, í
tengslum við lífskjarasamninga, til að
stíga róttæk skref í þessu efni og er
frumvarps að vænta á komandi lög-
gjafarþingi.
Einnig er unnið að kerfisbreyt-
ingum sem miða að því að styðja við
íbúðarkaup ungs fólks, tekjulægri ein-
staklinga og fjölskyldna sem misstu
eignir sínar í hruninu. Þarna er bæði
unnið að því að hægt verði að nýta líf-
eyrissparnað til innborgunar við fast-
eignakaup og einnig er unnið frum-
varpi til innleiðingar á sérstökum
eiginfjárlánum að skoskri/breskri fyr-
irmynd.
Landsbyggðin ekki skilin
eftir í húsnæðismálum
Landsbyggðin hefur oftar en ekki
verið skilin eftir þegar kemur að hús-
næðismálum en því hyggjumst við
breyta. Í sumar voru kynntar tólf að-
gerðir sem ætlað er að efla húsnæð-
ismarkaðinn á landsbyggðinni. Fyrstu
aðgerðunum var hleypt af stokkunum
við undirritun reglugerðar um nýjan
lánaflokk til uppbyggingar á köldum
markaðssvæðum á landsbyggðinni, en
kallað hefur verið eftir slíkri kerf-
isbreytingu um mjög langt skeið.
Hér eru nefndar nokkrar þeirra að-
gerða sem nú er unnið að og munu
koma fram á komandi þingvetri. Allt
eru þetta aðgerðir sem fela í sér raun-
verulegar jákvæðar breytingar fyrir
fjölskyldur um allt land. Ég hlakka
mikið til að fylgja þeim eftir og sjá
þær komast til framkvæmda.
Eftir Ásmund Einar
Daðason » Allt eru þetta aðgerð-
ir sem fela í sér
raunverulegar kerf-
isbreytingar fyrir
fjölskyldur landsins.
Ásmundur Einar
Daðason
Höfundur er félags- og
barnamálaráðherra.
Stóraukinn stuðningur
við íslenskar fjölskyldur