Morgunblaðið - 16.09.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.09.2019, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019 ✝ Björn Jenssonfæddist í Reykjavík 30. des- ember 1930. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Sóltúni 30. ágúst 2019. Foreldrar Björns voru Jens Bjarnason skrif- stofustjóri, f. 4. september 1894, d. 27. febrúar 1952, og Guðrún S. Helgadóttir hús- móðir, f. 16. júní 1900, d. 7. júlí 1999. Björn var yngstur bræðra sinna. Elstur var Bjarni flugstjóri, f. 24. september 1925, d. 26. september 1970, svo Helgi loftskeytamaður, f. 13. apríl 1929, d. 23. nóvember 1997. Björn kvæntist 8. nóvember 1952 Elínu Óladóttur, f. 27. janúar 1932, og lifir hún mann sinn. Foreldrar hennar voru Óli Jón Ólason stórkaupmaður, f. 16. september 1901, d. 1. maí átti Jenný Ósk Thelmu Marínu Árnadóttur. Elín og Björn hafa alla tíð búið í Reykjavík. Björn ólst upp á Hólum við Kleppsveg frá tveggja ára aldri. Hann lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Reykjavíkur auk ýmissa námskeiða í trygg- ingafræðum hérlendis og er- lendis. Björn lauk einnig einka- flugmannsprófi og bar skírteini númer 298. Hann hóf starfs- feril sinn hjá Eimskip en starf- aði lengst af hjá Tryggingu hf., síðast sem skrifstofustjóri. Björn var mikill flug- áhugamaður. Hann átti alltaf flugvél eða -vélar sem hann gerði upp og naut þess að fljúga þeim sjálfur. Björn og Elín áttu reit sinn í Múlakoti og nutu samvista þar við annað flugáhugafólk. Einnig ferðuðust þau land- leiðina með. Þá nutu þau sín á ferðalögum erlendis, sér- staklega að dvelja á Flórída. Útför Björns Jenssonar fer fram í dag, 16. september 2019, frá Háteigskirkju. At- höfnin hefst klukkan 15. 1974, og Arnlín Árnadóttir, f. 20. júní 1905, d. 15. júlí 1985. Börn Björns og Elínar eru: 1) Guðrún S., f. 10. febrúar 1954, maki Trausti Sig- urðsson, f. 6. októ- ber 1951. Börn þeirra eru: a) Björn, b) Elín Auð- ur, maki Emil Helgi Lárusson (þau skildu), dætur þeirra eru Eik María og Harpa. c) Sigurður. 2) Arndís, f. 23. maí 1955, maki Sigurður Einarsson, f. 19. september 1960. Börn þeirra eru: a) Þór- unn og b) Björn. 3) Jens Gunn- ar, f. 28. ágúst 1958, maki Kwan Björnsson, f. 7. maí 1979. Barn þeirra er Tara Mai. Með fyrri konu, Sigurlínu Helgadóttur (þau skildu), átti Jens Jennýju Ósk, maður henn- ar er Margeir Steingrímsson. Barn þeirra er Dagur. Áður Hann afi kann ekki að segja nei, segja barnabörnin, já hann afi kann ekki að segja nei, segja þau hlæjandi og halda áfram að mis- nota undanlátssemi afa síns. En afi kunni alveg að segja nei og gat hann verið stífur á meiningunni nema gild rök bentu til annars, en betri afa er varla hægt að hugsa sér. Björn Jensson, tengdafaðir minn, var í tryggingageiranum þegar ég kynntist honum fyrst og vann hann þar til starfsloka, en vinna frá níu til fimm var ekki nóg. Öll kvöld og allar helgar voru hann og æskuvinur hans Ágúst Karlsson í bílskúrnum að gera við, rétta og sprauta bíla. Og seinna þegar bílar urðu einnota fluttu þeir sig yfir í flugskýlin og tóku flugvélarnar í gegn með sömu vandvirkninni og bílana áður, svo Cessna og Piper hefðu ekki getað gert það betur. Reyndar eru mínar bestu minningar þegar við tengdafeðg- arnir flugum saman austur í Fljótshlíð snemma vors. Suður- landið ennþá í svarbrúnum vetr- arhamnum en einstaka grastó gaf fyrirheit um sumarið framundan. En svona líður tíminn. Maður- inn, sem allt lék í höndunum á, varð allt í einu háður öðrum með einföldustu athafnir daglegs lífs og reyndi þá mikið á Elínu Óla- dóttur, tengdamóður mína, sem annaðist hann af einstakri alúð uns hann komst á hjúkrunarheim- ilið Sóltún, þar sem hann lést 30. ágúst síðastliðinn. Það sem ég mun sakna hans, þessa ljúfmennis sem hann var, en ég veit að þegar minn tími kemur tökum við aftur flugið sam- an. Það er vor á ný, stefnan er tek- in austur og við fljúgum hátt ofar öllum dauða, þar sem aðeins lífið blasir við í grænum grastóm Suð- urlandsins. Trausti Sigurðsson. Tengdafaðir minn Björn Jens- son er látinn. Hann var mikill öð- lingsmaður, áhugasamur um mál- efni líðandi stundar. Velferð fjölskyldunnar var Birni mikilvæg og þá sérstaklega yngri kynslóð- arinnar. Barnbetri afi held ég að sé vandfundinn enda barnabörn hans ákaflega hænd að afa sínum. Margar minningar sækja á við tímamót sem þessi og allar góðar. Björn var vissulega maður sinnar kynslóðar og er minnisstætt þeg- ar Þórunn dóttir okkar Arndísar kom í heiminn. Fæðingin var erfið og tók langan tíma. Er Björn, eða afi B eins og hann var ætíð kall- aður, spurði þessi tíðindi þá varð honum að orði; aumingja Sigurð- ur. Fyrir þetta hlaut hann langan og harðorðan fyrirlestur Arndísar dóttur sinnar um nútímasamfélag og samskipti kynjanna. Afi B tók því vel eins og öllu því er á daga hans dreif. Björn var áhugasamur um ferðalög erlendis og ekki síður innanlands. Oft var ferðinni heitið til Bandaríkjanna þar sem Björn og Elín áttu athvarf um áratuga skeið. Nokkrum sinnum heim- sóttum við Arndís, Þórunn og Björn yngri afa og ömmu þangað. Stundum kom fyrir að börnin voru skilin eftir hjá afa sínum og ömmu, enginn skemmti sér þá betur en Björn og barnabörn hans nutu góðs af. Elín og Björn áttu lengi hjól- hýsi sem að vori var gert ferða- fært og síðan var haldið þangað á land sem sólin skein og hitagráður bærilegar. Við Arndís fengum stundum hjólhýsið að láni og skil- uðum því oftar en ekki illa förnu og jafnvel skemmdu. Aldrei heyrðum við styggðaryrði frá Birni fyrir þetta frekar en annað. Helsta áhugamál Björns voru flugmál. Það er minnisstætt hversu glaður Björn var þegar hann hætti að vinna við trygging- armál er hann hafði aldur til. Ástæðan kom fljótt í ljós, þá gat hann varið meiri tíma í að fljúga og gera upp gamlar flugvélar í samvinnu við vini sína. Sennilega hefur Björn aldrei unnið meira en eftir að hann náði þeim áfanga að fara á eftirlaun. Ekki leið sá dagur að hann færi ekki út á flugvöll meðan heilsan leyfði. Skemmti- legustu stundirnar voru að fljúga í góðu veðri hvert á land sem var oft með börn og barnabörn sem minnast þessara stunda með mik- illi gleði. Björn var með eindæm- um bóngóður maður. Bilaði eitt- hvað á heimili okkar Arndísar var Björn boðinn og búinn að koma og laga það sem aflaga fór og ekki síður var brugðist skjótt og vel við ef barnabörnin vanhagaði um eitt- hvað, afi B var mættur á svæðið boðinn og búinn að aðstoða. Við munum sakna afa B. Sigurður Einarsson. Elsku afi okkar var ljúfasti og prúðasti maður sem við höfum kynnst. Við minnumst yndislegr- ar og þægilegrar nærveru hans. Heimsóknir okkar til afa og ömmu í Bjarmalandi sem lítil börn voru svo skemmtilegar. Afi var alltaf til í að fara í leik. Feluleikur var vinsæll og var afi ávallt vel undirbúinn. Leikurinn byrjaði á því að hann breiddi stórt teppi yfir borðstofuborðið og fór svo að telja hægt upp á tíu. Svo leitaði hann og leitaði. Hann fann okkur oftast undir borðstofuborðinu og var alltaf jafn hissa. Ferðir okkar systkina með afa út á róluvöll voru líka margar, bæði meðan afi og amma bjuggu í Bjarmalandi og eftir að þau fluttu á Kirkjusand. Það var alltaf svo notalegt og rólegt að vera með afa. Hann kenndi okkur að leggja kapal og njóta þess að spila saman. Hann fylgdist vel með öllum skipum sem komu í Reykjavíkurhöfn, enda var útsýnið yfir sjóinn frá glugganum á Kirkjusandi yndis- legt. Þar sátum við oft með kíki og biðum eftir skipunum sem áttu eftir að koma þann daginn sam- kvæmt dagskrá Morgunblaðsins. Einn af síðustu bíltúrunum sem Bjössarnir fóru í saman var niður á höfn til að fylgjast með ein- hverju merkilegu skipi sem var að koma frá Danmörku. Þar sátu þeir í algjörri þögn og ekki í fyrsta skipti. Bjössarnir voru nefnilega góðir vinir og sá eldri verndaði þann yngri vel og mikið. Hann sat oft í fangi afa síns á yngri árum á gamlárskvöld þegar flugeldalætin hræddu hann. Líka þegar sá yngri var eitthvað að pirra for- eldra sína og var sendur inn í her- bergi kom afi alltaf til að gleðja hann með sænsku Maribou- súkkulaði sem hann var alltaf með í úlpuvasanum. Afi leyfði okkur ýmislegt sem gladdi lítil börn óendanlega. Hann var alltaf til í að leyfa okkur að sitja í fangi sér og stýra bílnum hans úti við flugskýli á meðan hann stýrði „pedölunum“. Seinna, þegar afi fór með okkur í veiðiferð í Straumfjarðará, fengum við systkinin að keyra bílinn hans eins og við vildum. Okkur fannst þetta svo gaman og hann hló endalaust að spennu okkar úr framsætinu. Okkur fannst afi vera hetja. Hann gat lagað allt og gerði það oft án þess að vera beðinn um það. Eitt sumarið þurfti Tóta nauðsyn- lega að komast til Reykjavíkur. Þá var það auðsótt mál að sækja hana á litlu flugvélinni í Fljóts- hlíðina. Í staðinn fyrir að halda beint til Reykjavíkur var farið í skemmtilega flugferð yfir vatn og fjöll sem gleymist seint. Við kveðjum afa B með miklum söknuði. Þórunn og Björn. Elsku besti afi, nú hefur þú kvatt okkur í hinsta sinn. Þó þú hafir að mörgu leyti verið hvíldinni feginn þá er samt erfitt að kveðja einhvern sem hefur ver- ið stór hluti af lífi manns alla ævi. Ég fékk að vera hjá þér þegar þú lést og er þakklát fyrir það. Það voru forréttindi að fá að alast upp með afa sinn og ömmu í næsta nágrenni. Hugurinn dregur mig í Bjarmalandið þar sem ég á marg- ar góðar minningar. Þú tókst allt- af á móti okkur syskininum með opinn faðminn og risastórt bros. Alltaf varst þú til í að dekra við okkur og lést allt eftir okkur. Ég hafði reyndar nokkrar áhyggjur af þessu dekri og ræddi það við ömmu að þú kynnir hreinlega ekki að segja nei. Þú byggðir hús fyrir okkur úr teppum og stólum í borðstofunni, leyfðir okkur að opna pakka fyrir mat á jólunum og varst alltaf til í eitthvert sprell. Það var alltaf stutt í húmorinn, meira að segja undir það síðasta skein hann í gegn. Þitt helsta áhugamál var flug og fékk ég að fara í ófáar flug- ferðir með þér, mikið var það gaman. Ekki var verra að geta montað sig af því að afi manns ætti bæði flugvélar og flugskýli. Það var alltaf gaman að kíkja út á völl og fylgjast með þér og Nanna dunda ykkur við að gera upp flug- vélar. Þú varst ansi fjölhæfur og flinkur. Það var alltaf gott að vera í kringum þig, brosið, hlýjan og góðmennskan ómetanleg. Mikið þótti mér vænt um að sjá hvað þú ljómaðir alltaf þegar þú hittir Eik Maríu og Hörpu. Það sem við vor- um heppnar að eiga þig að. Betri afa og langafa var ekki hægt að hugsa sér. Mikið eigum við eftir að sakna þín, elsku afi minn. Takk fyrir allt. Elín Auður Traustadóttir. Björn Jensson var stór hluti af æsku minni og uppeldi. Þeir bræður Bjarni faðir minn og Björn höfðu búið fjölskyldum sín- um heimili hvor í sinni íbúðinni í Mávahlíð 38 ásamt móður þeirra bræðra, Guðrúnu Helgadóttur ömmu minni. Við vorum ellefu sem bjuggum þarna saman og að mörgu leyti var þetta eitt stórt heimili. Í svona umhverfi myndast traust bönd sem ekki rofna. Það fundum við systkinin þegar faðir okkar féll frá og Björn var þá sú fyrirmynd og leiðbeinandi sem börn og óharðnaðir unglingar þurftu á að halda. Sú saga verður ekki rakin hér að öðru leyti en að geta þess að forsjá og umhyggja Björns í okkar garð var einstök. Það duldist engum sem kynnt- ist Birni Jenssyni að þar fór sann- ur heiðursmaður. Björn var sam- ur og jafn hvar sem hann fór, var einstaklega góður og dagfars- prúður maður. Það fór ekki alltaf mikið fyrir honum og hann hafði litla þörf fyrir að láta á sér bera. Í hópi fólks hélt hann sér frekar til hlés og leyfði öðrum að njóta sviðsljóssins. Kærust er minning- in um Björn í hópi fjölskyldunnar þar sem hann naut sín jafnan vel. Við systkinin og móðir okkar sendum Elínu og börnum hennar og Björns, þeim Guðrúnu, Arndísi og Jens Gunnari, og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúð- arkveðjur með þakklæti fyrir allt það sem við eigum Birni og hans góðu fjölskyldu að þakka. Minningin lifir um einstakan mannkostamann. Jens Bjarnason. Þá er hann Bjössi „frændi“ far- inn heim í Bjarmalandið sem við köllum Sumarlandið, væntanlega ferðafús eftir veikindi undanfar- inna ára. Bjössi var ekki frændi okkar barna Hermanns og Elín- borgar en var þó aldrei nefndur annað en Bjössi frændi nema þeg- ar hann var nefndur í sömu andrá og Elín systir mömmu sem er náttúrlega frænka okkar og var lífsförunautur hans, en ávallt var talað um Ellu og Bjössa nema þegar Bjössi frændi var nefndur sérstaklega. Við strákarnir höfð- um þó nokkrar ástæður til að ræða Bjössa sérstaklega, þar sem okkur þótti hann taka mönnum fram í nokkru sem við þekktum ekki hjá öðrum. Þegar við komum í Bjarmalandið til Ellu og Bjössa var það sem vakti mestan áhuga okkar strákanna að fá að skoða í bílskúrinn hans Bjössa. Hann var nefnilega óvenjulegur að því leyti að þar var sjaldan bíll inni því þar var Bjössi að föndra við flugvélar, nokkuð sem maður sá ekki annars staðar. Einnig var það þannig að í Arnarbæli var ekki bara reynt að þekkja bíla í langri fjarlægð sem óku veginn heim, þar var líka allt- af litið til lofts ef heyrðist í flugvél. Við strákarnir ræddum það okkar á milli hvort þetta væri mögulega Bjössi frændi, sem oft átti það til að vinka okkur með vængjunum þegar hann flaug þar yfir. Það var Björn Jensson ✝ Gyða Örnólfs-dóttir fæddist á Norðfirði 3. febrúar 1926. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 20. ágúst 2019. Foreldrar henn- ar voru Örnólfur Sveinsson bátasmið- ur, f. í Viðfirði 27. maí 1895, d. 1978, og Guðrún Anna Björnsdóttir, f. á Vaði í Skriðdal 6. ágúst 1896, d. 1962. Systkini Gyðu voru Ingibjörg, f. 1918, d. 2005, Ólöf, f. 1919, d. 2007, Hjalti, f. 1922, d. 2007, Snorri, f. 1924, d. 1925, Björg, f. 1928, d. 1980, og Sigrún, f. 1930, d. 2010. Gyða giftist 9. ágúst 1952 Reinhold Hans Edmund Greve Johannessyni rennismið, f. 10. september 1926 í Lübeck í Þýskalandi. Foreldrar hans voru Johannes Greve frá Lübeck, f. 1894, d. 1960, og Elisabet Eulart Greve frá Klein Sarau, f. 1898, d. 1968. Börn Gyðu og Reinholds eru synirnir fimm: 1) Örn Jóhann- esson, f. 10. apríl 1952, maki Hrafnhildur Gunnarsdóttir, f. 26. nóvember 1955, d. 28. desember 2010. Börn Hrafnhildar eru Anna Gréta Hrafnsdóttir, f. 19. júlí 1976, maki Álfgeir Logi Kristjánsson, f. 20. februar 1975, börn þeirra eru Hugi Freyr, Nói Steinn og Ýmir Hrafn. Gunnar Haukur Hrafnsson, f. 25. nóv- ember 1980, fyrri sambýliskona Lilja Ósk Björnsdóttir, börn þeirra eru Hrefna Rós og Björn Jaki. Örn og Hrafnhildur eign- uðust saman Hildi Ýri, f. 5. jan- úar 1988, sambýlis- maður er Daníel Ingi Óttarsson, barn þeirra er Krummi. Fyrir átti Örn Mar- gréti Örnu, f. 19. október 1976, maki Svavar Þór Guð- mundsson, f. 27. nóvember 1977, börn þeirra eru Nína Rakel og Guð- mundur Þór. Sam- býliskona Arnar er Dagbjört Ólafsdóttir, f. 12. september 1958. 2) Jóhannes Jóhannesson, f. 11. ágúst 1955, maki Gitte Jep- sen, f. 27. júlí 1959, börn þeirra eru Kristjan Sundgaard Johann- esson, f. 30. desember 1986, og Magnus Sundgaard Johann- esson, f. 11. águst 1992. 3) Reynir Jóhannesson, f. 17. nóvember 1957, maki Patricia Johann- esson, f. 14. janúar 1961, börn þeirra eru Christopher Johann- esson, f. 30. maí 1998, og Alex- ander Johannesson, f. 29. októ- ber 2001. 4) Róbert Jóhannesson, f. 18. júlí 1961, maki Malene Wichmann Larsen, f. 22. april 1958, börn þeirra eru Helga Wichmann Jóhannesson, f. 23. júní 1987, sambýlismaður Mathi- as Nørgård, og Anna Wichmann Jóhannesson, f. 16. maí 1991. 5) Viðar Jóhannesson, f. 21. júní 1966, maki Anna Kristín Sigurð- ardóttir, f. 10. janúar 1968, börn þeirra eru Aron Þór Greve Við- arsson, f. 5. nóvember 1995, og Patrik Hans Greve Viðarsson, f. 17. júní 2003. Útför Gyðu fer fram frá Ár- bæjarkirkju í dag, 16. september 2019, klukkan 13. Gyða ólst upp á Norðfirði fram til 19 ára aldurs og flutti þaðan til að stunda nám í Húsmæðraskólan- um á Ísafirði. Þaðan fór hún til Reykjavíkur þar sem hún vann fyrir sér hjá Mjólkursamsölunni sín fyrstu ár í Reykjavík. Þáttaskil urðu í lífi hennar þeg- ar hún á tuttugasta og fjórða ári kynntist eiginmanni sínum, Rein- hold Greve. Þau giftu sig 9. ágúst 1952, og náðu þau 67 ára hjóna- bandi. Eftir 12 ára hjónaband byggðu þau húsið í Þykkvabæ 3 í Árbæ. Húsið og umhverfið hefur skapað ramma og grundvöll fyrir fjölskylduna og sérstaklega fyrir okkur fimm drengina í gegnum öll okkar uppvaxtarár. Móðir okkar náði háum aldri en síðustu ár hafa verið henni erfið og hefur það verið okkur þungbært að horfa upp á hana missa heilsuna hægt og rólega. Það er þó með vissum létti að við kveðjum elsku móður okkar. Þótt það sé sárt að geta ekki heimsótt hana og haft hana hjá okkur er um leið gott að hugsa til þess að nú hvílist hún og þjáist ekki lengur. Það eru margar minningar sem koma upp þegar maður hugsar til baka og engin leið til að setja allt saman í stutta minningargrein. Hún var stoð og stytta okkar bræðranna og ávallt til staðar fyrir okkur og hjálpaði eftir fremsta megni. Hún var mikil félagshyggjukona og þeim sem minnst máttu sín vildi hún alltaf hjálpa. Það kom líka ber- lega í ljós í okkar uppeldi þar sem hún ávallt passaði upp á að okkur liði vel, eða fengjum að borða það sem hverjum og einum líkaði. Hún var mjög félagslynd og at- hafnasöm, söngelsk og naut þess að syngja í kór. Þrátt fyrir annríki á heimilinu með mörg börn fann hún ávallt tíma til að stunda sitt áhugamál sem var söngurinn. Hún söng meðal annars í Fílharm- óníukórnum og kirkjukór Árbæj- ar og stundum var hún í fleiri en einum kór samtímis. Fólk vissi ávallt hvar það hafði móður okkar en hún var bein- skeytt, en ávallt hreinskilin, en samt hlý og traust. Við minnumst líka sauma- klúbbs með skólasystrum hennar á Ísafirði í gegnum öll okkar upp- vaxtarár. Oft voru haldnir sauma- klúbbar eða aðrar samkomur með vinum og ættingjum úr Norðfirði á heimili okkar í Árbæ. Hennar stærsta afrek fannst henni að koma okkur bræðrunum á legg og fannst henni hún vera rík að eignast svo stóra fjölskyldu með okkur fimm bræðrunum og barnabörnum, og hafði hún mikla ánægju af að hafa fjölskylduna í kringum sig. Stór hluti okkar bræðra er bú- settur erlendis, beggja vegna Atl- antshafsins, og á yngri árum sín- um ferðuðust þau hjónin bæði til Bandaríkjanna og Danmerkur til að geta eytt tíma með okkur og þá ekki síst barnabörnunum. Síðasta ferðin erlendis var fyrir um 15 ár- um, þar sem þeim fannst þau ekki lengur hafa krafta til utanlands- ferða. Þetta eru stór tímamót fyrir okkur bræðurna og er efst í huga okkar allt sem þú hefur gert fyrir okkur, stutt okkur til náms og hvatt okkur áfram til að fylgja okkar draumum. Við munum halda minningum um þig á lífi í samtölum okkar á milli og með börnum okkur um ömmu sem elskaði þau. Viðar Greve Jóhannesson Róbert Jóhannesson Reynir Jóhannesson Jóhannes Jóhannesson Örn Jóhannesson. Gyða Örnólfsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.