Morgunblaðið - 16.09.2019, Page 12

Morgunblaðið - 16.09.2019, Page 12
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Að sögn Jóhönnu Vigdísar Guð- mundsdóttur er það ekki síst undir atvinnulífinu komið að halda íslensk- unni á lofti á stafrænni öld. Gæta þurfi að því, á tímum snjalltækja, talgreiningar og gervigreindar, að þau forrit og tæki sem fólk notar í sínu daglega lífi tali og skilji ís- lensku. Góðu fréttirnar eru þær að fyrir- tæki og frum- kvöðlar þurfa ekki að þróa ís- lenska máltækni frá grunni, held- ur munu þau geta nýtt þá innviði sem verða smíðaðir á vegum sjálfs- eignarstofnunarinnar Almanna- róms. „Í stjórnarsáttmála rík- isstjórnarinnar er kveðið á um að ríkið fjármagni opnar lausnir á sviði máltækni, og geri öllum aðgengileg- ar. Má líkja þessu við grunninnviði eins og vegakerfið, þar sem ríkið leggur vegina en síðan er það at- vinnulífsins að búa til bílana; nýjar lausnir og tækni sem nýtist almenn- ingi,“ segir hún. Munu þróa kjarnalausnir Jóhanna Vigdís er fram- kvæmdastjóri Almannaróms – mið- stöðvar um máltækni. Fyrr í mán- uðinum var gengið frá samningi milli Almannaróms og SÍM – Sam- starfs um íslenska máltækni, um smíði innviða í máltækni fyrir ís- lensku. Að SÍM og Almannarómi standa háskóla- og rannsóknarstofn- anir, félagasamtök og fyrirtæki en fyrir ári samdi menntamálaráðu- neytið við Almannaróm um að stýra verkáætluninni Máltækni fyrir ís- lensku 2018-2022. Er áætlað að hið opinbera láti 1,8 milljarða króna af hendi rakna til verkefnisins á móti hálfs milljarðs króna framlagi at- vinnulífsins. Að sögn Jóhönnu Vigdísar fóru fræðimenn og áhugafólk fyrst að vara við því undir lok síðustu aldar að brýnt væri að smíða mál- tæknilausnir fyrir íslensku, ef tungumálið ætti að geta lifað af í stafrænum heimi. „Á sínum tíma lét Evrópusambandið gera ítarlega skýrslu um það hvernig hin ýmsu tungumál væru búin undir þær tæknibreytingar sem eru að eiga sér stað og þar kom íslenskan mjög illa út. Árið 2017 leit síðan dagsins ljós verkáætlun sem Jón Guðnason, Anna Björk Nikulásdóttir og Stein- þór Steingrímsson tóku saman þar sem staða íslenskrar máltækni var skoðuð og gerð fimm ára áætlun um þróun kjarnalausna í máltækni: tal- greinis, talgervils, þýðingarvélar og málrýnis. Grunnurinn að þessum kjarnalausnum er ýmis stoðtól og gögn um tungumálið, svo sem risa- málheild og beygingarlýsing íslensks nútímamáls, svo eitthvað sé nefnt.“ Jóhanna Vigdís bendir á að mál- tæknistarfið megi ekki vera ein- göngu fræðilegt. „Fjöldi erlendra sérfræðinga á sviði máltækni hefur brýnt fyrir okkur, byggt á eigin reynslu, að það sé lítill ávinningur af því ef máltæknin einskorðast við há- skóla- og rannsóknarstofnanir. Hún má ekki lokast þar inni heldur þarf að byggja brú til atvinnulífsins sem hagnýtir grunnrannsóknir, þekkingu og tæknina sem kemur úr fræða- samfélaginu. Ég hef því lagt mikla áherslu á að atvinnulífið komi eins mikið og hægt er að rannsóknum og grunnþróun máltæknilausna og það endurspeglast í rannsóknarhópnum sem stendur að SÍM.“ Aðspurð hvers vegna ekki sé hægt að láta hinn frjálsa markað alfarið um það að leysa úr þessu verkefni segir Jóhanna Vigdís að aðkoma hins opinbera geti liðkað fyrir og flýtt þróuninni, enda verði sú tækni sem sprettur upp úr máltækniverkefninu opin og öllum aðgengileg. Hver sem er geti þróað alls kyns hugbúnað og lausnir ofan á þessa tækni án þess að þurfa fyrst að kaupa leyfi eða greiða þóknanir til þriðja aðila. „Það kostar hins vegar jafnmikið að þróa mál- tæknilausnir fyrir tungumál sem 350 þúsund manns tala og mál sem 350 milljónir tala. Sú staðreynd að þessir grunninnviðir þurfa að verða öllum opnir án endurgjalds, gerir það að verkum að það væru líklega ekki tal- in góð viðskipti á hinum frjálsa markaði, að fjárfesta svo mikið í grunnrannsóknum og þróun sem ekki er hægt að hagnýta strax. Samningur Almannaróms og SÍM er hins vegar gott dæmi um það hvern- ig opinberir aðilar og einkaaðilar geta unnið saman, öllum til hags- bóta. Þau fyrirtæki sem koma að þróun á fyrstu stigum munu byggja upp þekkingu í máltækni og þar með samkeppnisforskot.“ Opnar alls kyns möguleika Með aðgangi að réttu tæknilegu innviðunum opnast ótal möguleikar fyrir íslensk fyrirtæki. Jóhanna Vigdís segir greinilegt að þróunin sé í þá átt að fólk geti gefið for- ritum raddskipanir og þannig muni bráðum þykja sjálfsagt að tala við bankaforritið í símanum eða biðja snjallforrit pitsustaðar, á góðri ís- lensku, um að senda flatböku í snarhasti. Tæknin muni líka bæta aðgengi Íslendinga að alls kyns efni, og nefnir Jóhanna sem dæmi að einn góðan veðurdag verði hægt að þýða efni á vefsíðum eins og YouTube jafnóðum af erlendum tungumálum yfir á íslensku. Um leið ættu góðir máltækni-innviðir að þýða að auðvelt verður að gera alls kyns íslenskt efni aðgengilegt fyrir erlenda áhorfendur, hlust- endur og lesendur, og sér Jóhanna Vigdís fyrir sér að máltæknin geti t.d. opnað íslenskan atvinnumarkað betur fyrir erlendum sérfræðingum og auðveldað útlendingum að læra málið. „Við erum að koma seint til leiks á þessu máltækniferðalagi, en erum heppin með tímasetninguna enda tæknin orðin þannig í dag að við getum látið hana vinna fyrir okkur og vonandi unnið hratt upp þann tíma sem hefur glatast,“ segir hún. „Umfram allt þurfa fyrirtæki að hafa hugfast að fólk vill geta fengið þjónustu á sínu móðurmáli, og gild- ir þá einu hvort það felst í því að tala íslensku við alls kyns vefsíður sem veita þjónustu, eða gefa snjall- tækjunum á heimilinu fyrirmæli á íslensku frekar en ensku.“ Skaffa atvinnulífinu dýrmæt verkfæri  Almannarómur og SÍM munu snúa bökum saman við þróun og smíði innviða í máltækni fyrir íslensku  Fyrirtæki munu geta nýtt tæknina til að smíða forrit og tæki sem tala og skilja íslensku AFP Framtíðin Það þykir æ sjálfsagðara að geta gefið tækjum fyrirmæli á töl- uðu máli og brýnt að síminn, úrið, snjallhátalarinn og bíllinn skilji íslensku.Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta Fjármálaráðherrar Þýskalands og Frakklands telja rafmyntina líbru geta ógnað fjármálastöðugleika. Bruno Le Maire, og Olaf Scholz sendu frá sér sameiginlega yfirlýs- ingu á föstudag, í lok fundar fjár- málaráðherra evruríkjanna í Hels- inki, þar sem þeir sögðu að hinum almenna neytanda og jafnvel pen- ingavaldi stjórnvalda stafaði hætta af rafmyntum. „Að mati Frakklands og Þýskalands hefur ekki verið sýnt fram á það með sannfærandi hætti að líbru-verkefnið, eins og Facebook hefur lýst því, leysi með viðunandi hætti úr þessum ágöllum,“ sagði í yf- irlýsingunni. Að sögn Reuters var samhljómur um það í Helsinki að evruríkin muni ekki veita líbrunni neinar tilslakanir ef fyrirtækin að baki rafmyntinni sækjast eftir því að fá að nota gjald- miðilinn í Evrópu. Þá ræddu fundar- gestir þá hugmynd að koma á sam- fulltrúum 26 seðlabanka, og verður fundarstjórn í höndum Benoît Cœuré sem situr í stjórn Seðlabanka Evrópu. Er þetta fyrsti fundurinn af þessari stærðargráðu sem stofn- endur líbrunnar eiga með stjórn- völdum frá því verkefnið var fyrst kynnt til sögunnar í sumarbyrjun. FT greinir frá að fundargestir muni nota tækifærið til að fá á hreint ýmis lykilatriði er varða um- fang og eiginleika líbrunnar og nýta niðurstöður fundarins í skýrslu sem lögð verður fyrir G7-hópinn í haust. ai@mbl.is  Halda mikilvægan fund í Basel í dag Bruno Le Maire Olaf Scholz Hafa efasemdir um ágæti líbrunnar eiginlegri löggjöf um stafræna gjaldmiðla. Stjórnendur líbru-verkefnisins munu í dag funda í Basel í Sviss með 16. september 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.15 124.75 124.45 Sterlingspund 154.7 155.46 155.08 Kanadadalur 93.82 94.36 94.09 Dönsk króna 18.439 18.547 18.493 Norsk króna 13.854 13.936 13.895 Sænsk króna 12.932 13.008 12.97 Svissn. franki 125.82 126.52 126.17 Japanskt jen 1.1488 1.1556 1.1522 SDR 170.31 171.33 170.82 Evra 137.71 138.49 138.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.812 Hrávöruverð Gull 1506.3 ($/únsa) Ál 1773.0 ($/tonn) LME Hráolía 60.45 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.