Morgunblaðið - 16.09.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
INTERFLON
Matvælavottaðar efnavörur
Nýjar umbúðir,
sömu gæða efnin
KAPLAKRIKI/AKUREYRI
Guðmundur Hilmarsson
Einar Sigtryggsson
„Við vorum staðráðnir í taka frum-
kvæðið í sókn og vörn í byrjun leiks
og við gerðum það heldur betur.
Fyrri hálfleikurinn var virkilega góð-
ur af okkar hálfu en við hleyptum
Valsmönnum inn í leikinn í byrjun
seinni hálfleiks. Við héldum samt ró
okkar og náðum vopnum okkar á nýj-
an leik. Við vorum drullufúlir með
frammistöðu okkar í leiknum á móti
Selfyssingum þar sem varnarleik-
urinn var úti á þekju en í kvöld var
hann frábær og Phil sýndi hversu öfl-
ugur markvörður hann er,“ sagði
FH-ingurinn Einar Rafn Eiðsson við
Morgunblaðið eftir sigurinn gegn Val
26:23 í viðureign liðanna í Olís-deild
karla í handknattleik í Kaplakrika í
gær.
Það sáust ótrúlegar tölur í fyrri
hálfleik en FH-ingar léku stórkost-
lega fyrstu 20 mínútur leiksins og
náðu mest níu marka forskoti 12:3
þar sem þýski markvörðurinn Phil
Döhler fór á kostum og varði 14 skot í
fyrri hálfleiknum.Valsmenn sýndu
batamerki undir lok fyrri hálfleiks og
þeir áttu gott áhlaup í byrjun seinni
hálfleiks þar sem þeir minnkuðu
muninn niður í eitt mark. FH-ingar
eiga Ásbjörn Friðriksson og þegar
mest á reyndi tók hann af skarið og
með hann í broddi fylkingar sigldu
FH-ingar framúr á síðasta stund-
arfjórðungi leiksins og innbyrtu
sanngjarnan sigur.
Varnarleikur FH var virkilega
góður og Döhler sýndi frábær tilþrif
á milli stanganna. Ásbjörn Frið-
riksson (9 mörk) reyndist sínum
mönnum mikilvægur þegar mest á
reyndi og hann og Arnar Freyr Ár-
sælsson (6 mörk) voru bestu úti-
leikmenn FH-liðsins. Anton Rún-
arsson (7 mörk) lék best Valsmanna
en vörn og markvarsla var í molum í
fyrri hálfleik og sóknarleikurinn er
eitthvað sem Valsmenn þurfa að
vinna bót á.
Haukar unnu góðan sigur á KA í
gær á Akureyri. Leikurinn var
sveiflukenndur en Haukarnir áttu
betri lokakafla og þeir unnu nokkuð
örugglega 26:23. Það má segja að
leikurinn hafi verið eign Haukanna í
byrjun. KA kom svo til baka og var
jafnt, 11:11 í hálfleik.
KA hafði byr í seglin fram í miðjan
seinni hálfleik og leiddi leikinn 19:17.
Haukar leituðu þá til Vignis Svav-
arssonar sem skoraði mörk af línunni
og fiskaði víti og brottrekstra. Vörn
Hauka fór síðan í gang og lokaði al-
gjörlega á ráðvillta KA-menn. Hauk-
ar sigu fram úr og voru aldrei í vand-
ræðum á lokakaflanum.
Haukar eru með fullt hús eftir
fyrstu tvo leikina en KA-menn er enn
stigalausir. Bestur hjá KA í var
markvörðurinn Jovan Kukobat en
Daði Jónsson var einnig góður í vörn-
inni. Áki Egilsnes var öflugastur í
sóknum KA en hann skoraði 5 mörk.
Stórskyttan Tarik Kasumovic skor-
aði ekki mark úr ótal skotum sínum.
Haukarnir áttu nokkra mikilvæga
menn sem hver átti sinn þátt í sigr-
inum. Grétar Ari Guðjónsson varði
lengstum vel í leiknum og svo komu
Vignir Svavarsson og Atli Már Báru-
son sterkir inn í seinni hálfleiknum.
Atli Már var skelfilegur í fyrri hálf-
leiknum en eftir góða hvíld á bekkn-
um kom hann til að draga vagninn á
lokakaflanum. Hann endaði marka-
hæstur Haukanna ásamt Vigni en
þeir skoruðu 5 mörk hvor.
ÍBV sigraði Fram í Safamýri,
27:23, eftir að hafa verið yfir í hálf-
leik, 16:14. Kristján Örn Kristjánsson
skoraði 7 mörk fyrir ÍBV og Gabríel
Martínez Róbertsson 6. Hjá Fram
var Matthías Daðason með 7 mörk.
Fjölnir vann HK 27:25 í nýliðas-
lag í Kórnum í Kópavogi en Fjölnir
var yfir í hálfleik, 15:14. Breki Dags-
son skoraði 7 mörk fyrir Fjölni,
Brynjar Loftsson 6 og Hafsteinn Óli
Rocha 6 en Þorgeir Bjarki Davíðsson
skoraði 6 mörk fyrir HK.
Afturelding vann öruggan sigur
á Stjörnunni í Garðabæ, 30:22, og er
með fjögur stig eftir tvo leiki. Guð-
mundur Árni Ólafsson skoraði 10
mörk fyrir Aftureldingu, Gestur
Ólafur Ingvarsson og Sveinn Jose Ri-
vera 6 hvor. Hjá Stjörnunni var
Gunnar Valur Johnsen með 7 stig og
Leó Snær Pétursson 6.
Þjóðverjinn fór á kostum
Phil Döhler lagði grunn að sigri FH-inga á Valsmönnum með magnaðri mark-
vörslu í fyrri hálfleik Haukar knúðu fram sigur á lokakaflanum í KA-heimilinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kaplakriki FH-ingurinn Bjarni Ófeigur Valdimarsson reynir skot að marki Valsmanna í leik liðanna í gær.
Valskonur hófu titilvörnina á Ís-
landsmóti kvenna í handknattleik í
gær með mjög öruggum sigri á HK,
31:23, á nýjum heimavelli Kópa-
vogsliðsins í Kórnum í Kópavogi.
Staðan í hálfleik var 17:9, Vals-
konum í hag.
Lovísa Thompson átti stórleik
með Val og skoraði 11 mörk, Díana
Dögg Magnúsdóttir skoraði 6 og
Ásdís Þóra Ágústsdóttir gerði 5.
Hjá HK var Valgerður Ýr Þor-
steinsdóttir langmarkahæst með 8
mörk.
Stjarnan vann góðan útisigur á
Haukum, 25:22, í fyrsta leik tíma-
bilsins á laugardaginn. Haukar
voru yfir í hálfleik, 12:11.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir skor-
aði 8 mörk fyrir Stjörnuna, Þór-
hildur Gunnarsdóttir 5 og Bryn-
hildur Kjartansdóttir 5. Hjá
Haukum var Karen Helga Díönu-
dóttir með 8 mörk og Berta Rut
Harðardóttir með 5.
ÍBV vann nauman sigur á ný-
liðum Aftureldingar í Eyjum, 15:13,
eftir að hafa verið undir, 6:8, í hálf-
leik. Ásta Björt Júlíusdóttir skoraði
3 mörk fyrir ÍBV og þær Roberta
Ivanauskaite, Silja Ísberg og Krist-
ín Arndís Ólafsdóttir gerðu 3 mörk
hver fyrir Aftureldingu.
Á Akureyri vann Fram örugg-
an sigur á KA/Þór, 38:29, og var yf-
ir í hálfleik, 18:12. Ragnheiður Júl-
íusdóttir skoraði 10 mörk fyrir
Fram, Þórey Rósa Stefánsdóttir 8
og Steinunn Björnsdóttir 7. Hjá
KA/Þór var Martha Hermannsdótt-
ir með 8 mörk og Hulda Bryndís
Tryggvadóttir skoraði 5.
Valur og Fram með
þægilega útisigra
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri Perla Ruth Albertsdóttir
skorar fyrir Fram gegn KA/Þór.
HANDBOLTI
Olísdeild karla
Fram – ÍBV........................................... 23:27
HK – Fjölnir ......................................... 25:27
FH – Valur ............................................ 26:23
Stjarnan – Afturelding......................... 22:30
KA – Haukar......................................... 23:26
Olísdeild kvenna
Haukar – Stjarnan ............................... 22:25
ÍBV – Afturelding ................................ 15:13
KA/Þór – Fram..................................... 29:38
HK – Valur............................................ 23:31
Meistaradeild karla
Pick Szeged – Barcelona.................... 31:28
Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir
Barcelona.
Elverum – Aalborg.............................. 24:34
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 5
mörk fyrir Elverum en Janus Daði Smára-
son eitt fyrir Aalborg.
Kristianstad – GOG............................. 24:33
Teitur Örn Einarsson skoraði 6 mörk
fyrir Kristianstad.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 2 mörk
fyrir GOG.
Þýskaland
Hannover-Burgdorf – Bergischer .... 30:25
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk
fyrir Bergischer og Ragnar Jóhannsson 2.
Füchse Berlín – Stuttgart .................. 36:27
Elvar Ásgeirsson skoraði 5 mörk fyrir
Stuttgart.
Leipzig – Göppingen........................... 26:25
Viggó Kristjánsson skoraði eitt mark
fyrir Leipzig.
Neckarsulmer – Mainz........................ 30:21
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 6
mörk fyrir Neckarsulmer.
Danmörk
Holstebro – Skjern .............................. 22:22
Elvar Örn Jónsson skoraði 4 mörk fyrir
Skjern.
Fredericia – Ribe-Esbjerg ................. 29:29
Rúnar Kárason skoraði 2 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Daníel Þór Ingason 1 og
Gunnar Steinn Jónsson 1.
Esbjerg – Aarhus United.................... 29:22
Rut Jónsdóttir skoraði 3 mörk fyrir Esb-
jerg.
Frakkland
Bourg-de-Péage Chambray............... 27:26
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor-
aði 4 mörk fyrir Bourg-de-Péage.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Norðurálsvöllur: ÍA – Grindavík ............. 17
Kópavogsv.: Breiðablik – Stjarnan..... 19.15
Origo-völlurinn: Valur – KR................ 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hleðsluhöllin: Selfoss – ÍR .................. 19.30
Í KVÖLD!