Morgunblaðið - 28.09.2019, Side 1

Morgunblaðið - 28.09.2019, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 8. S E P T E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  228. tölublað  107. árgangur  SIGRÍÐUR HEFUR RANNSAKAÐ ÓMAGA HEIÐURSGESTUR Á RIFF END OF SENTENCE 53DAGLEGT LÍF 12 Hjörtur Guðmundsson Sigurður Bogi Sævarsson „Hvað lífskjarasamninginn varðar þá vinnur þetta algerlega gegn markmiðum hans. Það liggur í hlut- arins eðli þar sem samningurinn fól í sér að lækka kostnaðinn við það að lifa, þar með talið með tilliti til skatt- byrði,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, um hugmyndir um veggjöld í samkomulagi ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu samgangna. ur en það. Fólk hefur til dæmis verið að flytja á Suðurnesin, Suðurlandið, Akranes. Fólk hefur verið að flýja alltaf lengra og lengra út fyrir stór- höfuðborgarsvæðið til þess að kom- ast í hagkvæmara húsnæði og þar af leiðandi taka á sig þann aukakostnað sem felst í því að keyra á milli. Aukin veggjöld munu klárlega stríða gegn öllum þeim markmiðum sem við höf- um verið að setja okkur varðandi lífskjarabætur, ekki aðeins fyrir lægri tekjuhópana heldur alla tekju- hópa,“ segir hann. „Almennt erum við í Samtökum atvinnulífsins hlynnt veggjöldum, en almennt snýst málið um að áhersl- urnar séu réttar og þá skiptir rétt út- færsla mála öllu,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri SA. „Ísland er þegar háskattaríki í alþjóðlegum saman- burði og því þarf við innleiðingu veggjalda að gæta þess að þau auki ekki álögur á fólk og fyrirtæki um- fram það sem nú er,“ segir Halldór. Ítarlegra viðtal við Ragnar Þór er að finna á mbl.is. »10 og 24 „Ég trúi því að stjórnvöld átti sig á því í hvaða vegferð þau eru að fara ætli þau sér að ógna þeirri miklu og góðu vinnu sem við náðum síðasta vor með gerð þriggja og hálfs árs samnings,“ segir hann. Ragnar bendir á að viðbúið sé að veggjöldin lendi ekki hvað síst á lág- tekjufólki sem sest hafi að í úthverf- um til þess að komast í ódýrara hús- næði. „Þetta liggur í hlutarins eðli. Sérstaklega í ljósi þess að lágtekju- fólk hefur verið að koma sér fyrir í úthverfum borgarinnar og gott bet- Lífskjarasamningnum ógnað  Ragnar Þór varar við veggjöldum  Álögur aukist ekki, segir Halldór Benjamín Fjölmenni var á Austurvelli í Reykjavík í gær á síðasta degi allsherjarverk- falls þar sem vakin var athygli á loftslagsvánni og krafist var varnaraðgerða stjórnvalda. Í tilefni af Alþjóðlegu loftslagsvikunni hafa verið haldnar sam- komur og baráttufundir vegna þessara mála víða um veröld, svo sem vestur í Kanada þar sem myndin hér til hliðar var tekin. Á fundinum í Reykjavík í gær tók Rauði krossinn þátt. Sjónarmið hans er að aðgerðir í loftslagsmálum kosti minna en að sitja hjá. Fulltrúar háskólanema og ungir umhverfissinnar funduðu í gær með fjór- um ráðherrum og kynntu þeim kröfur sínar, það er að Ísland lýsi yfir neyðarástandi vegna loftslagsvár og að því fylgi aðgerðir sem tryggi að los- un Íslands minnki árlega um minnst 5% svo kolefnishlutleysi náist fyrir árið 2040. „ Vonbrigði,“ sagði Jóna Þórey Pétursdóttir, formaður Stúdentaráðs, eftir að ríkisstjórnin afþakkaði að skrifa undir tillögur hópsins. »23 Krefjast aðgerða í loftslagsmálunum Lokadagur heimsverkfalls vegna umhverfismála og fundir voru haldnir víða um veröldina Morgunblaðið/Eggert Reykjavík Ungt fólk var áberandi á fundinum í gær og sjónarmið þess í loftslags- og umhverfismálum komu skýrt fram þegar skiltum var haldið á lofti. AFP Kanada Plánetan brennur, segja ungmenni vestanhafs. Talið er að mót- mælendur í loftslagsmálum hafi komið saman í um 150 löndum í gær.  Sveitarstjórn Vopnafjarðar- hrepps hefur boðað til opins íbúa- fundar nk. mánudag til að kynna ákvörðun um uppgjör á vangoldn- um lífeyrissjóðsiðgjöldum hluta starfsmanna sinna. Vegna mistaka voru mótframlög vinnuveitenda ekki hækkuð á árinu 2005, í sam- ræmi við ákvæði kjarasamninga. Gekk þetta í tíu ár og safnaðist upp rúmlega 40 milljóna króna skuld. Sveitarstjórn ákvað að greiða höfuðstólinn og vexti af greiðslum sem ekki teljast fyrndar. Telur nefndin að lífeyrissjóðurinn Stapi eigi einnig að taka ábyrgð en hann lætur það sem upp á vantar skerða lífeyrisréttindi starfsfólksins. »11 Opinn íbúafundur um uppgjör skuldar  Örn Kaldalóns Magnússon var 19 ára að aldri þegar hann greindist með DM-sjúkdóminn, sem er vöðva- rýrnunarsjúkdómur og hefur áhrif á mörg kerfi líkamans. Örn verður fertugur á morgun, sunnudag, en hann hefur verið veikur meira og minna alla ævi. Viðtal er við hann og móður hans, Margréti Kaldalóns, í Sunnudags- blaði Morgunblaðsins. Lengi vel var ekki vitað hvað am- aði að drengnum og engin skýring fannst fyrr en hann var tæplega tví- tugur. DM-sjúkdómurinn er sjald- gæfur. Á heimsvísu er hlutfallið 1 af hverjum 8.000 en hér á landi er sjúkdómurinn algengari, eða 1 af hverjum 3.500. Morgunblaðið/Ásdís Mæðgin Margrét Kaldalóns og Örn Kalda- lóns Magnússon hafa staðið í ströngu. Hefur glímt við veikindi alla ævi  Icelandair hefur ákveðið að færa MAX-vélarnar sem staðið hafa á Keflavíkurflugvelli frá mars sl. í betra loftslag. Verður vélunum væntanlega flogið strax eftir helgi til Toulouse í Suður-Frakklandi þar sem þær verða geymdar. Afla þurfti leyfa til flugsins hjá Boeing- verksmiðjunum og flugmála- yfirvöldum á Íslandi og í Evrópu. Flugmenn Icelandair fljúga vél- unum og verða væntanlega ein- göngu tveir um borð. »4 MAX-vélarnar ferj- aðar til Toulouse Morgunblaðið/Árni Sæberg Kyrrsettar MAX-vélarnar hafa verið á Keflavíkurvelli frá því í mars á þessu ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.