Morgunblaðið - 28.09.2019, Side 11
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ákvörðun sveitarstjórnar Vopna-
fjarðarhrepps um uppgjör á van-
greiddum lífeyrissjóðsiðgjöldum
hluta starfsmanna hreppsins veldur
enn deilum í sveitarfélaginu. Sveit-
arstjórn ákvað að greiða höfuðstól
allra vangreiddra iðgjalda til lífeyr-
issjóðsins Stapa, líka þau sem talin
eru fyrnd, og vexti af ófyrnda tíma-
bilinu. Telur sveitarfélagið að lífeyr-
issjóðurinn beri einnig sína ábyrgð
en hann tekur það sem upp á vantar
ekki á sig heldur skerðir réttindi
viðkomandi starfsmanna.
Málið hefur verið í gangi í tæp
þrjú ár. Sveitarstjórn ákvað í júní
hvernig hún vildi ljúka málinu og
samþykkti tilhögun þess á fundi
fyrr í mánuðinum. Minnihluti
hreppsnefndar gerir ágreining. Nú
hefur sveitarfélagið boðað til opins
íbúafundar næstkomandi mánudag
til að kynna niðurstöðuna.
40 milljóna króna mistök
Þau mistök voru gerð á skrifstofu
Vopnafjarðarhrepps á árinu 2005 að
mótframlag sveitarfélagsins í lífeyr-
issjóðsgreiðslum hóps starfsmanna
var ekki hækkað í samræmi við
kjarasamninga. Var greitt of lágt ið-
gjald sem Stapi tók við án athuga-
semda allt til ársins 2016 að einn
starfsmaður fór að spyrjast fyrir
um réttindi sín. Í rúman áratug
hafði safnast upp ríflega 40 milljóna
króna skuld. Meirihluti iðgjaldanna
er fyrndur, samkvæmt áliti lögfræð-
inga sveitarfélagsins.
Lífeyrissjóðurinn Stapi gerði
kröfu um að Vopnafjarðarhreppur
greiddi alla skuldina auk 3,5%
ávöxtunar, samtals yfir 70 milljónir.
Þór Steinarsson sveitarstjóri seg-
ir að sveitarfélagið ráði ekki vel við
slíka fjárhæð og hreppsnefnd líti
auk þess svo á að það sé ekki sann-
gjarnt gagnvart öðrum íbúum og
íbúum framtíðarinnar að standa skil
á þessu, á forsendum lífeyrissjóðs-
ins. Leggur hann áherslu á að Stapi
hafi tekið við iðgjöldum og skila-
greinum athugasemdalaust öll þessi
ár og hljóti að bera ábyrgð, eins og
sveitarfélagið.
Niðurstaða sveitarstjórnar var að
greiða allan höfuðstólinn, líka þann
hluta sem talinn er fyrndur, og vexti
af ófyrnda tímabilinu, alls rúmlega
44 milljónir kr. Það sjónarmið var
ríkjandi hjá meirihluta sveitar-
stjórnar að með því að greiða um-
fram lagalega skyldu væri verið að
koma til móts við starfsfólk hepps-
ins, eins og mögulegt væri.
Ætlaðist sveitarfélagið til þess að
lífeyrissjóðurinn Stapi tæki ábyrgð
á vöxtum af fyrnda hlutanum, með
sama hætti og þegar gerð eru mis-
tök í fjárfestingum eða iðgjöld tap-
ast í innheimtu hjá sjóðnum. Ávöxt-
un sjóðsins í heild myndi þá minnka.
Lífeyrissjóðurinn hefur í tilkynn-
ingu lýst allri ábyrgð á hendur
sveitarfélaginu sem eitt hafi haft
nauðsynlegar upplýsingar um
kjarasamninga sem greitt væri eft-
ir. Því var jafnframt lýst að tapið
myndi bitna á lífeyrisréttindum við-
komandi starfsmanna Vopnafjarð-
arhrepps.
Hreppurinn greiðir hluta skuld-
arinnar með láni hjá lífeyrissjóðn-
um, 28 milljónir króna. Lánið er
verðtryggt en vaxtalaust og greiðist
á næstu þremur árum.
Bitnar á 240 starfsmönnum
Um 240 starfsmenn Vopnafjarð-
arhrepps greiddu í lífeyrissjóðinn á
umræddu tímabili, sumir aðeins
einu sinni en aðrir megnið af tím-
anum. Mistökin og ágreiningur um
ábyrgð kemur því misilla við þá.
Þetta er allt allmennt starfsfólk, svo
sem skólaliðar og verkafólk í
áhaldahúsi, sem eru í Afli - starfs-
greinafélagi.
Fulltrúar Samfylkingarinnar í
minnihluta sveitarstjórnar greiddu
atkvæði á móti ákvörðun um upp-
gjör skuldarinnar á sínum tíma.
Bjartur Aðalbjörnsson, oddviti
flokksins, segir að flokkurinn hafi
viljað greiða alla skuldina með raun-
ávöxtun og taka upphaflegu tilboði
Stapa um lán til 25 ára. Telur hann
að öll sveitarstjórnin hafi viljað gera
það en síðan hafi afstaðan breyst og
ákveðið að fara svokallaða millileið
sem bitni á réttindum sjóðsfélaga.
Það sé grátlegt að horfa upp á sveit-
arfélagið skerða laun starfsmanna
sinna með þessum hætti.
Bjartur er ekki viss um að málinu
sé lokið. Verkalýðsfélagið sé að
kanna hvað hægt sé að gera.
Réttindi starfsfólks skerðast
Vopnafjarðarhreppur greiddi ekki rétt lífeyrisiðgjald fyrir hluta starfsmanna í rúman áratug
Sveitarstjórn telur að lífeyrissjóðurinn beri einnig ábyrgð Boðað til opins íbúafundar um málið
Morgunblaðið/Golli
Vopnafjörður Sveitarsjóður hefur orðið fyrir áföllum og treystir hreppsnefnd sér ekki til mikilla útgjalda umfram þau lögboðnu.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
TÚNIKUR
Verð 9.800,-
Str. 40/42-56/58
3 Litir
GÆÐA-YFIRHAFNIR
FYRIR ÍSLENSKA
VEÐRÁTTU
Fylgdu okkur á facebook
Skipholti 29b • S. 551 4422
VERÐ
39.990,-
Matarprentari, syngjandi skál,
vatnabjöllur, tónsköpun með gervi-
greind, jafnvægisstjórn, barm-
merkjavél, vínylskeri, rauntíma-
rennsli í jökulám og jarðskjálfta-
mælar eru tæknilausnir og verkefni
sem kynnt verða á Vísindavöku
Rannís í Laugardalshöll í dag kl.
15-20.
Markmiðið með vökunni er að
kynna fólkið á bak við rannsókn-
irnar og vekja athygli á fjölbreytni
og mikilvægi vísindastarfs í land-
inu. Vísindavakan verður opnuð kl.
15 með afhendingu viðurkenningar
fyrir vísindamiðlun.
Á Vísindavökunni kynnir fræða-
fólk frá háskólum, stofnunum og
fyrirtækjum viðfangsefni sín fyrir
almenningi á lifandi og skemmti-
legan hátt, en þátttakendur eru um
90 talsins. Gestir fá að skoða og
prófa ýmis tæki og tól sem notuð
eru við rannsóknir, kynnast ýmsum
afurðum og spjalla við vísindafólkið
sjálft um hvernig er að starfa að
vísindum, rannsóknum og ný-
sköpun. Lögð er áhersla á lifandi
vísindamiðlun og virka þátttöku
gesta og eru börn og ungmenni sér-
staklega boðin velkomin.
Meðal þátttakenda í Vísindavök-
unni er Borgarbókasafn Reykja-
víkur. Þátttaka þess helgast af
þeirri stefnu safnsins að vera opinn
vettvangur fyrir viðburði og þátt-
töku fólks í samfélaginu . Bókasöfn
víða um heim veita opinn aðgang að
nútímatækni og tækjabúnaði. Þessi
þjónusta gengur undir nafninu
„makerspaces“ og vísar í opin sköp-
unarrými þar sem fólk er hvatt til
að prófa sig áfram, skapa og upp-
götva nýja hluti. Hjá Borgar-
bókasafninu eru tæki eins og Rasp-
berry Pi-tölvur, MakeyMakey,
LittleBits, þrívíddarprentari, barm-
merkjavél og vínylskeri – og getur
fólk fengið að reyna og kynnast
þessari tækni á tilraunaverkstæði
safnsins á Vísindavökunni í dag.
Syngjandi skál og
jarðskjálftamælir
á Vísindavökunni
Fjölbreytt tækni og spennandi nýj-
ungar kynntar í Laugardalshöll í dag
Ljósmynd/Aðsend
Tilraun Í tæknismiðju Borgar-
bókasafns má margt prófa.