Morgunblaðið - 28.09.2019, Page 8

Morgunblaðið - 28.09.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 Viðskiptablaðið fjallar í pistliundir heitinu Óðinn um fjár- lögin og er ekki hrifið af því sem þar er að finna. Gagnrýnin snýr einkum að því hve mjög fjárlögin hafa blásið út á síðustu árum og hve mjög hefur skort á fyrir- stöðu gegn þeirri þró- un. Bent er á að það sé „stór- fenglegt áhyggjuefni hversu um- fang ríkisins mun vaxa milli áranna 2019 og 2020 eða um 7,8%“. Síðar segir: „Á verðlagi dagsins í dag áttu ríkisútgjöldin árið 2008 að verða 724,2 milljarðar króna. Óðinn man ekki betur en þessi ár hafi ver- ið ágæt. Jú, Landspítalinn og Rík- isútvarpið kvörtuðu yfir alvar- legum fjárskorti, rétt eins og áratugina á undan. Og eftir. Fjárlagafrumvarp 2020 gerir ráð fyrir 1.005 milljarða útgjöldum. Það er 282 milljörðum hærri út- gjöld en árið 2008 eða 39% meiri út- gjöld.“    Þá er rifjað upp að eftir fallbankanna hafi verið gripið til stóraukinnar og vafasamrar skatt- heimtu og bent á að þau hæpnu rök sem þá voru færð fyrir skattahækk- ununum eigi alls ekki lengur við. Loks er vikið að því að velferð og velsæld landsmanna „hvílir á fram- taki og verðmætasköpun þjóð- arinnar, fólksins og fyrirtækjanna. Auðlegð þessarar þjóðar verður ekki til í fjárhirslum fjármálaráðu- neytisins, þvert á móti skiptir sköp- um að hið opinbera haldi að sér höndum, bæði í skattheimtu og um- svifum. Það fer enginn betur með annarra fé en eigið, þannig nýtist vinna og verðmæti best, öllum til góða.“    Vinstri grænir taka örugglegaekki undir þetta, en ættu aðrir í ríkisstjórninni ekki að gera það? Hömlulaus útþensla ríkisins STAKSTEINAR Á árinu 2018 unnu á skrifstofu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og Stefáns Eiríkssonar borgarritara að meðaltali 55 starfsmenn í 51 stöðu- gildi, að stjórnendum og embættis- mönnum meðtöldum. Þetta kemur fram í svari sviðs- stjóra mannauðs- og starfsumhverf- issviðs Reykjavíkurborgar við fyrir- spurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem lagt var fram í borgarráði á fimmtudaginn. Skiptist skrifstofan í eftirfarandi einingar, sam- kvæmt svarinu: Skrifstofu, mann- auðsdeild, upp- lýsingadeild, Borgarskjalasafn og tölfræði og greiningu. Heild- arlaunakostnaður á árinu 2018 var 597,5 milljónir sem skiptist í laun 485,8 milljónir og launatengd gjöld 111,7 milljónir. Meðalheildar- laun fyrir 100% starf voru 772 þús- und krónur. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins lögðu fram svohljóðandi bókun: „Hér staðfestist það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið fram að 55 starfsmenn hafi verið á skrifstofu borgarstjóra og borgarrit- ara. Kostnaður við það hefur verið yfir hálfur milljarður á ári eða 2 milljónir á dag.“ Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisn- ar, Pírata og Vinstri grænna lögðu fram svohljóðandi bókun: „Á síðasta ári heyrði undir skrif- stofu borgarstjóra og borgarritara skv. skipuriti mannauðsdeild, mið- læg upplýsingadeild fyrir alla borg- ina, Borgarskjalasafn fyrir alla borg- arbúa og tölfræði og greining auk annars starfsfólks sem sinnir dag- legum störfum. Nú hefur skipulagi í miðlægri stjórnsýslu verið breytt með það að markmiði að einfalda skýra og skerpa.“ sisi@mbl.is 55 unnu á skrifstofu borgarstjóra Dagur B. Eggertsson Jöfn og góð síldveiði hefur verið fyrir austan land undanfarið. Skipin voru framan af vertíð í Héraðsflóa, en síldin hefur fært sig utar síðustu daga. Síldin hefur verið stór og hráefnið hið besta til manneld- isvinnslu. Gott veður hefur yfirleitt verið á miðunum frá því að síldin tók við af makrílnum og stutt á miðin frá austfirskum höfnum. Víkingur AK, skip Brims hf., var í byrjun vikunnar dreginn frá Vopnafirði til Akureyrar þar sem skipið fer í slipp. Við skoðun vél- stjóra um borð í Víkingi, er skipið var inni á Vopnafirði um helgina, sá hann stóra sprungu í tengi á milli skrúfuöxuls og gírs. Ekki var talið hættandi á að sigla skipinu til við- gerða á Akureyri og var Grettir sterki, skip Togskipa, fenginn til að draga Víking. Það gekk mjög vel þó svo að verulegur stærðarmunur sé á skipunum. Skipið verður öxuldregið á Akur- eyri og nýjum tengslum komið fyr- ir. Búist er við að viðgerð ljúki eftir um tvær vikur. aij@mbl.is Jöfn og góð síldveiði  Grettir sterki dró Víking til Akureyrar Ljósmynd/Brim hf. Víkingur AK Skipið var smíðað í Tyrklandi og kom til landsins 2015. GLÆSILEG EIGN VIÐ ÆGISÍÐU Um er að ræða glæsilega nýuppgerða eign með einstöku útsýni. TIL LEIGU 7 herbergja eign með tveimur baðherbergjum og einni snyrtingu, vinnuherbergi, svíta með baðherbergi innaf, tvær stofur, fjögur svefnherbergi, eldhús, fallegur garður með verönd, geymslu, þvottahús og fleira. Nánari upplýsingar veitir Sigurður lgfs, netfang: sigurdur@fstorg.is Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.