Morgunblaðið - 28.09.2019, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa
skýrt frá því að uppljóstrarinn, sem
lagði fram kvörtun í tengslum við
símasamtal Donalds Trumps við for-
seta Úkraínu, sé starfsmaður leyni-
þjónustunnar CIA og hafi starfað um
tíma í Hvíta húsinu í Washington. Í
kvörtuninni kemur fram að Trump
notaði forsetaembættið til að reyna
að knýja fram rannsókn á pólitískum
andstæðingi sínum, Joe Biden, fyrr-
verandi varaforseta Bandaríkjanna,
sem sækist eftir því að verða forseta-
efni demókrata í kosningunum í nóv-
ember á næsta ári. Uppljóstrarinn
segir ennfremur að embættismenn í
Hvíta húsinu hafi áttað sig á því
hversu alvarlegt þetta mál sé og þess
vegna gengið mjög langt í því að
reyna að leyna upplýsingum um það.
Kvörtunin snýst um símasamtal
Bandaríkjaforseta við Volodimír Ze-
lenskí Úkraínuforseta 25. júlí og við-
brögð embættismanna í Hvíta húsinu
við beiðni Trumps. Hún varð til þess
fyrr í vikunni að forystumenn demó-
krata í fulltrúadeild þingsins ákváðu
að hafin yrði formleg rannsókn með
það fyrir augum að ákæra forsetann
til embættismissis.
„Í opinberum skyldustörfum mín-
um hef ég fengið upplýsingar frá
mörgum embættismönnum stjórnar-
innar um að forseti Bandaríkjanna
hafi notað embættið til að biðja um af-
skipti annars ríkis af kosningunum í
Bandaríkjunum 2020,“ skrifaði upp-
ljóstrarinn. Hann bætti við að Trump
hefði m.a. reynt að „knýja annað ríki
til að rannsaka einn af helstu and-
stæðingum forsetans í Bandaríkjun-
um“.
Uppljóstrarinn sagði að forsetinn
hefði reynt fá Zelenskí til að vinna
með Rudy Giuliani, lögmanni
Trumps, og Bill Barr dómsmálaráð-
herra að rannsókninni. Þetta kom
einnig fram í minnisblaði um síma-
samtalið sem forsetaembættið gerði
opinbert á miðvikudaginn var. Síma-
samtöl forsetans við leiðtoga annarra
ríkja eru ekki hljóðrituð en aðstoðar-
menn hans hlýða á þau og skrá orða-
skiptin.
Höfðu áhyggjur af beiðninni
Uppljóstrarinn hefur eftir nokkr-
um embættismönnum í Hvíta húsinu
að þeir hafi haft miklar áhyggjur af
beiðni forsetans. Lögfræðingar hans
hafi rætt hvernig taka ætti á síma-
samtalinu vegna þess að þeir hafi orð-
ið vitni að því að forsetinn hafi „mis-
notað embættið í eigin þágu“.
Embættismenn í Hvíta húsinu hafi
þess vegna gripið til þess ráðs að
„læsa inni“ allar upplýsingar um sam-
talið, einkum minnisblaðið þar sem
orðaskiptin voru skráð.
Uppljóstrarinn hefur eftir em-
bættismönnum í Hvíta húsinu að þeir
hafi sagt lögfræðingum forsetaemb-
ættisins að færa upplýsingarnar um
samtalið úr tölvukerfi þar sem slík
minnisblöð hafa venjulega verið
geymd til að hátt settir embættis-
menn geti haft aðgang að þeim.
Gögnin hafi verið sett í annað tölvu-
kerfi sem er ætlað fyrir leynilegar
upplýsingar um mjög viðvæm mál.
Uppljóstrarinn hefur einnig eftir em-
bættismönnunum að þetta sé ekki í
fyrsta skipti sem slík minnisblöð um
símasamtöl Trumps við leiðtoga ann-
arra ríkja séu sett í þetta tölvukerfi.
The Wall Street Journal hefur eftir
fyrrverandi embættismanni, sem
þekkir vel til tölvukerfa Þjóðar-
öryggisráðs Bandaríkjanna, að það
væri „afar óvenjulegt“ ef upplýsingar
um samtöl Trumps við forseta Úkra-
ínu væru geymd í öruggasta tölvu-
kerfinu því að það væri ætlað þeim
gögnum sem mest leynd væri yfir,
t.a.m. um háleynilegar aðgerðir leyni-
þjónustumanna.
The Wall Street Journal hefur eftir
embættismönnum í Hvíta húsinu að
þeir séu enn að reyna að átta sig á
þýðingu kvörtunarinnar og öryggis-
ráðgjafar forsetans forðist að ræða
málið. Blaðið segir að nokkrir af
bandamönnum Trumps viðurkenni í
trúnaðarsamtölum að þeir hafi
áhyggjur af því að kvörtunin og
væntanleg ákæra fulltrúadeildarinn-
ar til embættismissis minnki líkurnar
á því að hann nái endurkjöri í kosn-
ingunum á næsta ári, þótt þeir segi
opinberlega að ákæran sé liður í
„nornaveiðum“ og hún komi demó-
krötum í koll í kosningunum á næsta
ári.
Warren í forsetastólinn?
Leyniþjónustunefnd fulltrúa-
deildarinnar gerði kvörtunina opin-
bera í fyrradag, skömmu eftir að yfir-
maður leyniþjónustustofnana
Bandaríkjanna, Joseph Maguire,
kom fyrir nefndina til að svara spurn-
ingum hennar. Michael Atkinson,
aðaleftirlitsmaður leyniþjónustu-
stofnana Bandaríkjanna, fékk kvört-
unina frá uppljóstraranum og sendi
hana til Maguire sem ákvað að aðhaf-
ast ekkert í málinu eftir að hafa ráð-
fært sig við lögfræðinga dómsmála-
ráðuneytisins. Atkinson tók fram að
uppljóstrarinn væri „pólitískt hlut-
drægur“ en taldi samt kvörtunina
vera trúverðuga og ákvað því að
senda hana til leyniþjónustunefnda
þingsins.
Ambrose Evans-Pritchard, frétta-
skýrandi breska blaðsins The Tele-
graph, spáir því að kvörtun uppljóstr-
arans og ákæran til embættismissis
hafi mjög alvarlegar afleiðingar fyrir
Trump. „Þegar ég starfaði í Wash-
ington fjallaði ég um yfirheyrslurnar í
Íran-kontramálinu gegn Ronald
Reagan og hneykslismálin sem leiddu
til ákærunnar til embættismissis á
hendur Bill Clinton. Þetta mál virðist
vera ólíkt þeim,“ segir Evans-Pritch-
ard. Hann líkir Úkraínumálinu við
Watergate-hneykslið sem varð til
þess að Richard Nixon neyddist til að
segja af sér 1974 vegna yfirvofandi
ákæru til embættismissis. Evans-
Pritchard bendir á að bandaríska
þjóðin vildi ekki að Clinton yrði vikið
frá vegna framhjáhalds, þótt hann
hafi verið sakaður um meinsæri.
„Úkraínumálið snýst meira um lýð-
ræðið í Bandaríkjunum. Og forystu-
menn repúblikana líta ekki á Trump
sem einn af þeim. Þeir umbera hann.
Það kæmi mér ekki á óvart að sjá þá
snúast gegn honum ef – og þegar –
yfirheyrslurnar í máli hans minnka
fylgi hans í könnunum. Ég held ekki
að honum takist að bjarga sér með
því að leika píslarvott til að þjappa
stuðningsmönnum sínum saman.
Staðreyndirnar eru of hræðilegar.“
Evans-Pritchard telur að Úkraínu-
málið skaði einnig Biden og auki lík-
urnar á því að vinstrisinnaða þing-
konan Elizabeth Warren verði
forsetaefni demókrata og síðan næsti
forseti Bandaríkjanna.
Reyndu að leyna gögnunum
Menn Trumps óttast að kvörtun uppljóstrara og ákæra til embættismissis minnki líkurnar á því að
forsetinn nái endurkjöri Evans-Pritchard telur auknar líkur á því að Elizabeth Warren verði forseti
Birti fyrstu fréttina
um kvörtun uppljóstrarans,
sagði aðeins að hún
snerist um „loforð“ sem
Trump væri sakaður um
að hafa gefið leiðtoga
annars ríkis
Atburðarásin frá því að Donald Trump ræddi í síma við forseta Úkraínu og þar til forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings lýsti því yfir
að hafin yrði formleg rannsókn með það fyrir augum að ákæra forsetann til embættismissis
Volodimír Zelenskí
forseti Úkraínu
Donald Trump
Bandaríkjaforseti
Trump hvatti Zelenskí til að
hefja rannsókn á gerðum Joe
Bidens og sonar hans í Úkraínu
Var í stjórn
Burisma,
úkraínsks jarðgas-
fyrirtækis sem
er sakað um
spillingu
Þegar hann var varaforseti
Bandaríkjanna beitti hann
og embættismenn annarra
vestrænna ríkja sér fyrir því að
ríkissaksóknara Úkraínu yrði
vikið frá vegna þess að hann
var talinn hindra rannsóknir
á spilllingu í landinu
Sækist nú eftir því
að verða forsetaefni
demókrata
Forseti fulltrúadeildar þingsins (demókrati)
Sakaði Trump um embættisbrot með
því að óska eftir rannsókn á
pólitískum andstæðingi hans
til að hafa áhrif á kosningar
Hunter Biden
(sonur Joe)
Joe Biden
Joseph Maguire
Bill Barr dómsmálaráðherra Michael Atkinson
Nancy Pelosi
Símasamtal 25. júlí
12. ágúst
24. september
8
1
2
3
5
4
7
6
Óþekktur
uppljóstari,
lagði fram kvörtun
í tengslum við
símasamtalið
Aðaleftirlitsmaður
leyniþjónustu-
stofnana
Bandaríkjanna
Taldi
kvörtunina
trúverðuga
og sendi
hana til...
Ráðfærði sig
við lög-
fræðinga ...
Ákvað að senda
ekki kvörtunina
til þingsins
Yfirmaður leyni-
þjónustustofnana
Dómsmálaráðuneytið
Hvíta húsið
Leyniþjónustu-
nefndir þingsins
18. september
9. september
Washington Post
Frá símasamtali Trumps til yfirlýsingar Pelosi um ákæru til embættismissis
Tilkynnti að hafin
yrði formleg
rannsókn með
það fyrir augum
að ákæra forsetann
Eftir að Maguire
ákvað að aðhafast
ekkert í málinu
skýrði Atkinson
þinginu frá
kvörtuninni
starfsmaður CIA,
Stefnir í ákæru
» Nancy Pelosi, forseti full-
trúadeildar Bandaríkjaþings,
sagði í gær að rannsóknin á
meintum embættisbrotum Do-
nalds Trumps ætti ekki að taka
langan tíma vegna þess að
gögnin sem lægju nú þegar
fyrir væru mjög skýr og sýndu
að forsetinn hefði stefnt
þjóðaröryggi í hættu.
» Talið er að meirihluti þing-
manna fulltrúadeildarinnar
styðji nú ákæru á hendur
Trump til embættismissis.
» Samþykki deildin ákæruna
réttar öldungadeild þingsins í
málinu. Ólíklegt þykir að hún
samþykki embættissviptingu
með tilskildum meirihluta at-
kvæða, eða tveimur þriðju.
Hundruð þúsunda manna tóku þátt
í mótmælum í borgum víða í Evr-
ópu í gær til að krefjast aðgerða til
að stemma stigu við loftslagsbreyt-
ingum í heiminum. Mótmæli fóru
m.a. fram í 180 borgum og bæjum á
Ítalíu, þau fjölmennustu í Mílanó og
Róm. Slík mótmæli fóru einnig
fram í borgum í Kanada, meðal
annars í Montreal þar sem sænska
baráttustúlkan Greta Thunberg
flutti ræðu. Hún hvatti forsætisráð-
herra landsins, Justin Trudeau, og
leiðtoga annarra ríkja til að taka
mark á vísindamönnum og leggja
meira af mörkum til að minnka los-
un gróðurhúsalofttegunda.
Taki mark
á vísinda-
mönnum
AFP
Fjölmennar baráttugöngur gegn loftslagsvá í borgum í Evrópu og Kanada
Á Hlekkjabrú Baráttuganga gegn loftslagsbreytingum í miðborg Búdapest.
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.