Morgunblaðið - 28.09.2019, Síða 30
30 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Sönghópurinn
Synkópa syngur. Organisti er Eyþór Ingi Jóns-
son. Tekið verður við samskotum fyrir vinasöfn-
uð okkar í Kapkoris í Keníu.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu kl. 11.
Umsjón Sonja Kro og Sigríður Hulda Arn-
ardóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Fé-
lagar úr kór Árbæjarkirkju leiða sönginn. Ingi G.
Ingimundarson leikur á trommur, Kristina Kalló
Szklenár er organisti. Barnastarf á sama tíma í
safnaðarheimili kirkjunnar. Umsjón hafa Anna
Sigríður Helgadóttir og Aðalheiður Þorsteins-
dóttir. Kaffi og spjall eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra
Sigurður Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar.
Séra Dagur Fannar Magnússon, nývígður prest-
ur til Heydala, annast samverustund sunnu-
dagaskólans. Félagar úr Hljómfélaginu leiða
sönginn undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulás-
dóttur. Orgelleikari er Bjartur Logi Guðnason.
Kaffisopi í Ási eftir messu.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11
í Brekkuskógum 1. Umsjón með stundinni
hafa Þórarinn og Guðmundur Jens.
Síðdegismessa kl. 17 í Bessastaðakirkju. Í
messunni syngur Guðrún Gunnarsdóttir sálma
og lög en Lærisveinar hans sjá um undirleikinn
undir stjórn Ástvaldar organista. Sr. Hans Guð-
berg flytur hugleiðingu og þjónar ásamt Mar-
gréti djákna.
BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Þorbjörn Hlynur Árnason þjónar. Organisti er
Steinunn Árnadóttir. Kirkjukór Borgarneskirkju
leiðir sálmasöng. Sunnudagaskóli kl. 13. Um-
sjón: Heiðrún Helga Bjarnadóttir. Guðsþjón-
usta í Brákarhlíð kl 13.45.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Hausthátíð barna-
starfsins kl. 11. Fullt af skemmtilegum atrið-
um og í lokin er boðið upp á pylsuveislu. Tóm-
asarmessa kl. 20. Lífleg tónlist sem Matthías
Baldursson og Páll Magnússon sjá um. Prest-
ar, djáknar og leikmenn þjóna saman í mess-
unni. Það eru Breiðholtskirkja, Félag guð-
fræðinema, Kristilega skólahreyfingin,
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og Samband
íslenskra kristniboðsfélaga sem standa að
Tómasarmessunum.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Daníel
Ágúst, Sóley Adda, Jónas Þórir og Pálmi. Stund
fyrir alla fjölskylduna með hressingu á eftir.
Guðþjónusta kl. 14. Jónas Þórir og kórinn flytja
tónlist. Messuþjónar og sr. Pálmi þjóna. Hress-
ing og heitt á könnunni eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Útvarpsmessa. Um-
hverfismessa kl. 11. Prestur er Helga Kol-
beinsdóttir. Organisti er Sólveig Sigríður Ein-
arsdóttir. Kammerkór Digraneskirkju syngur.
Ræðumaður er Sindri Geir Óskarsson guð-
fræðingur. Léttar veitingar eftir messu.
DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30
á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau.
kl. 16 er vigilmessa á spænsku og kl. 18 er vi-
gilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa og sunnudagaskóli á
kirkjuloftinu kl. 11. Prestur er Sveinn Val-
geirsson, organisti er Kári Þormar og Dómkór-
inn.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og prédikar. Kór kirkjunnar
syngur. Arnhildur Valgarðsdóttir organisti
stjórnar. Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.
Kaffi og djús í boði eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir
stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghóp-
urinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunn-
ari Gunnarssyni, organista. Fermingarbörn og
fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leið-
ir söng undir stjórn Valmars Väljaots organista.
Umsjón með sunnudagaskóla: Sunna Kristrún
djákni.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar.
Organisti er Hákon Leifsson og Kór Grafarvogs-
kirkju leiðir söng.
Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11.
Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir og und-
irleikari er Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng |
Selmessa kl. 13. Séra Sigurður Grétar Helga-
son prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar Örn
Agnarsson og Söngfjelagið leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Pálmi
Matthíasson messar og Ásta Haraldsdóttir er
við hljóðfærið. Félagar úr Kirkjukór Grens-
áskirkju leiða söng og messuþjónar aðstoða.
Heitt á könnunni á undan og eftir messu.
Barnamessa er á sama tíma í Bústaðakirkju.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta og barnastarf 11. Prestur er Leifur
Ragnar Jónsson, organisti er Hrönn Helgadótt-
ir og kór Guðríðarkirkju syngur. Sunnudaga-
skólinn á sínum stað og Pétur Ragnhildarson
mun kenna Húba húba-dansinn. Kirkjuvörður
er Lovísa Guðmundsdóttir, kaffisopi í boði eftir
messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er Jón Helgi
Þórarinsson. Organisti er Guðmundur Sigurðs-
son. Félagar í Barbörukórnum syngja. Bylgja
Dís, Sigríður og Jasper sjá um fjölbreytta dag-
skrá í sunnudagaskólanum. Hressing á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Ásu Björk Ólafs-
dóttur. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er
Hörður Áskelsson. Umsjón barnastarfs Bogi
Benediktsson og Rósa Árnadóttir. Ensk messa
kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar.
Bænastund mánud. kl. 12.15. Fyrirbænaguðs-
þjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa
miðvikud. kl. 8. Kyrrðarstund fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Helga
Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Léttsveit Reykjavíkur syngur undir stjórn
Gísla Magna Sigríðarsonar. Organisti er Guðný
Einarsdóttir. Heitt á könnunni í Setrinu eftir
messu.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Skjól | Guðsþjón-
usta á sal á 2. hæð á hjúkrunarheimilinu Skjóli
kl. 13. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Bjartur Logi Guðnason leikur á
orgelið. Vinir og vandamenn heimilisfólks vel-
komnir með sínu fólki og aðstoð þeirra vel þeg-
in við flutning fólks milli hæða.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Fjöl-
skyldumessa kl. 11. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir
leikur á flygilinn og félagar úr kór Hólaneskirkju
leiða söng.
Eftir messu er boðið upp á veitingar á kirkju-
loftinu. Yngsta kynslóðin fær bók með bibl-
íusögum og límmiða.
HRAFNISTA Hafnarfirði | Guðsþjónusta kl.
11 í Menningarsalnum. Hrafnistukórinn leiðir
safnaðarsöng. Organisti er Böðvar Magn-
ússon. Ritningarlestur les Edda María Magn-
úsdóttir. Sr. Svanhildur Blöndal prédikar og
þjónar fyrir altari.
HVALSNESKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20. Al-
mennur söngur við gítarslátt.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Translation into English. Sam-
koma á spænsku kl. 13. Reuniónes en esp-
añol.
Samkoma á ensku kl. 14. English speaking
service. Samkoma Fíló+ kl. 20.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Gautaborg.
Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera í safn-
aðarheimili V-Frölundakirkju 28. september kl.
11. Íslensk guðsþjónusta verður í Västra Fröl-
undakirkju sunnudag 29. september kl. 14. Ís-
lenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgel og kór-
stjórn Lisa Fröberg. Altarisganga. Prestur er
Ágúst Einarsson. Barnastund, smábarnahorn.
Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma kl. 13 með lofgjörð og fyrirbænum. Ald-
ursskipt barnastarf. Sigríður Schram prédikar.
Kaffi að samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Söngvaskáldamessa
kl. 11. Síðustu þrjú ár hafa Arnór organisti og
kórfélagarnir Dagný Maggýjar og Elmar Þór
staðið fyrir tónleikaröðinni Söngvaskáld á Suð-
urnesjum. Hluta af þeim lögum sem flutt voru í
tónleikaröðinni mun Elmar syngja og Arnór
spila undir í sunnudagsmessu. Á milli laga seg-
ir Dagný frá tengslum trúar og tónlistar, sögu
og samfélagi söngvaskáldanna við kirkjuna.
Sunnudagaskóli á sama tíma. Súpa og brauð í
boði. Sr. Erla þjónar og messuþjónar sinna um-
gjörðinni.
KIRKJUSELIÐ í Fellabæ | Kvöldmessa
sunnudag kl. 20. Drífa Sigurðardóttir og Kór
Áskirkju leiða lofgjörðina. Þröstur Jónsson vitn-
ar um trúna og lífið. Prestur er Þorgeir Arason.
Kaffisopi eftir messu.
KOLAPORTIÐ | Messa kl. 14 í Kaffi-Port. Tón-
list, bænir, hugvekja.
KÓPAVOGSKIRKJA | Umhverfismessa kl.
11. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari.
Helena Óladóttir, umhverfisfræðingur og kenn-
ari, flytur hugleiðingu. Óskar H. Níelsson,
sóknarnefndarmaður, les ritningarlestra. Kór
Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Má-
téová. Sálmar, ritningartextar og bænir fjalla
um umhverfið. Kaffisopi á eftir í kirkjunni.
Sunnudagaskólinn verður í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 11.
KVENNAKIRKJAN | Guðþjónusta í Neskirkju
við Hagatorg kl. 20 og þess minnst að 29.
september eru 45 ár síðan fyrsta konan var
vígð prestur á Íslandi. Séra Auður Eir Vilhjálms-
dóttir prédikar og séra Arndís G. Bernhar-
dsdóttir Linn flytur ávarp. Anna Sigríður Helga-
dóttir syngur einsöng og Aðalheiður
Þorsteinsdóttir stjórnar sálmasöng. Kaffi í
safnaðarheimilinu að lokinni messu.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl.
11. Sr. Aldís Rut Gísladóttir þjónar, Magnús
Ragnarsson er organisti og Graduale Liberi kór
Langholtskirkju syngur undir stjórn Sunnu Kar-
enar Einarsdóttur. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimili að lokinni samveru.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Kór
Laugarneskirkju og Elísabet Þórðardóttir er
organisti. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir alt-
ari og prédikar. Sunnudagaskóli á meðan.
Kaffi og samvera í safnaðarheimlinu á eftir.
Betri stofan, Hátúni 12, kl. 13. Helgistund
með sr. Davíð Þór og Elísabetu organista.
1.10.: Kyrrðarbæn kl. 20. Kristin íhugun. Hús-
ið opnað kl. 19.40. Sr. Hjalti Jón Sverrisson
leiðir stundina.
3.10.: Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Hádeg-
isverður og opið hús Ás- og Laugarnessókna
strax á eftir.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn þjónar fyrir
altari. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðs-
sonar.
Sunnudagaskólinn er svo í Lágafellskirkju kl.
13. Um hann sjá Berglind æskulýðsfulltrúi,
Petrína og Þorvaldur Örn organisti.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Sr. Guðni Már Harðarson leiðir stundina
ásamt sunnudagaskólakennurunum. 6-9 ára
starf á sama tíma. Barn borið til skírnar í
sunnudagaskólanum. Guðsþjónusta kl. 20. El-
ísabet Ólafsdóttir söngkona syngur sálmaperl-
ur í bland við frumsamið efnið. Meðleikari
hennar er Hlynur Þór Agnarsson á flygil.
NESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Sr. Steinunn A. Björnsdóttir leiðir stundina
ásamt starfsfólki sunnudagaskólans og Ari
Agnarsson leikur undir. Hressing og samfélag
á torginu að lokinni guðsþjónustu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík |
Guðsþjónusta og altarisganga kl. 14. Sr. Bald-
ur Rafn Sigurðsson þjónar og kirkjukórinn leiðir
söng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar org-
anista. Meðhjálpari er Pétur Rúðrik Guðmunds-
son. Sunnudagaskóli kl. 11 í Njarðvíkurkirkju/
safnaðarheimili (Innri).
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.
Ræðumaður: Kristján Þór Sverrisson. Barna-
starf. Túlkað á ensku.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Óli og Jóhanna leiða stundina. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédik-
ar. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti: Tómas Guðni Eggertsson.
Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 15.30. Sr. Ólafur
Jóhann Borgþórsson prédikar og Tómas Guðni
spilar á píanóið.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Bjarni Þór Bjarna-
son, sóknarprestur, þjónar. Friðrik Vignir Stef-
ánsson er organisti. Sveinn Bjarki og leiðtogar
sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr Kamm-
erkór Seltjarnarneskirkju leiða almennan safn-
aðarsöng. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Sunnudagaskól-
inn á sínum stað kl. 11. Æðruleysismessa kl.
20. Guðrún Ásta Tryggvadóttir deilir reynslu.
Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir. Kór Seyð-
isfjarðarkirkju leiðir söng, organisti er Rusa
Petriashvili. Meðhjálpari er Jóhann Grétar Ein-
arsson.
Mánudagana 30. september og 7. október eru
kynningafundir á 12 spora starfi Vinir í bata í
Öldutúni kl. 19.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 11. Kirkjukór-
inn syngur undir stjórn Keiths Reed.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Henn-
ing Emil Magnússon prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt messuþjónum. Félagar í kór Vídal-
ínskirkju syngja og organisti er Jóhann
Baldvinsson. Sunnudagaskóli á sama tíma
undir forystu Matthildar Bjarnadóttur. Kaffi og
djús í safnaðarheimili að lokinni messu. Íhug-
unarguðsþjónusta kl. 20. Hljómsveitin ADHD
leikur og sr. Henning Emil Magnússon leiðir
guðsþjónustuna. Sjá gardasokn.is
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Tónlistar-
guðsþjónusta kl. 11. Ásbjörg Jónsdóttir tón-
skáld flytur eigin lög í bland við djassskotin
lög. Kaffihressing í safnaðarsal á eftir.
ORÐ DAGSINS:
Enginn kann tveimur
herrum að þjóna.
(Matt. 6)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Rangárvallasýsla Stóradalskirkja.
Flestum finnst okkur
mikil prýði að gróðri,
ekki síst trjám og
myndum vilja hafa mun
meiri skóga á Íslandi.
Auk fegurðar veita tré
og skógar gott skjól
fyrir köldum vindum
Norður-Atlantshafsins.
Ísland þyrfti að vera
mun gróðursælla bæði
láglendið og hálendið
sem er að mestu gróðursnauð eyði-
mörk.
Gróðurleysið orsakast í megin-
atriðum af hnattstöðu, tíðum eld-
gosum, ofbeit og slæmri umgengni
um landið í fortíð og nútíð.
Við breytum litlu um hnattstöðuna
og eldgosin en við getum stjórnað bú-
fjárbeit og umgengni. Það er í raun
fráleitt að lausaganga búfjár skuli
enn heimil, jafn skaðleg og hún er.
Svo er um 30% meira fé í landinu en
þörf er á fyrir innanlandsneyslu, sem
fer minnkandi.
Hér stangast á hagsmunir almenn-
ings og sérhagsmunir bænda. Þegar
svo háttar mætti ætla að hagsmunir
almennings væru í fyrirrúmi en svo
er aldeilis ekki. Svo furðulegt sem
það nú er þá verja margir, ekki síst
stjórnmálamennum landsbyggð-
arinnar sérhagsmuni hinna fáu á
kostnað hagsmuna hinna mörgu og
dreifðu. Hlutverk stjórnmálanna
hlýtur fyrst og fremst að vera að
gæta að langtímahagsmunum al-
mennings og landsins en því miður er
margt sem glepur.
Það er ekki nóg með að sauð-
fjárbændur fái nánast frítt spil með
að láta búpeninginn naga gróður í
landi nágranna, í úthaga og á hálendi,
heldur styrkjum við sauðfjárbúskap-
inn til þess og það mest af öllum
þjóðum heims.
Stuðningur og ávinningur
Skattgreiðendum er gert að styðja
landbúnaðinn beint um nálægt 15
ma. kr. á ári. Tollvernd landbúnaðar-
ins kostar neytendur líka um 25 ma.
kr. á ári. Þar af fer um helmingur til
bænda og restin til sláturhúsa og
vinnslustöðva, sem njóta í raun
verndar fyrir erlendri samkeppni.
Samtals eru þetta um 40 milljarðar
króna á ári og er þá ekki allt talið,
samanber beint og óbeint tjón sem
hlýst af gróðureyðingunni, mengun,
kostnað við mótaðgerðir og fleira.
Af styrkjum skattgreiðenda til
landbúnaðar fara um 5 ma. kr. til
sauðfjárbænda. Þeir eru flestir frí-
stundabændur í annarri vinnu, með
fáar rollur og minna en 50 bændur
munu hafa aðalatvinnu af sauð-
fjárbúskap.
Meðalsöluverð lambakjöts frá
bændum er um 500 kr./kg. Stuðn-
ingsgreiðslur skatt-
greiðenda bæta um 500
kr/kg við og því fá
bændur um 1.000 kr. á
kg af lambakjöti.
Um 30% af lamba-
kjötsframleiðslunnar
eru flutt úr landi. Því
má segja að skattgreið-
endur greiði um 1,5
ma.kr. á ári með út-
flutningnum (30% af 5
ma.kr.). Þetta auðvitað
gengur ekki. Til að
koma í veg fyrir þetta þarf að end-
urkrefja áður veittar stuðnings-
greiðslur af útfluttum afurðum.
Öllum þessum stuðningi er að
hluta til ætlað að halda byggð í horf-
inu. Þar með vinnur hann gegn eðli-
legri þróun í landinu og skaðar um-
hverfið á kostnað almennings og sá
kostnaður er gríðarlega mikill ef
grannt er skoðað.
Mótum nýja stefnu
Við þurfum að taka eðlilegri þróun
vel og hætta að streitast við að halda
úreltum atvinnuháttum á kostnað al-
mennings og umhverfisins. Hvað
sauðfjárræktina varðar þarf til dæm-
is að huga að eftirfarandi:
1. Hætta að borga með útflutningi
lambakjöts.
2. Banna lausagöngu búfjár.
3. Hætta að styðja frístundabænd-
ur, þá sem hafa aðaltekjur sínar af
annarri vinnu en landbúnaði.
Í reynd þarf að móta nýja land-
búnaðarstefnu fyrir Ísland. Sækja
má fyrirmyndir í nýlega landbún-
aðarstefnu Evrópu CAP – Sameig-
inlegu landbúnaðarstefnuna. Þeirri
stefnu er meðal annars lýst á vef-
svæðinu https://betrilandbunad-
ur.wordpress.com/ undir valinu Ný
landbúnaðarstefna.
CAP gengur í aðalatriðum út á að
styðja virka bændur sem starfa sam-
kvæmt viðurkenndum starfs-
aðferðum. Markaðsöflin komast að til
að bæta kjör bænda og stýra fram-
leiðslunni í það sem eftirspurn er eft-
ir. Stefnan nýtist einnig til að auka
dýra- og gróðurvelferð, fegra og
bæta umhverfið og landið okkar
allra.
Land og sauðir
Eftir Guðjón
Sigurbjartsson
»Um 30% af lamba-
kjötsframleiðslunni
eru flutt úr landi. Skatt-
greiðendur styðja þá
umhverfisskaðandi
starfsemi um 1,5 ma.kr.
á ári. Þetta er alger
tímaskekkja.
Guðjón Sigurbjartsson
Höfundar eru viðskiptafræðingur.
gudjonsigurbjartsson@gmail.com
Ég hlustaði á Útvarp Sögu þegar at-
kvæðagreiðsla Alþingis fór fram í
sambandi við afgreiðslu orkupakk-
ans og varð fyrir miklum von-
brigðum með alþingismenn, sem ég
hafði haft mætur á, sem svöruðu
með já-i. Mér datt í hug setning sem
var sögð eftir fjármálahrunið í Am-
eríku: Smart people can be dumb
(greint fólk getur verið heimskt).
Mér finnst Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson vera Jón Sigurðsson okkar
tíma.
Eldri borgari.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Hugleiðing um orkupakkann
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Þingmenn fylgjast með umræðum um þriðja orkupakkann.