Morgunblaðið - 28.09.2019, Side 45

Morgunblaðið - 28.09.2019, Side 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 Kolbeinn Örn, f. 1993, Birna Mar- grét, f. 1994, Bjarnhildur María, f. 1996 og Kristjana Rós, f. 1998; 2) Arndís, lögfræðingur, f. 4.7. 1972, búsett í Garðabæ. Börn hennar eru Thelma Rut Haukdal, f. 1992 (son- ur Thelmu er Magnús Kári, f. 2018), Hekla Rut Haukdal, f. 1997, Eyþór Haukdal, f. 2009, og Ernir Haukdal, f. 2010; 3) Karen Sif, tannsmiður, f. 12.3.1976, búsett í Mosfellsbæ. Synir hennar eru Dag- ur Steinn, f. 2003, Haukur Logi, f. 2007, Hilmar Örn, f. 2010. Sam- býlismaður Karenar er Sigurbjörn Einarsson viðskiptafræðingur, f. 9.10.1971, hans börn: Einar, f. 1997, d. 2018, Eggert, f. 2000, og Magn- ús, f. 2005; 4) Jón Ásgeir Haukdal verkfræðingur, f. 22.3. 1989, búsett- ur í Reykjavík; 5) Lísa Margrét Haukdal félagsráðgjafi, f. 2.7. 1990, búsett í Vestmannaeyjum. Sam- býlismaður hennar er Birkir Inga- son, f. 8.6.1988, og börn þeirra eru Selma Dís Haukdal, f. 2014, Sunna Karen Hakdal, f. 2015, og Ásgeir Ingi Haukdal, f. 2018. Systkini Kolbrúnar eru María Þorgerður, bókari og gjaldkeri, f, 31.3. 1948, búsett í Hafnarfirði; Sæ- rún hárskerameistari, f. 19.9. 1950, búsett í Reykjavík; Böðvar vél- stjóri, f. 14.2. 1953, búsettur á Hell- issandi; Anna, viðskiptastjóri eign- astýringar hjá Landsbankanum, f. 9.8. 1957, búsett í Kópavogi; Jóna Bjarnhildur húsmóðir, f. 4.8. 1958, búsett í Reykjavík; Þorgeir bif- reiðastjóri, f. 13.1.1960, búsettur í Noregi. Foreldrar Kolbrúnar voru Jón Haukdal Þorgeirsson vélstjóri, f. 14.8. 1923, d. 21.1. 2017, og María Guðrún Konráðsdóttir húsmóðir, f. 11.10. 1930, d. 9.8. 2003. Kolbrún Margrét Haukdal Jónsdóttir María Guðrún Konráðsdóttir húsmóðir og kaupmaður á Skagaströnd Jón Konráð Stefánsson Klemensson sjómaður á Skagaströnd Þórunn Björnsdóttir húsfreyja í Kurfi Klemens Ólafsson bóndi í Kurfi á Skagaströnd Ólöf Oddsdóttir húsfreyja á Hvítanesi Sigurður Stefánsson bóndi á Hvítanesi í Ísafjarðardjúpi Ólína Margrét Sigurðardóttir húsfreyja á Skagaströnd Sigurður Óli Sigurðsson bátsformaður á Tröð í Súðavík og víðar, eiginmaður Ingibjargar Sigurðardóttur skáldkonu Kristján Haukdal Þorgeirsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Skálatúns í Mosfellsbæ Guðbjörg Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja á Tjaldanesi Bjarni Bjarnason bóndi á Tjaldanesi í Arnarfi rði Bjarnhildur María Bjarnadóttir húsfreyja á Ísafi rði og í Reykjavík Þorgeir Einar Jónsson vélstjóri á Ísafi rði og í Reykjavík Guðfi nna Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja á Arnarnúpi Jón Þorgeirsson bóndi á Arnarnúpi í Dýrafi rði Úr frændgarði Kolbrúnar M. Haukdal Jónsdóttur Jón Haukdal Þorgeirsson vélstjóri á Skagaströnd „ÉG HELD AÐ ÉG SÉ BÚIN AÐ FINNA HINN BLÁA SOKKINN ÞINN.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að vilja vita hvers vegna hann elskar þig. SKEMMTILEG STAÐREYND … ÞAÐ MÁ FLOKKA KJÖTSÓSU SEM SVALADRYKK! SLURRRRRP ÉG KEYPTI FUGLAFÓÐRARA! NEI, ÞÚ KEYPTIR KATTAFÓÐRARA! „ÉG FRÉTTI AÐ RANNSÓKNARSTYRKURINN HEFÐI VERIÐ SKERTUR. ÞÝÐIR ÞAÐ AÐ ÞÚ VERÐIR AÐ SLEPPA MÉR?” Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Hjá bankastjóra hann stunda kann. Stóð ég oft á teignum við hann. Í brjósti mínu hann bifast fann. Blíðvindi megum kalla þann. Helgi R. Einarsson svarar: Um bankann, teiginn, brjóstið nú og blíðvind hugsa mátt. „Halldór Blöndal heldur þú að hér sé átt við slátt?“ Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Ég sló verðtryggt lán hjá slægum bankastjóra. Við slátt í teignum lúin nú hún stendur með hjartslátt, enda hætt að skokka í kóra, og hrífst af blíðum vindslætti um lendur. „Þá er það lausnin,“ segir Harpa á Hjarðarfelli: Við lánaslátt mér líkar verst. Lítill er engjasláttur. Hjartsláttur í brjósti berst. Í blænum seglasláttur. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Slátt í banka ég kræfur kann. Kappslátt á túni oft ég vann. Slátt mér í brjósti bifast fann. Blær er sláttur, sé vægur hann. Þá er limra: Það gerði í gærkveldi regn. Sem góður og virkur búþegn hann fór út að slá með sláttumanns ljá, en sló samt ekki í gegn. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Hellirignir hér og nú, haustlægðirnar geisa, þung mun ekki þrautin sú þessa gátu að leysa: Kalla góðan grip hann má. Gumar á sér bera. Hérað frítt og fagurt sá. Fundur mun og vera. Harpa á Hjarðarfelli benti mér á, að vitlaust væri farið með vísu Kristínar í Haukatungu í Vísna- horni fimmtudaginn í síðustu viku – einn staf vantaði og biðst ég vel- virðingar á því. Rétt er vísan svona: Lifað hef ég langa ævi laus við hroka í lítinn skaufa látin moka ég loftaði aldrei stórum poka. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það var oft sláttur á honum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.