Morgunblaðið - 28.09.2019, Síða 50

Morgunblaðið - 28.09.2019, Síða 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Stór yfirlitssýning á verkum Magn- úsar Pálssonar verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur, Hafnar- húsi, í dag, laugardag, klukkan 16. Sýningin ber heitið Eitthvað úr engu en þar er sjónum beint að efnislegri list Magnúsar. „Það mætti segja að þetta væri eins konar framhaldsverkefni hjá listasafninu. Árið 2013 var safnið með mikla sýningu á gjörningum Magnúsar sem eru stór hluti hans listsköpunar síðustu áratugi. Við varðveitum mikið heimildasafn um Magnús þar sem fólk getur grúsk- að í hans ævistarfi og við vildum halda áfram með þessa vinnu, að koma honum og verkum hans til skila á einhvern hátt. Á þessari sýningu erum við að einbeita okkur að myndheimi Magnúsar. Sem eru efnislegir hlutir, myndir, skúlptúr- ar, vídeóverk – svona safnaverk,“ segir Markús Þór Andrésson, ann- ar af tveimur sýningarstjórum sýn- ingarinnar Eitthvað úr engu. Ásamt honum fer Sigurður Trausti Traustason með sýningarstjórn. „Þannig gerum við grein fyrir 60 ára ferli sem hefst skömmu upp úr 1960 með fyrstu verkum Magnús- ar. Sýningin spannar allan tímann til dagsins í dag og öll þau ólíku tímabil sem hann hefur gengið í gegnum. Þar má greina íslenska listasögu í grunninn því Magnús kemur svo víða við og er svo mikill áhrifavaldur,“ segir Markús. Frá tungumáli í myndmál „Á sýningunni leggjum við áherslu á hlutina og myndirnar. Við drögum fram þekkta skúlptúra þar sem Magnús er að vinna með hið óefniskennda eins og tilfinn- ingar, hljóð eða einhvers konar óefnislega hluti. Þá eru skúlptúrar og myndir þar sem Magnús styðst við tungumálið, eins og orð í ljóð- um. Magnús er að leika sér að þessari tilfærslu frá tungumáli yfir í myndmál. Hann notar bæði form- ið á tungumálinu í myndverkum sínum en líka inntakið í sögnum og frásögnum.“ Einnig verða bókverkum Magn- úsar gerð sérstök skil á sýning- unni, að sögn Markúsar. Sýningunni er á vissan hátt deilt í tvennt eftir tveimur þrjátíu ára tímabilum ferils Magnúsar. Hún gefur þannig góða yfirsýn yfir verk Magnúsar. „Ég held að þarna birtist ótví- rætt einhver heildarsýn á verkin og þetta ævistarf og þá einkum á þann fjölbreytileika og þá hug- myndaauðgi sem Magnús býr yfir. Líka það hversu fær hann er í því að fara á milli listgreina og list- forma með hugmyndir sínar. Mað- ur sér sömu hugmyndirnar birtast þegar hann er að hanna leikmyndir fyrir leikhús og þegar hann er að gera innsetningar eða myndverk. Sýningin rennir styrkum stoðum undir þann hugmyndaheim sem hann byggir verk sín á,“ segir Markús. Magnús er tvíræður þegar hann ræðir um list sína, að sögn Mark- úsar. „Það skiptist á einhver innileg ást á þessum verkum hans en líka kæruleysi gagnvart þeim. Hann vill ekki gera of mikið úr þessu vegna þess að þarna eru oft á tíðum ein- hverjar hversdagslegar litlar hug- myndir sem hann hefur ýtt af stað og svo verður þetta að lykilverkum í listasögunni ef svo má segja.“ Markús segir heimildasafn um Magnús sem Listasafn Reykjavík- ur varðveiti sé einstakt fyrirbæri. „Það á vel við í tilviki Magnúsar vegna þess að hann skapar að miklu leyti óefniskennd verk, stað- eða tímabundin. Þá eru arkívin svo mikilvæg sem heimildir um verk sem eru kannski horfin eða þyrfti að endurgera.“ Titill sýningarinnar, Eitthvað úr engu, er tilvísun í Magnús sjálfan. „Hann er þarna að fjalla um verk, gifsstyttu af hundi sem smám sam- an brotnar upp í hey og verður hálfgerð hrúga en byggist síðan aftur upp og breytist í hund. Magnús talar um það að ef maður tekur einn hluta verksins út fyrir sviga og horfir til dæmis á haug af einhverju gifsdrasli og heyi þá er það ekki neitt en í samhenginu þá verður það að einhverju sem hefur gildi og merkingu.“ Það er einmitt þessi hugmynd sem Magnús byggir mörg verka sinna á, að sögn Markúsar. „Hann gerir eitthvað úr engu með því að vinna með fundna hluti, sagnir, hugmyndir og myndefni, skeyta það saman og setja það svo í samhengi listarinnar og þá verður það að einhverju, verður að sjálf- stæðu listaverki. Þetta er í raun saga myndlistarinnar alla tíð, að skapa eitthvað úr engu.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 60 ár Markús, Magnús og Sigurður í Hafnarhúsi. Á sýningunni verður farið yfir 60 ára listamannsferil Magnúsar. List sem verður til úr engu  Hið efnislega í list Magnúsar Pálssonar í forgrunni á nýrri sýningu  Sýn- ingin birtir heildarsýn á ævistarf og hugmyndaauðgi 60 ára ferils Magnúsar Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Í dag hefst ný 15.15 tónleikasyrpa Caput-hópsins í Breiðholtskirkju. Tónleikarnir nefnast Áskell Másson – portrett, enda verða þar flutt fjög- ur tónverk Áskels auk verks Jap- anska tónskáldsins Toru Takemitsu, „Quatrain II“. Áskell valdi verk Takemitsu til flutnings ásamt verkum sínum á þessum tónleikum en Takemitsu hefur haft áhrif á tónsmíðar Áskels í gegnum tíðina. Tónverk Áskels sem flutt verða á tónleikunum eru „5 Pieces“ fyrir trompet og básúnu, „Mirage“, eða „Tíbrá“ fyrir einleikshörpu, „Són- ata“ fyrir fiðlu og píanó og „Oktett“. Sá síðastnefndi verður frumflutt- ur á tónleikunum en hann er búinn að vera í smíðum um langa hríð og var fluttur sem septett árið 2005. Þrír ólíkir kaflar „Hann byrjaði sem septett og svo var hann eins og smá skissa sem lá óhreyfð í nokkur ár. Þetta endaði sem sagt sem oktett í þremur að- skildum köflum sem eru dálítið ólík- ir,“ segir Áskell. „Verkið byrjar á hröðum og kraft- miklum kafla sem er með mjög ein- falda aðal laglínu. Í kjölfarið kemur litríkur þáttur þar sem margar sjálf- stæðar raddir heyrast. Svo er þriðji þátturinn þéttur og síbreytilegur hljóðmassi sem ég eiginlega leysi upp smátt og smátt og verkinu lýkur á hljóðlátan hátt.“ Verkin eru frá ólíkum tímum og spanna alls 27 ára tímabil á ferli Ás- kels. Hann segir þau spegla bæði breidd og fjölbreytileika tónlistar sinnar. Verkalisti Áskels telur nú yfir 200 tónverk í nær öllum formum og gerðum. Caput-hópurinn samanstendur af fjölda tónlistarmanna en þegar mest lætur spila átta tónlistarmenn á þessum tónleikum. Hópurinn mun halda fleiri 15:15 tónleika í vetur en þeir verða allir, og þar á meðal tón- leikarnir með verkum Áskels, klukk- an 15.15 á laugardögum. Miða má nálgast við innganginn. Frumflytja oktett í Breiðholtskirkju Tónskáld Áskell Másson. Heimildarmynd- in The Seer & The Unseen verður frumsýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíð- inni í Reykjavík, RIFF, í Bíó Para- dís í dag kl. 16.45 og verður Sara Dosa, leikstjóri hennar, viðstödd sýninguna. Mynd- in er í tilkynningu sögð töfraraun- sæismynd sem fjalli um djúp tengsl við náttúruna með því að segja sögu Ragnhildar „Röggu“ Jónsdóttur, ömmu, náttúruverndarsinna og sjá- anda. Myndin er framleidd af ís- lenskum og bandarískum fyrirtækj- um og hlaut styrk frá Kvikmynda- miðstöð Íslands. Hún var heims- frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í San Francisco í apríl síðastliðnum og hlaut þar Golden Gate Award, McBaine Bay Area heimildar- myndaverðlaunin. The Seer & The Unseen á RIFF Sara Dosa Einar Kárason rithöfundur frumsýnir sýn- ingu sína Storm- fugla í Þjóðleik- húskjallaranum í kvöld kl. 19.30 og er sýningin á vegum Þjóðleik- hússins. Sýning- una byggir Ein- ar á samnefndri bók sinni sem kom út í fyrra. „Stormfuglar er áhrifamikil saga um örvæntingarfulla baráttu íslenskra sjómanna við miskunnar- laus náttúruöfl, á síðutogara sem lendir í aftakaveðri vestur undir Nýfundnalandi. Togarinn hleður á sig ísingu í nístandi frosti og ofsa- roki, og klakabrynjan er við það að sliga drekkhlaðið skipið. Frá mið- unum í kring berast neyðarköll annarra skipa sem eins er ástatt um. Baráttan er upp á líf og dauða,“ segir á vef leikhússins. Einar hefur komið fram í Land- námssetrinu og víðar sem sagna- maður. Einar frumsýnir Stormfugla Einar Kárason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.