Morgunblaðið - 28.09.2019, Side 51
MENNING
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Frændur okkar í Færeyjum standa
okkur nálægt, en samt finnst manni
eins og maður fái alltof sjaldan frétt-
ir þaðan. Önnur nágrannaþjóð er
enn nær okkur, landfræðilega, en
það er eins og fréttir frá Grænlandi
séu enn sjaldgæfari, og þá sérstak-
lega af menningarmálum. Almenn
vitneskja um slíka hluti og tíðari
samgangur landa á milli mætti vera
mun meiri.
Það er mikið stuð í Grænlandi
nú um stundir og viss vakning í
menningarlífinu sem og sjálfstæð-
ismálum. Hátíðin sem pistilritari er
svo heppinn að fá að sækja er ein af
afleiðingum þessa, vikulöng menn-
ingarhátíð sem snertir á alls kyns
geirum menningar og lista og hefur
það að markmiði að samþætta það
sem í gangi er að því leytinu til á
norðurslóðum. Hátíðin gengur út á
að má út mæri á milli listamanna og
áhorfenda, afþreyingar og listar,
listrýma og almenningsstaða.
Áhersla er lögð á að opna huga,
koma á samböndum og víkka út
sjóndeildarhringa. Hátíðin fer fram í
höfuðstað Grænlands, Nuuk; í bóka-
söfnum, heimilum, listrýmum, bíó-
sölum, íþróttahúsum, leikhúsum og
verksmiðjum. Dans, leikhús, gjörn-
ingar, tónlist, vinnusmiðjur og bók-
menntir; allt er undir og meira til.
Hátíðin er nútímaleg, hún hamrar
Norðlæg menningarveisla í Nuuk
Ljósmynd/Sara Ho
Fjölhæf Nive Nielsen með stúlknakór. Nielsen er frá Nuuk og margt til lista lag, bæði söngvaskáld og leikkona.
ekki eingöngu á ísjökum og húðkeip-
um og gengur út frá grunngildum er
snúa að a) norrænni samvinnu, b)
þátttökumenningu og c) samvinnu
og samsköpun.
Hraður vöxtur
Madelaine Goordon Graadahl,
verkefnastjóri hátíðarinnar, segir að
upprunalegur tilgangur hennar hafi
verið að færa norræn lönd nær hvert
öðru með því að flytja inn listamenn
þaðan til Nuuk. Þannig mætti koma
á sambandi þeirra á milli og sá fræj-
um fyrir sterkari, menningarlegri
tengslum en verið hafa. „Stefnan er
líka sú, að koma á umgengni lista-
manna og fólksins sem sækir hátíð-
ina, og reyna að rífa niður skil þar á
milli. Við trúum því að fólk á nor-
rænum slóðum deili fleiru en það
kannski gerir sér grein fyrir, og há-
tíðin reynir að opna á frekara sam-
band og hugmyndaflæði á milli.“
Graadahl segir hátíðina vissu-
lega unga, þetta sé í þriðja sinn sem
hún sé haldin. „Vöxturinn hefur ver-
ið ansi hraður,“ segir hún og maður
finnur fyrir stolti og jafnvel æsingi,
enda stutt í hátíðarhöldin. „Við erum
þegar komin með heilmikið af sam-
böndum um heim allan, við lista-
menn og aðrar hátíðir. Og erum enn
að finna taktinn mætti segja, hversu
stór og viðamikil hátíðin getur orðið
miðað við hvar hún er haldin.“
Allir með
Hátíðin, NNK2019 eins og hún
er skammstöfuð, leggur mikið upp
úr þátttöku „mannsins á götunni“,
að fá alla, hvort sem þeir eru form-
lega skilgreindir sem listamenn eða
ekki, til að vera með og leggja eitt-
hvað til. Samstarf, samvinna og
samhygð eru orð sem maður hefur
heyrt fleygt, þegar hátíðin kemur til
tals.
„Okkur langar til að hátíðin sé
galopin öllum,“ útskýrir Graadahl.
„Allir eru velkomnir, sama hvaða
menningu þeir tilheyra eða trú,
hversu gamlir þeir eru eða hvað þeir
hafa mikið á milli handanna. Og í
samræmi við þá áherslu erum við að
reyna að hafa eins fjölskrúðuga dag-
skrá og mögulegt er. Við leggjum
ríka áherslu á samstarfið og sam-
skipti. Að fólk tali saman, skapi sam-
an og hjálpist að. Okkur langar ekki
til að vera hátíð þar sem listamenn-
irnir fljúga hingað, framkvæma sitt,
og fara svo aftur til baka. Við viljum
koma á vettvangi þar sem lista-
mennirnir – og fólkið – geta verið í
meira sambandi. Ný sambönd og ný
list.“
Graadahl segir að grænlensk
menning sé ekki endilega sérstakur
áherslupunktur þó að hátíðin sé
haldin þar.
„Tja, landslagið hérna getur
reyndar ekki annað en spilað vissa
rullu. Við viljum líta svo á að þessa
viku muni hjarta norrænnar sam-
vinnu slá af krafti í Nuuk og það er
vonandi að hjartslátturinn nái út
fyrir svæðið í framhaldinu.“
Hátíðin stendur frá 7.-13. októ-
ber eins og áður segir og nánari
upplýsinga er auðveldlega hægt að
afla fyrir tilstilli veraldarvefsins.
» Allir eru velkomn-ir, sama hvaða
menningu þeir tilheyra
eða trú, hversu gamlir
þeir eru eða hvað
þeir hafa mikið á
milli handanna.
Listahátíðin Nuuk Nordic Culture Festival er
tvíæringur sem ýtt var úr vör í fyrsta skipti árið
2015. Nú, í þriðja sinn, verður heil vika undirlögð
af alls kyns menningaruppákomum. Hátíðin
hefst 7. október og mun greinarhöfundur
sækja hátíðina og greina frá því helsta.
Stýrir Madelaine Goordon Graa-
dahl, verkefnastjóri hátíðarinnar.
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2019
Renndu við
hjá okkur í
Tangarhöfða 13
FAI varahlutir
Ódýrari kostur í varahlutum!
stýrishlutir
hafa verið leiðandi
í yfir 10 ár.
Framleiddir undir
ströngu eftirliti
til samræmis
við OE gæði.
TANGARHÖFÐA 13
577 1313 - kistufell.com
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
Jeremy Denk, einn fremsti píanó-
leikari Bandaríkjanna, heldur tón-
leika í Norðurljósasal Hörpu ann-
að kvöld, sunnudag, kl. 20. Verða
það fyrstu tónleikar hans hér á
landi. Denk kemur til landsins á
vegum Evrópusambands píanó-
kennara á Íslandi (EPTA) sem
fagnar 40 ára afmæli í ár. Denk
mun leika verk eftir J.S. Bach, Gy-
örgy Ligeti, Franz Liszt, Alban
Berg og Robert Schumann. Sam-
hliða tónleikunum verður hann
með masterclass-námskeið á
mánudaginn, 30. september, kl.
11-13 í sal Tón-
listarskóla
Garðabæjar í
Kirkjulundi fyrir
lengra komna
nemendur og er
aðgangur að því
ókeypis.
Denk hefur
hlotið MacArth-
ur Genius við-
urkenninguna og Avery Fisher
verðlaunin fyrir píanóleik sinn og
kemur hann reglulega fram í hinu
virta tónlistarhúsi Carnegie Hall í
New York. Hann leikur reglulega
með fiðluleikaranum Joshua Bell
sem heldur brátt tónleika hér á
landi, svo fátt eitt sé nefnt af
glæstri ferilskrá Denk.
Jeremy Denk í
Norðurljósum
Jeremy Denk
Tveir píanókvintettar, eftir þá
Johannes Brahms og Sergei Ta-
neyev, verða fluttir á tónleikum
Kammermúsíkklúbbsins í Norður-
ljósasal Hörpu á morgun kl. 16.
Eru það fyrstu tónleikarnir í sex
tónleika röð sem klúbburinn
stendur fyrir á starfsárinu 2019-
20.
Trio Nordica leikur ásamt
tveimur gestum á tónleikunum en
tríóið er skipað Auði Hafsteins-
dóttur fiðluleikara, Bryndísi Höllu
Gylfadóttur sellóleikara og Monu
Kontra sem er þekktur píanóleik-
ari frá Svíþjóð. Gestirnir tveir eru
Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðlu-
leikari og Þórunn Ósk Marinós-
dóttir víóluleikari.
Tónleikarnir á morgun hefjast á
píanókvintetti Johannesar Brahms
í f-moll op. 34 og segir um verkið
að það hafi velkst lengi í smiðju
tónskáldsins sem hafi skrifað það
upphaflega sem strengjakvintett
en svo umbreytt því í sónötu fyrir
tvö píanó áður en hann fann því
endanlegt form. „Þrátt fyrir
flókna tilurðarsögu telja margir
píanókvintettinn vera krúnudjásn-
ið meðal kammerverka Brahms,“
segir um verkið.
Seinna verkið er ekki síðra, pí-
anókvintett Sergeis Taneyev sem
fluttur var í fyrsta sinn á Íslandi á
tónleikum Kammermúsíkklúbbsins
fyrir 12 árum. Taneyev, ann naut
á sínum tíma virðingar sem tón-
smíðakennari og tónskáld í heima-
landi sínu og meðal nemenda hans
voru Rachmaninoff, Scriabin og
Prokofiev. Píanókvintettinn op. 30,
saminn á árunum 1910-11, tekur
um 45 mínútur í flutningi og er
því engin smásmíði.
Tónlistarveisla á sunnudögum
Tónleikar Kammermúsíkklúbbs-
ins í vetur verða sex talsins og
alltaf í Norðurljósum í Hörpu á
sunnudögum kl. 16. „Flutt verða
þekkt verk eftir tónskáld á borð
við Beethoven, Brahms og Mozart,
en einnig sjaldheyrð og forvitnileg
verk eftir tónskáld sem gaman er
að kynnast betur,“ segir um tón-
leikaröðina í tilkynningu. Á öðrum
tónleikum vetrarins, 20. október,
verða flutt verk eftir Mozart og
Schumann og á þeim þriðju klar-
inettutríó eftir Louise Farrenc og
Brahms og einnig söngverk Schu-
berts, „Der Hirt auf dem Felsen“.
19. janúar verða flutt verk eftir
Kodály og Rachmaninoff og vetr-
arstarfinu lýkur svo með tvennum
tónleikum 8. og 15. mars. Á þeim
fyrri flytur Strokkvartettinn Siggi
tvo strengjakvartetta eftir
Beethoven og frumflytur tvö verk.
Á síðustu tónleikum vetrarins
verða svo fluttir píanókvintettar
eftir Mieczyslav Weinberg og
Shostakovich.
Fimm Trio Nordica er skipað Auði Hafsteinsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur og Monu Kontra. Gestir tríósins á tónleikunum á morgun í Norður-
ljósum verða Helga Þóra Björgvinsdóttir og Þórunn Ósk Marinósdóttir.
Tónleikaröð KMK hefst
með tveimur kvintettum
Trio Nordica leikur í Norðurljósasal Hörpu á morgun