Morgunblaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019 www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi HITABLÁSARAR ertu tilbúin í veturinn? Þegar aðeins það besta kemur til greina Karlmaður á sextugsaldri var dæmd- ur í sjö ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot gegn barnungum syni sínum. Brotin framdi maðurinn á árunum 1996 til 2003 þegar sonur hans var fjögurra til ellefu ára. Refsingin er í samræmi við kröfur ákæruvaldsins, sem fór ekki fram á hámarksrefsingu og mun ekki áfrýja niðurstöðunni. Brotin voru alvarleg og beindust að mikilsverðum hagsmunum segir í dóminum. „Beitti hann barnungan son sinn kynferðislegu ofbeldi árum saman. Voru brotin framin í skjóli trúnaðartrausts sem ríkti á milli ákærða og brotaþola. Á ákærði sér engar málsbætur,“ sagði þar. Ákæra á hendur manninum var gef- in út í maí á þessu ári eftir að sonur hans kom á lögreglustöð í október fyr- ir tveimur árum og lagði fram kæru á hendur föður sínum. Í ákærunni segir að maðurinn hafi nauðgað syni sínum og brotið gegn honum með öðrum hætti á átta ára tímabili þegar sonurinn var fjögurra til ellefu ára. Faðirinn hafi nýtt sér yfirburði sína gagnvart drengnum og að brotin hafi hafist skömmu eftir að faðirinn og móðir drengsins slitu sam- vistum. Auk kynferðisofbeldis hafi drengur- inn sætt hótunum af hendi föður síns, meðal annars með hnífi, í því skyni að koma í veg fyrir að ofbeldið kæmist upp. Þá hafi drengnum verið hótað líf- láti og hann lokaður inni í herbergi eft- ir að brotin áttu sér stað. Brotin áttu sér meðal annars stað þegar drengurinn var í baði og er hann enn þann dag í dag hræddur við að fara í baðkar. Þá glímir hann við inni- lokunarkennd og hræðslu við að nota hnífa. Hann er öryrki í dag vegna of- beldisins sem hann varð fyrir sem barn. Faðirinn neitaði sök fyrir dómi og krafðist sýknu. Í dómsniðurstöðunni segir að framburður drengsins fyrir dómi hafi verið nokkurn veginn á sama veg og þegar hann gaf skýrslu hjá lög- reglu. Hann hafi auk þess verið ein- lægur og trúverðugur í frásögn sinni. Barnalæknir gaf skýrslu fyrir dómi og taldi enga ástæðu til þess að efast um minningar hans. Framburður föður hans var aftur á móti talinn ótrúverðugur auk þess sem hann stangaðist á við framburð vitna. Hann var ekki talinn eiga sér neinar málsbætur og var hæfileg refsing talin vera sjö ára fangelsi. Nauðgaði syni sínum ítrekað  Sjö ára fangelsi fyrir alvarleg brot gegn barnungum syni Morgunsólin lék við börn úr leikskólanum Króga- bóli á Akureyri þegar þau fengu sér göngutúr í gær og komu við á leikvelli í grenndinni. Rólan er alltaf eftirsótt og vegasaltið einnig. Eins og sjá má hefur haustið tekið yfir í trjánum og öðrum gróðri, enda rúm vika liðin af október. Samkvæmt veðurspám fer heldur að kólna norðanlands og hætt við að gráni í fjöll. Því er um að gera að nýta góða veðrið á meðan það gefst. Rólað á móti sól í haustblíðunni Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Leikskólabörn á Akureyri böðuðu sig í morgunsólinni í gær Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Fjölmargar athugasemdir bárust við lýsingu skipulagsáforma á jörðunum Leyni 2 og 3 í Landsveit. Eigendur jarðanna hafa fengið heimild sveitar- stjórnar til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir svæðið og áforma mikla uppbyggingu tengda ferða- mennsku. Frestur til að gera athuga- semdir við lýsingu skipulagsáforma rann út í síðustu viku og athugasemd- ir voru lagðar fram á fundi skipulags- og umferðarnefndar Rangárþings ytra á mánudag. Í fundargerð nefndarinnar er rakið að athugasemdir hafi borist frá eig- endum í landi Efra-Sels þar sem lýst er áhyggjum af mengunarmálum vegna umræddrar uppbyggingar. Eigendur og ábúendur á Stóra-Klofa, en Leynir 2 og 3 tilheyrðu áður þeirri jörð, gera athugasemdir við að svo stór áform geti haft alvarlegar afleið- ingar fyrir grunnvatnslindir svæðis- ins ásamt því að kyrrð og friðsæld spillist. Eigandi og ábúandi á Skarði kvartar yfir því að umrætt landsvæði verði tekið úr landbúnaðarnotum, frá Klofahólum er þess krafist að gerð verði grein fyrir á hvaða leyfum út- leiga á hjólhýsum og framkvæmdir á svæðinu byggist. Heimir Heimisson á Klofahólum gerir einnig fjölþættar athugasemdir við umfang áformanna, staðsetningu þeirra og lýsir yfir áhyggjum af mengunarmálum fyrir hönd land- og sumarhúsaeigenda í Landsveit. Einnig bárust umsagnir frá Um- hverfisstofnun, Vegagerðinni, Minja- stofnun, Skipulagsstofnun og Heil- brigðiseftirliti Suðurlands en þar kemur fram að í núgildandi starfsleyfi fyrir tjaldsvæði á svæðinu sé ekki heimild til útleigu hjólhýsa eða tjalda. Í umfjöllun nefndarinnar segir að rétt sé að vinna við gerð tillögu að deiliskipulagi taki mið af framkomn- um athugasemdum og ábendingum, sér í lagi hvað varðar fráveitumál og mengunarvarnir. Morgunblaðið hef- ur undanfarna tvo daga reynt að ná tali af Haraldi Birgi Haraldssyni skipulagsfulltrúa og Björk Grétars- dóttur, oddvita sveitarfélagsins, en án árangurs. Lýsa áhyggjum af mengunarvörnum  Hagsmunaaðilar uggandi yfir upp- byggingu ferðaþjónustu á Leyni Leynir Stórtæk uppbygging ferðaþjónustu leggst ekki vel í hagsmunaaðila. Tveir karlar og ein kona voru í gær dæmd til skilorðsbundinnar fangels- isvistar fyrir ræktun kannabiss og vörslu marijúana í Þykkvabæ sem ætlað var til sölu og dreifingar. Mál- ið var upprunalega hluti af stærra máli sem snýr að kannabisræktun og amfetamínframleiðslu í sumar- húsi í Borgarfirði. Í því máli voru alls sex ákærðir en málin voru að- skilin eftir að þremenningarnir ját- uðu að hafa staðið að kannabisrækt- uninni í Þykkvabæ. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi konuna og annan manninn í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi en hinn maðurinn fékk tíu mánaða skilorðsbundinn dóm. Öll voru þau sakfelld fyrir að hafa haft í vörslu sinni 206 kannabisplöntur, 111,5 grömm af kannabisstönglum og 823 grömm af marijúana. Plönturnar og efnin voru gerð upptæk ásamt bún- aði sem notaður var til ræktunar- innar, m.a. 68 gróðurhúsalömpum, 44 viftum, átta vatnshitablásurum, fjórum rafmagnstöflum og tveimur gróðurtölvum. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Kannabisplöntur Ræktunin var umfangsmikil og vel skipulögð. Skilorð vegna ræktunar  206 kannabis- plöntur fundust

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.