Morgunblaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019
Rafmagnsbrýni
9.610 kr.
JIFF-S hnífa- og skærabrýni
1.995 kr.
TriHone
þriggja steina brýni
6.920 kr.
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Ný sending af vönduðum brýnum
frá Smith‘s - Mikið úrval
Kitc
dem
fyrir
3.980 kr.
hen 2 stiga
antsbrýni
hnífa og skæri
Demantsstál
5.980 kr.
CCKS einfalt brýni, gróft,
fínt 995 kr.
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Rafmagnsbrýni
7.350 kr.
Ný
vefverslunbrynja.is
Arkansas brýni
2.390 kr.
EM 2021
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Hver veit nema mark Margrétar
Láru Viðarsdóttur, á fimmtu mínútu
uppbótartíma, í 6:0-sigrinum á Lett-
landi í gær skili Íslandi á EM í Eng-
landi 2021? Það er ómögulegt að
segja til um það núna en hvert mark
gæti reynst dýrmætt í snúinni bar-
áttu um að komast á fjórða Evrópu-
mótið í röð.
Íslenska liðið sýndi fagmannleg
vinnubrögð við óboðlegar aðstæður í
Lettlandi í gær, þar sem blautur,
þungur og mjög skemmdur völlur
kom í veg fyrir að boltinn færi hratt
á milli leikmanna, og vítateigarnir
breyttust í drullusvað. Stelpurnar
okkar notuðu höfuðið, bókstaflega,
því ekki stoppar boltinn í loftinu þótt
völlurinn sé slæmur, og skoruðu tvö
skallamörk og eitt beint úr horn-
spyrnu til að komast í 3:0 í fyrri hálf-
leik. Mörkin hefðu getað orðið fleiri
en 6:0-sigur er góð niðurstaða á velli
þar sem Svíar unnu til að mynda 4:1-
sigur fyrr í haust.
Svíþjóð og Ísland eru nú bæði með
fullt hús stiga í F-riðli eftir 3 um-
ferðir af 8, en Svíar með 5 mörkum
betri markatölu. Ef fram heldur sem
horfir leika liðin tvo úrslitaleiki um
efsta sæti riðilsins næsta sumar.
Liðið sem nær efsta sæti fer beint á
EM en þrjú lið með bestan árangur í
2. sæti í undanriðlunum níu komast
einnig á mótið (hin sex fara í umspil
um þrjú sæti). Tapi Ísland barátt-
unni við Svía, eins og væri svo sem
eðlilegt, gæti því skipt sköpum að
hafa unnið sigra í öllum hinum leikj-
unum í riðlunum, og skorað mörg
mörk, til að hafa betur í samanburði
við lið í 2. sæti úr öðrum riðlum.
Ísland virðist á réttri leið undir
stjórn Jóns Þórs Haukssonar, þó að
erfitt sé að meta stöðuna út frá eins
veikum andstæðingi og í gær.
Þjálfarinn og leikmenn eru vel með-
vitaðir um að ekki má slaka á eina
einustu mínútu í undankeppninni, og
þess vegna er ekkert undarlegt við
að Jón Þór skyldi láta í sér heyra á
hliðarlínunni í gær vegna kolrangs
dóms undir lok leiks, í stöðunni 5:0.
Hvert smáatriði getur skipt máli en
dómarinn rak Jón Þór upp í stúku.
Flott frumraun Alexöndru
Alexandra Jóhannsdóttir leit vel
út í fyrsta mótsleik sínum, var ógn-
andi fram á við og skoraði fyrsta
landsliðsmark sitt, og Hlín Eiríks-
dóttir hefur komið öflug inn á hægri
kantinn í haust. Það hvernig þessir
ungu leikmenn hafa stimplað sig inn
eykur á vonir um að Ísland komist
aftur á EM og geti jafnvel teflt þar
fram sterkara liði en áður. Standi
Alexandra sig áfram vel á miðjunni
gæti Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
tekið að sér stöðu hægri bakvarðar,
hálfgerða vandræðastöðu liðsins,
sem hún leysti frábærlega í gær.
Keppnisárinu er nú lokið hjá ís-
lenska liðinu, sem tekur upp þráðinn
í undankeppninni 10. og 14. apríl
þegar það leikur snúna leiki við
Ungverjaland og Slóvakíu á úti-
völlum. Þar má liðið ekki frekar en í
haust misstíga sig, og vonandi kem-
ur þá ekki að sök að að óbreyttu mun
þá meirihluti landsliðsins hafa beðið
í rúmlega hálft ár frá síðasta leik
með félagsliði, vegna þess að meiri-
hluti leikmanna er hjá íslenskum
félagsliðum.
Mikilvæg
markasúpa úr
drullupollinum
Ísland sýndi mikla fagmennsku
við óboðlegar aðstæður í Lettlandi
Morgunblaðið/Eggert
Tvenna Fanndís Friðriksdóttir, hér á iðagrænum Laugardalsvelli, skoraði
tvö mörk í fyrri hálfleik fyrir Ísland í stórsigrinum í Lettlandi í gærkvöld.
0:1 Fanndís Friðriksdóttir 17.
0:2 Dagný Brynjarsdóttir 29.
0:3 Fanndís Friðriksdóttir 45.
0:4 Elín Metta Jensen 49.
0:5 Alexandra Jóhannsdóttir 82.
0:6 Margrét Lára Viðarsdóttir 90.
I Gul spjöldSandra Voitane, Karlina Mik-
sone, Anna Krumina (Lettlandi)
Lettland: (4-3-3) Ibragimova – Son-
dore (Tumane 45), Matisa, Valaka
(Treimane 86), Krumina – Voitane,
Rocane, Spruntule – Sevcova,
LETTLAND – ÍSLAND 0:6
Girzda, Miksone.
Ísland: (4-5-1) Mark: Sandra Sig-
urðardóttir. Vörn: Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir, Sif Atladóttir, Glódís
Perla Viggósdóttir, Hallbera Guðný
Gísladóttir. Miðja: Hlín Eiríksdóttir
(Margrét Lára Viðarsdóttir 69),
Dagný Brynjarsdóttir (Rakel Hönnu-
dóttir 68), Sara Björk Gunnarsdóttir,
Alexandra Jóhannsdóttir, Fanndís
Friðriksdóttir. Sókn: Elín Metta Jen-
sen (Berglind B. Þorvaldsdóttir 74).
Dómari: Vivian Peeters, Hollandi.
Áhorfendur: Um 100.
„Við vissum að þetta yrði erfiður
leikur því þær þétta vörnina vel.
Aðstæður voru mjög erfiðar og ég
er mjög ánægð með frammistöðu
okkar,“ sagði Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir, sem lagði upp fyrsta og
síðasta mark Íslands í 6:0-sigrinum
á Lettlandi ytra í gærkvöld.
Gunný lék sem hægri bakvörður í
leiknum og átti frábæra fyrirgjöf á
Fanndísi Friðriksdóttur í fyrsta
marki Íslands, afar mikilvægu
marki upp á gang leiksins að gera:
„Ég hef spilað tvo leiki sem
hægri bakvörður í Bandaríkjunum,
vegna þess að það vantaði leikmann
í þá stöðu, og ég tek bara því hlut-
verki sem þjálfarinn gefur mér.
Mér fannst gaman að spila sem bak-
vörður í þessum leik, ég vissi að við
myndum þurfa að gefa mikið af
fyrirgjöfum og að ég yrði því mikið
í boltanum, en ég tek bara því hlut-
verki sem mér er gefið í hverjum
leik,“ sagði Gunný, sem spilar með
Utah Royals í Bandaríkjunum.
„Við vissum að þær hefðu skorað
fyrsta markið í báðum fyrstu leikj-
um sínum, og það var ákveðinn létt-
ir að skora fyrsta markið. Ekki síð-
ur af því að völlurinn var varla
boðlegur. En við einbeittum okkur
bara að okkar leik og nýttum okkur
að þær opnuðu sig undir lokin.
Markatalan telur mikið í þessari
keppni og við vitum að það er mikil-
vægt að skora mörk, en við vissum
líka að við þyrftum að vera þolin-
móðar og spila bara okkar leik. Við
getum farið mjög sáttar frá þessum
leik,“ sagði Gunný, sem ítrekaði að-
spurð að aðstæður hefðu verið
hræðilegar: „Þetta á ekki að sjást,
en við látum þetta ekki pirra okkur
og það sýnir líka hversu frábært
þetta lið er,“ segir Gunný.
sindris@mbl.is
Förum mjög sáttar
frá þessum leik
Morgunblaðið/Hari
Sterk Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
átti mjög góðan leik í gærkvöld.
HANDBOLTI
Olísdeild karla
Fjölnir – Fram...................................... 25:29
Staðan:
ÍR 5 5 0 0 160:133 10
ÍBV 4 4 0 0 107:94 8
Haukar 4 4 0 0 101:89 8
Afturelding 5 4 0 1 133:122 8
Selfoss 4 2 1 1 116:117 5
KA 5 2 0 3 137:136 4
FH 4 2 0 2 103:102 4
Valur 5 1 1 3 120:120 3
Fjölnir 5 1 1 3 127:143 3
Fram 5 1 0 4 111:121 2
Stjarnan 5 0 1 4 117:139 1
HK 5 0 0 5 123:139 0
Grill 66 deild kvenna
Fjölnir – ÍBV U .................................... 25:31
Staðan:
Fram U 3 3 0 0 99:71 6
ÍR 3 3 0 0 84:67 6
Selfoss 3 3 0 0 73:57 6
FH 3 2 0 1 83:77 4
HK U 3 2 0 1 75:73 4
Grótta 3 2 0 1 75:75 4
ÍBV U 3 2 0 1 79:81 4
Fylkir 3 1 0 2 58:65 2
Valur U 3 0 0 3 66:76 0
Fjölnir 3 0 0 3 69:82 0
Stjarnan U 3 0 0 3 72:90 0
Víkingur 3 0 0 3 71:90 0
Spánn
Guadalajara – Barcelona.................... 26:39
Aron Pálmarsson var ekki í leikmanna-
hópi Barcelona.
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Selfoss...........18:30
Ásvellir: Haukar – FH...............................20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Haukar – Keflavík.................................18:30
Skallagrímur – Grindavík.....................19:15
Valur – Snæfell ......................................19:15
Breiðablik – KR.....................................19:15
Í KVÖLD!
Halldór Árnason verður áfram að-
stoðarmaður Óskars Hrafns Þor-
valdssonar á næstu leiktíð, en eftir
að hafa stýrt Gróttu upp í úrvals-
deild karla í fótbolta eru þeir teknir
við liði Breiðabliks.
Halldór er með UEFA A gráðu í
knattspyrnuþjálfun og var, auk
þess að aðstoða Óskar, yfirþjálfari
yngri flokka Gróttu.
Halldór fylgir
Óskari eftir