Morgunblaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Gómsætir og girnilegir réttir
í fiskborði beint í ofninn
Þorskhnakkar
Glæný lúða
Klausturbleikja
Glæný línuýsa
Nýlöguð
humarsúpa
Undankeppni EM kvenna
F-RIÐILL:
Svíþjóð – Slóvakía ...................................... 7:0
Kosovare Asllani 26., Lina Hurtig 30., Linda
Sembrant 35., Nathalie Björn 60., Stina
Blackstenius 65., 68., Fridolina Rolfö 90.
Lettland – Ísland ........................................ 0:6
Fanndís Friðriksdóttir 17., 45., Dagný
Brynjarsdóttir 29., Elín Metta Jensen 49.,
Alexandra Jóhannsdóttir 85., Margrét Lára
Viðarsdóttir 90.
Staðan:
Svíþjóð 3 3 0 0 16:1 9
Ísland 3 3 0 0 11:1 9
Slóvakía 3 1 0 2 2:9 3
Ungverjaland 2 0 0 2 1:9 0
Lettland 3 0 0 3 2:12 0
Allir fimm leikir Íslands sem eftir eru fara
fram á árinu 2020.
A-RIÐILL:
Tyrkland – Slóvenía .................................... 1:6
Eistland – Kósóvó ....................................... 1:2
Holland – Rússland..................................... 2:0
Holland 12, Slóvenía 6, Rússland 6, Kó-
sóvó 6, Tyrkland 1, Eistland 1.
B-RIÐILL:
Ítalía – Bosnía.............................................. 2:0
Georgía – Danmörk .................................... 0:2
Danmörk 12, Ítalía 12, Bosnía 6, Ísrael 0,
Georgía 0, Malta 0.
C-RIÐILL:
Hvíta-Rússland – Wales............................. 0:1
Færeyjar – Noregur................................. 0:13
Noregur 9, Wales 7, Hvíta-Rússland 3,
Norður-Írland 1, Færeyjar 0.
D-RIÐILL:
Tékkland – Spánn ....................................... 1:5
Spánn 6, Tékkland 3, Pólland 0, Aserbaíd-
sjan 0, Moldóva 0.
E-RIÐILL:
Finnland – Albanía...................................... 8:1
Finnland 6, Skotland 3, Portúgal 3, Kýpur
0, Albanía 0.
G-RIÐILL:
Kasakstan – Frakkland.............................. 0:3
Serbía – Austurríki ..................................... 0:1
Serbía 6, Austurríki 6, Frakkland 3, Norð-
ur-Makedónía 3, Kasakstan 0.
H-RIÐILL:
Rúmenía – Belgía ........................................ 0:1
Sviss – Króatía............................................. 2:0
Sviss 9, Belgía 6, Króatía 3, Rúmenía 0,
Litháen 0.
I-RIÐILL:
Grikkland – Þýskaland............................... 0:5
Írland – Úkraína.......................................... 3:2
Þýskaland 12, Írland 6, Grikkland 0,
Svartfjallaland 0, Úkraína 0.
EM U19 kvenna
Undanriðill í Reykjavík:
Ísland – Spánn............................................. 0:3
Paula Gutiérrez 43., Leire Pena 64.
Eva Navarro 90.
Grikkland – Kasakstan............................... 8:0
Lokastaðan:
Spánn 3 3 0 0 22:0 9
Ísland 3 2 0 1 13:3 6
Grikkland 3 1 0 2 8:11 3
Kasakstan 3 0 0 3 0:29 0
Spánn og Ísland fara áfram í milliriðla
keppninnar.
KNATTSPYRNA
Framarar náðu í fyrstu stig sín á
leiktíðinni í Olísdeild karla í hand-
bolta í gærkvöld þegar þeir unnu
Fjölni í spennandi leik í Grafarvogi,
29:25. Fjölnismenn komust í 25:24
þegar sex mínútur voru eftir af
leiknum en gestirnir, með Lárus
Helga Ólafsson vel vakandi í mark-
inu, fengu ekki á sig mark eftir það
og fögnuðu langþráðum sigri.
Fimm stigum hefði munað á lið-
unum með sigri Fjölnis í gær en
þess í stað er munurinn aðeins eitt
stig – Fjölnir í 9. sæti og Fram í því
tíunda, fyrir ofan Stjörnuna og HK.
Þorgrímur Smári Ólafsson var
markahæstur Framara í gær með 9
mörk og var sérstaklega öflugur á
lokamínútunum, þegar hann skoraði
tvö af síðustu fjórum mörkunum og
lagði upp eitt með frábærri stoð-
sendingu. Matthías Daðason var
næstmarkahæstur með 5 mörk. Hjá
Fjölni dró Breki Dagsson vagninn
með 7 mörk. Fimmtu umferð lýkur í
kvöld með tveimur leikjum.
Þungu
fargi létt
af Fram
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikilvægur Þorgrímur Smári Ólafsson reið baggamuninn fyrir Fram í sigrinum á Fjölni í Grafarvogi í gærkvöld.
Ísland tapaði 3:0 fyrir Spáni í leikn-
um um efsta sæti undanriðils liðanna
fyrir EM U19-landsliða kvenna í fót-
bolta á Hlíðarenda í gær. Tapið
breytir því ekki að bæði lið fara í
milliriðla keppninnar sem leikið
verður í næsta vor, en dregið verður
í þá riðla í höfuðstöðvum UEFA í
Sviss 22. nóvember.
Spánn komst yfir undir lok fyrri
hálfleiks á Hlíðarenda í gær og jók
forskotið um miðjan seinni hálfleik.
Þriðja markið skoraði spænska liðið
svo í uppbótartíma.
Ísland hafði áður unnið stórsigra á
Grikklandi, sem varð í 3. sæti riðils-
ins, og Kasakastan, en allir leikir
riðilsins fóru fram hér á landi.
Sveindís Jane Jónsdóttir var marka-
hæst Íslands á mótinu með 3 mörk.
Morgunblaðið/Eggert
Áfram gakk Arna Eiríksdóttir og stöllur hennar í íslenska landsliðinu leika
í milliriðli á næsta ári en dregið verður í riðla í næsta mánuði.
Samferða Spáni
sem vann riðilinn
Aron Einar Gunnarsson landsliðs-
fyrirliði í knattspyrnu gekkst undir
aðgerð á Aspetar-sjúkrahúsinu í
Katar í gær en Aron varð fyrir því
óláni að slíta liðband í ökkla í leik
með Al Arabi um síðustu helgi.
„Þessi litla aðgerð gekk vel. Ég
get ekki beðið eftir að byrja að
leggja hart að mér til að koma
sterkur til baka. Takk fyrir allar
kveðjurnar,“ skrifaði Aron á insta-
gram-síðu sína þar sem hann liggur
á sjúkrahúsinu en ljóst er að hann
verður frá keppni næstu vikur eða
mánuði.
Á twitter-síðu Al Arabi er mynd
af liðsfélögum Arons í heimsókn
hjá honum á sjúkrahúsinu en lands-
liðsfyrirliðinn hefur byrjað ferilinn
vel hjá Al Arabi og hefur skorað tvö
mörk í fimm leikjum liðsins í deild-
inni. Liðið er ósigrað í öðru sæti.
Aron Einar
fór í aðgerð á
ökkla í gær
Katar Aron Einar Gunnarsson á
sjúkrabeð eftir aðgerðina í gær.
Kylian Mbappé, einn besti knatt-
spyrnumaður heims, verður ekki
með heimsmeisturum Frakka þeg-
ar þeir sækja Ísland heim í undan-
keppni EM í fótbolta á föstudag.
Á sama tíma fyrir ári var
Mbappé rjúkandi heitur eftir frá-
bært HM og skoraði til að mynda
fernu á 13 mínútum í sigri á Lyon
með liði sínu PSG. Á þessari leik-
tíð hafa meiðsli í læri hins vegar
plagað hann og því var sú ákvörð-
un tekin, eftir að hann hafði komið
til móts við franska hópinn á
mánudag, að hann spilaði ekki
gegn Íslandi og Tyrklandi næsta
mánudag. Alassane Pléa, leik-
maður Borussia Mönchengladbach
í Þýskalandi, kemur inn í franska
hópinn í hans stað. Áður höfðu
Paul Pogba og Hugo Lloris helst
úr lestinni vegna meiðsla.
Mbappé ekki
með Frökkum
til Íslands
AFP
Biður að heilsa Kylian Mbappé
missir af lykilleikjum Frakklands.