Morgunblaðið - 09.10.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
40 ár
á Íslandi
Snjóblásarar í
öllum stærðum
og gerðum
Hágæða snjóblásarar frá
Stiga
ST5266 PB
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Leiðtogar Bretlands og Evrópusam-
bandsins gera sér litlar vonir um að
samningur náist um útgöngu Breta
úr sambandinu og þeim virðist vera
umhugað um að sjá til þess að við-
semjandanum verði kennt um það að
viðræðurnar fari út um þúfur, ef
marka má fréttir af orðaskiptum
þeirra í gær.
Breska ríkisútvarpið hafði eftir
embættismanni í breska forsætis-
ráðuneytinu að Angela Merkel,
kanslari Þýskalands, hefði sagt í
símasamtali við Boris Johnson, for-
sætisráðherra Bretlands, að það
væri „í raun ómögulegt“ og „gríðar-
lega ólíklegt“ að samkomulag næðist
um útgönguna á grundvelli tillagna
sem Johnson sendi leiðtogum Evr-
ópusambandsins í vikunni sem leið.
BBC hafði þó eftir embættismönn-
um Evrópusambandsins og stjórnar-
erindrekum ESB-ríkja í Brussel að
þeir efuðust um að Merkel hefði not-
að þessi orð. Merkel og fleiri leiðtog-
ar ESB-ríkja hefðu ítrekað sagt að
þau myndu halda viðræðunum áfram
fram á síðustu stundu og ekki útiloka
samkomulag fyrr en þeim yrði slitið.
Talsmaður Merkel staðfesti að hún
hefði rætt „hreinskilnislega“ við
Boris Johnson en myndi ekki segja
neitt um „slík trúnaðarsamtöl“.
„Heimskulegur leikur“
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs
ESB, sakaði Johnson um „heimsku-
legan leik“ sem fælist í því að skella
skuldinni á Evrópusambandið. „Það
sem er í veði er framtíð Evrópusam-
bandsins og Bretlands, auk öryggis-
og þjóðarhagsmuna. Þú vilt ekki
samning, þú vilt ekki frestun, þú vilt
ekki afturkalla brexit, quo vadis
[hvert liggur þín leið]?“ sagði Tusk í
skilaboðum til Johnsons á Twitter.
Simon Coveney, aðstoðarforsætis-
ráðherra Írlands, sagði að erfitt væri
að vera ósammála Tusk um þetta.
„Við erum enn opin fyrir því að ná
sanngjörnum brexit-samningi en
breska stjórnin þarf að vilja vinna
með ESB til að ná honum fram,“
sagði Coveney á Twitter.
Talsmaður breska forsætisráð-
herrans sagði að viðræðurnar væru
á „úrslitastigi“ og neitaði því að þeim
væri lokið. Nicola Sturgeon, leiðtogi
Skoska þjóðarflokksins, sagði að við-
brögð breska forsætisráðuneytisins
við samtalinu við Merkel væru „til-
raun til að kenna öðrum um brexit-
klúðrið“. Talsmaður Verkamanna-
flokksins í brexit-málum, sir Keir
Starmer, sagði að stjórn Johnsons
væri staðráðin í að „sjá til þess að
viðræðurnar færu út um þúfur og
skella skuldinni á aðra“. „Það er blá-
köld staðreynd að stjórnin lagði
fram tillögur sem voru hannaðar til
að mistakast,“ sagði hann.
Stjórnmálaskýrandi BBC sagði að
embættismenn bresku stjórnarinnar
og Evrópusambandsins teldu það
líklegra með hverri klukkustundinni
sem liði að samkomulag næðist ekki
um útgönguna fyrir leiðtogafund
ESB á fimmtudag og föstudag í
næstu viku.
N-Írland verði áfram
í tollabandalaginu
Fréttaveitan AFP hafði eftir
heimildarmanni í breska forsætis-
ráðuneytinu að Merkel hefði sagt að
það væri í raun ógerningur að ná
samkomulagi um brexit nema
breska stjórnin féllist á að Norður-
Írland yrði áfram í tollabandalagi
ESB þangað til samkomulag næðist
um annað, til að tryggja að ekki
þyrfti að koma á eftirliti við landa-
mærin að Írlandi. Breska stjórnin
hefur hafnað þessu og sagt að mark-
mið Evrópusambandsins sé að loka
Norður-Írland inni í tollabandalag-
inu til frambúðar.
Johnson lagði til að Norður-Írland
gengi úr tollabandalaginu, eins og
aðrir hlutar Bretlands, en yrði áfram
í innri markaði ESB fyrir vörur í
fjögur ár eftir 31. desember á næsta
ári, þegar aðlögunartímabili útgöngu
Bretlands úr ESB á að ljúka. Emb-
ættismenn ESB telja að Johnson
hafi lagt fram óraunhæfar tillögur
um hvernig haga eigi tollgæslu
vegna viðskipta milli Norður-Írlands
og Írlands. Þeir hafa einnig haft efa-
semdir um þá tillögu Johnsons að
norðurírska þingið hafi lokaorðið um
hvort ákvæði nýs brexit-samnings
eigi að gilda á Norður-Írlandi og
greiði síðan atkvæði um það á fjög-
urra ára fresti. Þeir telja þetta valda
óvissu og geta orðið til þess að flokk-
ar sambandssinna á Norður-Írlandi
komi í veg fyrir að samningsákvæðin
tækju gildi.
Bretland á að ganga úr Evrópu-
sambandinu 31. október en breska
þingið hefur samþykkt lög sem
kveða á um að Johnson beri að óska
eftir því að útgöngunni verði frestað,
náist ekki nýtt samkomulag um
hana. Forsætisráðherrann hefur
hins vegar sagt að hann myndi frek-
ar vilja „liggja dauður í skurði“ en að
óska eftir því að útgöngunni yrði
frestað í þriðja skipti.
Reynir að afstýra frestun
Breska tímaritið The Spectator
hefur eftir heimildarmanni í breska
forsætisráðuneytinu að stjórn John-
sons hyggist reyna allt sem hún geti
til að koma í veg fyrir að útgöngunni
verði frestað ef viðræðurnar fara út
um þúfur. Fari hins vegar svo að
leiðtogar ESB-ríkjanna samþykki að
fresta útgöngunni ætli Johnson að
beita sé fyrir því að þingkosningum
verði flýtt og lofa kjósendunum út-
göngu án samnings haldi hann emb-
ætti forsætisráðherra.
The Spectator hefur einnig eftir
heimildarmanninum að ESB-ríki
sem leggist gegn því að útgöngunni
verði frestað verði „fremst í biðröð-
inni eftir framtíðarsamstarfi við
Bretland“. ESB-lönd sem styðji
frestun á brexit verði „aftast í bið-
röðinni“ eftir samstarfi, meðal ann-
ars í öryggismálum.
í milljörðum punda
363,7 ma. £
501,7 ma. £
Nítján helstu viðskiptaríki landsins á síðasta ári
Viðskiptaríki Bretlands
Heimild: Bresk skatt- og tollyfirvöld
21,16
25,85
24,03
35,51
49,18
ma. £
27,56
41,71
44,47
42,56
68,34
ma. £
Bretland
Önnur
Innflutningur Útflutningur
ESB-ríki
Breyting frá
árinu 2017
Önnur lönd
Belgía
Kanada
Kína
Danmörk
Frakkland
Þýskaland
Hong Kong
Indland
Írland
Ítalía
Japan
Holland
Noregur
Pólland
Rússland
Spánn
Svíþjóð
Sviss
Tyrkland
Bandaríkin
Belgía
Kanada
Kína
Frakkland
Þýskaland
Hong Kong
Írland
Ítalía
Japan
Ástralía
Holland
Pólland
Singapúr
Suður-Kórea
Spánn
Svíþjóð
Sviss
Tyrkland
SAF
Bandaríkin
Undirbúa að
kenna hver
öðrum um
Leiðtogar ESB og Bretlands virðast
gera sér litlar vonir um brexit-samning
AFP
Hvikar hvergi Boris Johnson forsætisráðherra hefur lofað að sjá til þess að
Bretland gangi úr ESB 31. október þótt ekki náist samkomulag um brexit.
56% myndu kenna John-
son um frestun á brexit
» Í nýlegri könnun fyrir The
Telegraph sögðust 56% að-
spurðra myndu kenna Boris
Johnson um það ef Bretland
gengi ekki úr ESB 31. október.
» Miklu fleiri, eða 83%, sögð-
ust myndu kenna þinginu um
það, 70% þingmönnum sem
eru andvígir brexit, og 63%
Evrópusambandinu.
» Um 64% stuðningsmanna
brexit sögðust myndu kenna
Johnson um frestun á útgöng-
unni.
Stjórnvöld í Tyrklandi sögðu í gær
að her landsins hefði lokið undirbún-
ingi fyrirhugaðrar innrásar í norður-
hluta Sýrlands eftir að Donald
Trump Bandaríkjaforseti ákvað að
flytja bandaríska hermenn frá
landamærunum og greiða þannig
fyrir því að Tyrkir gerðu árásir á
yfirráðasvæði Kúrda.
Í tilkynningu frá Hvíta húsinu á
sunnudag sagði að hermennirnir
yrðu fluttir frá landamærunum og
Tyrkir myndu bráðlega hefja hernað
sem þeir hefðu lengi fyrirhugað í
norðurhluta Sýrlands. Ákvörðun
Trumps vakti hörð viðbrögð á þingi
Bandaríkjanna og margir þingmenn
repúblikana
gagnrýndu hana,
þ. á m. leiðtogi
þeirra í öldunga-
deildinni. Þeir
lýstu ákvörðun-
inni sem svikum
við hersveitir
Kúrda, sem hafa
verið mikilvægir
bandamenn
Bandaríkjahers í
baráttunni gegn Ríki íslams, sam-
tökum íslamista. Þeir sögðu enn
fremur að með því að snúa baki við
Kúrdum yki Trump hættuna á því að
íslamistasamtökin færðu sig upp á
skaftið með hryðjuverkum og hern-
aði með það að markmiði að stofna
kalífadæmi í Sýrlandi.
Þessi hörðu viðbrögð urðu til þess
að Trump reyndi að draga í land með
ákvörðunina og hótaði því að „ger-
eyðileggja“ efnahag Tyrklands ef
Tyrkir gengju of langt með „ónauð-
synlegum hernaði“. Hann sagði hins
vegar ekki hver mörkin væru.
Trump neitaði því í gær að hann
hefði svikið Kúrda, sagði þá vera
„sérstaka þjóð og frábæra bardaga-
menn“. Hann tilkynnti einnig að
hann myndi eiga fund með Recep
Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands,
í Hvíta húsinu 13. nóvember.
Segja undirbúningi inn-
rásar í N-Sýrland lokið
Trump ræðir við Erdogan í Hvíta húsinu í næsta mánuði
Recep Tayyip
Erdogan