Morgunblaðið - 09.10.2019, Síða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019
Seppi Ferfættur borgari leyfði ljósmyndara að trufla sig örstutt í amstri gærdagsins.
Eggert
Við höfum öll
geð og við verðum
öll einhvern tím-
ann veik á lífsleið-
inni, en það er
ekki þar með sagt
að við verðum öll
geðveik. Við þurf-
um hins vegar öll
að sýna því skiln-
ing að það geti
gerst hjá hverju og
einu okkar og þessi skilningur
hefur aukist á síðustu árum.
Stundum þegar ég hugsa um
geðsjúkdóma hef ég hugsað til
þess að þeir sem veikjast á
geði þurfi sinn fána til að
flagga fjölbreytileika, því geð-
röskun er svo mismunandi hjá
hverju og einu okkar og hvern-
ig hún birtist. Fjölbreytni í
meðferðarnálgun er þess vegna
eitt af mikilvægustu baráttu-
málum okkar hjá Geðhjálp.
Geðheilbrigðisdagurinn, sem
er á morgun, er til þess fallinn
að flagga fyrir fjölbreytileika
geðsjúkdóma og minna á að
fólk sem veikist á geði þarf að
fá tækifæri til að halda virð-
ingu sinni og reisn í öllum að-
stæðum. Við viljum öll skipta
máli og lifa mannsæmandi lífi.
Betri staða
geðheilbrigðismála
Það er ekki viðlíka skömm
og ótti og áður að greinast með
geðröskun, geðrænar áskor-
anir, geðrænan vanda, geðveiki
eða hvað sem við kjósum að
kalla það. Áður fyrr var það
kallað að fara yfir um og áttu
þau sem það gerðu kannski
ekki afturkvæmt í samfélag
manna. Fólk er ekki heldur í
viðlíkri hættu að lenda í fé-
lagslegri einangrun, ofbeldi,
einsemd, fátækt, þvingun og
vanmætti og áður fyrr, þótt
það gerist enn. Margir lentu í
kjölfar veikinda inni á stofn-
unum árum og áratugum sam-
an. Möguleikar margra voru
mjög takmarkaðir. Tækifærin
einasti landsmaður getur tengt
sig við geðheilbrigði með ein-
um eða öðrum hætti, vegna
síns eigin geðslags eða að-
standenda og vina. Nútímafólk
lætur sig málið varða. Í dag
gleðjumst við yfir því að svo
sé, um leið og við fögnum 40
ára afmæli Geðhjálpar.
Það er dásamlegt að fylgjast
með því hvernig kastljóstinu
hefur í síauknum mæli verið
beint að geðrænum vanda og
mikilvægi góðs geðheilbrigðis í
lífi okkar. Fólk kemur í aukn-
um mæli fram og segir frá
streitu, kvíða og þunglyndi.
Það er ekki hægt að segja ann-
að en skilningur og velvilji í
samfélaginu í garð þeirra sem
glíma við geðræna erfiðleika
hafi aukist.
Flöggum því
hvernig við erum
Við eigum að flagga því
hvernig við erum. Við eigum að
normalísera geð og fjölbreyti-
leika. Okkur farnast best þegar
við umvefjum hvert annað á
vegferðinni til betri líðanar.
Nú er tíminn þar sem tæki-
færunum hefur fjölgað gríðar-
lega. Nú er tími grósku, hraða
og tækni. Það ættu að vera
lykilorð í stefnumótun geðheil-
brigðismála til framtíðar um
leið og við horfum til betri
heilsu, aukinna lífsgæða og
meiri nándar.
Einkunnarorð Geðhjálpar
eru: Hugrekki, mannvirðing og
samhygð.
til eðlilegrar þátt-
töku í samfélaginu
voru fá sem engin.
Einstaklingarnir
og aðstandendur
þeirra stóðu
frammi fyrir svo
stórum áskor-
unum að vart er
hægt að lýsa því
álagi. Margir
héldu veikindum
sinna nánustu í
felum til að verða
ekki fyrir sleggju-
dómum samferðamanna sinna.
Feluleikurinn sem slíkur gat
tekið sinn toll af aðstand-
endum.
Sögu Geðhjálpar og annarra
sem hafa unnið að málefnum
geðsjúkra má líkja við ótrúleg-
an sigur; sigur á þröngsýni og
skorti á samkennd.
Geðhjálp var stofnuð í þessu
andrúmslofti af aðstandendum
geðveiks fólks þann 9. október
1979. Strax var ráðist í að
fræða almenning og starf-
ræktir voru sjálfshjálparhópar.
Geðhjálp sá til dæmis reglu-
lega um dálk í Morgunblaðinu
um geðheilbrigðismál. Þannig
að segja má að Geðhjálp hafi
rutt veginn varðandi vakningu
á málefnunum.
Það er himinn og haf milli
þess sem fólk á þessum tíma
glímdi við og þess sem við ger-
um í dag. Í stefnumótun og
umræðum um úrræði er í dag
mun frekar hlustað á raddir
þeirra sem glíma við veikindin
og vonumst við sannarlega til
að sjá aukningu þar á. Við
sjáum að raunveruleg notenda-
stýrð þjónusta er í sjónmáli.
Þetta er nútíminn. Það er því
ekki nóg að notendur þjónust-
unnar fái að vera með í mótun
hennar heldur verða þeirra
áherslur og reynsla að hafa
meira vægi.
Við höfum öll geð
Við höfum áttað okkur á að
við erum öll með geð. Okkur
líður öllum misvel. Stundum
líður okkur beinlínis illa. Hver
Eftir Einar Þór
Jónsson » Við eigum aðnormalísera geð
og fjölbreytileika.
Okkur farnast best
þegar við umvefjum
hvert annað á veg-
ferðinni til betri líð-
anar.
Einar Þór Jónsson
Höfundur er formaður
Geðhjálpar.
Geðhjálp í fjörutíu ár
Það hljómar ekki illa
að leggja á græna
skatta enda allt vænt
sem er vel grænt. Um-
hverfisskattar eru ekki
nýtt fyrirbæri en með
aukinni vitund um nátt-
úruvernd hefur verið
lögð áhersla á að slíkir
skattar skuli inn-
heimtir. Talsmenn
grænna skatta telja þá
nauðsynlega til að hvetja til umhverf-
isvænni ákvarðana fyrirtækja og ein-
staklinga. Þannig á að leggja þung
lóð á vogarskálarnar í loftslags-
málum.
Hér verður ekki borið á móti því að
umhverfisskattar – grænir skattar –
geti verið skynsamlegir en hættan er
sú að til verði skjól fyrir aukna skatt-
heimtu hins opinbera. Þá virðast ríki
og sveitarfélög hafa ríka eðlishvöt til
að klæða skatta í búning grænna
skatta, þó þeir séu það ekki í raun.
Pólitískt er auðveldara að réttlæta
slíka skattheimtu en aðra, enda á
markmiðið að stuðla að jákvæðum
áhrifum á umhverfið.
Í einfaldleika sínum má segja að
markmið grænna skatta/gjalda sé
tvíþætt (þó auðvitað spili þar fleira
inn í):
að standa undir kostnaði að
hluta eða öllu leyti sem samfélagið
verður fyrir vegna ákveðinna athafna
fyrirtækja/almennings,
að hvetja til breyttrar hegðunar,
en ekki til að auka
tekjur ríkis eða sveitar-
félaga.
Áhrif á sam-
keppnishæfni
Augljóst er að græn-
ir skattar geta haft
veruleg áhrif á sam-
keppnishæfni þjóðar,
atvinnugreina eða ein-
stakra fyrirtækja. Séu
t.d. lagðir sértækir um-
hverfisskattar á íslensk
fyrirtæki, sem sam-
keppnisaðilar í öðrum löndum þurfa
ekki að standa undir, er augljóst að
staða þeirra versnar. Afkoman verð-
ur verri, möguleikar til að bjóða vöru/
þjónustu á lægra verði eða greiða
starfsmönnum hærri laun verða lak-
ari en áður.
Vísbendingar eru um að grænir
skattar hafi neikvæð áhrif á tekju-
lága hópa. Skattarnir leggjast hlut-
fallslega þyngra á tekjulága en há-
tekjufólk. Ekki má heldur gleyma því
að möguleikar fólks til að breyta
hegðun sinni eru oft í réttu hlutfalli
við tekjur. Hátekjumaðurinn á auð-
veldara með að taka strax þátt í
orkuskiptum með því að kaupa sér
rafmagnsbíl (og njóta raunar tölu-
verðra ívilnana) en unga fjölskyldan
sem hefur ekki efni á öðru en halda
áfram að nota gamla bensín-
fjölskyldubílinn.
Sé tilgangurinn að baki grænum
sköttum að stuðla að breyttri hegðun
fyrirtækja og einstaklinga til að ná
fram ákveðnum markmiðum í um-
hverfismálum, liggur það í hlutarins
eðli að skattarnir skila æ minni
tekjum eftir því sem árin líða. Annars
hafa þeir ekki skilað tilætluðum ár-
angri. Umhverfisskattar sem ætlað
er að standa undir ákveðnum kostn-
aði samfélagsins vegna efnahags-
legra athafna eru a.m.k. að hluta
öðru marki brenndir.
Lækka á aðra skatta
Það er hins vegar rétt sem Samtök
atvinnulífsins hafa bent á: Það á að
nýta tekjur vegna grænna skatta til
þess að lækka aðra almenna skatta.
SA telur að til greina komi að lækka
álagningu á „umhverfisvæna starf-
semi sérstaklega en þannig væri ýtt
enn frekar undir umhverfisvitund al-
mennings og fyrirtækja, eins og þeg-
ar er gert með lækkun virðisauka-
skatts á rafmagns-, vetnis- og tvinn-
tengilbifreiðar“. Hugmynd af þessu
tagi er þess virði að hugleiða en
framkvæmdin er vandasöm. Skatta-
legir hvatar í formi ívilnana geta
komið illilega í bakið á umhverfinu.
Dæmi um þetta er þegar íslensk
stjórnvöld, líkt og víða í Evrópu,
töldu rétt að ýta undir dísilvæðingu
bílaflotans.
Jafnvel löngu áður en umhverfis-
skattar – grænir skattar – komust „í
tísku“ komu fram áhyggjur af því að
verið væri að mynda skjól fyrir
þyngri álögur hins opinbera á fyrir-
tæki og einstaklinga. Árið 1993 lagði
Árni M. Mathiesen, fyrrverandi
þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
síðar fjármálaráðherra, fram þings-
ályktun þar sem umhverfisráðherra
og fjármálaráðherra var ætlað að at-
huga „hvort og þá á hvaða hátt um-
hverfisskattar geti komið í stað nú-
verandi skatta, svo sem tekjuskatta,
eignarskatta, útsvars og aðstöðu-
gjalds“. Að baki tillögunni, sem náði
ekki fram að ganga var sú hugsun að
umhverfisskattar kæmu í stað ann-
arra skatta en yrðu ekki viðbótar-
skattheimta. Í greinargerð var bent á
að umhverfisskattar væru hagræn
stjórntæki sem beitt er til að ná
ákveðnum markmiðum í umhverfis-
málum. Með sköttunum væri tekið
„tillit til þess kostnaðar sem við höf-
um af því að skaða umhverfið og ella
væri ekki tekinn með í reikninginn“
við efnahagslega og viðskiptalega
ákvörðun. „Þetta er m.a. leið til þess
að beita hinum frjálsa markaði til
þess að aðlaga neyslu, viðskipti og
framleiðslu að markmiðum umhverf-
isverndar og sjálfbærrar þróunar,“
sagði í greinargerðinni en þar var
lögð áhersla á að „umhverfisskattar
verði ekki notaðir til þess að afla hinu
opinbera aukinna tekna heldur til
þess að breyta og beita skattkerfinu
á jákvæðan hátt“.
Byrjað af hófsemd en …
Svipað viðhorf birtist í leiðara
Morgunblaðsins í nóvember 1996.
Blaðið tók undir að skynsamlegt væri
að innleiða umhverfisskatta en hafði
uppi aðvörunarorð:
„Áherslu ber þó að leggja á að um-
hverfisskattar komi í stað annarra
skatta og verði ekki til þess að heild-
arskattbyrðin hækki. Þeir mega
heldur ekki verða hrein tekjulind
opinberra aðila, í stað þess að standa
undir kostnaði við umhverfisvernd.“
Eitt að lokum: Oft byrjar skatt-
heimta af töluverðri hófsemd. En það
eru meiri líkur á að hægt og bítandi
aukist þungi nýrra skatta fremur en
þeir séu felldir niður. Þetta virðist
nær órjúfanlegt lögmál. Dæmi um
þetta er söluskatturinn, sem var inn-
leiddur árið 1945 og var innheimtur
undir ýmsum nöfnum fram til 1960
þegar almennur söluskattur var lagð-
ur á. Þá var skatthlutfallið 3% en
hækkaði síðan nokkuð ört á næstu
áratugum og var orðið 22% þegar
virðisaukaskattskerfið var tekið upp
árið 1990. (Raunar var á tímabili sér-
stakur söluskattsauki lagður á).
Grænir skattar geta verið æskileg-
ir og skynsamlegir út frá efnahags-
legum þáttum ekki síður en um-
hverfislegum. En reynslan kennir
skattgreiðendum – fyrirtækjum og
einstaklingum – að græn skattheimta
verði lítið annað en fallegt heiti á
þyngri álögum til framtíðar.
Eftir Óla Björn
Kárason » Sé tilgangurinnað
baki grænum skött-
um að stuðla að breyttri
hegðun liggur það í
hlutarins eðli að þeir
skili æ minni tekjum eft-
ir því sem árin líða.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Ekki skjól fyrir þyngri byrðar