Morgunblaðið - 09.10.2019, Page 23

Morgunblaðið - 09.10.2019, Page 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2019 fræðingur. Þau eru fráskilin. Sonur Heklu og Úlfs er Dagur Atli Grönvold, f. 30.7. 2013. Stjúp- sonur Heklu er Högni Grönvold, f. 3.3. 2004 og uppkomin börn Úlfs eru Ylfa Úlfsdóttir Grönvold, f. 1.10. 1988, Jón Þ. Úlfsson Grönvold, f. 18.12. 1993, og Ýmir Grönvold, f. 12.4. 1994. Systir Heklu er Sara Lind Þrúðardóttir, f. 31.7. 1967, fram- kvæmdastjóri Icelandic Trademark Holding, búsett í Garðabæ. Hálf- systkini samfeðra eru Linda Jóns- dóttir, f. 6.4. 1963, hjúkrunar- fræðingur, búsett í Kópavogi; Jóna Björk Jónsdóttir f. 14.11. 1964, búsett á Selfossi; Inger Rós Jóns- dóttir, f. 3.4. 1976, lífeindafræð- ingur, búsett í Reykjavík; Benedikt Jónsson, f. 1.12. 1983, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Heklu eru Þrúður Helgadóttir, f. 10.5. 1944 á Rauða- læk í Holtum, starfaði lengi hjá Ála- fossi sem litunarmeistari og síðar sölustjóri Ístex hf., búsett í Reykja- vík, og Jón Helgason, f. 15.7. 1941, framleiðslumaður og véliðnfræð- ingur, búsettur í Reykjavík. Stjúp- faðir Heklu er Atli Ásmundsson, f. 22.5. 1943 í Vestmannaeyjum, skrif- stofumaður og aðalræðismaður í Winnipeg. Búsettur í Reykjavík. Úr frændgarði Heklu Daggar Jónsdóttur Hekla Dögg Jónsdóttir Þrúður Helgadóttir fv. litunarmeistari og sölustjóri, bús. í Rvík Helgi Hannesson kaupfélagsstjóri Kaupfélags Rangæinga og bústjóri í Ketlu á Rangárvöllum Sigríður Hafl iðadóttir húsfreyja í Sumarliðabæ Hannes Magnússon bóndi í Sumarliðabæ í Holtum Marta Jónsdóttir húsfreyja á Brekkum Sigurður Guðmundsson bóndi á Brekkum í Holtum Margrét Sigurðardóttir húsfreyja og bústýra á Rauðalæk, í Ketlu og í Strandarskóla, Rang. Guðrún Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Benediktsson myndhöggvari í Rvík Margrét Jónsdóttir myndlistar maður í Vogum á Vatnsleysuströnd Guðmundur Benediktsson myndhöggvari í Rvík Sigurborg Eyjólfsdóttir verkakona í Vestmannaeyjum og Sandgerði Þórður Jóhannsson verkamaður í Rvík Sigrún Þórðardóttir húsfr. í Rvík Sigurður Einarsson húsasmíða- meistari í Þýskalandi Eirún Sigurðar- dóttir myndlistar- maður í Reykjavík Valdi Jónsson bóndi á Ystaskála undir Eyjafjöllum, síðar sjómaður og verkamaður í Vestmannaeyjum Lára Valdadóttir húsfreyja í Reykjavík Helgi Jónsson kaupmaður og matsmaður hjá tryggingafélaginu Lloyds Þórdís Björnsdóttir húsfreyja á Reykjum í Lundarreykjadal og Laugalandi við Rvík Jón Guðmundsson bóndi á Reykjum í Lundarreykjadal og víðar, síðar landpóstur og ráðsmaður á Vífi lsstaðahæli Jón Helgason véliðnfræðingur og framleiðslumaður í Rvík Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn „ÉG SAGÐIST MYNDU KOMA EFTIR SMÁSTUND – EKKI GANGA AF GÖFLUNUM.” „ÞETTA STÓÐ TÆPT! VIÐ UNNUM MEÐ TVEGGJA ATKVÆÐA MUN.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að herða sig upp á erfiðum tímum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann OG ÞAÐ ER ÞESS VEGNA SEM HATTAR HENTA EKKI SEM SÚPUSKÁLAR EIIINMITT … EFTIRLEIÐIS ÆTLA ÉG AÐ BYRJA ÖLL SAMTÖL Á LOKAORÐUNUM ÞAÐ ER TÍMA- SPARNAÐUR KONUNGURINN HEFUR LESIÐ YFIR SKILMÁLANA FYRIR VOPNAHLÉINU EN HONUM VERÐUR EKKI HAGGAÐ – HANN HARÐNEITAR AÐ FRAMSELJA KÖKUGERÐARMEISTARANN SINN! OG BLESSUN ÁRÁS!! Hér á árum áður voru áttær-ingar kallaðir byrðingar. – Séra Jón Einarsson í Stærra- Árskógi greinir þannig frá gerð og stærð bátsins, sem Hvann- dalabræður fóru á til Kolbeinseyjar sumarið 1615: Bræður áttu byrðing góðan með bikaða súð og þéttan kél seytján álna, svo skal hljóða, sögð á lengd hans rimarfél, farskip gott, því flest má bjóða, fært og að öllu búið vel. Því má skjóta inn til fróðleiks, að úr Kolbeinsey var talin dægursigl- ing til óbyggða á Grænlandi. Halldór Kristján Ragnarsson skrifar þetta fallega erindi við jafn- fallegar myndir sem hann birtir á Boðnarmiði: Glampar sól við sjónarrönd syngja fuglabreiður. Puntar sig í perlubönd prúðbúinn hann Seiður. Ládautt hér og logn á sjó ljúft í Steingrímsfirði. Hólmavíkur hugarró heldur sínu virði. Gunnar J. Straumland segir frá því að hann hafi ákveðið að taka sér frí frá yrkingum, – en …: Beint þó forðist Braga fund bögu taugar vaka. Þó kjafti héldi í klukkustund kviknaði þessi staka. Hallmundur Kristinsson gat ekki setið á sér: Hann ákvað, er rímurnar oft hafði flutt og átti af vísunum bunka, að forðast að yrkja – en fríið varð stutt. „Fallega pissar Brúnka.“ Magnús Halldórsson veltir „manninum“ fyrir sér: Ævi sína um það bil, ætla má hann leiti, að einhverju sem ekki’er til og enginn kann á heiti. Ef svo loks það getur greint og greitt að þessu ratað er það fundið alltof seint, sem aldrei var þó glatað. Pétur Stefánsson yrkir: Árin líða ógnarhratt, að mér kvíða setur. Líf er stríð ég segi satt, ég sé það tíðum betur. Magnús Einarsson á Tjörn orti: Húsmóðirin það heillasprund hungrinu mun svo forða að skóna þar á góðu Grund gerist ei þörf að borða. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af áttæringi og úr Steingrímsfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.