Morgunblaðið - 09.10.2019, Side 32
Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey
í 13. sinn í kvöld kl. 20. 9. október er
fæðingardagur Johns Lennons og
mun Friðarsúlan varpa ljósi upp í
himininn til 8. desember sem er
dánardagur hans. Dagskrá hefst í
Viðey kl. 17.45 og stendur yfir til
21.30. Salóme Katrín flytur tónlist í
Viðeyjarnausti, Hamrahlíðarkórinn
syngur við Friðarsúluna og formað-
ur borgarráðs, Þórdís Lóa Þórhalls-
dóttir, flytur ávarp. Undir lokin mun
Teitur Magnússon leika og syngja
fyrir gesti í Viðeyjarnausti.
Friðarsúlan tendruð
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 282. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Þessi einstaklingur sem er grun-
aður um að hafa verið með kyn-
þáttaníð í garð Rochfords er undir
lögaldri,“ segir Hannes S. Jónsson,
formaður KKÍ, í ítarlegu viðtali um
kynþáttaníðsmál í körfuboltaleik
Sindra og Hamars á Hornafirði um
helgina. Hannes var viðstaddur
leikinn og er ósáttur við umræðu
um málið. »25
Kynþáttaníðið frá
aðila undir lögaldri
ÍÞRÓTTIR MENNING
Alfreð Finnbogason, landsliðs-
miðherji í knattspyrnu, segist vera
vel á sig kominn um þessar mund-
ir þótt meiðsli hafi herjað talsvert
á hann síðustu árin. Alfreð er í
viðtali á íþróttasíðum blaðsins í
dag og segir að Þjóðverjar hafi
sýnt sér þolinmæði í
sumar í þeirri
von að hann
gæti náð sér.
Alfreð sleit
sin í fæt-
inum og byrj-
aði keppn-
istímabilið
rólega
af þeim
sök-
um.
»24
Var sýnd þolinmæði
hjá Augsburg
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Baldur Sveinsson hefur skráð flug-
sögu Íslands með ljósmyndum í ára-
tugi, gefið út fjölda ljósmyndabóka
og nú hefur Mál og menning sent frá
sér bókina Flugvélar á Íslandi gaml-
ar og nýjar, 400 síðna vandaða bók í
stóru broti eftir hann.
„Bókin er afrakstur óþreytandi
eltingaleiks við flugvélar um loftin
blá og tilgangurinn með útgáfunni er
að leyfa öðrum að njóta þess sem ég
hef upplifað,“ segir Baldur, en verkið
er tileinkað 100 ára sögu flugs á Ís-
landi.
Á árunum 2008-2017 gaf Baldur út
eina ljósmyndabók á ári, en nýja bók-
in er allt öðruvísi, meira í ætt við og
óbeint framhald af bók hans Flug-
vélar á og yfir Íslandi sem kom út
2007. Flestar myndirnar eru í A4-
stærð, yfirleitt ein á hverri síðu með
skýringartexta, en yfir 500 myndir
prýða bókina. Hann segist hafa valið
þær af kostgæfni, en þeim er skipt
niður í einkaflugvélar, farþegaflug-
vélar, sögulegar flugvélar, herflug-
vélar, þyrlur og flugvélar á erlendum
flugsýningum.
Sveinn Ólafsson, faðir Baldurs og
skrifstofumaður hjá Eimskipafélag-
inu, var einkaflugmaður. Hann og
Sverrir Jónsson flugmaður stofnuðu
meðal annars Flugskólann Pegasus,
einn fyrsta flugskóla landsins. „Hann
dró okkur börnin oft með út á flug-
völl og fljótlega smituðumst við af
flugbakteríunni,“ rifjar Baldur upp
og bætir við að fyrstu flugvélamynd-
ina hafi hann tekið á flugsýningu
þegar hann var 17 eða 18 ára. „Þá tók
ég mynd af Neptune-vél frá Varnar-
liðinu.“
Saga á bak við hverja mynd
Baldur er stærðfræðingur að
mennt. Hann var kennari við Verzl-
unarskóla Íslands 1964-2007, tók
myndir í frístundum og eftir að hann
fór á eftirlaun hefur ljósmyndunin og
allt sem henni viðkemur verið í for-
gangi. Myndir hans eru víða, meðal
annars á vefsíðu Verzlunarskólans, á
vefnum airliners.net og á fésbókinni.
„Ég hef gaman af því að leyfa öðrum
að njóta myndanna með mér,“ árétt-
ar hann.
Baldur hefur ekki tölu á öllum
þeim tegundum flugvéla og flug-
vélum sem hann hefur myndað en
hann segist hafa notað hvert tæki-
færi til þess og sérstaklega hafi verið
gaman að fljúga með vélum Varnar-
liðsins á sínum tíma. „Að fljúga í
Phantom-vél var sérstök upplifun og
ég tók fyrstu myndirnar af AWACS-
vélum í samflugi hérlendis. Það flug
stendur upp úr.“ Hann bætir við að
þegar 100 ára afmælis flugs á Íslandi
var minnst í byrjun september hafi
vél af gerðinni Havilland Dragon
Rapide, sem er í Flugsafninu á Akur-
eyri, verið við Fluggarða á Reykja-
víkurflugvelli. „Þegar ég sá vélina
var mín fyrsta hugsun að finna flug-
manninn og taka mynd af honum
fljúga vélinni.“ Það hafi gengið eftir,
hann hafi flogið í annarri vél og náð
mörgum myndum þegar vélinni var
aftur flogið norður. „Það er saga á
bak við hverja mynd og ekki er hægt
að kalla mig neitt nema flugnörd.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljósmyndari Baldur Sveinsson hefur skráð flugsögu Íslands með ljósmyndum í áratugi.
Á flugi með Baldri
Ný ljósmyndabók tileinkuð 100 ára sögu flugs á Íslandi
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík
stolpigamar@stolpigamar.is
G
á
m
a
le
ig
a
ER GÁMUR LAUSNIN FYRIR ÞIG?
❚ Búslóðageymsla
❚ Árstíðabundinn lager
❚ Lager
❚ Sumar-/vetrarvörur
❚ Frystigeymsla
❚ Kæligeymsla‘
❚ Leiga til skemmri
eða lengri tíma
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND