Morgunblaðið - 16.10.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 16.10.2019, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 6. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  243. tölublað  107. árgangur  SILLA GERIR TILRAUNIR Í BERLÍN STÓRLEIK- UR Í KÓPA- VOGINUM HYGGJAST ÞREFALDA SÖLUNA PSG Í HEIMSÓKN 24 VIÐSKIPTAMOGGINNNÝ PLATA KOMIN ÚT 28 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Auka þarf virknina á raforkumarkað- inum hér á landi og stjórnvöld þurfa að taka af skarið með stefnumörkun í orkumálum. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Sam- taka iðnaðarins, en samtökin kynna í dag nýja skýrslu um raforkumarkað- inn og samkeppnishæfni hans á opn- um fundi. Þar er m.a. lagt til að sköp- uð verði skilyrði til virkrar samkeppni á raforkumarkaði með skýrum leik- reglum og virku eftirliti. Tryggja þurfi samkeppnishæft raforkuverð og skilið verði að fullu á milli eignarhalds raforkufyrirtækja í Landsneti. Geti endurselt umframorkuna SI vilja auka samkeppni meðal raf- orkuframleiðenda á Íslandi þannig að hlutdeild Landsvirkjunar sem er með yfir 70% markaðshlutdeild þyrfti að minnka. Leggja samtökin einnig til að opnað verði á heimildir raforkukaup- enda til að endurselja umframorku inn á raforkukerfið sem þeir hafa ekki not fyrir. Í skýrslunni kemur fram að gjald- eyrissköpun stórnotenda raforku er nú orðin meiri en heildargjaldeyris- tekjur af útflutningi sjávarafurða eða um 260 milljarðar króna á seinasta ári. ,,Það er þörf á leiðarvísi frá stjórn- völdum um það hvernig þau sjá fyrir sér umhverfið, vegna þess að allt snýst þetta um samkeppnishæfni Ís- lands. Samkeppnishæfnin er eins og nokkurskonar heimsmeistaramót þjóða í lífsgæðum,“ segir Sigurður. Stjórnvöld taki af skarið  SI vilja virkari samkeppni á raforkumarkaði og samkeppnishæft raforkuverð  Stórnotendur öfluðu meiri gjaldeyristekna í fyrra en útfluttar sjávarafurðir M Þörf á virkri samkeppni »10 AFP Iðnaður Bílahlutir settir saman í verksmiðju í Changchun í Kína. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands, segir Íslendinga þurfa að endurmeta utanríkisstefnuna. Út frá smáríkjafræðum sé mikilvægt að Ís- land hafi tryggan skjólsveitanda. Vísar hann til stjórnmálalegs og efnahagslegs skjóls. Tilefnið er m.a. þrýstingur bandarískra stjórnvalda á að Íslendingar taki ekki þátt í Belti og braut, innviða- og fjárfestinga- verkefni kínverskra stjórnvalda, og noti ekki búnað frá kínverska félag- inu Huawei í 5G-kerfið. Íslendingar þiggi hins vegar flest- allt samstarf sem sé í boði við Kína. Telur Baldur ríkt tilefni til að skil- greina hvar hagsmunir Íslands liggja í breyttu alþjóðaumhverfi. Að öðrum kosti geti einstök ríki farið að setja Íslandi stólinn fyrir dyrnar og það bitnað á hagsmunum landsins. Lítill tími til stefnu Marc Lanteigne, dósent í stjórn- málafræði við Háskólann í Tromsö, fjallaði um tollastríð Kína og Banda- ríkjanna í fyrirlestri við Háskóla Ís- lands. Stríðið geti haft víðtækar efnahagslegar afleiðingar. Íslend- ingar hafi ekki mikinn tíma til stefnu til að velja hvoru stórveldinu þeir fylgi að málum í efnahagslegu tilliti. Hann tók dæmi af Nýja-Sjálandi sem færi orðið varlega í gagnrýni á Kína vegna viðskiptahagsmuna. Tómas Tómasson fjármálamaður skrifar um tollastríðið í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Hann skrifar að „jafnvel þótt samningar náist að fullu gætu alþjóðaviðskipti minnkað“. »6, 14 og 15 Alþjóðavæðingin á krossgötum  Dósent segir Íslendinga geta þurft að velja milli Kínverja og Bandaríkjamanna Borgarlandslagið mun breytast á komandi árum þegar gömul iðnaðarhús á Ártúnshöfða víkja fyrir stórri íbúðabyggð. Að því kemur að þessir gömlu tankar á athafnasvæði Björgunar við Sævarhöfða hverfa. Náttúran lætur ekki sitt eft- ir liggja og splæsir í tvöfaldan regnboga. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Allt er breytingum undirorpið  Aldís Hilm- arsdóttir, fram- kvæmdastjóri húsnæðis- bótasviðs Íbúða- lánasjóðs, hefur fengið 7,5 millj- ónir króna í verktaka- greiðslur frá Samkeppniseftir- litinu á liðnum mánuðum meðfram störfum sínum fyrir sjóðinn. Heimildir Viðskipta- Moggans herma að hlutverk Aldís- ar hjá Samkeppniseftirlitinu hafi meðal annars verið að rannsaka Gylfa Sigfússon, fyrrverandi for- stjóra Eimskips. Íbúðalánasjóður segir að Aldís hafi haft leyfi til að ljúka stóru verkefni þegar hún var ráðin. »ViðskiptaMogginn Fékk 7,5 milljónir fyrir rannsóknina Aldís Hilmarsdóttir  „Ég held að það verði alltaf ein- hver byggð hér. Grímsey er vinsæll ferðamannastaður á sumrin og ferðamannatíminn er alltaf að lengjast í báða enda. Uppistaða heilsársbyggðar er þó útgerðin. Við skulum bara vona, eins lítið vit og ég hef á útgerð, að það gerist eitt- hvað sem leiði til þess að hér verði meiri útgerð,“ segir Karen Nótt Halldórsdóttir, ritari hverfisráðs Grímseyjar hjá Akureyrarbæ, þeg- ar hún er spurð hvort byggð í Grímsey sé í hættu vegna flutnings á kvóta í burtu. Um helmingur kvóta eyjarinnar fer til Fjalla- byggðar með kaupum Ramma á út- gerðinni Sigurbirni ehf. »2 Morgunblaðið/Golli Grímsey Oft veiðist vel á miðum Gríms- eyinga. Hér er verið að landa í höfninni. Vonar að útgerð aukist í Grímsey  Tollgæslan í Reykjavík er að fá til afnota hund sem hefur verið þjálf- aður til leitar að peningaseðlum. Áður hafði hundurinn fengið þjálf- un til að finna fíkniefni og reynst vel í því. Er Tollgæslan að efla eft- irlit með peningaþvætti og notkun hunda er liður í því starfi. „Lyktin af peningaseðlum fer ekkert á milli mála. Við vinnum með hundunum í nokkur misseri og við skipulagða þjálfun læra þeir fljótt hvar seðla er að finna, en þeir þurfa þá að vera í búntum og þar með allvænar upphæðir,“ segir Steinar Gunnarsson, lögreglu- fulltrúi á Sauðárkróki, sem stjórnar þjálfun peningahundsins. »6 Tollgæslan fær pen- ingahund til afnota

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.