Morgunblaðið - 16.10.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019
S
V
I
#
H
I
N
N
S
A
E
NNN
I
ÞÚ FINNUR GJAFIR
FRÁ HINUM SANNA
SVEINKA INNI Í OG
UTAN Á DAGATALINU
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
hefur tengst hryðjuverkasamtökun-
um al-Qaeda nánum böndum.
Tyrkneski blaðamaðurinn Fehim
Tastekin segir að Tyrkir hafi sam-
einað vopnaða hópa bandamanna
sinna sem berjist undir merkjum
Sýrlenska þjóðarhersins svonefnda.
Á meðal þeirra séu hópar sem hafi
framið stríðsglæpi í árásum tyrk-
neska hersins og bandamanna hans
á byggðir Kúrda í norðanverðu Sýr-
landi á síðasta ári.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti 160.000 manns hafa
flúið heimkynni sín vegna innrásar
Tyrkja og bandamanna þeirra í
norðurhluta Sýrlands, að sögn emb-
ættismanna Sameinuðu þjóðanna.
Þeir segja að á meðal þeirra sem
hafa flúið séu um 70.000 börn.
Talið er að allt að 400.000 manns á
átakasvæðunum þurfi á hjálp að
halda á næstu dögum og vikum.
Nokkrar hjálparstofnanir hafa þurft
að stöðva starfsemi sína í norðan-
verðu Sýrlandi og flytja erlenda
starfsmenn sína á brott vegna átak-
anna og komu sýrlenskra hermanna
sem voru sendir þangað að beiðni
leiðtoga Kúrda.
Kúrdar teknir af lífi
Tugir óbreyttra borgara hafa beð-
ið bana, flestir þeirra í árásum
Tyrkja og bandamanna þeirra á
svæði Kúrda. Sprengjuárásir Kúrda
yfir landamærin á bæi í Tyrklandi
hafa einnig valdið manntjóni.
Sýrlensku lýðræðisöflin, bandalag
undir forystu hersveita Kúrda, segja
að sýrlenskir bandamenn Tyrkja
hafi tekið níu óbreytta borgara af lífi
við landamærin. Á meðal þeirra sem
voru líflátnir var Kúrdinn Hevrin
Khalaf, 35 ára aðalritari eins af
stjórnmálaflokkum Sýrlands. Kúrd-
ar segja að hópur bandamanna
Tyrkja hafi dregið Khalaf út úr bif-
reið ásamt bílstjóra hennar og tekið
þau af lífi á laugardaginn var.
Embættismenn mannréttindafull-
trúa Sameinuðu þjóðanna sögðust
hafa skoðað tvö myndskeið sem virt-
ust staðfesta að liðsmenn vopnaðrar
hreyfingar, Ahrar al-Sharqiya,
hefðu tekið fólkið af lífi. Hún er á
meðal hreyfinga sem taka þátt í inn-
rás Tyrkja í Sýrland.
Talsmaður mannréttindafulltrú-
ans sagði að slíkar aftökur á óbreytt-
um borgurum væru stríðsglæpur.
Hann varaði ráðamenn Tyrkja við
því að þeir kynnu að verða dregnir til
ábyrgðar fyrir þær.
Hreyfingar íslamista
berjast með Tyrkjum
Útlægir Sýrlendingar stofnuðu
Ahrar al-Sharqiya árið 2016. Margir
liðsmenn hreyfingarinnar voru áður
í hreyfingum íslamista, Ahrar al-
sham og al-Nusra, sem hafna lýð-
ræði og berjast fyrir stofnun ísl-
amsks ríkis. Síðarnefnda hreyfingin
Í Sýrlenska þjóðarhernum eru
m.a. liðhlaupar úr her Sýrlands og
einnig hópar sem börðust áður undir
merkjum Þjóðfrelsisfylkingarinnar
svonefndu, sem var undir forystu ísl-
amista. Tastekin segir að Banda-
ríkjaher eða leyniþjónustan CIA hafi
áður séð um 20 hópanna, sem styðja
Tyrki, fyrir vopnum og þjálfað þá.
Þessir hópar berjist nú við hersveitir
Kúrda sem Bandaríkjaher hafi einn-
ig vopnað og þjálfað.
Um 160.000
manns hafa
flúið árásirnar
Tugir óbreyttra borgara hafa látið
lífið í árásum Tyrkja og Kúrda
AFP
Sorg Syrgjendur við útför fimm liðsmanna Sýrlensku lýðræðisaflanna, bandalags undir forystu Kúrda. Þeir biðu
bana í átökum við tyrkneska herinn og bandamenn hans nálægt bænum Ras al-Ain, við landamærin að Tyrklandi.
Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska
þjóðarflokksins (SNP), sagði á lands-
fundi flokksins í gær að hún myndi
beita sér fyrir nýju þjóðaratkvæði
um sjálfstæði Skotlands á næsta ári.
Sturgeon er forsætisráðherra
skosku heimastjórnarinnar sem þarf
að óska eftir leyfi frá bresku stjórn-
inni til að efna til slíkrar þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Skotar höfnuðu
sjálfstæði með 55,3% atkvæða í
þjóðaratkvæði í september 2014 en
Sturgeon segir að bera þurfi málið
aftur undir skosku þjóðina vegna
væntanlegrar útgöngu Bretlands úr
Evrópusambandinu. Nær tveir
þriðju Skota voru andvígir útgöng-
unni í þjóðaratkvæðinu í Bretlandi í
júní 2016.
Sturgeon segir að útgangan verði
„mikið áfall“ fyrir Skotland og
kveðst ætla að óska eftir þjóðar-
atkvæðinu fyrir lok ársins. Skoðana-
könnun sem birt var um helgina
bendir til þess að um 50% Skota
styðji núna sjálfstæði Skotlands, um
fimm prósentustigum fleiri en í
þjóðaratkvæðinu árið 2014.
Talsmaður Boris Johnsons, for-
sætisráðherra Bretlands, sagði að
Skoski þjóðarflokkurinn hefði sagt
árið 2014 að slík atkvæðagreiðsla
færi aðeins fram einu sinni á manns-
aldri.
AFP
Á móti brexit Nicola Sturgeon á
landsfundi Skoska þjóðarflokksins.
Vill þjóðar-
atkvæði um
sjálfstæði
Sturgeon vill aðra
atkvæðagreiðslu